Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978
— Hlutafé aukið
Framhald af bls. 2
að bjóða öðrum og nýjum hluthöf-
um aukinn hlut á því verði, sem
hún ákveður.
Réttur hluthafa til að skrá sig
yfir hlutafjáraukningu þeirri, sem
að framan greinir, gildir til 1. júlí
1979, og er áskrift bindandi fyrir
hluthafa. Hlutaféð skal aukið
árlega um a.m.k. 100 milljónir þ.e.
á árunum 1979, 1980 og 1981.
Gjalddagi er 1. október hvert árið.
Sömu reglur gilda um hin nýju
hlutabréf og um annað hlutafé í
bankanum.
Líta ber á samþykkt þessa sem
efnislega breytingu á 4. gr. sam-
þykkta bankans nr. 154/1974, og
skal leita staðfestingar ráðherra á
breytingunni.
Hlutafé Verzlunarbanka íslands
h.f. verður því 500 milljónir króna.
Hluthafafundur getur ákveðið að
auka hlutaféð eftir sömu reglum
og gilda um breytingar á sam-
þykktum félagsins sbr. 34 gr.
Hluthafar allir sbr. 5. grein hafa
forgangsrétt til hlutafjárauka að
tiltölu við hlutafjáreign sína í
félaginu innan tímamarka, sem
greind verða í samþykkt um
aukningu hiutafjár. Nú neyta
hluthafar ekki forkaupsréttar
síns, og eru þá hlutabréfin boðin
til kaups með opinberu útboði eða
á annan hátt, eftir nánari fyrir-
mælum hluthafafundar.
Innborgað hlutafé er kr.
200.000.000 þ.m.t. jöfnunarhlutafé.
Híutaféð er allt jafn rétthátt."
„5. grein orðist svo:
„Hlutabréfin hljóða á nafn.
Hlutabréfin eru að nafnverði kr.
1.000, kr. 5.000, kr. 10.000, kr.
50.000, kr. 100.000 og kr. 500.000.
Hlutabréfin skiptast í flokka, og
bréf í hverjum flokki eru í
framhaldandi töluröð. A-flokks
hlutabréf tilheyra félagsmönnum í
Verzlunarráði íslands og Félagi
íslenzkra stórkaupmanna, en B-
flokks hlutabréf félagsmönnum í
Kaupmannasamtökum íslands.
Aðrir hluthafar sem ekki eru
meðlimir í ofangreindum samtök-
um, skulu fá hlutabréf A eða B,
eftir því á hverra vegum þeir
starfa innan greindra samtaka.
Arður af hlutabréfum skal
sendur hluthöfum í ávísun innan
mánaðar frá lokum aðalfundar."
Sýning í NH;
Börn og
umhverfi
KKÍIsst(M)um 20. marz.
SPURNINGAKEPPNI sveitar-
stjórna á Austurlandi lauk í
Valaskjálf í gærkvöldL Keppnin
fór fram á vegum ÚÍA og var
keppt á 5 stöðum með aðstoð
ungmennafélaga á hverjum stað,
er sáu um skemmtiatriði en
yfirumsjón keppninnar önnuðust
Sigurjón Bjarnason og Hermann
Níelsson.
Sigurvegari í lokakeppninni
varð sveitarstjórn Eiðahrepps og
veitti móttöku farandgrip, sem er
veglegur skjöldur, gefinn af Plast-
iðjunni II. Skjöldurinn er unnin af
Val Fannar. Alls tóku 17 sveitar-
stjórnir þátt í
spurningakeppninni.
— Steinþór.
Fyrirmenn
drepa hér
niður fæti
GASTON Thorn, forsætis-
ráðherra Luxemborgar, og Henri
prins af Luxemborg' höfðu við-
komu á Keflavíkurflugvelli í fyrra-
dag, en þeir voru á leið vestur um
haf til vesturstrandar Bandaríkj-
anna.
Mývetning-
ar sýna
Músagildruna
Bjiirk. Mývatnssveit — 20. marz.
UNGMENNAFÉLAGIÐ Mývetn-
ingur frumsýndi Músagildruna
eftir Agötu Christie í Skjólbrekku
s.l. laugardagskvöld. Leikstjóri var
Ragnhildur Steingrímsdóttir. Að-
sókn var ágæt og undirtektir
áhorfenda frábærar. í leikslok
bárust leikstjóranum blóm. Helztu
leikendur voru Hjörleifur Sigurðs-
son, Hrafnhildur Kristjánsdóttir,
Halldóra Jónsdóttir, Óli
Kristjánsson, Haukur Hreggviðs-
son, Sigrún Jóhannsdóttir,
Ásmundur Kristjánsson, Egill
Freysteinsson. Leiksviðsstjóri var
Ásmundur Jónsson. Næsta sýning
verður í Skjólbrekku miðvikudag-
inn 22. þ.m. Þá er einnig ráðgert
að sýna leikinn í nágrannasveitum
á næstunni.
— Kristján.
— Hæstiréttur
Framhald af bls. 2
Stefndi skal vera sýkn af kröfu
áfrýjenda um miskabætur.
Stefndi greiði áfrýjendum sam-
eiginlega 20.000 krónur til að kosta
birtingu dómsorðs og forsendna
dóms þessa í opinberum blöðum.
Birta skal dóm þenna, dómsorð
og forsendur, í 1. eða 2. tölublaði
dagblaðsins Þjóðviljans, sem
kemur út eftir birtingu hans.
Stefndi greiði áfrýjendum
150.000 krónur í málskostnað í
héraði og fyrir Hæstarétti.
Dóminum ber að fullnægja að
viðlagðri aðför að lögum.“.
Málið dæmdu varadómarar
Hæstaréttar, þeir Halldór Þor-
björnsson, yfirsakadómari,
Guðmundur Yngvi Sigurðsson,
hrl., Jón Finnsson, hrl., Unnsteinn
Beck borgarfógeti og Þorsteinn
Thorarensen borgarfógeti.
Þeir Halldór og Guðmundur
skiluðu sératkvæði, sem var svo-
hljóðandi:
„Við teljum að þar sem stefndi
er sekur fundinn um refsiverðar
ærumeiðingar í garð áfrýjenda,
beri að taka til greina kröfu þeirra
um miskabætur úr hendi stefnda,
en erum sammála atkvæði meiri-
hluta dómenda að öðru leyti.
Þar sem eigi er meirihlut fyrir
þeirri niðurstöðu að dæma miska-
bætur verður fjárhæð bóta ekki
ákveðin."
— Nauðgunarmálið
Framhald af bls. 48
hús í austurborginni. Þar fyrir
voru hinir piltarnir tveir og
eitthvað fleira fólk. Áfengi var
haft um hönd. Samkvæmt fram-
burði stúlkunnar gerðist það undir
morguninn að piltanir þrír leituðu
á hana. Hún kveðst hafa streitzt
á móti en ekki getað varizt
piltunum og hefðu þeir komið vilja
sínum fram gagnvart henni hver
af öðrum. Kveðst stúlkan hafa
sloppið frá piltunum við illan leik
á laugardagsmorguninn og var
atburðurinn þegar kærður til
lögreglunnar.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar mun einn piltanna hafa
áður komið við sögu hjá lögregl-
unni fyrir brot af sama tagi.
— Ná bátar
ekki...
Framhald af bls. 48
ar nota bannið til að láta afskrá
áhafnir skipa, þannig að bannið
yrði til þess að sjómenn yrðu einir
launþega teknalausir yfir páskana
af þessum sökum. Óskar Vigfús-
son, formaður Sjómannasam-
bandsins, sdgði m.a. að enda þótt
sjómenn styddu algjörlega
friðunaraðgerðir af þessu tagi
þætti þeim hart ef þeir ættu einir
að taka á sig tekjutapið sem
hlytist af því að útgerðirnar hefðu
í hyggju að láta afskrá áhafnir
þennan tíma er bannið stæði.
Fyrir lægi að sjómenn myndu ekki
fá einn aðgang að sjóðum, svo sem
aflatryggingasjóði, til að bæta sér
þetta tap og það ættu sjómenn
eðlilega erfitt með að sætta sig við,
sérstaklega með tilliti til þess
hversu tekjurýr vertíðin hefði
verið til þessa frá áramótum, þar
sem hásetar hefðu rétt haft
aflatrygginguna og vart meira í
sinn hlut. Hins vegar sagði Óskar,
að sér væri ljóst að útgerðin stæði
einnig höllum fæti af þessum
sökum, en hann teldi óréttlátt að
útgerðin og sjómenn þyrftu einir
að bera tekjumissinn sem af
banninu leiddi en ekki þjóðin öll.
Morgunblaðið sneri sér einnig
til Kristjáns Ragnarssonar,
formanns Landssambands ísl. út-
vegsmanna, og spurði hann nánar
um þetta atriði. Kristján sagði, að
það væri í sjálfu sér á valdi hvers
útgerðarmanns hvort hann léti
afskrá skipshafnir vegna þorsk-
veiðibannsins eða ekki, en hins
vegar hefði LÍÚ í bréfi gert
útgerðunum grein fyrir því hver
réttur þeirra væri í þessu efni, en
þeim væri tvímælalaust heimilt að
láta afskrá skipshafnir af þessum
sökum og það reyndar eðlilegt því
að hver skráningardagur væri
mjög kostnaðarsamur fyrir út-
gerðina. Kristján sagði ennfremur,
að nákvæmlega eins hefði verið
farið að í fyrri þorskveiðibönnun-
um tveimur og þá hefði ekki verið
hreyft neinum mótmælum af hálfu
sjómannasamtakanna.
— Hluti Líbanon
á valdi Israels
Framhald af bls. 1.
Fréttaritari Reuters á vígstöðv-
unum segir að ísraelskir hermenn
hafi sótt til staðar í um það bil
fjögurra kílómetra fjarlægð frá
Tyros sem Palestínumenn nota
fyrir birgðastöð. Heimildir í Tel
Aviv herma, að Israelsmenn hafi
ákveðið að reyna ekki að ná Tyros
á sitt vald þar sem slíkar aðgerðir
hefðu það í för með sér að barizt
yrði í návígi og mannfall yrði
mikið.
Palestínumenn í Tyros segja að
um 30 ísraelskir hermenn hafi
fallið þegar fjórum herflutninga-
bifreiðum var eytt með gagnskrið-
drekavopnum í nálægu þorpi. En
Israelsmenn sögðu að þeir hefðu
aðeins misst einn mann fallinn í
bardögunum í dag og þar með hafa
18 ísraelskir hermenn fallið sam-
kvæmt opinberum tölum síðan
innrásin hófst 14. marz.
Jafnframt er hernaðaraðstoð
farin að berast. palestínskum
skæruliðum og líbönskum stuðn-
ingsmönnum þeirra frá Irak.
Þaðan fór í dag 21 vöruflutninga-
bíll hlaðinn vopnum áleiðis til
Nabatiyeh, markaðsbæjar á valdi
Palestínumanna, um 30 km norð-
austur af Tyros.
I Damaskus ræddu utanríkis- og
landvarnaráðherrar svokallaðra
harðlínuríkja Araba um afstöðu
sína til gæzlusveita sem reynt er
að koma á laggirnar og ætlunin er
að senda til Suður-Líbanon. Margt
bendir til þess að Frelsissamtök
Palestínu (PLO) séu andvíg hug-.
myndinni.
Forsætisráðherra Israels,
Manachem Begin, fór í dag frá
New York til Washington þar sem
hann ræðir við Carter forseta um
aðgerðir Israelsmanna í Suð-
ur-Líbanon. Sambúð ísraelsmanna
og Bandaríkjamanna er sögð verri
en hún hefur nokkurn tíma verið
síðan í Súez-deilunni 1956. ísraels-
menn vilja fá vissu fyrir því að
fyrirhugað gæzlulið verði nógu
öflugt til þess að koma í veg fyrir
að Palestínumenn komi sér upp
nýjum bækistöðvum.
I New York var haft eftir
áreiðanlegum heimildum í aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna að
rúmur mánuður gæti liðið þar til
mestallt gæzluliðið tæki sér stöðu
í Suður-Líbanon þótt þegar hefði
verið hafizt handa um að koma
fyrstu sveitunum s«nan og líklegt
sé talið áð þær komi til Líbanon
bráðlega. Liðið verður skipað 4.000
mönnum og hlutverk þess verður
samkvæmt fyrirmælum Öryggis-
ráðsins að koma í veg fyrir að
bardagar brjótist út að nýju og
tryggja það að ekki komi til átaka
af nokkru tagi. Finnski hershöfð-
inginn Ensio Siiiasavuo verður
yfirmaður gæzluliðsins og hann
ræddi í dag ályktun Öryggisráðs-
ins við ísraelska embættismenn í
Jerúsalem.
I Beirút kemur sá uggur fram í
blöðum hægrimanna að hernám
Israelsmanna í Suður-Líbanon
geti leitt til nýrra bardaga líb-
anskra hægrimanna og palest-
ínskra skæruliða sem nú færa sig
norður eftir.
I Kaíró sagði egypzki aðstoðar-
utanríkisráðherrann, dr. Brutus
Ghaly, í dag að beinar viðræður
milli Egypta og ísraelsmanna um
frið í Miðausturlöndum væru enn
möguleiki þrátt fyrir innrásina í
Suður-Líbanon sem Egyptar hafa
fordæmt.
— Páfi veikur
Framhald af bls. 1.
kalla til lækni til að gefa
honum lyf svo hann yfirbugað-
ist ekki.-Talsmaður páfa sagði
í dag að hann væri nú rúmfást-
ur og tæki fúkkalyf gegn
inflúenzu og mundi ekki taka
þátt í neinum kirkjulegum
athöfnum næstu daga, en hins
vegar stæðu vonir til að hann
gæti messað á páskadag í
dómkirkju heilags Péturs eins
og undanfarin ár.
— Sigur frönsku
stjórnarinnar
Framhald af bls. 1.
d‘Estaing væri hinn raunverulegi
sigurvegari kosninganna. Blaðiö II
Tempo í Róm sagði, að Frakkar
hefðu í raun kosið Giscard, sam-
þykkt stefnu hans og hafnað
sameiginlegri stefnuskrá komm-
únista og sósíalista. Blaðið Corr-
iera della Sera sagði að franskir
vinstrimenn hefðu „framið sjálfs-
morð“ með þjarki sínu um stefnu-
skrána.
Svissneska blaðið 24 Heures
sagði, að Giscard forseti hefði
unnið einn mesta kosningasigur
sinn. Belgíska balðið La Libre
sagði að sósíalistaleiðtoginn
Francois Mitterand hefði beðið
mesta ósigurinn í kosningunum og
dró í efa hvort hann gæti komið
til greina sem frambjóðandi í
forsetakosningunum 1981.
Tass-fréttastofan sagði frá
úrslitunum athugasemdalaust en
stjórnarmálgagnið Izvestia hagði
eftir leiðtogum franskra vinstri-
manna, að úrslitin væru mikill
stuðningur við stefnuskrá þeirra. I
Washington drógu embættismenn
ekki dul á það að úrslitin væru
mikill léttir. I London sagöi
talsmaður brezka Verkamanna-
flokksins, að ósigur vinstrimanna
væri mikil vonbrigði en talsmaður
Ihaldsflokksins sagði að úrslitin
væru mjög uppörvandi og að
evrópukommúnismi hefði orðið
fyrir alvarlegu áfalli sem gæti ef
til vill riðið honum að fullu.
Þótt franska stjórnin hafi
öruggan þingmeirihluta eftir
kosningarnar óttast sumir að
verkalýðsfélög kommúnista og
jafnaðarmanna kunni að hefja
mikla herferð til þess að knýja
fram launahækkanir sem vinstri-
flokkarnir lofuðu í kosningabar-
áttunni.
Raymond Barre forsætisráð-
herra sagði um úrslitin, að þjóðin
hefði takið ótvíræða ákvörðun og
að sigur stjórnarinnar væri sigur
fyrir heilbrigða skynsemi. Barre
og Giscard d'Estaing vöruðu þjóð-
ina við því í kosningabaráttunni
að loforð vinstrimanna um að
hækka kaup um 37% mundi valda
efnahagslegu umróti. Giscard var-
aði við því að framtíð efnahagslífs
Frakka væri í hættu og skoraði á
fólk að kjósa og alls gengu 85%
kjósenda að kjörborðinu sem er
met. En sérfræðingar telja að ein
mikilvægasta skýringin á úrslitun-
um sé ótti margra við að kommún-
istar tækju sæti í ríkisstjórn eins
og kommúnistaleiðtoginn George
Marchais og jafnaðarmannaleið-
toginn Francois Mitterand sömdu
um.
Mitterand kenndi Marchais um
ósigurinh og sagði að. þjark
Jmmmm wm ■ ■ ■ ébéém ■hhéi íiiiibméihéé
kommúnista og Jafnaðarmanna í
sex mánuði um stefnuna sem þeir
ættu að fylgja ef þeir kæmust til
valda hefði fælt í burtu marga
kjósendur. Hann sagði að sagan
múndi dæma þá sem tóku á sig þá
ábyrgð án þess að hika að ganga
í lið með hægrimönnum í ofsa-
fengnum og stöðugum árásum á
Sósíalistaflokkinn.
Robert Fabre leiðtogi róttækra
vinstrimanna sagði, að hann teldi
sig ekki lengur bundinn af samn-
ingi vinstriflokkanna. Orð hans
eru túlkuð þannig, að hann geti
hugsað sér að vinna með stjórn
Giscards forseta.
Kommúnistaleiðtoginn
Marchais sagði, að úrslitin væru
að sjálfsögðu mikil vonbrigði
öllum þeim sem hefðu gert ráð
fyrir því að kosningarnar kæmu til
leiðar þeim breytingum sem mikil
þörf væri á.
í kosningunum fengu gaullistar
145 þingsæti, fleiri en nokkur
annar flokkur, en Lýðræðisbanda-
lagið (UDF) sem fylgir Giscard að
málum fékk litlu færri þingsæti
eða 137 alls. Sósíalistar fengu 112
þingsæti en kommúnistar 86.
Úrslit eru ekki kunn í fjórum
kjördæmum utan Frakklands.
— Moro fyrir
dómstól
Framhald af bls. 1.
allri stétt stjórnmálamanna á
Ítalíu".
Barbaro dómari frestaði réttar-
höldunum til morguns vegna
ókyrrðar í dómssalnum þegar
lesnar höfðu verið upp formlegar
ákærur sem geta haft það í för
með sér, að sakborningarnir verði
dæmdir í allt að 20 ára fangelsi.
Jafnframt var frá því skýrt í
Róm að ekkert hefði orðið ágengt
í hinni miklu leit að Moro og
ræningjum hans tólf. Fundizt
hefur bifreið sem mann-
ræningjarnir notuðu á flóttanum.
Hún var ekki langt frá þeim stað
þar sem Moro var rænt og því er
talið að mannræningjarnir séu
ennþá í nágrenninu.
Stjórnin í Róm viðurkenndi að
ítalir og Þjóðverjar hefðu tekið
upp beint tölvusamband til að
flýta fyrir upplýsingaskiptum um
hryðjuverkamenn og að tveir
vestur-þýzkir sérfræðingar væru
komnir til Rómar til að hjálpa við
leitina. Einnig er rannsakað
hugsanlegt samstarf hryðjuverka-
hópa í ýmsum Evrópulöndum.
Skrifstofa saksóknara í Torino
fékk í dag bréf sem sagt er að sé
frá Brunilde Pertramer, ítalskri
stúlku, sem er ein þeirra 16, sem
hefur verið lýst eftir vegna ránsins
á Moro. Stúlkan heldur því fram,
að hún sé engan hátt viðriðin
Rauðu herdeildina og að hún hafi
ekki einu sinni verið í Róm þegar
Moro var rænt. Komið hefur í ljós
í rannsókninni, að ungfrú
Pertramer dvaldist í Dólomíta
Ölpum 5. til 16. marz, ásamt
þýzkum ferðamönnum.
í Róm kvaddi Giulio Andreotti
forsætisráðherra innanríkismála-
ráðherra, landvarnaráðherra og
dómsmálaráðherra stjórnarinnar
á sinn fund og boðaði til stjórn-
arfundar á morgun um vaxandi
hryðjuverk í borgum ítaliu. Þeirri
kröfu vex nú fylgi, að dauðadómar
verði aftur leiddir í lög og jafnvel
að herlög verði látin taka gildi,
svo og útgöngubann.
I Flórenz fóru nokkur hundruð
vinstrisinnar í mótmælagöngu í
dag til að minnast tveggja vinstri-
öfgamanna sem voru skotnir til
bana í Mílanó um helgina og
hrópuðu: „Frelsið Curcio.“
— Kína hafnar
Rússum...
Framhald af bls. 1.
mánuði lagt til við Kínverja að
viðræður færu fram milli land-
anna í því augrfemiði að ná
samkomulagi um nokkur grund-
vallaratriði í samskiptum ríkj-
anna. Tass segir að Kínverjar hafa
svarað þessum tilmælum með því
að endurtaka nokkur óaðgengileg
skilyrði fyrir siíkum viðræðum.