Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 41 + Leikarinn Danny La Rue, sem nú er fimmtug- ur, hefur alla tíð verið sérstaklega flughræddur. En það getur ekki verið gott fyrir mann, sem mikið þarf að ferðast. Hann telur sig hafa tap- að um 50 milljónum ísl. króna vegna flughræðslu sinnar, því ekki er hægt að eyða miklum tíma í að ferðast á milli með lest- um og skipum. En nú hefur hann unnið bug á flughræðslunni, og það á hann þolinmóðum vini að þakka. en hann hefur gert allt sem hann getur til að hjálpa La Rue til að yfirstíga óttann. Fyrir skömmu flaug hann frá London til Parísar og aftur til baka. Og að ferðinni lokinni sagði La Rue. „Þetta var ævintýri líkast, og stórkostleg upplifun.“ + Kitty Milinaire, tengdadóttir hertog- ans af Bedford, hefur nú lofað að hætta öllu f járhættuspili. Og von- andi stendur hún við það, eiginmannsins vegna. A síðustu þrem- ur árum hefur henni tekist að tapa IV2 millj- arði við spilaborðin í London. Hún hefur haft allar klær úti til að reyna að borga spilaskuldir sínar. Og er jafnvel grunuð um að hafa stolið 2 demantshringum að verðmæti um 90 millj- ónir króna frá Car- Car-tier-skartgri pa- verslun í London. Hún segir þetta vera sjúk- dóm. „Ég verð spila- sjúk ef ég smakka áfengi og tapa alltaf. + Kongafólk er vinsælt myndefni, og Karl Bretaprins hefur vissulega ekki farið varhluta af því. Og virðist raunar vera í sérstaklegu uppáhaldi hjá ljósmyndurum. Þessi mynd var tekin af honum. þegar hann reyndi að hjóla á gömlu hjóli, sem var á safni sem hann skoðaði. Og eftir tilburðunum að dæma gekk það ekkert allt of vel. Nýjasta nýtt! Jackie Onassis á einn, Paye Dunawa.v á firnm, Goldie Hawn hefur keypt fimmtíu og allir sem vilja fylgjast með tískunni hafa keypt sér einn eða pantað fyrir löngu. Það, sem um er að ræða, eru Concorde-jakkar, sem nú eru orðnir tískuvara fyrir tilstilli eins af tískufröm- uðum Newr York borgar. Jakk- arnir eru venjulegir flug- mannajakkar, en það sem skiptir öllu máli er Con- corde-merkið á hægri erminni og merki British Airways á brjóstinu. Sé þetta tvennt til staðar seljast jakkarnir eins og heitar lummur og fyrr ekki. fclk f fréttum mm&mWi 1 Bráðfyndnar og skemmtilegar myndasögur úr íslenzku atvinnulífi, eftir Gísla J. Ástþórsson. FÆST Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ JAFNT FYRIR UNGA SEM ALDNA. Skínandi pottar og pönnur með Brillo stálull með sápu Úrvals japanskir höggdeyfar í allar gerðtr Maida bifreiða Ótrúlega lógt verð Höggdeyfar að framan kr. 5.990 pr. st. Höggdeyfar að aftan kr. 4.990 pr. st. BÍLABORG HF SMIÐSHÖFÐA 23 - VARAHLUTAVERSLUNIN - SÍMI 81265

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.