Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 48
au<;lysin<;asíminn er: 22480 llforgtmbbtblfe au<;lVsin<;asíminn er: 22480 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 Ljósm. Frióþjófur. Piltarnir þrír í gæzluvarðhaldi PILTARNIR þrír, sem 17 ára gömul stúlka kærði fyrir grófa nauðgun s.l. laugardagsmorgun, voru úrskurðaðir f allt að 10 daga gæziuvarðhald í sakadómi Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum Rann- sóknarlögreglu ríkisins mun stúlk- an hafa hitt einn þessara pilta á föstudagskvöldið við Umferðar- miðstöðina og farið með honum í Framhald á bls. 30. Hret á vorjafndœgri Trúi því ekki að 3ja sætið sé í hættu Ná bátar ekki netum úr sjó fyrir veiðibannið Sjómenn óánægðir með að vera afskráðir vegna bannsins ÓTÍÐIN siðustu daga hefur vald- ið því að netabátar víða á Suðvesturlandi hafa ekki getað vitjað um net sín og kann þetta að geta valdið vissum erfiðleikum, þegar fara á að framfýlgja þorskveiðibanni því sem gildi tekur á hádegi í dag og standa skal í eina viku eða til hádegis 28. marz n.k. Þá hefur Landssamband ísl. útvegsmanna gert útgerðarmönnum báta grein fyrir, að ekkert sé því til fyrir- stöðu að þeir láti afskrá skips- hafnir mcðan bannið stendur en þetta hefur aftur valdið óánægju innan sjómannasamtakanna. Þetta er í þriðja sinn sem þorskveiðar eru stöðvaðar um tíma með þessum hætti að boði sjávarútvegsráðuneytisins og í fyrsta sinn á þessu ári. Að sögn Þórðar Ásgeirssonar, skrifstofu- stjóra sjávarútvegsráðuneytisins, eru horfur á að flest þorskveiði- skip muni stöðva allar veiðar meðan á banninu stendur, en skipunum er heimilt að stunda veiðar á öðrum fisktegundum. Þá munu einhver skip nota þennan tíma og sigla með afla til útlanda. Þórður kvaðst hafa trú á því að samstaða væri meðal sjómanna á fiskveiðiflotanum um að virða bannið, en tók þó fram að upp virtist vera komið vandamál vegna netabátanna á sunnanverðu landinu. Þar hefði verið hið versta veður undanfarna tvo daga og bátarnir því ekki haft það af að ná öllum netum úr sjó, þannig að einhverjir bátar kynnu enn að eiga neit í sjó þegar þorskveiðibannið skylli á. Þórður sagðist þó gera ráð fyrir að tekið yrði tillit til þessa og þessum bátum, sem þarna um ræddi, veitt leyfi til að vitja um netin, enda þess þá gætt áð einungis yrði um þessi eftirlegunet að ræða. I samtölum við forsvarsmenn sjómannasamtakanna, bæði Sjómannasambands íslands og Farmanna- og fiskimannasam- bands tslands, kom fram að þeir hafa áhyggjur af því ef útgerðirn- Framhald á bls. 30. — segir Steinþór Gestsson alþingis- maður um D-listann á Sudurlandi „ÉG TRÚI því ekki að þriðja sætið sé í neinni hættu,“ sagði Steinþór Gestsson, alþingis- maður, er Morgunblaðið spurði hann um hverjum augum hann liti framboðstista Sjálfstæðis- flokksins á Suðurlandi, en hann var ákveðinn um helgina. „Ég held að önnur röðun hefði verið sterkari og eðlilegri.“ Eggert Haukdal, bóndi á Bergþórshvoli, sem skipar fyrsta sæti listans, sagðii „Niðurstaðan er að skipan listans varð hin sama og verið hefur frá þvf er núverandi kjördæmaskipan tók gildi. Ég vona að menn sameinist nú um þennan lista og sjálfstæðismenn vinni sem einn maður að sigri hans f kosningunum.“ í efsta sæti listans er Eggert Haukdal, fulltrúi Rangæinga. í öðru sæti er Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri, fulltrúi Vest- mannaeyinga, og í þriðja sæti er Steinþór Gestsson, alþingismaður og bóndi á Hæli í Gnúpverja- hreppi, fulltrúi Árnesinga. I fjórða sæti er síðan Siggeir Björnsson, bóndi í Holti á Síðu. í síðustu kosningum hlutu þrír menn kosningu af lista Sjálf- stæðisflokksins, Ingólfur Jónsson, ' alþingismaður, Hellu, Guðlaugur Gíslason, alþingismaður, Vest- mannaeyjum, og Steinþór Gests- son, alþingismaður, Hæli, Gnúp- verjahreppi. Skýrt er frá framboðslistanum á miðsíðu Mbl. í dag. Framboðslisti S j álfstæðism anna í Reykjaneskjör- dæmi ákveðinn FRAMBOÐSLISTI sjálfstæðis- manna í Reykjaneskjördæmi hefur verið birtur. Röð þiggja efstu manna er óbreytt frá því í síðustu kosningum, — Matthí- as Á. Mathiesen, fjármálaráð- herra, í efsta sæti, þá Oddur Olafsson, alþingismaður, og Ólafur G. Einarsson, alþingis- maður, í þriðjá sæti en fjórða sæti tekur nú Eiríkur Alex- andersson, bæjarstjóri Grinda- vík, í stað Axels Jónssonar, alþingismanns, sem dregur sig í hlé og skipar nú síðasta sæti listans. í 5. sæti listans er Salóme Þorkelsdóttir, en að öðru leyti er listinn birtur í heild«á bls 29. Rúmt kíló af hassi var gert upptækt LIÐLEGA tvítugur maður var á laugardag úrskurðaður í allt að 30 daga gæzluvarðhald vegna rannsóknarinnar á hinu um- fangsmikla ffkniefnamáli, sem Fíkniefnadómstóllinn og fíkni- efnadeild lögreglunnar í Reykja- vík hafa haft til meðferðar undanfarnar vikur. Sitja þá tveir menn inni vegna rannsóknar málsins og hefur annar þeirra setið í gæzluvarð- haldi síðan í byrjun janúar. Svo sem áður hefur komið fram í fréttum er hér um að ræða smygl á nokkrum kílóum af hassi til landsins, aðallega í notuðum sjónvarpstækjum. Nýlega gerði lögreglan upptæk 1,3 kg af hassi í - sambandi við rannsókn þessa máls. Hclgi Kristjánsson skipstjóri á Karlsefni. Metsala hjá Karlsefni í Cuxhaven: 412 krónur fengust fyrir kílóið af karfa TOGARINN Karlsefni frá Reykjavík seldi 112 tonn af mjög góðum f.iski í Cuxhaven í gærmorgun og fékk fyrir afl- ann hærra verð en nokkurt íslenzkt skip hefur fengið erlendis eða 325,60 krónur fyrir hvert kíló að meðaltali. Uppistaðan í aflanum var karfi og fékkst fyrir hann geypihátt verð eða 412 krónur fyrir kílóið af stærsta og bezta karfanum. Er jafnvel talið að sala Karls- efnis sé ein sú hæsta, sem um getur í heiminum á ferskum fiski upp úr sjó. Skipstjóri á Karlsefni er kornungur maður, Helgi Kristjánsson, 24 ára gamall. Samkvæmt upplýsingum Ágústs Einarssonar hjá LIÚ fékk Karlsefni 291,500 þýzk mörk fyrir aflann eða 36,4 milljónir króna. Sem fyrr segir var uppistaðan í aflanum karfi og var verðið á honum á bilinu 325 til 412 krónur. Einnig var þorskur, ýsa, ufsi og langa í afla togarans en lægra verð fékkst fyrir þessar fisktegundir. Ágúst Einarsson sagði að það væri aðallega þrennt, sem ýtti undir þessa einstöku sölu Karls- efnis. í fyrsta lagi skorti mjög karfa á markaðnum í Þýzka- landi, í öðru lagi væri páska- helgi framundan og í þriðja lagi hefði veður hamlað veiðum í Norðursjó að undanförnu og því væri mikil eftirspurn eftir fiski á markaðnum. Ennfremur hefði það mikið haft að segja að gæði fisksins voru mjög góð. Togarinn Rán frá Hafnarfirði selur í Cuxhaven í dag og er uppistaðan í aflanum karfi. Þá selur togarinn Ólafur Jónsson frá Sandgerði í Hull í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.