Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 ^ ^ #% #% #% V,#' V,#' BOLTAR FYRIR • * ■*' 'JL '>£. JON OG ÁRNA FRAMARAR ætla ekki að brenna sig á sama soðinu og Skagamenn í sambandi við félagaskipti leikmanna frá félaginu yfir til Svíþjóðar. Sem kunnugt er hafa þeir Árni Stefánsson og Jón Pétursson ákveðið að leika með Jönköping í 2. deildinni í Svíþjóð á næsta keppnistímabili. Til að hafa allt á hreinu hafa Framarar sett þau skilyrði fyrir félagaskiptunum að þegar samningstími þeirra félaga við sænska liðið er liðinn geti þeir komið heim til íslands og byrjað að leika með Fram án þess að neinar fjárkröfur komi frá Jönköping eins og gerzt hefur með Matthías Hallgrimsson. Höfðu Framarar og stjórn KSÍ samvinnu um þetta mál og í lok síðustu viku barst bréf frá Svíunum þess efnis að þeir muni engar slíkar kröfur gera að loknu samningstímabili þeirra Jóns og Árna. Jón er þegar farinn utan, en Árni Stefánsson fer í lok vikunnar. Framarar fá ekkert í sinn hlut við félagaskipti þessara leikmanna og er það í rauninni fráleitt þegar haft er í huga hversu dýrmætir þessir leikmenn eru félaginu og hve miklu Fram hefur fórnað til að gera þessa leikmenn eins sterka og þeir eru. Þetta er þó ekkert nýnæmi en minnir okkur enn á hve langt við erum á eftir nágrannaþjóðunum í þessu sambandi. Héðan geta leikmenn horfið á miðju keppnistímabili án þess að nokkuð verði að gert. Undirritaður er ekki að hvetja til þess að átthagaf jötrar verði settir á knattspyrnumenn, unga menn, sem nota knattspyrnuna sem vegabréf til að litast um annars staðar og e.t.v. til að drýgja tekjur sínar með þessu helztu áhugamáli sínu. En það er eigi að síður fáránlegt að Framarar skuli fá senda 25 fótbolta fyrir þessa tvo landsliðsmenn sina eins og Svíarnir sendu Fram bréf upp í síðustu viku. Skyldi Árni og Jón ekki vera Fram meira virði en 25 tuðrur þó svo að boltarnir séu ómissandi í íþróttinni? Það er líka fáránlegt að Skagamenn skuli eiga að borga Halmia fyrir Matthías samkvæmt kokkabókum Svíanna, auðvitað ætti það að vera á hinn veginn. KSÍ verður að sporna við fótum og það fyrr en seinna. Nú eru Danir búnir að taka upp atvinnuknattspyrnu og þess verður varla langt að bíða að þeira fari að seilast eftir íslenzkum leikmönnum í auknum mæli. ísland á t.d. landsleik gegn Dönum snemma ísumar, skyldu ekki einhverjir „kaupmenn“ fylgjast með þeim leik? Það verður að tryggja félögunum eitthvert öryggi og þau verða að fá eitthvað fyrir sitt starf. „Munum krefjast þess að Matthías verði úrskurðaður löglegur með ÍA" — OKKUR finnst það hreint og beint fáránlegt að Ilalmia skuli gera fjárkröfur á okkur vegna félagaskipta Matthíasar Hallgrímssonar, sagði Gunnar Sigurðsson, formaður Knattspyrnuráðs Akraness, í samtali við Morgunblaðið í gær. Eins og kunnugt er hefur Halmia neitað að samþykkja félagaskipti Matthíasar nema Akurnesingar greiði Halmia ákveðna fjárupphæð. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins nema kröfurnar 1.1 milljón króna. , — Matthías er alinn upp hjá.ÍA sem knattspyrnumaður og þegar hann fór frá okkur á miðju keppnistímabili 1976 fengum við ekki krónu frá þessu saenska félagi, sagði Gunnar. — Það hefði þó ekki verið ósanngjarnt að við hefðum fengið eitthvað í okkar hlut við þessi skipti, en slíkt hefur ekki tíðkast hér á landi og því voru engar slíkar kröfur gerðar á hendur Svíunum. Slíkt er í raun- inni fásinna, en sýnir aðeins hve mikil börn við höfum verið í sambandi við þessa hluti. — Það kemur ekki til greina að við borgum þessum mönnum krónu vegna heimkomu Matta. Samningur hans við Halmia rann út um áramót og hann er því laus allra mála gagnvart félaginu. Við munum hins vegar á næstunni gera kröfu til ÍSI eða KSÍ um að Matthías verði úrskurðaður lög- iegur með ÍA, svo fremi sem Svíarnir falla ekki frá kröfum sínum á næstu dögum, sagði Gunnar. Hann bætti því við að mikill hugur væri í knattspyrnu- mönnum Akraness um þessar- mundir, æfingar væru mjög vel sóttar af stórum hópi og meðal þeirra, sem æfðu allra bezt, væri Matthías Hallgrímsson. Skagamenn hafa falið Ellert B. Schram, formanni KSÍ, að annast þessi mál fyrir sig gagnvart Svíunum. Fór Ellert til Svíþjóðar fyrir skömmu þar sem hann ræddi meðal annars við stjórnarmenn í sænska knattspyrnusambandinu og Halmia. Sagði Ellert við heimkomuna að kröfur Svíanna væru algjörlega óaðgengilegar og ef ekki tækist að leysa þessi mál í bróðerni yrði leitað tjl Alþjóða knattspyrnusambandsins og kann- að hvaða rétt Halmia hefði til slíkra fjárkrafna. Þess má geta, að er Teitur Þórðarson skipti um félag innan Svíþjóðar fyrir skömmu greiddi nýja félagið um 3 milljónir ís- lenzkra króna Jönköping fyrir leikmanninn. - áij Gott gengi ungling- anna í æfingaleikjum UNGLINGALANDSLIÐIÐ í knattspyrnu æfir stíft um þessar mundir og hefur á síðustu dögum leikið fjóra æfingaleiki. Ekki verður annað sagt en að liðinu hafi gengið vel í þessum leikjum, þrír þeirra hafa unnizt. en einn tapast og markatalan úr leikjunum er 14i4 unlingunum í dag. Fyrir viku lék liðið við KR og tapaði 0.2, en daginn eftir vann liðið stórsigur á FH-ingum, 5.0. Um síðustu helgi lék liðið við Stjörnuna á laugardag og vann 7.0 og síðan Fram 2.1 á sunnudag. Á æfingum unglingalndsliðsins núna eru allir sömu leikmenn og tryggðu sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni EM með sigri og jafntefli á móti Wales á síðasta hausti. Einn leikmaður dettur þó úr þeim hópi, Þróttarinn Páll Ólafssóri, sem dæmdur var í leikbann af UEFA í haust. Fimm leikmönnum hefur verið bætt í hópinn, þannig að 20 leikmenn berjast nú um sæti í liðinu, sem fer til Póllands. Keppnin í Póllandi byrjar 5. maí, en þá ættu flestir leikmenn íslenzka liðsins að vera í miðjum prófönnum. Er því unnið að því þessa dagana að fá prófum þeirra flýtt eða frestað. Ekki er enn ljóst hvaða lið leika með íslandi í úrslitum EM, en þó er nokkurn veginn öruggt að Belg- Unglingalandsliðshópurinn. sem tryggði sér þátttöku í úrslita- keppni EM í Póllandi í mafmánuði næstkomandi. ar verða eitt af liðunum í riðli Islands. Hin liðin tvö verða annað hvort Júgóslavar eða Rúmenar og Tékkar eða Rúmen- ar. Unglingalandsliðið æfir alltaf á þriðjudögum um þessar mund- ir, en auk þess eru tveir leikir um helgar. Til að mynda er stefnt að leikjum við Val og Víking um páskahelgina. Ekki er heiglum hent að ná unglinga- lndsliðinu saman þar sem nokkrir leikmannanna búa utan Reykjavíkur. Þannig þarf Kristján Olgeirsson, fyrirliði liðsins, að fljúga frá Húsavík um hverja helgi og Ómar Jóhannsson frá Vestmannaeyj- um. Frá Laugarvatni kemur síðan Selfyssingurinn Heimir Bergsson til leikjanna. Unglingalandsliðið er með happdrætti í gangi og er m.a. ætlunin að unglingalnndsliðið verði fatað upp fyrir fé það, sem fæst af happdrættinu. Reið unglingalandsliðið einmitt á vaðið rfyrra er keypt voru eins föt á alla leikmenn liðsins áður en haldið var í úrslit EM þá. Vakti íslenzka liðið athygli fyrir smekkleg föt og góða framkomu, en því miður hefur nokkuð skort á slíkt hjá mörgum íþrótta- flokkum, sem farið hafa út fyrir landssteinanna. —áij. - SKAGAMENN hófu knattspyrnu- yertíðina meö pvi að vinna FH 3:1 í fyrsta leik Litlu bikarkeppninnar í Hafnarfirði á laugardaginn. Það var ekki fyrr en á síðustu mínútum leiksins að ÍA náði undirtökunum í leiknum og skoraði þá tvö mörk. Pátur Pátursson gerði 2 af mörkum Skagamanna, Matthías Hallgríms- son eitt. í keppni b-liöa fólaganna varð jafntefli 1:1 og í peim peik var Það Helgi Benediktsson, leikmaður Þróttar á Neskauðstað, sem skoraði fyrir Hafnfirðinga. - HÁLFDÁN Örlygsson opnaði markareikning sinn með Val er hann skoraði 2 af 5 mörkum Vals í æfingaleik við Hauka á laugardag- inn. Urslitin urðu 5:0 fyrir Val og auk Hálfdáns skoruðu Magni Pétursson, Ingi Björn Albertsson og Guðmund- ur Þorbjörnsson mörk Valsmanna. - ÞRÓTTAR AR unnu KR 1.-0 í æfingaleik á laugardaginn og skor- aði Arsæll Kjartansson eina mark ieiksins. Á sunnudaginn léku Þrótt- arar síðan á móti Víkingi og varð jafntefli, bæði lið skoruðu 2 mörk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.