Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 31 Akstur íhálku Ef framhjól skríða til f beygjum Þegar framhjól skrfða til f beygjum eða þegar beygt er svo að bfllinn lætur ekki að stjórn, fá framhjólin ekki nægilegt viðnám við veginn, meðal annars vegna þess að of mikið er be.vgt. Þá skaltu kúpla frá og ekki snerta hemlana, þvf þá festast framhjólin og stýring er óhugsanleg. Minnkið stýringu þótt ykkur þyki það áhættusamt vegna beygj- unnar og takmarkaðs rýmis að vegarbrúninni. Þá minnkar beygjuátak framhjólanna og þau þurfa ekki eins mikið viðnám. Reynið sfðan að stýra létt f fyrirhugaða akstursstefnu með eins gleiðri beygju og hægt er. Það sama á við hvort maður er innanvert eða utanvert f beygju eins og mvndirnar sýna. 1. Afturhluti bílsins srfcríóur ul hiiður. 2. Kuplað sunclur. Snúið styrinu samtímis til þeirrar hliðar sem billinn skríður 3. Réttið rólega framhjóiin i akstuf sstefnuna Ef híllinn byrjar að skrfða til hliðar. Þá verður strax að kúpla sundur svo vélin verði hlutlaus á meðan verið er að rétta bflinn af eða ná tökum á stjórn hans. Snertið hvorki heimii né inngjöf. I flestum tilfellum er hægt að rétta bílinn af þegar hann skríður til að aftan með þvf einu að snúa stýrinu snöggt en létt í þá átt sem afturhlutinn skriður og siðan stýra í fyrirhugaða aksturs- stefnu. Þá munu afturhjólin fylgja á eftir og þá sérstaklega ef kúplað er sundur, annars veitir hraðaminnkun vélarinnar viðnám. Þess verður að gæta þegar verið er að rétta bflinn af í aksturs- stefnuna að sveiflan verði ekki svo öflug að afturendinn skríði til hinnar hliðarinnar. Þegar tekist hefur að ná stjðrn á stýrinu og stefnu hílsins er kúplað saman á ný og samtfmis stigið hæfilega á inngjöf. Of snöggt kúplað saman (og snögg mótslaða frá vél f hægagangi) og of mikil inngjöf (of mikil inngjöf, of mikil sp.vrna) getur hvort tveggja valdið nýju hliðarskriði. (Prá umferðarrádi) — Leiklist undir rauðum fána Framhald af bls. 19 verksins. Guðrún Svava Svavarsdóttir hefur af kunnri smekkvísi annast leiktjöld og búninga og ekki verður fundið að þýðingu leikritsins. Að lokum skulu hinir upprennandi leikar- ar nefndir, en þeir eru Kristín S. Kristjánsdóttir, Hanna M. Karlsdóttir, Andrés Sigurvins- son, Margrét Ólafsdóttir, Ragn- heiður Elfa Arnardóttir, Emil Gunnar Guðmundsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Sigfús Már Pétursson, Gunnar Rafn Guðmundsson, Þröstur Guð- bjartsson, Björn Karlsson og Gerður Gunnarsdóttir. — Athugasemd Framhald af bls. 15 fiskverðs hjá fiskvinnslufyrir- tækjum frá 1967 er því um 2474% á þessari fisktegund og stærð. Varðandi . tímakaup í fisk- vinnslunni, þá var algengasta kaup í árslok 1977 um 663 kr. pr. klst., en ekki 558 kr. eins og Sigfús heldur fram. Af framansögðu er ljóst, að þegar öll meðferð talna er á þann hátt, sem framan greinir, þá eru einnig niðurstöðurnar rangar. Því má bæta hér við, að samkvæmt skýrslum Þjóðhags- stofnunar, álítur hún að höfuðor- sök rekstrarvanda fiskvinnslunn- ar sé misræmi í þróun innlends og erlends verðlags, en þar við bætist staðbundinn vandi, sem orsakast m.a. af aflaleysi og/eða lélegri samsetningu þess afla, sem landað er. F.h. samstarfsnefndarinnar, Hjalti Einarsson. — Skák Framhald af bls. 16 þó hann fái ekki nema hrók og biskup í staðinn frekar en að láta riddarnum eftir hinn sterka reit á f5. Taflið gerist nú æði flókið, hvítur uggir ekki að sér og teflir framhaldið ekki nógu nákvæmt m.a. vegna tíma- Qktirtc j 26. Hxcl - Bxcl, 27. Bxb5 (Eflaust rétt ákvörðun því svarti riddarinn hefði getað orðin hinn öflugasti) 27. . . . axb5. 28. Hc2? (Betra strax 28. Dd3 — Hc4, 29. Dbl!) 28. . . Bg5, 29. Dd3 - Hc4, 30. g3 - e4, 31. De2 - Í5, 32. a4?? (Eftir þennan leik hefur hvítur enga von um sigur í skákinni. Miklu betri kostur virðist vera 32. h4 — Bf6, 33. a4!. Svarur brýzt nú skemmtilega í gegn sem tryggir honum jafntefli) 32. . . . Hxa4,33. Dxb5 - Hhl, 34. Kg2 - h4, 35. Dxb7 - Kf6 (Nákvæmara var 35 . . . Kf8) 36. f4 — Bxf4!! (Ótrúlega öflugur leikur því svörtu hrókarnir reynast vera fullkom- lega jafnokar hvíta liðsins). 37. gxf4 - Hg8, 38. Kf2 (Ekki 38- Kh3 vegna 38. . . Hfl og svarur vinnur) 38. . . Hggl, 39. Db8 - Kg7, 40. Dxd6 — h3! (Svartur er sífellt með hótanir, nú hótar hann að vinna hrók með Hg2) 41. De5 - Kg6, 42. Ke3 - IIad3! (Lokar öllum útgöngu- leiðum fyrir hvíta kónginn) 43. Hd2 - Hgel, 44. Kf2 - IHl. 45. Ke3 - Hfel. 46. Kf2 - Hfl, 47. Ke3 Jafntefli! Að lokum stutt skák úr 4. umferð. Hvítti Jóhann Örn Sigurjóns- son. Svarti Björn Sigurjónsson. Pric — vörn. 1. e4 - g6, 2. d4 - Bg7, 3. Rc3 - c6, 4. Bc4 — e6? (Betra 4 . . . b5) 5. e5! - d5?, 6. exd6 - Dxd6, 7. Re4 - Db4?, 8. c3 - De7, 9. Bf4 - Rf6, 10. Rd6 - Kd8, 11. Rf3 - Rbd7, 12. Rg5 - Hf8, 13. Rdxf7 - Hxf7, 14. Bd6! Gefið. Svarta drottningin er fönguð. Hvítur færir sér í nyt á snotran hátt veikleika svarts. Ef 14. . . . De8, 15. Rxe6. Lokastaðan. Kópavogsbúar Úrvals kjötvörur í páskamatinn Svínakjöt Leyft verö Okkar verö Læri ný ................................... 1882 1690 Hlutar úr læri ............................ 1993 1890 Lærissneiðar .............................. 3458 3390 Bógar/hringskornir ........................ 1882 1680 Svínahnakki/ reyktur, úrbeinað ............ 3438 3180 Kótilettur ................................ 3588 3480 Hamborgarhryggur .......................... 4410 3900 Svínahakk ................................. 2169 1980 Nautakjöt Leyft verö Okkar verö Snitchel 4590 3650 Gullach 3533 2790 Roast-Beef 3925 3510 Fille og mörbráð 4395 Hakk 2260 1890 Folaldakjöt Buff 2180 Gullach 1960 Hakk 890 Reykt 880 Saltaó 690 Úrvals hangikjöt Lamba Hamborgarhryggir London Lamb 2900- pr. kg. Rjúpur 1000- pr. st. Kjúklingar 1190- pr. kg. Opið til kl. 10 miðvikudag. Opið kl. 9—12 laugardag fyrir páska. V VÖRÐUFELL Þverbrekku 8, Kópavogi Símar: 42040 og 44140.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.