Morgunblaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 5
< « MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRIL 1978 Þ jóðleikhúsið: Laugar dagur, sunnudagur, mánudagur í KVÖLD verður frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins ítalski gaman- leikurinn Laugardagur. sunnudag- ur, mánudagur eftir Eduardo de Fiiippo í þýðingu Sonju Diego og leikstjórn Gunnars Eyjólfssonar. Leikmynd gerir Sigurjón Jóhannsson. Leikritið gerist á okkar dögum á heimili ítalskrar fjölskyldu í Napolí og hefst á laugardegi, þegar húsmóðirin er að undirbúa helgar- máltíðina, ragú-ið sitt víðkunna. Við fylgjumst síðan með því sem gerist á heimilinu þessa helgi og koma þar fjöldi persóna við sögu: hjónin og börn þeirra þrjú, tengdabörn og vaentanleg tengdabörn, afinn, frænd- ur og frænkur, þjónustufólk og nágrannar. Er óhætt að segja að leikritið sé gamansöm, litrík og lífleg mannlífslýsing, þar sem hver at- burðurinn rekur annan bæði hvers- dagslegir og óvenjulegir. Alls koma 17 leikarar fram í sýningunni. Með stærstu hlutverk fara Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson, sem leika hjónin, Rósu og Peppino; Valur Gíslason, sem leikur afann, Antonio; Milly frænku leikur Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Þórhallur Sigurðsson Attilio, son hennar.Gísli Alfreðsson leikur Raffaele, bróður Hin þekkta leikbrúða Rosers, Gústaf, ásamt félaga si'num. Þekktur brúðuleik- húsmaður hér og sýn- ir aðeins fyrir full- orðna í DAG er væntanlegur til landsins einn þekktasti brúðuleikhúsmaður heimsins um þessar mundir, Þjóð- verjinn Albrecht Roser. Hann kemur hingað á vegum Goethe-stofnunarinnar og þýzka bókasafnsins í Reykjavfk og Un- ima, sem er félag brúðuleikhús- manna á íslandi. Roser sýnir einu sinni hér á landi og verður það í hátíðasal Hagaskólans við Haga- torg kl. 20 annað kvöld, sunnudag. Roser er fæddur árið 1922 og tók að fást við ýmsar listgreinar 29 ára gamall er hann sneri heim úr stríðinu. Byrjaði hann þá m.a. að skera út leikbrúður og varð svo heillaður af því viðfangsefni og þeim möguleikum sem leikbrúðusmíði hefur upp á að bjóða. Ein af fyrstu brúðunum hans var trúðurinn Gústaf. Æfði hann sig lengi fyrir framan spegil til að ná tökum á persónuleika Gústafs um leið og hánn þjálfaði eigin leikhæfi- leika. Smám saman fylgdu félagar Gústafs í kjölfarið og þar með hófst ævintýrið „Gústaf og félagar hans“, Framhald á bls. 28 húsbóndans og Steinunn Jóhannes- dóttir Virginiu vinnukonu. Þrjú börn þeirra Priore-hjóna eru leikin af Sigmundi Erni Arngrímssyni, Sigurði Skúlasyni og Lilju Þóris- dóttur. Helgi Skúlason og Bryndís Pétursdóttir leika nágrannahjón og aðrir leikendur eru Helga Jónsdótt- ir, Gunnar Magnússon, Flosi Ólafs- son, Eyvindur Erlendsson og Jón Gunnarsson. FuUtrúi erkibiskups af Kantara- borg í heim- sókn hérlendis MICHAEL Moore, kanúkí, fulltrúi erkibikupsins af Kantaraborg, er nú í heimsókn hérlendis og mun ávarpa Dómkirkjusöfnuðinn við messu klukkan 11 á morgun, sunnudag. Róbert og Herdís í hlutverkum sínum Samkvæmt upplýsingum biskups íslands, herra Sigurbjörns Einarsson- ar, er fulltrúi erkibiskupsins í vinar- og kurteisisheimsókn hér og er tilgangur- inn heimsóknarinnar að treysta bönd- in mitli kirkna landanna. Biskup kvaöst mundu eiga viðræður við hinn enska fulltrúa um sameiginleg mál brezku og íslenzku kirkjunnar. D Vffi Alþjóöleg bílasýning í Sýningahöllinni aó Bíldshöfóa nú er hver síóastur aó sjá þessa glæsilegu sýningu 24 bílar sem ekki hafa sést á Islandi fyrr BÍLAHAPPDRÆTTI — vinningur MAZDA 323 aógöngumiðar gilda sem happdrættismióar—þannig eiga allir sýningargestir jafna vinningsmöguleika GESTUR DAGSINS er valinn alla daga sýningar- innar og hlýtur hann sólarlandaferó meó Samvinnuferóum Símar sýningarstjórnar: 83596 og 83567

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.