Morgunblaðið - 22.04.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978 33
Gunnar Thoroddsen m ■■
félagsmálaráðherra: Jp |C|211H
lausn á vinnudeilum
Starf ríkissáttasemjara aðal-
starf. Skipaður til 4ra ára. Sér-
stakur varasáttasemjari ráðinn
Hér fer á eftir framsaga Gunnars Thoroddsen
félagsmálaráðherra með frv. um sáttastörf í
vinnudeilum, sem nú liggur fyrir til afgreiðslu
hjá Alþingi.
Tilgangur þessa frv. er að stuðla
að friðsamlegri lausn á vinnudeil-
um með auknu sáttastarfi.
Árið 1925 voru sett lög um
sáttatilraunir í vinnudeilum. 1938
voru þau lög felld inn í 1. um
stéttarfélög og vinnudeilur með
nokkrum breytingum. Árið 1926
var sáttasemjari ríkisins fyrst
skipaður; það var dr. Björn
Þórðarson, síðar forsrh. og gegndi
hann því starfi frá 1926—1942.
Jónatan Hallvarðsson, síðar
hæstaréttardómari, gegndi starf-
inu frá 1942—1945 og Torfi
Hjartarson tollstjóri frá 1945 og
gegnir því enn. Allir þessir sátta-
semjarar hafa notið óskoraðs
trausts, jafnt launamanna sem
vinnuveitenda, fyrir samvisku-
semi, þrautseigju og réttsýni.
Núverandi sáttasemjari ríkisins,
sem þannig hefur gegnt því starfi
í meira en þrjá áratugi, hefur
sinnt því með sérstökum sóma og
við allra traust.
En sáttasemjarastarfið hefur
verið aukastarf við hliðina á
annasömu embætti. Það er vissu-
lega orðið tímabært að gera starf
ríkissáttasemjara að fullu starfi.
Kjaramálin eru svo umfangsmikill
og mikilvægur þáttur í þjóðlífinu,
að æskilegt er, að ríkissáttasemj-
ari geti helgáð sig þeim alfarið.
Starf ríkissáttasemjara þarf því
að gera að föstu starfi, aðalstarfi.
Hann þarf að vera sjálfstæður og
óháður embættismaður og hafa
aðstöðu til að haga störfum sínum
svo, að hann njóti fulls trúnaðar
hjá báðum aðilum vinnumarkaðs-
ins. Það þarf að búa svo að
starfinu, að þessum tilgangi verði
náð.
Sáttasemjari þarf að vera að
verki árið um kring, fylgjast að
staðaldri með ástandi atvinnu-
mála og þróun í launamálum.
Aðildar eiga að geta leitað aðstoð-
ar hans og fyrirgreiðslu á hvaða
stigi mála sem er, þótt ekki hafi
enn slitnað upp úr samningaum-
leitunum eða vinnustöðvun verið
boðuð. Eins er það æskilegt, að
sáttasemjari geti boðið fram
aðstoð sína og milligöngu hvenær
sem er, þótt ekki sé í hnút komið.
Meginefni þessa frv., sem hér
liggur fyrir, er því þetta, að starf
sáttasemjara verði aðalstarf og að
á hann verði lögð ríkari skylda en
nú er til að hefjast handa um
sáttastörf.
Þetta frv. myndi koma í staðinn
fyrir III. kafla vinnulöggjafarinn-
ar frá 1938. Eins og skýrt er í grg.,
bæði almennum aths. og sérstök-
um aths. við hverja einstaka gr.,
þá eru flest ákvæði þess efnislega
óbreytt frá því sem er í núgildandi
1.
Þetta frv. snertir ekki nein þau
réttindi, sem núgildandi lög veita
stéttarfélögunum.
Það er gert ráð fyrir því, að
ríkissáttasemjari verði skipaður
til fjögurra ára í senn. Hann skal
vera íslenskur ríkisborgari, fjár
síns ráðandi og hafa óflekkað
Gunnar Thoroddsen.
mannorð og þess skal gætt, að
afstaða hans sé slík, að telja megi
hann óvilhallan í málum launþega
og vinnuveitenda, eins og segir í 1.
bifreiða
FRAM VAR lagt á Alþingi
frumvarp til laga er fclur í sér
tvöfiildun á vátryggingarfjárhæð
skyldutryggingar bifreiða og
annarra skrásetningarskyldra
ökutækja. Verður þá vátrygging-
arfé bifreiðar 24 milljónir króna
og annarra ökutækja 12 milljónir
króna. Ólafur Jóhannesson, við-
skiptaráðherra, mælti fyrir þessu
gr. frv. Þá er einnig gert ráð fyrir
að skipa varasáttasemjara til
fjögurra ára í senn. Hann skal
fullnægja sömu skilyrðum, en
starf hans verður aukastarf. Hann
fer með störf ríkissáttasemjara,
þegar hann er forfallaður og
verður honum einnig til aðstoðar
þegar þörf krefur. Þá er gert ráð
fyrir, að ríkissáttasemjari geti
skipað aðstoðarsáttasemjara til að
aðstoða sig við lausn vinnudeilu
eða vinna sjálfstætt að lausn
einstakrar vinnudeilu, og það er
borgaraleg skylda að taka að sér
slík störf.
Það hefur oft komið fram á
undanförnum árum, að bæði full-
trúar verkalýðssamtakanna og
fulltrúar atvinnurekenda hafa lýst
áhuga sínum á því, að slík breyting
yrði gerð, sem þetta frv. felur í sér.
Ég vænti þess, að þetta frv. fái
góðar undirtektir og takist að
afgreiða það með fullu samkomu-
lagi við aðila vinnumarkaðsins.
Ég legg til, að frv. verði vísað til
2. umr. og félmn.
tvöfölduð
frumvarpi í efri deild Alþingis í
gær.
I greinargerð með frumvarpinu
segir orðrétt:
„Vátryggingarfjárhæðir fyrir
hina lögboðnu ábyrgðartryggingu
ökutækja voru með lögum nr. 62
31. maí 1976 hækkaðar í 12 millj.
kr. fyrir bifreiðar og 6 millj. kr.
fyrir önnur ökutæki. Vegna verð-
lagsrþóunar þeirrar, sem síðan
hefur orðið, er lagt tii. að vátrygg-
ingarfjárhæðirnar wrði nú hækk
aðar á ný, þannig að aukið verði
öryggi þeirra, scm fyrir tjóni
kunna að varða, svo go eigenda
ökutækjanna. Er gert ráð fyrir þvi
að vátryggingarfjárhæðirnar tvö-
faldist og verði þá 24 millj. kr.
fyrir bifreiðar og 12 millj. kr. fyrir
önnur skráningarskyld ökutæki.
Jafnframt hækki vátryggingar-
fjárhæð vegna bifreiða, sem flytja
fleiri en tíu farþega, að sama
skapi, og verði 1.200.00 kr. fyrir
hvern farþega umfram tíu.
Eigin áhætta þess, sem fébóta-
ábyrgð ber á tjóni af völdum
bifreiðar, er nú allt að 15.000
krónur og og vegna annarra
ökutækja 7 500 krónur. Með
hækkun vátryggingarfjárhæða og
óbreyttu ákvæði 73. gr. umferðar-
laga yrði eigin áhætta allt að
30.000 krónur og 15.000 krónur.
Þykir eigi rétt að hækka eigin
áhættu svo mjög að krónutölu og
er því lagt til að eigin áhætta verði
allt að 24.000 krónum fyrir bifreið-
ir og 12.000 krónur fyrir önnur
ökutæki.
Vátryggingartímabil ábyrgðar-
trygginga ökutækja hófst 1. mars
sl. Er lagt til að hækkun vátrygg-
ingarfjárhæða og eigin áhættu
taki gildi 1. maí n.k.
AIÞMGI
Ný þingmál
I stuttu máli
Vinnudeilur, umhverfismál
fóðurvörur og heilbrigðismál
Sáttastörf í
vinnudeilum
Fram hefur verið lagt á
Alþingi frv. til laga um sátta-
störf í vinnudeilum. Megin-
breytingar, sem frv. gerir ráð
fyrir, eru, að starf sáttasemjara
ríkisins verði aðalstarf; að á
hann verði lögð miklu ríkari
skylda en nú er til að hefjast
handa um sáttastörf, og honum
fengið starfslið. Að sáttasemj-
ara verði veittur víðtækari
réttur til afskipta af vinnudeil-
um en i gildandi lögum og
jafnframt lögð á hann ríkari
skylda til að hefjast handa um
sáttastörf.
Umhverfismál
Stjórnarfrumvarp um um-
hverfismál hefur verið lagt
fram. Meginverkefni frv. er
tvíþætt. í fyrsta lagi er þar að
finna ýmis ákvæði um umhverf-
is- og mengunarvarnir, m.a.
ákvæði sem áskilja starfsleyfi
til atvinnu- og iðjureksturs, sem
telja má hættulegan umhverfi. I
öðru lagi er yfirstjórn umhverf-
ismála sameinuð í höndum eins
stjórnsýsluaðila. Er gert ráð
fyrir að þar verði um sérstaka
nýja stjórnardeild að ræða. I
greinargerð segir að ljóst sé að
brýna nauðsyn beri til að
samræma reglur íslenzkra laga
um umhverfis- og mengunarmál
og setja nýjar. Markmið frv. sé
að stemma á að ósi í þessum
efnum, efla alhliða umhverfis-
vernd og koma á virkum vörnum
gegn hvers konar mengun og
öðrum skaðlegum umhverfis-
áhrifum. Varðveizla og viðgang-
ur náttúrugæða landsins er það
grundvallaratriði, sem leitast er
við að tryggja með ákv. frv. sem
og sem bezta sambúð lands og
þjóðar.
Fóðurvörur
Fram hefur verið lagt stjórn-
arfrv. um eftirlit með fram-
leiðslu á fóðurvörum, áburði, og
sáðvörum, og verzlun með þær
vörur. Frv. þetta er að stofni til
samið af nefnd, sem skipuð var
í samræmi við lög nr. 32/1968.
I grg. með frv. segir m.a.:
Búnaðarþing er sat í vetur
fjallaði um frumvarpið og gerði
á því nokkrar breytingartillög-
ur, sem í aðalatriðum voru
teknar til greina og eru í
núverandi mynd frumvarpsins.
1. Eðlilegt þótti að um eftirlit
með fóðri, áburði og sáðvöru
séu gildandi ein lög en ekki
þrenn. Margt er sameiginlegt
með þessum rekstrarvörum
landbúnaðarins, og með ein-
um lögum eru líkur á, að
eftirlitið geti orðið ódýrara,
en þó virkara en það yrði í
þrennu lagi (með þreföldu
kerfi).
2. Aðalsjónarmið hefur verið að
semja frumvarp, sem mynd-
aði nauðsynlegan lagaramma
um eftirlit með vörum þeim,
sem hér um ræðir, en ítar-
legri ákvæði um framkvæmd-
aratriði yrðu sett í reglugerð.
3. Sú reynsla, sem fengist hefur
með starfi Fóðureftirlits rík-
isins sýnir, að full ástæða er
til eftirlits á þessu sviði og
jafnframt að þörf er á að
breyta núgildandi lögum og
reglugerð um Fóðureftirlitið.
4. Áhersla er lögð á upplýsinga-
skyldu eftirlitsins bæði til
framleiðenda, verslunaraðila
og bænda eða annarra kaup-
enda. Á þann hátt má ætla að
eftirlitið komi að mestu gagni
fyrir alla og líkur verði á að
koma megi í veg fyrir tjón af
völdum vanþekkingar, mis-
taka eða annarra atvika.
Tannsmiðir,
menntun og
starfsréttindi
Fram hefur verið lagt á
Alþingi stjórnarfrv. um tann-
smiði. í 1. gr. frv. er gert ráð
fyrir stofnun tannsmiðaskóla,
sem rekinn skal í tengslum við
tannlæknadeild Háskóla Is-
lands. I 1., 2. gr. og 3. gr. er
_ kveðið nánar á um skólann,
rekstur hans, stjórn o.þ.h.
í 4. gr. segir að námið skuli
vera bæði fræðilegt og verklegt.
Hið verklega nám skal verða
þriðjungur námstímans. Rétt til
að kalla sig tannsmið hefur sá
einn, sem lokið hefur prófi frá
tannsmiðaskólanum, sbr. þó
ákvæði til bráðabirgða. Ákvæði
þetta takmarkar ekki rétt tann-
lækna til að stunda.tannsmíði.
Tannsmiður sem lokið hefur
prófi og starfað að tannsmíðum
um þriggja ára skeið hið
minnsta eftir lok náms getur
fengið heimild til að veita
forstöðu tannsmiðastofu. I 6. gr.
segir að skólanefnd tannsmiða-
skólans geti veitt manni, sem
lokið hefur jafngildi tannsmiða-
námi erlendis og að öðru leyti
telst hæfur til starfans, starfs-
heimild er jafngildi prófi hér
heima. I ákvæðum til bráða-
birgða er tannsmiðum, sem
lokið hafa námi skv. þeim
reglum er gilt hafa, gert að
senda skólanefnd, innan 6 mán-
aða frá því að frv. þetta fær
lagagildi, umsókn um starfsrétt-
indi. Hafi tannsmiður fengið
meistararéttindi fyrir gildistöku
frv. skal hann teljast hafa
fullnægt skilyrðum til að fá
starfsréttindi skv. frv. Tann-
lækpar og meistarar í tann-
smíðaiðn þurfa og, innan 3ja
mán. frá gildistöku frv., ef að
lögum verður, að tilkynna skóla-
nefnd tannsmiðaskólans um
nema sína og gefa upplýsingar
um, hvar hver nemi sé á vegi
staddur o.s.frv. Eftir að tann-
smiðaskólinn er tekinn til starfa
er tannlæknum og tannsmíða-
meisturum óheimilt að taka
nema til tannsmíðanáms.
Heyrnar og
talmeinastöð
Þá hefur ríkisstjórnin lagt
fram frv. til .laga um heyrnar-
og talmeinastöð á íslandi. Frv.
er samið af nefnd, sem heil-
brigðisráðherra skipaði í þeim
tilgangi. Forsaga málsins er hjá
félaginu Heyrnarhjálp, sem
stofnað var þegar 1937. Árið
1962 er komið á fót vísi að
heyrnarstöð, sem var til húsa
hjá Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur og rekin á vegum Reykja-
víkurborgar. 1969—1970 er sett
á stofn fyrsta og eina háls-, nef-
og eyrnadeildin á íslandi. Starf-
semi deildarinnar er m.a. fólgin
í skurðaðgerðum, þ.e. heyrnar-
bætandi aðgerðum, sem ekki eru
framkvæmdar á öðrum sjúkra-
húsum hérlendis, auk umfangs-
mikillar göngudeildarstarfsemi.
Vísir að heyrnardeild er á
Akureyri, er nýtur faglegrar
fyrirgreiðslu deildarinnar í
Reykjavík. Frv. þetta gerir ráð
fyrir því að starfsemi Heyrnar-
hjálpar og heyrnardeildar
Heilsuverndarst. Rv. verði sam-
einuð og rekstur deildarinnar
við Börgarspítalann haldi
áfram. Markmið hinnar nýju
stofnunar verði m.a. að tryggja
það, að ávallt sé hér að boðstól-
um fullkomnustu tegundir
heyrnartækja og annarra hjálp-
artækja. Einnig fullkomin við-
gerðarþjónustu. Og að sjálf-
sögðu sérþjálfað starfsfólk til
leiðbeiningar sjúklingum. Á
árinu 1976 leituðu 652 aðilar
aðstoðar starfshóps félagsins
Heyrnarhjálpar.
Frumvarp til laga:
Vátryggingarfjárhæð