Morgunblaðið - 11.05.1978, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1978
Sjálfstæðisflokkur-1
inn opnar 12 hverfa-|
skrifstofur i Rvik i
Aðrir flokkar hafa í undirbún-
ingi að opna hverfaskrifstofur
Ketill Larsen sýnir 70 myndir
KETILL Larsen heldur málverkasýningu að Fríkirkjuvegi 11 dagana
11.—21. maí n.k. og nefnist hún „Skip frá öðrum heimi“. A sýningunni
eru 70 myndir sem flestar eru til sölu. Þetta er 6. einkasýning Ketils.
Sýningin verður opin 14—22 daglega.
Tónlistarskólakór
Rangæinga í söng-
för til Noregs
BARNAKÓR Tónlistarskóla
Rangæinga hyggur á söngför til
Óslóar dagana 17—26. maí n.k. í
boði tveggja aðila. í kórnum cru
13 hörn. Söngstjóri er Sigríður
Patreksfjördur:
Listi Fram-
farasinna
I'atreksíirði. Ift. maí.
FRAMBOÐSLISTI framfara-
sinna vegna komandi sveitar-
stjórnarkosninga hefur verið
lagður fram á Patreksfirði og
skipa listann eftirfarandii
1) Eyvindur Bjarnason kennari,
2) Hjörleifur Guðmundsson verka-
maður, 3) Bolli Ólafsson bókari, 4)
Guðbjartur Ólafsson húsasmiður,
5) Þórarinn Kristjánsson verk-
smiðjustjóri, 6) Björn Jónsson
vélsmiður, 7) Jóhann Svavarsson
rafvirki.
Fréttaritari.
Sigurðardóttir og undirleikari
Friðrik Guðni bórleifsson. Farar-
stjóri verður Margrét Tryggva-
dóttir.
Aðilarnir tveir, sem bjóða kórn-
um utan eru Tónlistarskóli Ragni
Holter Strömmen og St.
Laurentsiuskoret, en stjórnandi
hans er Kjell W. Christiansen.
Tónlistarskólakór Rangæinga mun
m.a. koma fram á lokatónleikum
hjá Tónlistarskóla Ragni Holter
Strömmen og syngja með St.
Laurentsiuskoret. Sumarið 1979 er
svo ætlunin að St.
Laurentsiuskoret heimsæki Tón-
listarskóla Rangæinga.
Tveir aðilar hafa styrkt kór
Tónlistarskóla Rangæinga í þessa
för, menntamálaráðuneytið og
Kiwanisklúbburinn Dimon í
Rangárvallasýslu, en báðir þessir
aðilar gáfu 100 þúsund krónur. Þá
teiknaði Jón Kristinsson í Lambey
merki á kórbúning og gaf kórnum.
í frétt frá kórnum er þessum
aðilum þökkuð veitt aðstoð.
Ráðinn framkvæmdastjóri Umferðarráðs
STARFSEMI stjórnmálaflokk-
anna er nú sem óðast að fara af
stað og eru flokkarnir að undir-
búa það starf. sem vinna þarf og
nær hámarki á kjiirdag 28. maí.
en þá fara fram sveitarstjórnar
kosningar og horgarstjórnar
kosningar hér í Reykjavík. Ilefur
Sjálfstæðisflokkurinn nú opnað
12 hveríaskrifstofur í Reykjavík.
en aðrir flokkar eru að undirbúa
opnun slikra skrifstofa.
Samkvæmt upplýsingum Vil-
hjálms Vilhjálmssonar í skrifstofu
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
er starfssvið hverfaskrifstofanna
margvíslegt. Þær verða opnar alla
daga frá klukkan 16 til 22, en á
NÝVERIÐ barst Slysavarna
félagi íslands að gjöf 6 manna
gúmbjörgunarbátur frá fyrirtæk-
inu RFD í Englandi og umboðsað-
ila þess hér á landi, Ólaluf
Gíslason og Co h.f. til nota við
kcnnslu á námskeiðum fyrir
sjómenn um meðferð og notkun
þessara báta.
Þetta er ný gerð af björgunar-
bátum, sem gagngert eru fram-
laugardögum verða þær opnar frá
hádegi. Frambjóðendur flokksins
verða á skrifstofunum frá klukkan
18 til 19 á hverju kvöldi og á
laugardaginn 20. maí frá klukkan
14 til 16.
Skrifstofurnar verða m.a. notað-
ar fyrir rabbfundi umdæmisfull-
trúa í hverfunum og þar verður
starf hverfamiðstöðva á kjördag
undirbúið. Þá fer fram í sumum
félögum útgáfustarfsemi og er
hluti þess starfs unninn í hverfa-
skrifstofunum og einnig verður
þar dreift gögnum til kjósenda um
hverfin. Þá aðstoða hverfaskrif-
stofurnar viö utankjörstaðarkosn-
ingu, verði menn erlendis eða úti
leiddir til notkunar um borð í
minni fiskibátum og skemmtibát-
um og uppfylla kröfur eldri gerða
slíkra báta, 46 manna, sem eru vel
þekktir meðai íslenzkra sjómanna.
Richard Hannesson forstjóri
afhenti þessa gjöf og þakkaði hinn
mikla þátt SVFÍ í að kenna
sjómönnum rétta notkun hinna
mikilvirku björgunartækja um
leið og hann óskaði félaginu til
hamingju með 50 ára afmælið.
á iandi á kjördegi og ennfremur
skrá þær niður sjálfboðaliða og
bíla á kjördegi, en sjálfboðaliðar
og starfsfólk skipta hundruðum á
kjördag.
Bjarni P. Magnússon á skrif-
stofu Alþýðuflokksins kvað undir-
búning að opnun hverfaskrifstofa
í fullum gangi, en flokknum hefði
þó ekki gengið allt of vel að fá
húsnæði. í gærkveldi átti að taka
ákvörðun um opnun hverfaskrif-
stofu í miðbænum, en fleiri
skrifstofur kvað Bjarni verða vítt
og breitt um borgina. Eiginleg
kosningabarátta AlþýðufJokksins
hófst í fyrrakvöld með trúnaðar-
mannafundi í Glæsibæ, þar sem
saman voru komnir um 100
fulltrúar. Bjarni kvað flokkinn að
þessu sinni mundu breyta starfs-
aðferðum sínum, hætta merking-
um í kjörskrá, en taka hins vegar
upp þann hátt að hafa persónulegt
samband við kjósendur. Þá er
fyrirhugað að halda fundi í
heimahúsum og á annan í hvíta-
sunnu verður fundur á vegum
Alþýðuflokks fyrir aldraða í
Glæsibæ. Kosningabaráttan nær
síðan hámarki með baráttufundi í
Hótel Sögu 24. maí.
Úlfar Þormóðsson á skrifstofu
Alþýðubandalagsins kvað kosn-
ingamiðstöð bandalagsins verða í
húsi Alþýðusambands Islands á
horni Grensásvegar og Fellsmúla,
þar sem flokkurinn fékk leigt
húsnæði Alþýðubankans. Er það
tilbúið undir tréverk og hafa
sjálfboðaliðar verið að undirbúa
það sem kosningamiðstöð. Ráðgert
er að hafa eina hverfaskrifstofu i
Vesturbæ og verður hún á hörni
Brekkustígs og Vesturgötu. Tengi-
stöð við hverfin verður svo skrif-
stofa Alþýðubandalagsins að
Grettisgötu 3.
Björn Líndal hjá Framsóknar-
flokknum kvað unnið að því að
koma á fót hverfaskrifstofum, en
hvorki kvað hann endanlega
ákveðið hvar þær yrðu staðsettar
né á hve mörgum stöðum. Björn
kvað enn mikil rólegheit yfir
undirbúningsstarfi framsóknar-
manna fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar.
FRAMKVÆMDANEFND Um-
ferðarráðs hefur ráðið Óla II.
Þórðarson sem framkvæmda-
stjóra Umferðarráðs frá 1. júní
n.k.
Óli H. Þórðarson er 35 ára.
Hann lauk prófi úr Samvinnuskól-
anum 1964, starfaði sem aðalbók-
ari við Áburðarverksmiðju ríkis-
ins til 1970, en hefur síðan verið
skrifstofustjóri hjá Hraðfrysti-
stöðinni í Reykjavík h.f. Að
undanförnu hefur hann fengist við
dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu,
jafnframt aðalstarfi.
Óli H. Þórðarson er kvæntur
Þuríði Steingrímsdóttur.
F.v. Benedikt E. Gunnarsson sölufulltrúi. Gunnar Friðriksson.
forseti SVFÍ. og Richard Ilannesson forstjóri.
Slysavarnafélaginu
berst góð afmælisgjöf
4. Ilalldór Finnsson
5. Jensfna Guðmundsdóttir
2. Sigríður A. Þórðardóttir
3. Runólfur Guðmundsson
Frambodslisti Sjálfstæd
isflokksins í Eyrarsveit
BIRTUR hefur verið listi Sjálfstæðisflokksins til hreppsnefndarkosninga
í Eyrarsveit, Grundarfirði, og skipa listann eftirtaldiri
1. Árni M. Emilsson sveitarstjóri, 2. Sigríður A. Þórðardóttir kennari,
3. Runólfur Guðmundsson skipstjóri, 4. Halldór Finnsson sparisjóðsstjóri,
5. Jensína Guðmundsdóttir húsfreyja, 6. Hörður Pálsson bóndi, 7. Auðbjörg
Árnadóttir húsfreyja, 8. Jón A. Ström trésmiður, 9. TCristín Friðfinnsdóttir
húsfreyja og 10. Páll Cecilsson verkstjóri.