Morgunblaðið - 23.06.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1978
„Minning hans verður
ætíð í heiðri höfð á Islandi,,
— segir Geir Hallgrímsson forsætisráðherra vegna
fráfalls Jens Otto Krags fyrrv. forsætisráðherra Dana
„Jens Otto Krag var íorsætis-
ráðherra þegar handritin komu
heim til íslands á sínum tíma og
átti hann sinn mikla þátt í því.
t>ess vegna verður hans minnst í
íslandssögunni sem eins þeirra
manna er áttu mikinn þátt í því,
að endanlegur aðskilnaður Dan-
merkur ok Islands varð með þeim
hætti, að enginn skuggi hvflir á
vináttu þjóðanna. — Við þökkum
Jens Otto Krag, ásamt mörgum
ííóðum vinum í Danmörku, hina
farsælu lausn málsins og minning
Jens Otto Krags verður ætíð í
heiðri höfð á íslandi, sagði Geir
Hallgn'msson forsætisráðherra cr
Mbl. sneri sér til hans vegna
Geir Hallgrímsson:
Niður-
greiðsla
vaxta
réttlætanleg við
íbúðakaup ungs f ólks
í SJÓNVARPSUMRÆÐUM
formanna stjórnmálaflokk-
anna í fyrrakvöld var rætt
um vaxtamái og m.a. bent á,
að vextir fylgdu verðbólgu og
leiðin til þess að lækka þá
væri að minnka verðbólguna.
Að öðrum kosti væri sparifé
fólks brennt upp. Geir Hall-
grímsson, forsætisráðherra
sagði, að Lúðvík Jósepsson,
formaður Alþýðubandalags-
ins væri talsmaður lágvaxta-
stefnu en það merkti í raun
og veru, að fjármagn væri
ódýrt handa þeim, sem tækju
fé að láni. Forsætisráðherra
benti á, að niðurgreiðslur
vaxta væru réttlætanlegar í
sumum tilfellum t.d. til að
auðvelda ungu fólki að
byggja þak yfir höfuðið án
þess að það sæti uppi mcð háa
verðhólguvexti, sem því væri
ofviða. Forsætisráðherra
sagði ennfremur, að gera ætti
sparnað aðlaðandi. en lág-
vaxtastefna væri ekki leið til
þess.
fráfalls þessa merka danska
stjórnmálamanns.
Dálítið dulur en vinur
vina sinna
Þá hafði Mbl. samband við
Sigurð Bjarnason sendiherra í
London og konu hans, Ólöfu
Pálsdóttur, en þau voru lengi í
Danmörku og kynntust Jens Otto
Krag vel. Þau sögðu: „Jens Otto
Krag var mikill vinur okkar og er
það því mikið áfall að heyra af
fráfalli hans. Við höfðum mikið
saman við hann að sælda, sérstak-
lega meðan hann var forsætisráð-
herra og raunar voru fyrstu kynni
okkar þegar við áttum samvinnu í
Norðurlandaráði. Sú reynsla, sem
við höfum af honum, er, að hann
var alltaf mjög jákvæður, dálítið
dulur en vinur vina sinna. Við
hittum Jens síðast þegar hann
kom frá Washington, þar sem
hann starfaði sem sendifulltrúi
EFTA. — Við munum alltaf
minnast hans með virðingu og
þakklæti og sem eins bezta vinar
Islands. I því sambandi má segja
að hann lagði sig ætíð fram um að
hafa sem bezt samstarf milli
íslands og Danmerkur, og hann
ásamt flokksbræðrum sínum og
fleiri átti stóran þátt í farsælli
lausn handritamálsins. — Ekki er
ýkja langt síðan hann bað Ólöfu að
gera af sér styttu og ætlaði hann
í því sambandi að koma hingað til
London, sögðu þau hjón að síðustu.
Okkar bezti banda-
maður í
handritamálinu
Stefán Jóhann Stefánsson fyrr-
Framhald á bls. 19
Ingólfur Árnason, Akureyri:
„Meiri sjónarsvipt-
ir að Lárusi Jónssyni
en Inga Tryggvasyni
99
Vil ekki minnast á Stefán Jónsson”
>>
„MÉR hcfur reynzt bezt að tala
við mann, sem ætti að vcra einn
helzti pólitíski andstæðingur
minn, Lárus Jónsson, þegar
skórinn hefur kreppt að hitavcit-
unni okkar eða öðrum málum,
sem ég hef reynt að leggja lið.
Þcss vegna þætti mér ólíkt meiri
sjónarsviptir að Lárusi en t.d.
Inga Tryggvasyni." Þetta eru
ummæli Ingólfs Árnasonar bæj-
arfulltrúa SFV á Akureyri í
viðtali sem birtist í F-listanum 21.
júní s.1.
í blaðinu var þessi spurning
lögð fyrir Ingólf Árnasoni Hvaða
gagn heldur þú að Þorsteinn
(Jónatansson) gæti unnið kjör-
dæmi sínu á alþingi eða ert þú
kannski sammála því að einstakl-
ingar séu vanmáttugir að vinna
kjördæmi sínu gagn upp á eigin
spýtur á alþingi?
Ingólfur svaraði svo m.a.:
„Nei, það er bara fyrirsláttur
þingmanna sem mistekizt hefur að
sinna hlutverki sínu sem fulltrúar
kjördæmis síns og því miður eru
þingmenn þessa kjördæmis ekki
undanskildir. Áhugi þeirra á
Framhald á bls. 19
Josef Brodskij (fyrir miðju) ásamt Jóhanni Hjálmarssyni og David
McDuff (t.h.). Ljósm. Mbl.i RAX
Josef Brodskij í
íslandsheimsókn
Lesúrverkum sínum í Regboganum íkvöld
á ljóðum
HÉR ER nú staddur sovézka
útlagaskáldið Josef Brodskij,
en um hann lét Rostropovitsj
þau orð falla í samtali við
Matthías Johannessen þar sem
skáldskap bar á góma að
Brodskij væri hiklaust mesta
núlifandi skáld sem yrkir á
rússneska tungu. Brodskij les
úr ljóðum sínum í Regnbogan-
um í kvöld kl. 20.00.
Meðal þeirra sem studdu við
bakið á Brodskij og komu
ljóðum hans á framfæri á
Vesturlöndum var W.H. Auden
og hjá honum kynntist Brod-
skij Islandi, en hér heimsækir
hann nú vin sinn skozka
skáldið og þýðandann David
McDuff, sem hefur lært ís-
lenzku og vinnur að þýðingum
á ljóðum íslenzkra skálda, en
McDuff er m.a. kunnur af
þýðingum sfnum
Mandclstams.
Brodskij hefur sjálfur skil-
greint sig sem einn af „kynslóð-
inni 1956“, sem mótaðist eftir
uppreisnina í Ungverjalandi.
Hann er af Gyðingaættum,
fæddist í Leningrad 1938 og
skáldskapur hans og þýðingar
urðu til þess að 1964 var hann
úrskurðaður „ónýtur þegn“ og
dæmdur til Síberíuvistar fyrir
„iðjuleysi". Brodskij hafði sótt
um leyfi til Israelsferðar og
vegna aðgerða vina heima fyrir
og erlendis fékkst dóminum yfir
honum breytt 1972, þannig að
honum var leyft að fara úr landi
án þess að eiga afturkvæmt.
Brodskij fór þá til Bandaríkj-
anna og er hann nú fyrirlesari
Framhald á bls. 19
Bókun Benedikts Gröndals:
Horfið frá „byggðasjónarmiðum”
með 500 millj, kr. lánveitingu
til Reykjavík og Reykjaness
BENEDIKT Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, sat hjá við at-
kvæðagreíðslu í stjórn Byggða-
sjóðs um 500 milljón króna lán-
veitingu til fiskvinnslufyrirtækja í
Reykjavík og á Reykjanesi. Lýsti
Benedikt Gröndal þeirri skoðun
sinni í sérstaktri bókun, að með
þessari lánveitingu væri horfið frá
„byggðasjónarmiðum." Bókun
Benedikts Gröndals, þar sem
þessum sjónarmiðum er lýst, er
svohljóðandi: „Þar sem líkur
benda til, að Byggðasjóður mundi
lána a.m.k. 500 millj. kr. til
frystiiðnaðarins árið 1978 tel ég,
að ríkisstjórnin geti ekki vísað á
þessi lán sem „sérstakt lánsfé"
eins og lofað var við ákvörðun
fiskverðs 1. okt. sl. Þar sem veita
á þessi lán um allt land tel ég enn
írekar horfið frá byggðasjónar-
miðum og tilgangi sjóðsins. Af
þessum sökum greiði ég ekki
atkvæði um tillöguna.“
Ragnar Arnalds, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins,
greiddi atkvæði gegn lánveiting-
unni og vísaði í bókun sinni
sérstaklega til röksemda Bene-
HiVto nrAnrlolo
Óvenjuvelunnið
í kjördæminu
— því höldum við þriðja
manninum inni
f
— segir Olafur G. Einarsson
Baráttan ákaflega
tvísýn hjá okkur
— því ekki hægt að full-
yrða um lyktir
— segir Jósef Þorgeirsson
Staðan léttari
eftir því sem
líður á baráttuna
— segir Steinþór Gestsson
Morgunblaðið hafði í gær
samband við þrjá frambjóðend-
ur Sjálfstæðisflokksins, þá Ólaf
G. Einarsson, þriðja mann á
lista flokksins í Reykjaneskjör-
dæmi. Jósef Þorgeirsson. ann-
an mann á lista flokksins í
Vesturlandskjördæmi, og Stein-
þór Gestsson, þriðja mann á
lista flokksins í Suðurlands-
kjördæmi og spurði þá um
stöðuna í kosningaharáttunni
og úrslit kosninganna.
„Miðað við úrslit sveitar-
stjórnarkosninganna höldum
við ekki þriðja kjördæma-
kjörna fulltrúanum og Alþýðu-
flokkurinn vinnur hann. Ég
hef hins vegar ástæðu til að
ætla að óvenju vel sé unnið í
kjördæminu af stuðningsmönn-
um Sjálfstæðisflokksins og því
fer fjarri að við höfum lagt
árar í bát. Við ætlum okkur að
ná inn þriðja kjördæmakjörna
fulltrúanum og þar með
tryggja að fulltrúi Suðurnesja,
Eiríkur Alexandersson, komist
á þing. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur góða málefnalega stöðu í
kjördæminu. Aldrei hefur verið
framkvæmt meira en á síðasta
kjörtímabili. Nægir þar að
nefna hitaveituframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu og á
Suðurnesjum, hafnarfram-
kvæmdir, vegamál og fleira.
Fólk sér í gegnum glamuryrði
hinna flokkanna í kjördæminu
og við treystum á dómgreind
kjósenda. Með því einu að
styðja Sjálfstæðisílokkinn í
þessu kjördæmi sem öðrum
verður komið í veg fyrir vinstri
stjórn og nýja kollsteypu í
efnahgs- og varnarmálum,
sagði Ólafur G. Einarsson
þegar rætt var við hann.
„Baráttan hér er ákaflega
tvísýn og engan veginn hægt að
fullyrða um Jiverjar lyktir
verða. En ég hef orðið var við
það, að sjálfstæðismcnn í kjör-
dæminu hafa starfað mikið og
ég hcf því trú á því, að með
öflugu starfi til loka á kjördegi
megi sigur vinnast," sagði
Jósef Þorgeirsson.
„Mér sýnist að staðan sé mun
léttari þegar líður á kosninga-
baráttuna og þykist þess full-
viss að við höldum okkar hlut
fyllilega." sagði Steinþór Gests-
son.