Morgunblaðið - 23.06.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.06.1978, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1978 Bensínafgreiðsla Skeljungs á Neskaupstað. Að sögn Brynjars Júlíussonar aígreiðslumanns hefur bærinn staðið í vegi fyrir því að Skeljungur fengi að byggja nýja og betri aðstöðu. „Þeir vilja helzt losna við Skeljung úr bænum, vegna þess að þar er einstaklingsframtakið að verki.“ Brynjar Júlíusson, afgreiðslumaður Skeljungs í Neskaupstað. segja um það að þeir ná bara niður í hlíðarnar, alls ekki til byggða þar sem fólk býr. Mér finnst íslendingar ganga allt of langt í hrósi sínu í garð kaupfélaganna og formæla gömlu kaupmönnunum, eins og einhverjum óbótamönnum. En það voru þessir gömlu kaupmenn sem voru raun- j verulegir feður þessara sveita- | byggðarlaga, t.d. hér á Neskaupstað, þá varð hér mest fólksfjölgun í tíð þessara manna, s.s. Konráðs og Sigfúsar. Síðan drepur Samvinnu- hreyfingin þá niður. í framhaldi þess tel ég að við verðum að standa mun betri vörð um að einstaklingsfram- takið verði ekki drepið niður. Það er algert böl fyrir byggðarlög ef allur atvinnurekstur er í höndum sveitar- félaganna sjálfra, eins og er hér á Norðfirði. Hér þrífst nánast ekkert fyrirtæki, sem ekki er á vegum bæjarins. Annars er hér mjög gott fólk í Norðfirði og ég er alveg viss um að við gætum útnefnt menn í alla ráðherrastólana á næsta kjörtíma- bili. Ég vildi þó gjarnan enda á sögu sem sögð var þegar Bjarni heitinn Benediktsson kom eitt sinn í heim- sókn hingað austur. Þá var hann spurður að því hvort honum þætti sveitin ekki fögur. Hann svaraði: „Það er ekki fögur sveit, þar sem ekki eru nema einn eða tveir sjálfstæöismenn," sagði Júlíus áð síðustu. Haldið á miðin. — Bændur fá mjög seint greitt fyrir sínar afurðir, heldur Sigurjón áfram, og getur það jafnvel dregist upp undir hálft ár að fullnaðarskil séu gerð og kemur það sér að sjálfsögðu mjög illa ekki sízt þegar vextir hafa hækkað svo. Við reynum að bjarga miklu með lánum, aðal- lega víxlum og veit ég reyndar ekki hvernig þetta hefði allt gengið ef við hefðum ekki svo góðan bankastjóra í Búnaðar- bankanum hér, bankastjóra sem skilur að banki er til þess að verzla með peninga. Bankinn tekur eðlilega sína vexti, og þeir eru að verða mjög mikill út- gjaldaliður hjá okkur. — Þetta sem Eyjólfur Konráð er að leggja til um afurðasölu- málin, að afurðalánin gengju beint til bænda er mjög gagn- legt og hefur satt að segja fengið furðu lítinn hljómgrunn. Bændur hafa að vísu tekið þessu vel, en kaupfélögin miður og jafnvel bændasamtökin og strandar það e.t.v. á þeim. Að fá afurðalán er mun betra en reka allt á víxlum, kjör þeirra eru mun betri og ég held að ekki séu nein sérstök vandamál sem standa í vegi fyrir því að hægt sé að koma þessu í kring. Einnig ræddi Sigurjón um þann kostnað annan sem fylgir því að koma afurðunum í sölu, ýmis kostnaður sem þarf að greiða strax, áður en greiðsla fyrir vöruna er innt af hendi: — Slátur- og dreifingarkostn- aður bætist alltaf á vöruna og alls konar kostnaður, sem við verðum oftast að greiða fyrir strax og stundum er engu líkara en að gangur máia sé sá að þegar allir þessir milliliðir eru búnir að fá sitt, þá sé fyrst athugað hvað sé eftir fyrir bóndann. — Það eru nokkuð skiptar skoðanir á þessum kostnaði, t.d. við flutning fjár í sláturhús. Vörubílstjórafélagið telur sig eiga allan rétt á flutningnum, en margir bændur eiga nægan bílakost til að annast þessa flutninga og er því spurningin um hver eigi að hafa vinnuna. Svipaða sögu er að segja um áburðinn. Eg má t.d. aka mínum áburði sjálfur á mínum vörubíl, en ég verð að hafa tvo menn á pallinum til að taka á móti honum þegar ég sæki hann á Sauðárkróki — svo mikill er réttur verkalýðsfélaganna. Kona Sigurjóns er Heiðbjört Jóhannesdóttir og þau eru spurð hvort ekki sé leitað mikið til þeirra eftir plássi fyrir börn í sveitina: — Jú, það er nokkuð um það, segir Heiðbjört, en segja má að ekki séu síður hættur í sveitinni en bæjunum, en auðvitað er börnum hollt og nauðsynlegt að komast í kynni við annað en sitt nánasta umhverfi svo að við skiljum vel að foreldrar vilji koma sínum börnum í sveit. — Annars eru þessir skólar alltof langir, segir Sigurjón, og sumarið dugar varla fyrir unglingana til að vinna fyrir vetrinum, en hjá okkur er það þannig að krakkarnir vinna að mestu fyrir sinni skólagöngu með þeim skepnum, sem þau eiga hér í eins konar félagsbúi. Að lokum eru þau hjón spurð um félagslíf í sveitinni, en í Lýtingsstaðahreppi búa um 300 manns: — Hér er ágætt félagslíf, segja þau, við höfum félags- heimilið Ásgarð við Steinsstaða- skóla og við erum vel sett með kirkjur og prest, en prestshjónin á Mælifelli sjá um símaþjónustu sem okkur þykir mjög góð og höfum sennilega aldrei haft svo góða símaþjónustu áður. 32 útskrifast frá Myndlista- og handíðaskóla íslands MYNDLISTA- og handíðaskóla íslands var slitið 1. júní s.l. Nú útskrifuðust 32 ncmendur frá skólanum í hinum ýmsu greinum. Starfsemi skólans skiptist í dagskóla og námskeiðaskóla. Ein- ungis nám í dagskólanum gefur réttindi til kennslu, aðgang að fagfélögum listiðnaðarfólks eða möguleika til framhaldsnáms í myndlist. I dagskólanum stunduðu 165 nemendur nám í vetur. Mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarið í frjálsri myndlist og nemendafjöldi aukizt bæði í olíumálun og nýiist. Fjöldi kenn- aranema hefur hins vegar staðið í stað, og er þar vart að vænta aukningar fyrr en teikni- og vefnaðarkennaranámið verður samræmt almennu kennaranámi, að því er segir í fréttatilkynningu frá skólanum. Vörukynning Komiö í SS Glæsibæ í dag frá kl. 2—10 og smakkið hinar Ijúffengu smákökur frá Kexverk- smiöjunni Frón, og renniö þeim niöur meö hollum og hressandi Tropicana. Verkamannafélagið Dagsbrún Reikningar Dagsbrúnar liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og meö mánudeginum 26. þ.m. Trúnaðarráðsfundur veröur í lönó, uppi, fimmtudag- inn 29. þ.m. kl. 20.30 e.h. Aðalfundur Dagsbrúnar veröur í lönó sunnudaginn 2. júlí kl. 2 e.h. Stjórnin. Sjálfboðaliðar á kjördag D-listann vantar fólk til margvíslegra sjálfboða- starfa á kjördag. Sérstaklega vantar fólk til starfa sem fulltrúar listans í kjördeildum auk margvíslegra annarra starfa. Þeir sem vilja leggja D-listanum liö meö starfskröftum sínum á kjördag, 25. júní næstkomandi, hringi vinsamlegast í síma: 86216—82900. Skráning sjálfboöaliöa fer einnig fram á skrifstofum hverfafélaganna. Brúðkaupsgjöf - er matar- og kaffisett frá Glit lQAKKA 9 »413 r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.