Morgunblaðið - 27.06.1978, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR
134. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Alþýðuflokkurinn sigurvegari kosninga:
Ætlum okkur ekki að verzla
með öryggi þjóðarinnar fyrir
1*Q^ViOm*QcfÁlQ — segir Benedikt Gröndal
1 d/UIlvITdb lUlCÍ formaður Alþýðuflokksins
Ljósm. Mbl. RAX
„ÉG GET AÐEINS á þessu stigi endurtekið þá yíirlýsingu, sem ég
hef fyrir hönd Alþýðuflokksins gefið í kosningabaráttunni, að það er
ekki ætlun okkar að verzla með öryggi þjóðarinnar fyrir
ráðherrastóla,“ segir Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins og
sigurvegari kosninganna á sunnudag, í samtali við Morgunblaðið sem
birt er á bls. 3 í dag.
I>á lýsir Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins því yfir
í samtali í Morgunblaðinu í dag, að Sjálfstæðisflokkurinn muni ekki
skorast undan þátttöku í stjórn landsins ef til hans kasta kemur og
málefnasamstaða næst.
Magnús Torfi Ólafsson segir í
samtali við blaðið, að Alþýðuflokk-
ur og Alþýðubandalag eigi að taka
við þeirri ábyrgð, sem þeir standi
frammi fyrir sem sigurvegarar og
að reyna eigi á, hvort einhver
hinna flokkanna vildi veita stjórn
þeirra stuðning. Ólafur Jóhannes-
son segir einnig að nú sé það
sigurvegaranna að sýna, hvað þeir
hafi til málanna að leggja. Telur
hann líklegt að forseti Islands snúi
sér til annars hvors sigurvegar-
anna um stjórnarmyndun. Lúðvík
Jósepsson formaður Alþýðubanda-
lagsins vildi ekki svara því, hvort
varnarmálin og brotthvarf varnar-
liðsins yrðu gerð að skilyrði fyrir
þátttöku þeirra í ríkisstjórn. „Við
erum ekki þau börn í pólitík, að við
svörum einu eða neinu um það
fyrirfram hvaða atriði við setjum
sem skilyrði." Lúðvík kvað engan
vafa á því að Alþýðuflokkur og
Alþýðubandalag hefðu vissa sam-
stöðu í verkalýðs- og launamálum,
en hins vegar ætti eftir að reyna
á það, hvort þeir næðu samstöðu.
Alþýðuflokkur var tvímælalaust
sigurvegari kosninganna síðastlið-
inn sunnudag. Flokkurinn jók fylgi
sitt um land allt og fékk 12,9%
meira fylgi en hann hafði við
Framhald á bls 28.
Benedikt Gröndal
Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
Munum ekki skorast undan
þátttöku í stjórn landsins
- ef til okkar kasta kemur og
ef málefnasamstaða næst
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN mun ekki skorast undan þátttökuí stjórn landsins,
ef til hans verður leitað og unnt verður að leysa ágreiningsmál flokka í milli
þannig að höfuðstefnumál Sjálfstæðisflokksins verði virt, sagði Geir
Hallgrímsson, forsætisráðherra, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi um
kosningaúrslitin en Geir Hallgrímsson bætti því við, að enn blasti við möguleiki
á vinstri stjórn eða minnihlutastjórn Alþýðuflokks og Alþýðubandalags með
hlutleysi Framsóknar.
— Þessi úrslit valda okkur
Sjálfstæðismönnum vonbrigð-
um. Allir tala um nauðsyn þess
að vinna bug á verðbólgunni og
flestum er væntanlega Ijóst, að
forsenda atvinnuöryggis er af-
koma atvinnuveganna. Engum
ætti því að geta blandast hugur
um, að verðlag og tilkostnaður
atvinnuveganna skapast að
miklum hluta af launakostnaði.
Menn vilja hærri laun og lægra
verðlag og skírskota til stjórn-
valda um hvort tveggja. En það
skiptir engu máli, hvaða flokkar
sitja í ríkisstjórn. Þeir geta ekki
samræmt þessi sjónarmið. Það
sem stjórnvöld geta gert er að
takmarka opinber umsvif, og
fjárfestingu í þjóðfélaginu.
Þrátt fyrir góðan árangur á
ýmsum sviðum efnahagslífsins
hefur vaxandi verðbólga síðustu
mánuði, sem óneitanlega stafar
af óraunhæfum kjarasamning-
um á síðasta ári, komið róti á
hugi manna, óvissu og ólund.
Þótt við Islendingar höfum
aldrei haft það eins gott og nú
er það rétt, að við byggjum ekki
á traustum grunni. Það þurfum
við að lagfæra.
Stjórnarandstaðan hefv$.með
glamuryrðum og gylliboðum
talið fólki trú um, að við gætum
hækkað kaupgjald okkar um
meira en 100% í krónutölu á
éinu og hálfu ári, þegar aðrar
þjóðir setja sér 10—15% sem
algert hámark. Spurningin er,
hvort stjórnarandstæðingar
halda fyrri málflutningi áfram,
þótt meiri ábyrgð sé á herðar
þeirra lögð nú eftir kosningarn-
ar eða hvort þeir standa undir
Geir Hallgrímsson
þessari auknu ábyrgð. Við hljót-
um að bíða og sjá hvað setur.
Einhverjir Sjálfstæðismenn
hafa eftir úrslitum að dæma nú
kosið Alþýðuflokkinn vegna
einhverrar óánægju með störf
Sjálfstæðisflokksins í núverandi
ríkisstjórn og talið það óhætt
vegna eindreginna yfirlýsinga
Alþýðuflokksins nú fyrir kosn-
ingar um aðild að Atlantshafs-
bandalaginu og varnarsamning
við Bandaríkin. Vænta ber þess
að Alþýðuflokkurinn efni þau
kosningaheit sem hafa vafalaust
valdið miklu um fylgisaukningu
hans.
Fyrir kosningar lögðu Sjálf-
stæðismenn höfuðáherzlu á, að
valið stæði milli Sjálfstæðis-
manna í stjórn og vinstri
stjórnar. Magnús Torfi Ólafs-
son, formaður SFV, sem nú
hverfur af þingi hefur vakið
athygli á því, að eftir kosninga-
úrslitin sé Sjálfstæðisflokkur-
inn í þeirri stöðu að geta
myndað rikisstjórn með hverj-
um hinna þingflokkanna fyrir
sig. Nú skal engum getum að því
leitt hvort einhver þeirra mögu-
Framhald á bls 28.