Morgunblaðið - 27.06.1978, Blaðsíða 4
4
STÖÐVAR
Nú er lími Ijósastillinga á
bifreiðum.
Hafið ávallt Philips
bílaperur á boðstólum fyrir
viðskiptavini ykkar.
Allar stærðir og gerðir.
heimilistæki sf
Hópferöabílar
8—50 farpega
Kjartan Ingimarsson
Sími 86155, 32716.
Minningarspjöld
MINNINGARKORT Sjúkrahús-
sjóðs Höfðakaupstaðar, Skaga-
strönd, fást á eftirtöldum stöðum:
Blindrafél. íslands, Ingólfsstræti
16, Sigríði Ólafsdóttur Reykjavík
sími 10915, Birnu Sverrisdóttur,
Grindavík, sími 8433, Guðlaugi
Óskarssyni, skipstjóra, Túngötu
16, Grindavík, hjá Önnu Aspar,
Elísabetu Árnadóttur og Soffíu
Lárusdóttur, Skagaströnd.
Ráðstefna í
Norræna húsinu:
„Island
í dag og
Norður-
löndin,,
RÁÐSTEFNA á vegum Norræna
félagsins hófst í Norræna húsinu
mánudaginn 26. júní. Ráðstefnan
ber nafnið „ísland í dag og
Norðurlöndin" og er henni ætlað
að kynna land og þjóð. Þátttak-
endur í ráðstefnunni eru 18 frá
öllum Norðurlöndum. Stjórnandi
ráðstefnunnar er Iljálmar Ólafs-
son formaður Norræna félagsins.
Á ráðstefnunni verður íjallað
um margvísleg málefni og má m.a.
nefna: ísienskar bókmenntir, flutt
erindí um fjármálastöðu Islands,
fulltrúar stjórnmálafiokkanna út-
skýra íslensk stjórnmál, erindi um
leiklist og tónlist, fjallað um
nútíma myndlist og listasöfn
heimsótt, erindi um notkun jarð-
varma, ýmsir staðir heimsóttir,
t.d. Árnagarður, Eldfjallastöðin,
Fornminjasafnið, Álafoss, Reykja-
lundur og Hitaveita Reykjavíkur.
Einnig verður farið í stuttar ferðir
um landið, t.d. til Akraness og að
Gullfoss og Geysi.
í fréttatilkynningu frá Norræna
félaginu segir að þeim Islending-
um, sem áhuga hafa á að fylgjast
með fyrirlestrum á ráðstefnunni,
sé þátttaka heimil meðan húsrúm
leyfir.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1978
Ulvarp Revkjavfk
ÞRIÐJUDAGUR
27. júní
MORGUNIMINN_________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb.
(7.20 Morgunleikfimi).
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Vcðurfr. Forustugr.
daghl. (útdr.).
8.35 Af ýmsu tagn Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
Þórunn Magnea Magnús-
dóttir endar lestur sögunnar
„Þegar pabbi var lítill" eftir
Alexander Raskin í þýðingu
Ragnars Þorsteinssonar
(13).
9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Til-
kynningar.
9.45 Sjávarútvegur og íisk-
vinnsla. Umsjónarmenn.
Ágúst Einarsson. Jónas
Haraldsson og Þórleifur
ólafsson.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
frcgnir.
10.25 Víðsjá. Helgi H. Jónsson
fréttamaður stjórnar þættin-
um.
10.45 Náttúruminjar í Reykja-
vík. Gunnar Kvaran ræðir
við Þorleif Einarsson jarð-
fra‘ðing um merkilcga staði
frá jarðsögulegu sjónarmiði.
11.00 Morguntónleikar. Sin-
fóníuhljómsveitin í Vín leik-
ur forleik að „Leðurblök-
unni" eftir Johann Strauss>
Willi Boskovsky stj. Nýja
fflharmóníusveitin og kór
flytja tónverkið „pláneturn-
ar“ eftir Gustav Holst. Sir
Adrian Boult stj.
SÍÐDEGIÐ
12.00 Ilagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
Við vinnuna. Tónleikar.
15.00 Miðdegissagan.
„Angelína" eftir Vicki
Baum. Málmfríður Sigurð-
ardóttir les (11).
15.30 Miðdegistónleikar.
Wendelin Gaertner og
Richard Laugs leika Sónötu
í B-dúr fyrir klarínettu og
píanó op. 107 eítir Max
Reger.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.20 Sagan. „Trygg ertu,
Toppa" eftir Mary
O’IIara. Friðgeir H. Berg
íslcnzkaði. Jónína H.
Jónsdóttir les (16).
17.50 Víðsjá. Endurtekinn
þáttur frá morgninum.
KVÖLDIÐ__________________
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Maðurinn og framtíðin
Séra Óskar J. Þorláksson
fyrrum dómprófastur flytur
erindi.
20.00 Píanósónata nr. 32 í
c-moll op. 111 eftir Beet-
hoven. Ronald Smith leikur.
20.30 Utvarpssagan. „Kaup-
gangur" eftir Stefán Júlíus-
son. Höfundur les (15).
21.00 íslenzk einsöngslög. Ein-
ar Markan syngur
21.20 Sumarvaka
a. Þáttur af Þorstcini Jóns-
syni í Upphúsunum á Kálfa-
felli. Steinþór Þórðarson á
Hala flytur síðari hluta
frásögu sinnar.
b. Úr vísnasafni Útvarpstíð-
inda. Jón úr Vör les.
c. Með kjörkassann á bakinu
um háheiðar Vestfjarða.
Páll Hallbjörnsson segir frá
fcrð, sem hann fór eftir
haustkosningarnar 1923.
d. Kórsöngur. Kór Söngskól-
ans í Reykjavík syngur.
Söngstjóri. Garðar Cortes.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Harmónikulög Elis
Brantd og félagar hans
leika.
23.00 Á hljóðbergi. Með kveðju
frá Kattegat. Gamansyrpa
með sænsku, dönsku og
norsku efni, — lesnu , leiknu
og sungnu.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIDJUDAGUR
27. júní
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Prúðu leikararnir (L)
Gestur í þessum þatti er
Therosa Brewer. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
20.55 Landsmót UMFÍ 1975
(L)
Landsmótið var haldið á
Akranesi og þessa kvik-
mynd gerðu Þrándur Thor-
oddsen og Jón Hormanns-
son.
V
Textahiifundur Ingólfur A.
Steindórsson. Þulur Þor-
valdur Þorvaldsson.
21.25 Kojak (L)
Bandarískur sakamála-
myndaflokkur.
Ógnvaldurinn
Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason.
22.15 Sjónhending (L)
Erlendar myndir og
málefni.
IJmsjónarmaður Sonja
Diego.
22.35 Dagskrárlok
Útvarp kl. 10.45: || Útvarp kl. 21.20:
Fara hringferð
um Reykjavík
Með kjör-
kassann á bakinu
„Náttúruminjar í Reykja-
vík“ nefnist þáttur sem er á
dagskrá útvarps í dag kl. 10.45.
í þættinum ræðir Gunnar
Kvaran við Þorleif Einarsson
jarðfræðing um merkilega
staði frá jarðfræðilegu sjónar-
miði.
Fara þeir hringferð um
Reykjavík og taka út fjóra
friðlýsta staði, eða staði sem
hafa jarðfræðilegt gildi og eru
innan bæjarmarkanna. Að
sögn Gunnars Kvaran vita
fáir um þessa staði og er
ætlunin að kynna þá fyrir
fólki. Gunnar sagði að á þessu
svæði væru fimmtán einstakir
staðir eða landsvæði, sem
væru friðlýst eða á náttúru-
minjaskrá og ætla þeir að taka
út fjóra eins og áður segir.
Þorleifur ræðir einnig um
staði sem eru í hættu frá
jarðfræðilegu sjónarmiði.
Vegna útþenslu byggðar telur
hann þurfa að gæta slíkra
staða vel, því það sem vélar og
tæki skemma verður ekki
aftur bætt.
Sumarvaka hefst í útvarpi í
kvöld kl. 21.20. í þættinum
flytur Steinþór Þórðarson á
Hala síðari hluta frásögu sinnar
af Þorsteini Jónssyni í Upphús-
unum á Kálfafelli. Jón úr Vör
les úr vísnasafni Útvarpstíð-
inda. Einnig segir Páll Hall-
björnsson frá ferð sem hann fór
eftir haustkosningarnar 1923 og
nefnist frásagan „Með kjörkass-
ann á bakinu um háheiðar
Vestfjarða." Loks stjórnar
Garðar Cortes kórsöng, en það
er kór Söngskólans í Reykjavík
sem syngur.
Garðar Cortes stjórnar kór-
söng.
Athygli skal vakin á því að Prúðu leikararnir eru á dagskrá sjónvarpsins í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Gestur í þættinum í kvöld
verður Theresa Brewer. en þýðandi er Þrándur Thoroddsen.