Morgunblaðið - 27.06.1978, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1978
11
Aðalfundur Styrktarfélags
vangefinna á Austurlandi:
Fjárþörfin í ár
um 85 millj. kr.
Hið nýja sæluhús við Emstrur...
Nýjar gönguleiðir opnast
með uppsetningu sæluhúsa
AÐALFUNDUR Styrktarfélags
vangefinna á Austurlandi var
haldinn í félagsheimilinu Skrúð á
Fáskrúðsfirði sunnudaginn 11.
júni sl. og voru fundargestir 23.
Fundinn setti frú Aðalbjörg
Magnúsdóttir. Fáskrúðsfirði, en
hún er formaður félagsins.
Funarstjóri var skipaður Albert
Kemp, Búðum, og fundarritari
Birgir Stefánsson Tunguholti.
í skýrslu um störf stjórnarinnar
frá síðasta aðalfundi kom m.a.
fram að tvær umsóknir liggja fyrir
um starf forstöðumanns við vist-
heimili félagsins, Vonarland, sem
verið er að byggja á Egilsstöðum
og vonast er til að geti tekið til
starfa haustið 1979. Einn þroska-
þjálfanemi hefur notið styrks frá
félaginu og mun hann koma til
starfa við Vonarland að námi
loknu. Enginn hefur sótt um styrk
þann er félagið hyggst veita
nemanda í talkennslu.
Á fundinum kom einnig fram að
félaginu hafa borist margar gjafir,
bæði stórar og srnáar. Auk þess
nýtur félagið styrkja m.a. frá
sveitar- og sýslufélögum á Austur-
landi. Hefur félagið verið að láta
gera minningarkort, sem verða til
sölu innan tíðar.
Að skýrslu stjórnar lokinni las
formaður skýrslu byggingar-
nefndar Vonarlands. Þar kom
fram að byggingarframkvæmdir
við fyrsta áfanga vistheimilisins
hófust sl. sumar og er stefnt að því
að húsin tvö, sem í þeim áfanga
eru, komist undir þak í haust.
Samkvæmt byggingarsamningi er
kostnaður við fyrsta áfanga 90
millj. kr. og fjárþörfin í ár um 85
millj. kr. Vonir standa til, að á
þessu ári fáist til byggingarinnar
55 millj. og vantar þá samtals um
30 millj. kr. til að fjárþörfinni í ár
verði fullnægt.
Gjaldkeri félágsins, Kristján
Gissurarson á Eiðum, las upp
reikninga ársins 1977. Niðurstöðu-
tölur á Rekstrarreikningi eru kr.
4.364.017.00. Tekjur umfram gjöld
reyndust kr. 3.173.023.00 og eignir
félagsins í lok síðasta árs voru kr.
6.197.459.00.
Á aðalfundinum voru fulltrúar
frá Kvenfélagi Reyðarfjarðar og
færðu þær Styrktarféiaginu gjöf
er alls nam kr. 1.325.424.00.
Sérstakur gestur fundarins var
Sigurður Magnússon, útbreiðslu-
stjóri ÍSÍ, og flutti hann erindi um
íþróttir og íþróttafélög fyrir fatl-
aða og þroskahefta.
Stjórn félagsins var endurkjörin
en í henni eig sæti: Aðalbjörg
Magnúsdóttir, Fáskrúðsfirði,
Kristján Gissurarson, Eiðum,
Björg Blöndal, Seyðisfirði, Hulda
Bjarnadóttir, Neskaupstað og
Guðmundur Magnússon, Reyðar-
firði.
Varastjórn skipa: Bára Haf-
steinsdóttir, Eskifirði, Árni
Stefánsson, Höfn, Davíð Baldurs-
son, Eskifirði, Birgir Stefánsson,
Tunguholti Fáskrúðsfirði og
Margeir Þórormsson, Fáskrúðs-
firði.
FERÐAFÉLAG íslands heíur á
s.l. tveimur árum reist tvö lítil
sæiuhús á leiðinni frá Land-
mannalaugum að Þórsmörk.
Annað húsanna er í Hraíntinnu-
skeri en hitt á Emstrum fyrir
sunnan Hattfell. Ráðgert er, að á
þessu sumri verði byggð göngu-
brú á Syðri-Emstruá, en með því
myndi opnast skemmtileg göngu-
leið milli Landmannalauga og
Þórsmerkur. Slík ganga með
hæfilegum dagleiðum tekur um
fjóra daga. segir í frétt frá
Ferðafélagi íslands.
Ennfremur segir að með þessum
húsum ætti þessi leið að verða
bæði fjölfarnari og vinsælli en til
þessa. Undanfarið hefur vaxið sá
hópur, sem ferðast um öræfi
landsins og notið þess að gista í
húsum félagsins. — Lögð er
áherzla á að í þessum tveimur
húsum gildi sérstakar reglur. Þau
verða læst mánuðina júlí og ágúst,
svo að unnt sé að fylgjast með
nýtingu þeirra og fyrst og fremst
að tryggja að þeir sem þess óska
að fá gistingu í þeim geti það.
Væntanlegir gestir verða því að
hafa samband við skrifstofu
félagsins og fá þar lykla að
húsunum, en að ferð lokinni
verður að ^kila lyklunum til
skrifstofu félagsins eða til hús-
varða í Landmannalaugum eða
Þórsmörk.
Þriár góðar frá AB
Fiskabók AB Fuglábók AB Jurtabók AB
Fiskarog fiskveiöar
2. útgáfa endurbætt
Bók þessi kom fyrst út í Danmörku árið 1964
en hefur síðan verið gefin út í ýmsum
löndum, enda hefur hún vakið verðskuldaða
athygli, fyrir fjölbreytilegan texta, fallegar
myndir og vandaðan frágang.
Fuglar íslands og Evrópu
3. útgáfan.
í bók þessari er fjallað um alla fugla íslands
og auk þess alla fugla Evrópu, vestan
Rússlands.
é
íslenzk feröaflóra
2. útgáfan aukin og endurbætt.
Handhæg bók í göngu og
fjallaferðir.
Almenna bókafélagið
Austurstræti 18. Bolholti 6.
sinii 19707 sími 32620