Morgunblaðið - 27.06.1978, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1978
Tel að of marg
ir láti mata
sig á áróðri
- sagði Sigurlaug
— ÉG ER ekkert of kát enda
ekki ástæða til þess og held að
þetta sé okkur sjálfstæðismönn-
um mikil vonbrigði. Við vorum
viðhúin einhverju tapi, en ekki
svona miklu, satrði Sigurlau^
Bjarnadóttir, sem skipaði þriðja
sæti á framboðslista Sjálfstaíðis-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi,
en þar fékk flokkurinn 2 menn
kjörna og hélt sínum kjördæma-
kjörnu mönnum.
— Fyrst og fremst hef ég orðið
fyrir vonbrigðum með Vestfirð-
inga og hélt ég ekki að svo margir
þeirra væru fylgjandi kommúnist-
um. Mér hefur fundizt lífsviðhorf
og hugarheimur Vestfirðinga vera
mjög framandi og frábrugðinn
hugsunarhætti kommúnista eins
og ég hef kynnzt þeim. I annan
Bjarnadóttu*
stað finnst mér að svo hafi verið
staðið að málefnum Vestfjarða og
unnið svo vel að þeirra hagsmuna-
málum af núverandi ríkisstjórn að
hún eigi ekki skilið þessi úrslit.
Ég ttel að þessar ófarir stjórn-
arflokkanna stafi að miklu leyti af
því að ekki var staðið rétt að
verðbótaskerðingunni í febrúar-
lögunum í vetur og tel að gremja
fólksins hafi brotizt út. Það átti að
greiða þeim lægst launuðu fullar
verðbætur en þeim hæst launuðu
engar. Bráðabirgðalögin í vor voru
spor í rétta átt en komu of seint
og á viðkvæmum tíma, þegar
kosningar voru í sjónmáli.
— Þá vil ég nefna að mér
finnast úrslitin gefa óþægilega
vísbendingu um það að of margir
meðal þjóðarinnar séu hættir að
hugsa sjálfstætt en láti mata sig
„Þessi úrslit eru ekki
endapunktur á fylgi
flokkanna - Framsóknar-
flokkurinn á eftir að
endurheimta sitt fylgi”
— segir Gunnlaugur Finnsson
„EG á dálítið erfitt með að meta
þessi úrslit hér á Vestfjörðum svo
fljótt og það sama á reyndar við
um úrslitin á landinu í heild. Ég
er þó viss um að sá óróleiki, sem
nú er kominn á fslensk stjórnmál,
heldur áfram. Þessi úrslit eru
ekki einhver endapunktur á fylgi
flokkanna og ég veit, að þó að
Framsóknarflokkurinn hafi tap-
að verulega nú. þá á hann eftir að
endurheimta sitt fyrra fylgi,“
sagði Gunnlaugur Finnsson frá
Hvilft í Önundarfirði en Gunn-
laugur skipaði að þessu sinni
annað sætið á framboðslista
Framsóknarflokksins í Vest-
fjarðarkjördæmi.
Framsóknarflokkurinn hefur
um langt árabil haft tvo þing-
menn kjörna á Vestfjörðum en
tapaði nú öðru þingsæti sínu.
Gunnlaugur hefur setið á þingi
frá 1974.
„Ef ég á að að nefna ástæður
fyrir þessum úrslitum kosning-
anna,“ sagði Gunnlaugur, „þá
liggur alveg fyrir að ekki hefur
tekist að koma skýringum á
frumstefnu þeirra flokka, sem
stóðu að síðustu ríkisstjórn, í
efnahagsmálunum nægjanlega vel
til kjósenda og þó svo að henni
hafi verið komið á framfæri við
kjósendur, hefur hún ekki náð
eyrum þeirra. Önnur ástæða eru
fyrst og fremst nýjar baráttuað-
ferðir andstæðinga okkar í formi
áróðurs og auglýsinga. Ekki verð-
ur sagt að jafnræði hafi verið í
þeim áróðri, sem haldið hefur
verið uppi gagnvart aðgerðum
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
á áróðri þeirra sem eru ágengastir
og ósvífnastir.
— Af tvennu illu var þó skárra
að Alþýðuflokkurinn skyldi vinna
meira á en Alþýðubandalag, en nú
er eftir að vita hvað verður úr öllu
orðagjálfri kratanna. Hvað sem
öllu líður þá er manni efst í huga
að þeim, sem taka við stjórn,
takist að leysa þann vanda sem við
stöndum frammi fyrir í efnahags-
málum með skynsamlegum og
heillavænlegum hætti fyrir þjóð-
ina.
unum, því þar hafa raddir mót-
mæla hrópað hærra.
Ég hef orðið fyrir miklum
vonbrigðum með þessi úrslit og
trúði ekki spá síðdegisblaðanna.
En miðað við þessi úrslit er hlutur
landsbyggðarinnar fyrir borð bor-
inn, því ég tel að við framsóknar-
menn höfum þar staðið betur í
ístaðinu en vænta má af þeim
öflum, er nú hrósa sigri," sagði
Gunnlaugur, en spurður um hvað
nú tæki við hjá honum, sagði
hann:
„Ég hef aldrei búist við því að
þingsetan væri tryggt lífsstarf og
ég kem til með að snúa mér að
mínum fyrri störfum við búskap
og kennslu en önnur áform hef ég
ekki á prjónunum."
„Harma að almenning-
ur féllst ekki á stefnu
sjálfstæðismannna
um launajöfnuð
og atvinnuöryggi”
- segir Steinþór Gestsson
„MÉR KOMA þessi úrslit mjög á
óvart. Mig óraði ekki fyrir því að
Alþýðuflokkurinn hefði náð jafn
miklu fylgi og raun ber vitni því
að sannast sagna urðum við afar
lítið varir við þeirra fylgismenn,
auk þess sem manni heppnaðist
ekki að finna þá sjálfstæðismenn.
sem hafa nú sjáanlega yfirgefið
okkur." sagði Steinþór Gestsson.
sem skipaði þriðja sætið á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi að þessu
sinni cn Sjálfstæðisflokkurinn
missti í kosningunum á sunnudag
sitt þriðja þingsæti á Suðurlandi
og hefur nú tvo þingmenn í
kjördæminu. Steinþór Gestsson
hefur setið á Alþingi frá árinu
1967 sem þingmaður Sunnlend-
inga og var á síðasta þingi
formaður fjárveitingarnefndar
Alþingis.
„Þessi úrslit gefa ótvírætt til
kynna,“ sagði Steinþór, „að al-
menningur hefur ekki viljað fall-
ast á stefnu okkar sjálfstæðis-
manna um jafnlaunastefnu og
atvinnuöryggi og ég verð að harma
það.“
Steinþór sagðist ekki kvíða því
að hann yrði verkefnalaus á
næstunni og í fyrstu færi hann til
starfa á sinni ættarbyggð. „Ég er
ekkert hræddur við framtíðina og
það eru fjölmörg verkefni sem nú
gefst tækifæri til að sinna betur
en áður. Ég hefði kosið að fá
tækifæri til að þjóna Suðurlands-
kjördæmi og íbúum þess lengur en
ég get ekki neitað því að mér hefur
verið hafnað."
Gífuryrði um úrræða-
leysi Sj álfstæðisflokks-
ins eru blekking
— sagði Guðmundur H. Garðarsson
MORGUNBLAÐIÐ bað Guðmund
H. Garðarsson að segja álit sitt á
úrslitum Alþingiskosninganna,
en hann skipaði 7. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins f Reykjavfki
Að sjálfsögðu harma ég úrslit
kosninganna, en ég er þess
jafnframt fullviss að Sjálfstseðis-
flokkurinn mun eflast á ný.
Sagan hefur sýnt, að hann er sá
flokkur sem fólkið hefur ætíð
leitað skjóls hjá þegar í harð-
bakkann slær. íslendingar hafa
búið við mikið meðlæti undanfar-
in ár. í þessum kosningum
brugðu ýmsir á leik. Þeir sögðust
vilja aðra menn og ný ráð.
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið gáfu mikil fyrirheit og
lofuðu fólkinu miklu.
Nú er rétt að þeir standi við
stóru orðin. Þessir flokkar eiga að
mynda ríkisstjórn með hlutleysi
Sjálfstæðisflokksins, þeim ber
skylda til að leggja fram tillögur
og raunveruleg ráð um framtíðar-
velferð þjóðarinnar.
Treysti þeir sér ekki til að gera
það, hafa gífuryrði þeirra um
úrræðaleysi og vanmátt Sjálf-
stæðisflokksins til að stjórna
landinu reynst blekking ein. Og þá
munu þeir fá sinn dóm. Ég kvíði
engu.
Spái að óróleiki
sé framundan
sagði Halldór Ásgrimsson
í Austurlandskjördæmi missti
Framsóknarflokkurinn einn
þingmann til Alþýðubandalags
og var það Halldór Ásgrímsson,
sem skipaði þriðja sætið á listan-
um þar. Halldór hafði þetta að
segja um úrslitim
— Mér er engin launung að því
að þetta eru vonbrigði bæði fyrir
mig og minn flokk. Ég hef sagt að
margir menn eigi eftir að efna
mörg og stór loforð og ég vona
bara að þeim gangi það vel án
minnar hjálpar.
Það hefur verið á brattann að
sækja í þessari barátth, við áttum
von á að Alþýðubandalagið ynni
eitthvað á, en ekki svo mikið sem
raun varð í þessu kjördæmi. Ég
býst við að það eigi eftir að draga
til tíðinda á stjórnmálavettvangn-
um á næstu árum og spái ég því
að óróleiki sé framundan. Það
hefur verið óróleiki í þjóðfélaginu
að undanförnu og má rekja hann
til ýmissa hluta svo sem fjölmiðla,
verðbólgu o.fl. og held ég að þeir,
sem ná kosningu við þessar
aðstæður, eigi eftir að bera þess
nokkur merki, þeir eiga eftir að
endurspegla þetta ástand, en
annars á framtíðin eftir að skera
úr um það.
Var ljóst að úr-
slit yrðu tvísýn
sagði Ingi Tryggvason
— ÞAÐ er nú cins og gengur
maður vcrður fyrir vonbrigðum,
sagði Ingi Tryggvason sem var
þriðji maður á lista Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra en þar missti Framsóknar
flokkurinn eitt þingsæti.
— Mér var það vel ljóst fyrir-
fram að úrslitin yröu tvísýn, en
mér dettur ekki í hug að þau þýði
það að ekki verði lengur barizt
fyrir framgangi samvinnustefnu
hér á landi.
Að öðru leyti er engu
hér við að bæta, nema að ég vil
þakka öllum þeim sem hafa stutt
okkur og starfað fyrir Fram-
sóknarflokkinn og vonast til að
þeir sem vinna áfram að málefn-
um kjördæmisins á Alþingi geri
það vel, sagði Ingi Tryggvason að
lokum.