Morgunblaðið - 23.07.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1978
13
Við fyrstu sýn er „kommissarinn“ ekki ábúðarmik-
ill. Myndin er úr tölvustjórnstöðinni í bækistöðv-
um rannsóknarlögreglunnar í Wiesbaden.
veitendasambandsins, var rænt í
fyrra, og hann var þá þegar orðinn
svo háþróaður að hefði það ekki
verið fyrir togstreitu milli stofn-
ana og breyzkleika framagosa
innan lögreglunnar væri Schleyer
sennilega á lífi enn þann dag í dag.
Meðan á leitinni miklu stóð gaf
„kommissarinn" vísbendingu um
að hann væri að finna í íbúðinni
þar sem síðar sannaðist að hann
hefði verið í haldi áður en hann
var myrtur. Þessari ábendingu var
ekki sinnt og ástæðan var sú að
samvinna milli deilda í lögregl-
unni brást. Málið varð tilefni
harðvítugra deilna innan lögregl-
unnar og þetta voru mistök, sem
mikilvægir lærdómar hafa verið
dregnir af.
Keðjuverkandi
handtökur
Sem dæmi um það hvernig
„kommissarinn" fer að því að
koma hryðjuverkamönnum í net
lögreglunnar eru tildrögin að
handtöku Till Meyers og kvenn-
anna þriggja í Búlgaríu. Tölvuupp-
lýsingar leiddu til þess að Stefan
nokkur Wisniewski, eftirlýstur
hryðjuverkamaður, var handtek-
inn á Orly-flugvelli við París. í
samræmi við nýjan milliríkja-
samning um framsal hryðjuverka-
manna var Wisniewski þegar í
stað sendur til Vestur-Þýzkalands
og þar fann lögreglan í fórum hans
upplýsingar, sem síðan leiddu til
handtöku Meyers og vinkvenna
hans. Upplýsingar Wisniewskis
voru svo óljósar og lítilfjörlegar að
venjulegur mannlegur skilningur
hefði ekki getað numið þær, en
tölvan góða gerði sér mat úr þeim
með frábærum árangri.
Falsað ökuskírteini, sem fyrir
trassaskap var notað tvívegis, varð
til þess að Knut Folkert var
handtekinn í Hollandi, en auk þess
að vera grunaður um hlutdeild í
morðinu á Schleyer á hann sök á
morðinu á hollenzkum lögreglu-
þjóni. Hryðjuverkamenn hafa um
langt skeið fleytt sér með fölsuð-
um persónuskilríkjum, en
„kommissarinn" brá hart við
þegar ökuskírteini Folkerts rak á
fjörur hans. Samskonar snarræði
sýndi hann þegar mágkona Folk-
erts framvísaði vegabréfi í Frakk-
landi, sem eftir öllum sólarmerkj-
um að dæma var falsað. Til að
ganga úr skugga um það hvort sá
grunur væri réttur var „kommiss-
arinn“ spurður, og svarið gerði það
að verkum að konan var handtekin
á staðnum.
Tölvan er sem sé á góðri leið
með að sigra hryðjuverkamennina.
Þeir gera sér hættuna ljósa, og
fyrir nokkrum vikum var öryggis-
vörður við tölvustjórnstöðina í
Wiesbaden efldur mjög eftir að
lögreglunni barst njósn af því að
ráðagerðir væru uppi um árás á
bygginguna þar sem „kommissar-
inn“ ræður ríkjum.
- Á.R.
Till Meyer — handtekinn í Búlgaríu ásamt bremur
konum, mánuöi eftir aö bær frelsuöu hann úr
fangelsi í Vestur-Berlín.
Tveir lslendingar
fá styrk frá NÁTO
Norður-Atlantshafsbanda-
lagið hefur nýlega úthlutað
styrkjum fyrir árið 1978 til
rannsókna á sviði um-
hverfismála. Tólf styrkir
voru veittir að þessu sinni.
Meðal þeirra, sem styrk
hljóta, eru Hermann Svein-
björnsson, sem fær styrk
vegna verkefnisins „Skipu-
lag landnýtingar og vernd-
un búnaðarsvæða“, og Gylfi
Már Guðbergsson vegna
verkefnisinsi „Notkun fjar-
könnunargagna frá gervi-
hnöttum til könnunar á
grónu landi og landgrein-
ingar“. Styrkur til hvors um
sig nemur 208.300 belgísk-
um frönskum eða tæplega
1,7 millj. fslenzkra króna.
Styrkir þessir eru þáttur í
vaxandi starfsemi bandalags-
ins á sviði vandamála
nútímaþjóðfélags og er þetta
áttunda árið, sem slíkum
styrkjum er úthlutað.
Meðal þeirra, sem sæti áttu
í úthlutunarnefnd styrkjanna
Gylfi Már Guðbergsson
nú, var Hrafn Friðriksson
yfirlæknir, forstöðumaður
Heilbrigðiseftirlits ríkisins.
(fréttatilkynning frá
utanríkisráðuneytinu).
Hermann Sveinbjörnsson
MEKKA
Stórglæsileg skápasamstæða
með nöfðingjasvip
Mekka skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar hefur
vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og glæsilegt útlit.
Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstaklega, hvort sem þér óskið eftir
plötuhillum, vín- og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og hljómburðar-
tæki, o.s.frv. 1 Mekka samstæðunni má velja fallegan hornskáp, sem gerir yður
mögulegt að nýta plássið til hins ýtrasta. Mekka er einnig með sérstaka hillulýs-
ingu í kappa.
Mekka samstæðan eF framleidd úr fallegri eik. Hún fæst ólituð, í brúnum lit eða í
wengelit. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir hagkvæmt verð. Mekka gefur stofunni
höfðinglegan blæ.
Skoðið Mekka samstæðuna hjá:
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf.
Híbýlaprýði
JL-húsið
Augsýn h.f.
Verzl. Bjarg h.f.
Trésmiðjan Fróði h.f.
Verzl. Stjarnan
Verzl. Virkinn
Hlynur s.f.
Nýform
Akureyri:
Akranes:
Blönduós:
Borgarnes:
Bolungarvík:
Húsavík:
Hafnarfjörður:
Keflavík: Duus
Kópavogur: Skeifan
Neskaupstaður: Húsgagnaverzl.
Höskuldar Stefánssonar
Ólafsvík:
Ólafsfjöröur:
Sauðárkrókur:
Selfoss:
Siglufjörður:
Stykkishólmur:
Verzl.Kassinn
Verzl. Valberg h.f.
Húsgagnaverzl. Sauðárkróks s.f.
Kjörhúsgögn
Bólsturgerðin
JL Húsið, útibú
Vestmannaeyjar. Húsgagnaverzl. Marinós
Guðmundssonar
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA.
argus