Morgunblaðið - 23.07.1978, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1978
5VAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég les þættina yöar, en ég get sekki skrifað yður um
vandamál mín. Er Guð svarið við hverju vandamáli eða
aðeins við andlegum vandamálum?
Margt fólk misskilur, á hvaða hátt Guð er svarið við
vanda okkar. Stundum gefur Guð til kynna svar sitt við
mannlegum vandamálum í boðskap Biblíunnar. Þannig
hefur hann kunngjört lausnina á vanda syndarinnar.
En á sumum sviðum er vilji hans og markmið hulið,
og margir kristnir menn lifa ævina á enda, án þess að
þeir hafi fundið fullnægjandi lausn á sumum
erfiðleikum sínum.
Páll postuli er dæmi um mann, sem bað þess þrisvar
sinnum, að Guð tæki í burtu „þyrni", sem stakk hann,
en í öll skiptin var honum synjað. Sumir hefðu sagt, að
Guð hefði ekki hlustað eða honum hefði staðið á sama,
og þeir hefðu orðið bitrir.
Páll uppgötvaði andlegan leyndardóm, þann, að Guð
var fær um að veita mönnum nógr.n kraft og þolgæði,
svo að þeir héldu velli. Þér gætuð uppgörvað sama
leyndardóm í lífi yðar. Guð tekur erfiðleikana ekki alltaf
í burtu, heldur veitir okkur náð til að sætta okkur við
þá.
t
Maöurinn minn,
ASGEIR ÁSGEIRSSON,
trá Fróðá,
Dyngjuvegi 10,
andaöist í Borgarspítalanum 21. júlí.
Fyrir hönd vandamanna,
Karólína Sveinsdóttir.
t
Bróöir okkar,
EINAR BEINTEINSSON,
frá Draghálsi,
lést í Borgarspítalanum 18. júlí. Jaröarförin fer fram frá Hallgrímskirkju í
Sauræ, þriðjudaginn 25. júlí kl. 14.00.
Systkinin.
t
Sonur minn,
GUNNLAUGUR VILHJÁLMSSON
Miklubraut 70,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 25. júlí kl. 3.
Fyrir hönd ættingja.
Svava Guóbergsdóttir.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma
DAGBJÖRT K.J. JÓNSDÓTTIR,
lézt í Landspítalanum 12. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Þökkum innilega auðsýnda samúö.
Valdimar Þóróarson, Erla Guómundsdóttir
Guómundur Þóröarson og barnabörn.
t
Fööurbróöir minn,
HELGI HALLDÓRSSON,
matsveínn,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 24. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans er bent á minningarkort Sjálfsbargar
(Sundlaugasjóös Sjálfsbjargarhússins)
Fyrir hönd sýstkina og annarra vandamanna,
Benedikt Halldórsson.
t
Eiginmaöur minn og faöir
LUDVIG STORR
aóalræóismaóur,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 25. júlí kl. 15.00.
Svava Storr
Anna Dufa Storr
Jón Trausti Sigurjóns-
son Flateyri - Minning
Fæddur 14. október 1932.
Dáinn 16. júlí 1978.
Jón Trausti Sigurjónsson, Flat-
eyri, andaðist eftir þunga sjúk-
dómslegu á Borgarspítalanum 16.
þ.m. Með honum er genginn góður
og gegn maður á bezta aldri. Hann
er harmdauði öllum sem þekktu.
Ég er einn þeirra, sem sakna
vinar í stað. Kynni okkar komu til
í baráttu og störfum fyrir sam-
eiginlegri stefnu og áhugamálum.
Við vorum og báðir tengdir
Flateyri sterkum böndum. Hann
var að vísu hvorki upprunninn
þaðan né uppalinn. Hann hafði
flutzt til Flateyrar fulltíða maður.
En samt var honum mikið í mun
að vinna hinni nýju heimabyggð
sinni og vildi veg hennar sem
mestan. Slíkt var í samræmi við
skaphöfn Jóns Trausta, því hann
var heill í öllu, sem hann tók sér
fyrir hendur.
Jón Trausti var búfræðingur að
mennt, en á lífsleiðinni lagði hann
gjörva hönd á margt til sjós og
lands. Hann var mörg ár sjómað-
ur, rak um skeið eigin verzlun og
hin síðari ár var hann verzlunar-
stjóri og skrifstofumaður hjá
Kaupfélagi Önfirðinga.
Jón Trausti var góðum gáfum
gæddur, svo að félagslegur áhugi
hans varð til þess, að honum voru
fengin í hendur ýmis trúnaðar-
störf á þeim vettvangi og átti hann
um skeið sæti í hreppsnefnd fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Munaði þar
um hann, því maðurinn var til
forystu fallinn, góðráður og
fylginn sér. Sérstakt áhugamál
hans var bókasafn staðarins, þar
sem hann vann mikið og óeigin-
gjarnt sjálfboðastarf, enda var
hann bókelskur og bókhneigður
mjög.
En áhugamál Jóns Trausta voru
ekki einungis bundin við heima-
byggðina. Hann hafði brennandi
áhuga á landsmálum, var mikill
flokksmaður og baráttuglaður.
Hann var einn þeirra manna, sem
hverjum flokki eru svo dýrmætir.
Ég átti því láni að fagna að njóta
hans óbrigðula stuðnings í blíðu og
stríðu.
í síðustu alþingiskosningum var
Jón Trausti brennandi í anda sem
fyrr. Helsjúkur neytti hann at-
kvæðisréttar síns. Nokkrum dög-
um fyrir andlátið ræddum við
stjórnmálaviðhorfið og stjórnar-
myndunartilraunir. Enn sem fyrr
mótaðist tal hans af þeirri íhygli
og skerpu, sem var svo einkenn-
andi fyrir allt hans tal. Þá sagði
hann mér í lok samtalsins, að
hann ætlaði að hætta við að deyja
og fara bráðum heim. Það var
engan bilbug að finna, slík var
honum karlmennskan í blóð borin.
En enginn má sköpum renna.
Slíkum manni hlýtur heimkoman
að vera góð.
Það er mikil eftirsjá að vini sem
Jóni Trausta, en mestur er söknuð-
ur eiginkonu, sona og annarra
ættingja, sem ég sendi innilegar
samúðarkveðjur.
Þorv. Garðar Kristjánsson.
Á morgun verður jarðsettur í
Grímsey Jón Trausti Sigurjónsson
verzlunarmaður á Flateyri. Var
hann á 46. aldursári, er hann lézt
eftir erfitt sjúkdómsstríð.
Jón Trausti var meðalmaður á
hæð, skarpleitur, hreinskiptinn,
t
Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
LÁRU STEFANSDOTTUR,
Austurgeröi 1,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 25. júlí kl. 13.30. Þeir sem vilja
minnast hennar, láti Bústaöakirkju njóta þess.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andlát og jarðarför
GUNNLAUGS Ó. EGILSSONAR,
skipstjóra,
Sörlaskjóli 66.
Jóhanna Jóhannesdóttir,
Ágúst Ormsson og fjölskylda
+
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúö og vinarhug vegna fráfalls og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, systur okkar, mágkonu og
móöursystur
JAKOBÍNU JÓNSDÓTTUR,
Guö blessi ykkur öll. . 7 Niels Hansson,
Ingibjörg Jónsdóttir Óskar Jónsson,
,Ester Jónsdóttir Pálina Jónsdóttir, Ari Þóróarson,
Sigríöur Jónsdóttir, Guömundur Uagnússon,
Hermína Jónsdóttir, og systrabörn. Níels Erlingsson,
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar,
tengdamóöur, ömmu og systur,
ÖNNU KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Laufskógum 21,
Hveragerói.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyflækningadeildar Landspítalans fyrir góöa
umönnun.
Daníel J. Kjartansson,
Alda Kjartansdóttir,
Edda Kjartansdóttir,
Níels Kristjánsson,
Anna Mary Kristjánsdóttir'
.Karen Kristjánsdóttir
tengdabörn, barnabörn og aystkini.
mikill vinur vina sinna en ómann-
blendinn og dulur í skapi, dugmik-
ill til allrar vinnu og ósérhlífinn,
svo að af bar. Hann var félagslega
sinnaður, tók þátt í störfum að
framfaramálum fjórðungsins, var
hreppsnefndarmaður eitt kjör-
tímabil. Hann var kirkjumaður
góður, var lengi í sóknarnefnd og
kirkjukór Flateyrar. Hann hafði
mikinn áhuga á félagslegum mál-
efnum Vestfirðingafjórðungs og
sótti ýmis þing um þau efni, er við
ræddum oft. Ferðamaður var hann
mikill, og voru Strandirnar sér-
stakt kjörsvið hans. Ferðaðist
hann um þær á hverju sumri um
árabil og þekkti þær vel, bæði
staðhætti og sögu þeirra, enda var
Trausti mjög fróðleiksfús og
greindur vel. Átti hann gott
bókasafn, er hann kostaði til
fjármunum árum saman, en efnin
leyfðu ekki þá söfnun bóka, sem
hann hefði kosið sér. Áhugi hans
á bóklegum fræðum kom einnig
fram í starfi hans fyrir bókasafn
Flateyrar.
Jón Trausti stundaði ýmis störf
um ævina, bæði til sjós og lands.
Síðustu 12 árin vann hann við
Kaupfélag Önfirðinga á Flateyri,
sem verzlunarstjóri um hríð, en
síðast á skrifstofunni. Reyndust
vinnuveitendur hans honum vel í
veikindum hans.
Jón Trausti Sigurjónsson var
fæddur á Húsavík 14. október
1932. Hann naut ekki uppeldis
foreldra sinna en var í fyrstu
fóstraður af ömmu sinni og
móðursystur í Grímsey. Var hann
þar oft, bæði sem barn og ungling-
ur, hjá móðurömmu sinni, Hall-
dóru Sæmundsdóttur, og móður-
systur, Kristínu Valdimarsdóttur,
sem er enn á lífi, í Grímsey, öldruð
kona. Trausti litli fékk berkla í
fótinn á 2. ári og dvaldist um
margra ára skeið á sjúkrahúsinu á
Húsavík. Átti hann þaðan góðar
minningar, þótt nokkur bæklun
hlytist af sjúkdómnum, er háði
honum upp frá því.
I uppvextinum var Trausti í
Grímsey og á ýmsum bæjum í
Þingeyjarsýslu. Naut hann alls
staðar góðs atlætis, en á vistferl-
um sínum vissi litli drengurinn oft
ekki að vori, hvar hann yrði þá um
sumarið, né á haustin, hvar honum
yrði komið fyrir næsta vetur. Setti
þetta sín spor í barnssálina og sáði
þar sæði biturrar reynslu, sem
gerði Traust duian að lundarfari.
En hjá ömmu sinni í Grímsey
fannst Trausta hann hafi mætt
þeirri hlýju, sem hann bjó að alla
ævi og dró hann að lokum að
eyjunni litlu, þar sem hann óskaði
sér legstaðar. Þar fannst honum
vera sínir heimahagar, þótt víða
hefði hann dvalið allt frá æskuár-
um og alls staðar átt góðum
mönnum að mæta.
Baustið 1951 settist Trausti í
Búnaðarskólann á Hvanneyri og
lauk þaðan búfræðingsprófi vorið
eftir. Þar kynntist hann tilvonandi
eiginkonu sinni, Sigríði Sigur-
steinsdóttur frá Búrfelli í Hálsa-
sveit, er lifir mann sinn. Stigu þau
bæði mikið gæfuspor, er þau gengu
í hjónaband. Voru jiau hjón
samhent mjög um allt heimilis-
hald, byggingu húss síns á Flateyri
og uppeldi sonanna, en þeir eru:
Reynir, f. 18.11. 1953, Halldór, f.
6.9. 1959, Þorsteinn, f. 16.6. 1962 og
Þórir, f. 2.12. 1977.
Guð blessi minningu góðs
drengs og vinar.
Þórir Kr. Þórðarson.