Morgunblaðið - 23.07.1978, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1978
39
— Mount Everest
Framhald af bís. 19
áttu því bráðlega í hinum mestu
erfiðleikum og fór það þannig að
Hillary og Tenzing voru komnir
með töluverðan hluta birgða
þeirra á bakið, þegar þeir loks
náðu Suðurskarði. Þar fleygðu þeir
birgðunum niður við leifar sviss-
nesku tjaldanna frá árinu áður.
Er hér var komið sögu, þ.e. 26.
maí, segir Hillary í dagbók sinni:
„Allur hópurinn, ellefu menn,
lögðu af stað í bítið upp í
Suðurskarð. Ég fór fyrir og
gengum við rösklega. Allt virtist
ganga vel hjá hinum svo að við
héldum góðum hraða. Klukkan
9.30 sáum við í fyrsta sinn, að
fjórir menn voru komnir í
Suð-Austurhrygginn fyrir ofan
klettaskoruna. — Við Tenzing
náðum upp í Suðurskarð eftir um
þriggja tíma gang og sáum þá
hvar John og sherpinn Da Namgyl
voru að koma niður aftur. Við
fórum á móti þeim og hjálpuðum
þeim aftur til búðanna, þar sem
John var örþreyttur.
Aðrir förunautar okkar komu
bráðlega, þar á meðal þeir fimm
burðarmenn, sem áttu aðeins að
flytja birgðir upp í Suðurskarð, en
því miður voru þeir þirr, sem
flytja áttu birgðir fyrir okkur
áfram margar mílur á eftir. —
Þeir Tom og Charles hurfu yfir
Suðurtindinn eftir hádegi þennan
dag, — hvílíkt afrek. Þetta var svo
sannarlega mikið afrek, þeir voru
komnir hærra en nokkrir menn
höfðu áður klifið. Þótt skammar-
legt sé, var sú gleði, sem ég fann
til vegna sigurs þeirra, blandin
öfund og ótta. Það var að brjótast
í mér hvort þeir yrðu fyrstir á
tindinn".
Þessar hugrenningar Hillarys
reyndust óþarfar. Klukkan 3.30
eftir hádegi komu þeir Tom og
Charles aftur niður úr skýjunum
á leið sinni niður hrygginn. — Þeir
höfðu snúið við frá Suðurtindi í
um 8750 m hæð. Þeir voru
örmagna, svo að ferð þeirra niður
hrygginn var jafnvel stórhættuleg.
Þeir hröpuðu hvað eftir annað á
viðsjárverðum stöðum og að síð-
ustu hröpuðu þeir niður allt gilið
mikla, — það var algert krafta-
verk að þeir skildu sleppa lífs.
Þegar þeir komu niður voru þeir
næstum því of þreyttir til að geta
talað, en brugðu þó úpp frekar
dapurlegri mynd af ferðinni upp
hrygginn til hátindsins, — þeir
efuðust jafnvel um að hægt væri
að komast alla leið.
Næsti dagur, 27. maí, var
tíðinda lítill, utan það að allir
leiðangursmenn nema Hillary,
Tenzing og George ásamt tveimur
burðarmönnum héldu niður til
búða 7, vegna gífurlegrar þreytu.
Þar veitti Mike Ward læknir þeim
nauðsynlega aðhlynningu. Daginn
eftir tókst leiðangursmönnum að
koma birgðum upp í um 8500 m
hæð og setja þar upp búðir eftir
óhemju strit.
Dagurinn var runninn upp, 29.
maí 1953. Nú skyldi reynt við
sjálfan hátindinn. Veður var hið
bezta og útsýni stórfenglegt þegar
Tenzing og Hillary vöknuðu um
fjögurleytið. Þeir félagar byrjuðu
á að útbúa mat og drykk og þíða
frosna skóna yfir prímusnum. Þá
voru súrefnistækin prófuð. —
Tenzing og Hillary lögðu af stað
um hálfsjö leytið um morguninn
og skiptust á að fara á undan. Þeir
komu á Suðurtindinn um klukkan
níu. Eftir um 2 'A tíma ferð þaðan
stóðu þessir tveir menn.Edmund
Hillary og Tenzing, fyrstir manna
á hæsta tindi veraldar, MOUNT
EVEREST, 8848 m háum. Nánar
sagði frá þessum síðustu metrum
þeirra félaga hér í upphafi. —
Útsýnið á þessum hæsta tindi
veraldar er að vonum stórkostlegt
og segir Hillary m.a. svó frá í
dagbók sinni: „í norðri lá mikilúð-
legur hryggur með bröttum brún-
um niður að Eystri-Rongbujökli.
Við sáum ekkert af gömlu norður-
leiðinni, en hins vegar sáum við
prýðilega til Khumbu og Pumori,
sem voru langt fyrir neðan okkur.
Makalu, Kangchenjunga og Lhotse
voru aðaltindarnir í austri en
fjarri því eins mikilúðlegir og þeir
höfðu virzt áður. Við Tenzing
tókumst í hendur og síðan lagði
hann hendurnar yfir axlirnar á
mér og faðmaði mig, — þetta var
stórkostlegt andartak. Ég tók af
mér súrefnistækin og varði um 10
mínútum í að ljósmynda Tenzing
með fána í höndum, hina ýmsu
Everest hryggi og útsýnir yfirleitt.
Ég skildi krossmark eftir á
tindinum fyrir John Hunt og
Tenzing gerði örlitla holu í snjóinn
og lét þar í vistfórnir — brjóstsyk-
ur, kex og súkkulaði. Við átum
piparmyntukökur og settum svo
súrefnistækin á okkur aftur. Ég
hafði nokkrar áhyggjur af tíman-
um, svo að við stöldruðum aðeins
í 15 mínútur á tindinum áður en
við lögðum af stað niður aftur um
11.45.“
Niðurferðin gekk eins og í sögu.
En þar sem flestir leiðangurs-
manna voru orðnir örmagna af
þreytu og veðrið var að breytast til
hins verra var ákveðið að ekki
skyldu fleiri reyna við tindinn að
þessu sinni. Allur búnaður var
síðan smám saman tekinn niður og
hópurinn hélt til byggða.
Mikið var um dýrðir þegar niður
kom, sérstaklega fögnuðu inn-
fæddir Tenzing innilega — Heima
fyrir voru þeir Hunt og Hillary
sæmdir riddaranafnbót og voru
því eftir þetta kallaðir, „Sir
Edmund Hillary og Lord John
Hunt“.
Síðan þessi merki atburður
gerðist eru nú liðin 25 ár og á þeim
tíma hafa, eins og sagði hér að
framan, um 60 manns sigrað
fjallið og hafa þeir klifið það eftir
ýmsum leiðum. Miklar fórnir hafa
einnig verið færðar, því stór hópur
fjallgöngumanna hefur týnt lífi í
viðureigninni við „þann stóra“.
Flestir þeir, sem hafa klifið fjallið,
hafa gert það eftir hinni hefð-
bundnu Suðurskarðsleið, þeirri
sömu og Hillary og Tenzing fóru
á sínum tíma. — Frægasta atlagan
að fjallinu fyrir utan þá fyrstu að
sjálfstöðu er án efa þegar Dougal
Haston og Doug Scott í leiðangri
Chris Bonningtons 1975 komust á
tindinn eftir að hafa klifið hina
torkleifu og frægu Suð-vesturhlið
fjallsins. Þetta var talið mesta
fjallgönguafrek sem unnið hafði
verið fram að þeim tíma. Fjöldi
fjallgöngumanna hafði þá um
árabil reynt að klífa fjallið eftir
þessari leið án árangurs. Þess má
svo einnig geta að leiðangur
Bonningtons var albrezkur eins og
leiðangurinn 1953.
Síðasta atlagan að fjallinu var
gerð nú í vor af austurrískum
fjallgöngumönnum og var það til
tíðinda í þeim leiðangri að tveir úr
hópnum, þeir Reinhold Messner og
Peter Habeles, klifu fjailið fyrstir
manna án notkunar súrefnis og
þykir árangur þeirra geysimikið
afrek. I dag eru þeir taldir í hópi
fimm fremstu fjallgöngumanna
heimsins.
sb...
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Á fimmtudaginn í síðustu viku lögðu 87 aldraðir burgarar í Kúpavogi land undir fót
og héldu til Vestmannaeyja í tveimur flugvélum. Var þetta liður í starfsemi
Félagsmálastofnunar Kópavogs og eru slíkar flugferðir innanlands farnar árloga, sagði
Ásthildur Pétursdóttir hjá Félagsmálastofnuninni. Ásthildur sagði að hópurinn hefði
verið einkar heppinn með veður þann hálfa sólarhring sem dvalið var í Eyjum. sextán
stiga hiti og logn á Stórhöfða. Ljósmyndin var tekin af hópnum áður en lagt var aí
stað til Vestmannaeyja.
Norrænn vísnasöngur hefur verið svo til ófáanlegur um árabil, en nú ríöum
við á vaðið og bjóðum glænýja hljómplötu með CORNELIS VREESWIJK.
23 frábær lög af ýmsum uppruna, sungin á þann hátt sem Cornelis einum er
lagið.
Heildsölubyrgðir fyrirliggjandi.
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8 Laugavegur 24 Vesturver
Sími 84670. Sími 18670 Sími 12110.