Morgunblaðið - 23.07.1978, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1978
47
Christiaan Barnard
hlynntur líknardrápi
Hjartaskurðlæknirinn írægi Christiaan Barnard. — Hrjáður aí
liðagigt og hyggst hætta skurðaðgerðum á þessu ári.
f viðtali við fréttamann AP
nú fyrir stuttu lýsti hjarta-
skurðlæknirinn heimsfrægi,
Christiaan Barnard, þcirri
skoðun sinni að líknardráp
ætti fullan rétt á sér í vissum
tilfellum. Ilann sagði m.a.i „Við
verðum að gera okkur grein
fyrir því að dauðinn getur
verið lækning. Stundum tekst
með honum að ná takmarki
sem læknisfræðin nær ekki, —
að binda enda á þjáningar
fólks.“
„Við ættum ekki ætíð að líta
á dauðann sem andstæðing,
hann getur líka verið banda-
maður okkar.“
Barnard var staddur í Los
Angeles til þess að kynna nýja
skáldsögu sína, þegar viðtalið
var tekið. Sagan fjallar um
lækni sem stendur m.a. frammi
fyrir þeim vanda að ákveða
hvort hann eigi að hjálpa
dauðvona eiginkonu sinni að
deyja eða láta hana kveljast
áfram.
Barnard hefur mikið hugleitt
líknardráp á liðnum árum og
komst meðal annars á forsíður
blaða í heimalandi sínu, Suð-
ur-Afríku, þegar það varð upp-
víst að hann og bróðir hans
hefðu ákveðið að ef annar þeirra
yrði einhvern tíma í því ástandi
að líkamsstarfsemi þeirra væri
haldið gangandi með vélum, en
þeir væru úr öllu sambandi við
umheiminn og gersamlega
ósjálfbjarga, skyldi hinn bróðir-
inn framkvæma á honum líkn-
ardráp.
í viðtalinu leggur Barnard
áherslu á að hann hafi aldrei
framkvæmt líknardráp, vegna
þess að það sé ólöglegt, en hann
telur að lögunum um þetta efni
verði breytt og læknum verði í
framtíðinni heimilt að hætta
læknisaðgerðum, „þegar aðgerð-
irnar hafa aðeins eitt í för með
sér, það er að framlengja enn
þjáningar sjúklingsins."
Hjartaskurðlæknirinn var
spurður hvort þessi afstaða
hans endurspeglaði ef til vill trú
á annað líf.
„Ég vildi gjarnan trúa á
framhaldslíf. Ég trúi því að til
sé æðri kraftur sem hefur
skapað manninn og heiminn. Ég
held að lífið sé eins og orkan,
það eyðist aldrei."
„Ég veit ekki í hvaða formi líf
mitt heldur áfram. Hvort ég
verð köttur eða tré eða ljós. En
ég held að lífið haldi áfram. Við
megum ekki ætla að eitthvað sé
ómögulegt, enda þótt manns-
hugurinn skilji það ekki.
Christiaan Barnard er nú 55
ára að aldri og hrjáður af
liðagigt .og kveðst munu hætta
öllum skurðaðgerðum í lok
þessa árs. Hann er orðinn
viðkvæmur með aldrinum, segir
hann, og segist ekki hafa hætt
við aðgerðirnar þar sem hann
græddi hjarta úr lifandi sjimp-
ansa í fólk, vegna þess að hann
hafi talið sig vera á rangri braut
enda þótt aðgerðirnar hafi
misheppnast, heldur vegna
sjimpansanna.
— „Fyrst sagði ég við sjálfan
mig:— Mannslíf er meira virði
— en svo þegar ég sá þessa tvo
sjimpansa ... þeir voru svo líkir
manneskjum."
IBM-skákmótið:
Timman í efsta sæti
og Browne síðastur
Amstprdam. 22. júlí. Router.
HOLLENZKI stórmeistarinn Jan
Timman er efstur á IBM-skák-
mótinu með 6 vinninga eftir sjö
umferðir. Zoltan Ribli frá Ung-
verjalandi er í öðru sæti með 5Vi
vinning og Vlastimil Hort frá
Tékkóslóvakíu og Vestur-Þjóð-
verjinn Helmut Pfleger eru með
4 vinninga.
Kraftur í
Frökkum
Papeete, Tahiti, 22. júlí. Reuter.
FRAKKAR sprengdu sína kraft-
mestu neðanjarðarkjarnorku-
sprengju til þessa á miðvikudag á
Mururoa-eyjum, sem eru í franska
Polynesíueyjaklasanum. Engar
nánari upplýsingar voru gefnar.
í sjöundu umferð, sem var tefld
á föstudagskvöldi, gerðu þeir
Timman og Hort jafntefli í stuttri
skák en Hort hafði fyrr um daginn
teflt tvær biðskákir og haft þar
1 'k vinning. Ljubojevic vann
Adorjan, Langeweg vann Nikolac,
Ribli vann Dzhindzhiandashvili,
Pfleger vann Romanishin, skák
Ree og Andersson lauk með
jafntefli og skák Miles og Browne
fór í bið.
Adorjan, Langeweg, Dzhind-
zhiashvili, Andersson og Ljuboj-
evic eru með 3'/2 vinning, Rom-
anishin er með 3, Miles með 2'/2 og
biðskák, Ree 2'/2, Nikolac 2 og
Browne er með 1 vinning og
biðskák.
í B-flokki er Bandaríkjamaður-
inn Christiansen efstur með 5
vinninga og Ligterink og Kirov
koma næstir með 4 'k vinning
hvor.
— Bjartsýni að
vera bjartsýnn
Framhald aí bls. 48
ingu, hvort sú samstaða næðist við
aðila vinnumarkaðarins, sem
nauðsynleg væri. Þar væri ekki
nægilegt að ná samvinnu við ASÍ,
heldur og við BSRB. Kvaðst hann
vona að viðræðurnar kæmust á
það stig að unnt yrði að ræða við
þessa hópa eftir helgi.
„Þetta getur enn slitnað á
mörgu,“ sagði Steingrímur, „ég
kalla það bjartsýni, að vera
hóflega bjartsýnn eins og
Benedikt." „Ertu þá kannski svart-
sýnn?“ spurði Morgunblaðið og
Steingrímur svaraði: „Nei, ég er
það ekki, það er alls ekki ástæða
til þess, en þetta getur samt farið
á báða vegu enn.“
Úr röðum alþýðubandalags-
manna, sem nátengdir eru þessum
viðræðum hefur Morgunblaðið
heyrt efasemdir um verkstjórn
Benedikts Gröndals í þessum
viðræðum og sagði einn alþýðu-
bandalagsmanna, að honum fynd-
ist hún fremur „lin.“ Nú hlyti að
fara að koma að því, að hann sem
forystuaðili þessara viðræðna færi
aö draga fram þau atriði, sem
raunverulega skiptu máli. Fannst
þessum manni hugmyndir Alþýðu-
flokks heldur stjórnast af ósk-
hyggju en raunveruleika. Þá sagði
alþýðubandalagsmaður, að í huga
sínum og flokksfélaga sinna væru
vissar efasemdir um umboð þeirra
félaga Steingríms Hermannssonar
og Tómasar Árnasonar. Greinilega
hefði orðið mikill ágreiningur
innan Framsóknarflokksins og
væri hann enn. Taldi hann ekki
ólíklegt að Steingrímur, Tómas og
Jón Helgason frá Seglbúðum væru
með viðræðunum að styrkja stöðu
sína innan Framsóknarflokksins í
því valdatafli, sem þar ætti sér
stað og fyrir það uppgjör, sem
hlyti að verða í flokknum á næstu
misserum. Aðrir aðilar innan
flokksins gætu litið þetta horn-
auga og því væri ekki tryggt, að
flokkurinn gengi að þessum við-
ræðum, þegar þeim lyki. Alþýðu-
bandalagsmenn sögðust ekki efast
um einlægni þremenninganna úr
Framsóknarflokknum, en styddi
flokkurinn þá heilshugar? Það
væri spurningin.
Frá alþýðuflokksmönnum frétt-
ist og að mönnum leiðist seina-
gangur viðræðnanna og sagði
alþýðuflokksmaður, að Benedikt
Gröndal væri orðinn fremur leiður
á honum og vildi fyrir alla munu
hraða viðræðunum, svo að útlínur
gætu legið fyrir síðla á mánudag.
Alþýðuflokksmenn eru nú komnir
að þeirri niðurstöðu að þeim hafi
orðið á ein reginskyssa. Þeir hafi
fyrst átt að óska eftir vinstri
viöræðum. Þeir segjast sannfærðir
að Lúðvík Jósepsson sé í hjarta
sínu hlynntur slíkri stjórnar-
myndun, en hann hafi ekki getað
samþykkt slíkt stjórnarmynstur,
fyrr en hann hefði reynt vinstri
stjórnar viðræður og þær orðið
árangurslausar. Þetta hafi verið
afdrifaríkasta ákvörðun þessara
viðræðna, en menn hafi bara ekki
áttað sig á stöðunni þá — og
auðvelt væri að vera vitur eftir á.
— Meðan heimild-
ir eru ekki
gefnarupp...
Framhald af bls. 2
mundar Gylfasonar og Sighvats
Björgvinssonar alþingsmanna
við grein Ingvars í Tímanum en
kjarni hennar og viðbrögð
Vilmundar og Sighvats birtust í
Mbl. í gær.
Sagði Ingvar að hann myndi
svara þingmönnunum tveimur
nánar í blaðagrein á næstunni. I
athugasemd sem birtist í Tíman-
um í gær segir Margrét Indriða-
dóttir fréttastjóri útvarpsins að
finni Ingvar Gíslason ekki orðum
sínum um fréttamafíu stað beri að
líta á þau sem atvinnuróg af
grófasta tagi sem ástæða er til að
fari fyrir dómstóla. „Ég er að
sjálfsögðu tilbúinn að mæta
Margréti fyrir dómstólum ef hún
vill það, þótt ég skilji ekki af
hverju hún kýs að taka mál mitt
með þessum hætti", sagði Ingvar
Gíslason. „Ég á ekkert sökótt við
Margréti eða það fólk sem hún
stýrir á fréttastofu útvarpsins.
Fréttir eru nú á dögum margt
fleira en það sem unnið er á
fréttastofun útvarps eða sjónvarps
eða það sem þið piltar eruð að
safna sem fréttum í blöðín.
Það sem ég á við með frétta-
mafíu eru hópar í þjóðfélaginu
sem rotta sig saman og reyna að
búa til umræðuefni sem svo
gengur misjafnlega lengi í blöðum
og ríkisfjölmiðlum.
Annars verð ég'nú að segja það
að mér finnst það hart, ef ég má
nú ekki ræða málin af fullri einurð
eftir það sem á undan er gengið án
þess að fólk hlaupi upp til handa
og fóta og vilji stefna mér fyrir
dómstólana. En það um það“, sagði
Ingvar Gíslason að lokum.
— Nýrforseti
Framhald af bls. 1
kjörinn. Fráfarandi forseti,
Mboumoua frá Kamerún, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
Umræður á leiðtogafundinum
hafa að mestu snúizt um hern-
aðaríhlutun í álfunni af hálfu
erlendra aðila, ekki sízt ástandið í
Vestur-Sahara þar sem
Polisarío-skæruliðar með tilstyrk
Alsírstjórnar takast á við herlið
frá Máritaníu og Marokkó, sem
nýtur stuðnings Frakka.
— Grófur at-
vinnurógur
Framhald af bls. 2
Jafnframt vann fréttamafían að
því að fegra ímynd helstu and-
stæðinga og ofsóknarmanna
Framsóknarflokksins og gera hlut
þeirra sem allra mestan". Fleira
segir alþingismaðurinn í sama
dúr, markmið „fréttamafíu" þess-
arar var að gera Framsóknar-
flokkinn „tortryggilegan, óheiðar-
legan“, hún hefur að sögn hans
háð „langvarandi ófrægingar-
styrjöld" gegn Framsóknarflokkn-
um og tengist enda Alþýðuflokki,
Alþýðubandalagi og Sjálfstæðis-
flokki.
Fréttastofa útvarps er ríkisfjöl-
miðill. Nú stikar alþingismaður
fram á ritvöllinn og líkir frétta-
stofunni við heimsfræg samtök
glæpamanna. Hann sakar frétta-
menn útvarps um að hafa ástund-
að að búa til afskræmda mynd af
einum tilteknum stjórnmálaflokki
(Framsóknarflokknum) og draga
taum „ofsóknarmanna" þess sama
flokks. Fréttamenn útvarps eru
m.ö.o. á borð við alræmdustu
glæpamenn veraldar, fyrir nú utan
það að bregðast grundvallarskyld-
um sínum sem fréttamenn.
Ef Ingvar Gíslason alþingismað-
ur finnur ekki þessum orðum
sínum stað ber að líta á þau sem
atvinnuróg af grófasta tagi sem
ástæða er til að fari fyrir dóm-
stóla.“
Emil Björnsson, fréttastjóri
sjónvarpsins sagðist hreinlega
ekki vita hvað Ingvar ætti við með
þessum fullyrðingum sínum. „Mér
þætti fróðlegt og reyndar alveg
sjálfsagt að þingmaðurinn fyndi
þessum orðum sínum stað. Það
allra minnsta, sem hægt er að óska
eftir er að þingmaðurinn nefni þá
dæmi úr starfi fréttamanna og
fréttastofu sjónvarpsins, sem
hann telur að sanni þessi orð sín.
Sú fullyrðing að fréttamenn sjón-
varpsins hafi haft Framsóknar-
flokkinn að skotmarki, er alveg af
og frá og slíkt er mjög alvarleg
ásökun í garð ríkisfjölmiðils enda
hljótum við að leggja okkar
fréttamannaheiður að veði. Ég hef
í öllu mínu starfi reynt að vaka
yfir þvi að reglum Ríkisútvarpsins
um hlutleysi væri fylgt og öllum
aðilum væri gert jafn hátt undir
höfði og ég hef ekki orðið var við
nokkuð það sem staðfest getur
fullýrðingar Ingvars," sagði Emil.
Jónas Kristjánsson, ritstjóri
Dagblaðsins, hafði þetta um skrif
Ingvars að segja: „Þetta er bara
rugl og Ingvar bendir ekki á í
einstökum atriðum hvað hann eigi
við og það tekur því ekki að svara
þessu.“
Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Vís-
is, sagði aðspurður um þessi
ummæli Ingvars, að hann vildi
ekki svara þessu að öðru leyti en
því að afstaða sín kæmi fram í
forystugreinum Vísis.
— Hershöf ðingi
Framhald af bls. 1
ekki í fvrsta skipti, sem öfgahópar
ógnuðu öryggi landsins. Ég tek á
mig' ábyrgðina, þegar Bólivía
stendur frammi fyrir alvarlegum
vandamálum. Þessi stjórn er
mynduð í fullu samræmi við vilja
þjóðarinnar og enginn getur neit-
að því.“
I gærdag var lýst yfir hernaðar-
ástandi í Santa Cruz, til að tryggja
frið í borginni, en þá höfðu
uppreisnarmenn með Pereda í
broddi fylkingar tekið völdin.
Skriðdrekar óku um göturnar og
húsmæður flýttu sér að kaupa
matvörur áður en verzlunum var
lokað.
Er uppreisnin tók að breiðast til
annarra landshluta ákvað Banzer
að senda þrjá ráðherra sína á fund
Peredasar og að þeim fundi
loknum sagði Banzer af sér
forsetaembættinu.
— Rhódesíuher
Framhald af bls. 1
manna í Rhódesíu hófst. Ekki er
enn vitað hvar skæruliðarnir féllu,
né heldur hvenær, en margt þykir
benda til þess að þeir hafi fallið á
síðustu tveimur dögum.
— Sadat
Framhald af bls. 1
skrá hans lögð fram í framhaldi af
því. Þar til á árinu 1976 var
Arabíska sósíalistasambandið eini
stjórnmálaflokkur Egyptalands
frá því að Nasser kom til valda
árið 1952, en þegar þrír stjórn-
málaflokkar voru stofnaðir fyrir
tveimur árum varð sambandið
nokkurs konar sameiningartákn.
Sadat hefur sjálfur staðið utan við
flokkapólitík eftir að flokkarnir
voru stofnaðir en búizt er við því
að framvegis verði hann mjög
virkur á þeim vettvangi. Af 360
fulltrúum á egypzka þinginu er
yfirgnæfandi meirihluti í Ara-
bíska sósíalistasambandinu sem
fer með stjórn landsins, og bendir
allt til þess að flestir þingmenn
þess flokks fylki sér um Sadat í
hinum nýju jafnaðarmannaflokki.