Morgunblaðið - 23.07.1978, Side 48
AL’CíLVSIMíASÍMINN ER:
22480
Verzlið
í eénrerzlun með
litasjónvörp og hljómtaeki.'1
l^BÚOIN
SkiphoÍ?r49,
sími 29800
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1978
Enginn vill
þorskfarm
úr Dagnýju
SKUTTOGARINN Dagný
liggur nú í Siglufjarðarhöfn
með um 140 tonn af þorski og
samkvæmt upplýsingum Sig-
urðar Finnssonar er óvíst
hvað verður um aflann þar
sem allt er yfirfullt í fisk-
vinnsluhúsum. Dagný fær að
landa 25—30 tonnum n.k.
mánudag, en Sigurður kvaðst
búinn að reyna að koma
Skattálagn-
ingarsedlarn-
ir sendir út
eftir helgina
ALLAR líkur benda nú til
þess. að hægt verði að leggja
fram skattskrána fyrir
Reykjanesumdæmi n.k.
fimmtudag, að sögn Sveins
Þórðarsonar skattstjóra um-
dæmisins. — Það kom einnig
fram hjá Sveini að tölvu-
vinnsla hefði gengið nokkru
hægar fyrir sig en ráð hafði
verið fyrir gert og því ekki
verið hægt að leggja skrána
fram fyrr eins og ætiað hafi
verið.
„Alagningarseðlar til skatt-
greiðenda verða hins vegar
sendir út strax eftir helgi. Það
er fyrst og fremst gert til
hagræðingar fyrir alla aðila,"
sagði Sveinn. — Annars myndi
skapast hálfgert neyðarástand
daginn sem skráin verður lögð
fram, þegar allir vilja fá að vita
um sinn skatt.
í Reykjavík verður skatt-
skráin lögð fram í lok vikunnar,
en ekki er enn ákveðið hvaða
dag, að sögn Halldórs Sigfús-
sonar skattstjóra. — Álagning-
arseðlar verða, eins og í
Reykjanesumdæmi, sendir
skattgreiðendum eftir helgi.
aflanum fyrir mjög víða, bæði
1 kring um „klettinn“, í
Færeyjum, Englandi og í
Þýzkalandi. Kvað hann
hugsanlegt að þeir gætu
landað aflanum í Hafnarfirði
til Bæjarútgerðarinnar þar
n.k. miðvikudag.
„Þetta er sérstakt ástand
núna,“ sagði Sigurður, „og
hefur aldrei verið svona fyrr,
því það gengur ekkert að fá
löndun úr Dagný. Bæði er að
það er mikill afli og svo er
aldrei unnið nema til kl. 6 hjá
Þormóði ramma og ekkert á
laugardögum og sunnudögum.
Þetta er ástæðan fyrir því að
það er svo víða tregða að taka
á móti fiski og svo er aflinn
mikill á stóru svæði, það má
segja frá Sléttugrunnshorninu
og vestur úr einnig fyrir
austan land, og trillubátarnir
á norður- og norðausturhorn-
inu skila drjúgum afla þegar
gefur.“
Myndina tók ólafur K. Magnússon í góða veðrinu í gær
fyrir framan Aðalstræti 7 þar sem Húsmunaskálinn
býður upp á sitthvað af notuðu og nýlegu. Konan gengur
knálega á móti sólinni en fyrir innan gluggann má
greina vangasvipinn á Steingrími Elíassyni kaupmanni.
Bitna aðgerð-
ir franskra
flugumferð-
arstióra á
íslendingum?
„ÞAÐ á að fara vél frá
okkur til Malaga seinnipart-
inn á morgun og kann að
vera að hún verði eitthvað
vör við þetta, en við fengum
eina vél heim í nótt frá
Kanaríeyjum og aðra frá
Mallorka og þær komu
ótruflaðar,“ sagði starfs-
maður Flugleiða sem Mbl.
spurði í gær hvort seina-
gangur franskra flugum-
ferðarstjóra hefði eitthvað
komið niður á íslenzkum
Spánarförum, en í gær sáu
menn fram á allt að sólar-
hrings bið ferðamanna til og
frá Spáni vegna aðgerða
frönsku flugumferðarstjór-
anna.
Spænska flugfélagið Iberia af-
lýsti í gær 23 áætlunarferðum
sínum og farþegar í leiguflugi sáu
fram á langa bið þar sem frönsku
flugumferðarstjórarnir afgreiddu
í gær aðeins eina eða tvær
flugvélar á klukkustund um
flugumsjónarsvæði sitt, en venju-
leg umferð þar á þessum árstíma
eru 20—25 flugvélar á klukku-
stund.
Steingrímur Hermannsson um vinstri viðræðumar:
Bjartsýni að vera hóflega bjart
sýnn — er þó ekki svartsýnn
Stefnum að því að línur skýrist síðdegis á morgun
Skemmtiferða-
skip til Hafnar
Höfn. Hornafirði, 22. júlí.
FYRSTA skemmtiferðaskipið,
sem hingað kemur. er væntanlegt
í fyrramálið.
Skipið heitir World Explorer og
er það væntanlegt við ósinn um
F:ö1eytið í fyrramálið og áætlað
klukkan níu. Elías.
VIÐRÆÐUNEFNDIR Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarfiokks héldu sameig-
inlegan fund í gærmorgun, en
síðan fóru minni hópar að ræða
saman um einstök málefni. Er
fyrirhugað að rætt verði þannig
um stjórnarmyndun í dag. en
viðræðuncfndirnar hittist síðan í
fyrramálið. mánudag. og síðan
eru boðaðir þingflokksfundir hjá
öllum þremur flokkunum. Bene-
dikt Gröndal sagðist í gær gcra
sér vonir um að útlínur niður-
staðna af viðræðunum lægju þá
fyrir og ljóst yrði á hvorn veginn
viðræðurnar færu og línur skýr
ist strax eftir helgi.
Steingrímur Hermannsson, rit-
ari Framsóknarflokksins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
hann teldi það bjartsýni hjá
Benedikt Gröndal að vera hóflega
bjartsýnn á viðræðurnar. Morgun-
blaðið spurði þá Steingrím, hvort
hann væri svartsýnn og kvað hann
svo ekki vera. Hins vegar væru
mörg atriði, sem enn ætti eftir að
ræða, sem komið gætu í veg fyrir
samkomulag.
Benedikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins kvað mestan tíma
hafa farið í viðræður um efna-
hagsmál og utanríkismál. Morgun>
blaðið spurði, hvort Alþýðubanda-
lagið væri lipurt í varnarmálunum
kureyri:
Salta verður úr
landburði af þorski
ÞAÐ er slíkur landburður af
þorski úr Akureyrartogurunum
að Útgerðarfélag Akureyrar get-
ur ekki unnið allan aflann í
frystihúsi sínu og því verður að
salta hluta aflans.
Nú liggur Kaldbakur þar inni,
en hann kom fyrir helgina með 300
tonn af þorski og er aðeins búið að
landa 50 tonnum úr skipinu.
Verður haldið áfram að landa eftir
helgina, en n.k. miðvikudag á
Svalbakur að landa og er ekki
vitað hvort unnt verður að taka á
móti aflanum þá, semkvæmt
upplýsingum Gunnars Lórenzson-
ar verkstjóra. Það hefur m.a. áhrif
á vinnslu aflans að margt af
fastastarfsmönnum ÚA er í
sumarleyfi en til þess að reyna að
bjarga fi?kaflanum var sótt um
undanþágu til verkalýðsfélgsins
Einingar til þess að vinna helgar-
vinnu, en þeirri beiðni var hafnað.
og kvað Benedikt of snemmt að
fullyrða nokkuð um það. Hann
kvaðst gera ráð fyrir því að þegar
flokkarnir færu að meta heildar-
myndina af viðræðunum, þá muni
hún hafa mest áhrif á það, hvernig
afstaða þeirra verði.
Steingrímur kvað nú unnið að
nánari skoðun á fjölmörgum
þáttum efnahagsmála og utanrík-
ismála í smærri hópum. Kvaðst
hann eins og Benedikt gera sér
vonir um að á mánudag yrðu línur
farnar að skýrast og unnt yrði að
leggja fyrir þingflokkana ein-
hverjar niðurstöður. Hann kvaðst
gjarnan vilja taka það fram, að frá
hálfu framsóknarmanna væri það
algjör forsenda að efnahagsdæmið
gangi upp, bæði hjöðnun verð-
bólgu, staða ríkissjóðs og við-
skiptamálin. í þeim efnum kvað
hann ekkert liggja fyrir enn, þótt
menn væru farnir að skoða alla
möguleika nánar í því sambandi.
Morgunblaðið spurði Steingrím,
hvort einhver glóra væri í efna-
hagsmálunum og var í því sam-
bandi vitnað í Tímann í gær, þar
sem segir að „samningarnir í
gildi“ hefðu í för með sér 5%
aukagengisfellingu og 60% verð-
bólgu á árinu. Steingrímur kvaðst
ekki vita hvaðan þessar upplýsing-
ar væru komnar. Hann sagði að
„samningarnir í gildi“ væri
náttúrulega sú krafa, sem hinir
aðilarnir hafi sett fram í kosn-
ingabaráttunni, en framsóknar-
menn hafi tekið mjög skýrt fram,
að þetta stóryki vandann og yrði
þetta því að vera inni í heildar-
dæminu um efnahagsvandann.
Það dæmi kvað hann enn ekki
útreiknað, þótt miklar skýrslur
liggi fyrir.
Steingrímur var spurður að því,
hvort niðurfærsluleið væri ófær,
en hann kvað ekki unnt að segja
slíkt. Hún, eins og Jón Sigurðsson
hefði sagt, dygði ekki ein heldur
allar þessar leiðir, gengisskráning,
niðurfærsluleið og millifærsluleið.
Það þyrfi að nota þær allar. Svo
kvað hann það hina miklu spurn-
Framhald á hls. 47
Hrönn keypt til
Siglufjarðar?
VIÐRÆÐUR fara nú fram um
kaup á skuttogaranum Hrönn RE
10 til Siglufiarðar og eru það
hlutafélagið Isafold og einstakl-
ingar sem myndu kaupa skipið.
Skúli Jónasson í Siglufirði sagði
er Mbl. spurði hann um skipa-
kaupin að hann gæti ekkert um
málið sagt að svo stöddu, en
línurnar myndu skýrast í næstu
viku.