Morgunblaðið - 25.07.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978
15
Brussel, 24. júlí. — AP.
FULLTRÚAR ríkja Efna-
hagsbandalagsins hófu 1
morgun viðræður við full-
trúa 53 þróunarlanda við
Kyrrahaf, Karabíska haf og
í Afríku um aðstoð
EBE-landanna og viðskipti
þjóðanna. Aðalverkefni
fundarins verður þó eflaust
umræða um viðbót við sér
stakan stuðnings- og við-
skiptasamning sem gerður
var 1975, en samkvæmt
honum skuldbinda þjóðir
EBE sig til að veita þróunar-
löndunum 5 milljarða doll-
ara í aðstoð fram til 1980,
eða 1300 milljarða íslenzkra
króna.
P.J. Patterson, utanríkis-
ráðherra Jamaica, sem er í
forsvari fyrir þróunarlöndin,
sagði við komuna til Brussel,
að þeir kæmu alls ekki til
þessara viðræðna „hjálpar-
vana, tómhentir og aflvana".
Það væri ljóst að hinar miklu
hráefnaauðlindir þróunar-
landanna og aukin markaðs-
hlutdeild þeirra á flestum
mörkuðum kailaði á algera
endurskoðun á viðskipta- og
lánasamningi þjóðanna.
N oregur-Grænland
eitt meginland?
VORU Noregur, Svalbarði
og Grænland í eina tíð hluti
af sama meginlandi? —
Þetta er spurning sem land-
fræðingar hafa mikið velt
fyrir sér hin síðari ár og
samkvæmt síðustu rann-
sóknum sem gerðar hafa
verið í norskum háskóla í
samvinnu við Kólumbíahá-
skóla í Bandaríkjunum eru
miklar líkur taldar til þess
að þessi lönd hafi verið eitt
og sama meginlandið fyrir
55—60 milljónum ára.
Undir þessa kenningu
renna einnig stoðum rann-
sóknir sem gerðar hafa verið
á landgrunni Noregs á und-
anförnum árum, en sam-
kvæmt þeim voru Noregur,
Svalbarði, Grænland og
Norður-Ameríka eitt og sama
meginlandið fyrir um 60
milljónum ára.
Rannsóknir við Island og
Jan Mayen á undanförnum
árum styðja einnig þessar
kenningar. Sérstaklega
benda vísindamenn á að enn
sé mikil spenna í landgrunn-
inu við þessi ríki sem um-
brotin í Vestmannaeyjum
sanni óyggjandi.
Sagði hann að raddir heyrð-
ust jafnvel í sumum þróunar-
löndum um að nú væri
kominn tími til að stíga skref
í þá átt að endurskipuleggja
hagkerfi heimsins með auk-
inni þátttöku þróunarland-
anna.
Hans Dietrich Genscher,
utanríkisráðherra Vest-
ur-Þýzkalands, var á nokkuð
annarri skoðun og sagði að
þessar viðræður ættu aðeins
að leiða til þess að samningur
þjóðanna yrði nákvæmari og
aðgengilegri, og ekki yrðu
neinar stórbrfcytingar gerðar.
Einnig sagði Genscher að
eðlilegt væi^i að vestrænar
þjóðir færu fram á meiri
tryggingu fyrir því að fjár-
festingar þeirra í höndum
þriðja heimsins gæfu af sér
eðlilegan arð. — Patterson
hafnaði þessum hugmyndum
Genschers og sagði þróunar-
löndin alls ekki geta gefið
Evrópuríkjum neina frekari
tryggingu fyrir eðlilegri arð-
semi fjárfestinga þeirra,
fremur en öðrum sem fjár-
festa vildu í löndum þeirra.
Þetta gerðist
1977 — Vopnahlé í stríði
Egypta og Líbýumanna.
1975 — Tyrkir ákveða að loka
bandarískum hernaðarmann-
virkjum vegna vopnabanns
Bandaríkjanianna.
1971 — Christiaan Barnaard
græðir lungu og hjarta í deyj-
andi mann í Höfðaborg.
1%3
Tilraunabannssamningur
Bandaríkjamanna, Rússa og
Breta gerður.
1956 — „Andrea Doria" rekst
á farþegaskip undan strönd
Nýja Englands.
1952 — Kola- og Stálsamband
Evrópu hefur göngu sína.
1943 — Mussolini neyddur til
að segja af sér.
1934 — Dollfuss kanzlari
Austurríkis ráðinn af dögum.
1898 — Bandaríkjamenn gera
innrás í Puerto Rico.
1848 — Uppreisn í Tipperary
undir forystu Smith 0‘Brien.
1792 — Tilkynning hertogans
af Brúnsvík með hótun hans um
að leggja París í rúst ef
konungsfjölskyldunni verði gert
mein.
1689 — Loðvík XIV segir
Bretum stríð á hendur.
1593 - Hinrik IV af Frakk-
landi gerist kaþólskur („París er
einnar messu virði“).
1564 — Maximilian II verður
keisari.
1554 — María I af Englandi
giftist Filippusi af Spáni.
Brezki hnefaleikarinn Alan Minter greiðir keppinaut sínum, Italanum Angelo
Jacopucci, högg í keppni þeirra um Evrópumeistaratitilinn í hnefaleik í síðustu viku.
— Svo mikið var höggið að það leiddi Jacopucci til dauða á sjúkrahúsi skömmu síðar.
Þessi atburður hefur vakið mikla athygli og hafa t.d. tvö brezku dagblaðanna tekið
það upp í leiðara og er þar ýjað að því hvort ekki beri að banna þessa íþrótt í Bretlandi.
Skothríð í 36
tíma í Beirút
Þróunarlönd krefjast
aukinna áhrifa
Beirút, 24. júlí. AP. Reuter.
SÍÐUSTU bardagar Sýrlendinga
og kristinna manna í Beirút
fjöruðu út í morgun eftir um 36
klukkustunda skothríð.
Kristnir menn segja. að níu úr
liði þeirra hafi fallið og 62 særzt
á undanförnum tveimur sólar-
hringum.
Skothríðin kom af stað nokkr-
um eldum í furuskógi milli
forsetahallarinnar og bústaðar
handaríska sendiherrans en þeir
voru fljótlega slökktir og hvorki
höllin né sendiherrabústaðurinn
urðu fyrir tjóni.
Bardagarnir hófust á laugar-
dagskvöld í kristna hverfinu
Hadass í Suður-Beirút, rénuðu í
dögun en blossuðu aftur upp af
fullum krafti síðdegis. Skömmu
eftir myrkur breiddust þeir út til
hverfanna Ashrafiyeh og Ein
Rummaneh og hafnarhverfisins.
Sýrlenzka herstjórnin tilkynnti
í morgun, að haldið væri upp
skotárásum á hverfi kristinna
manna þar sem leyniskyttuF úr
varnarsveitum þeirra létu á sér
kræla. Sýrlendingar saka kristna
menn um að hafa átt upptökin að
bardögunum á laugardag þegar
þeir hafi skotið tvo sýrlenzka
hermenn í eftirlitsferð. Kristnir
menn segja að Sýrlendingar hafi
átt upptökin.
Sýrlendingar saka einnig stjórn-
málaflokka kristinna manna um
vísvitandi ögrun í garð Sýrlend-
inga og segja að hún sé liður í
fyrirætlunum hægrimanna um að
skipta Líbanon í kristið ríki og ríki
múhameðstrúarmanna.
Gundelach
varar vid
Briissel 14. júlí. AP.
FINN Olav Gundelach. fiskimála-
fulltrúi Efnahagshandalagsins.
varaði í dag Breta. Frakka og
VesturÞjóðverja við því að fiski-
menn þeirra ættu það á hættu að
verða útilokaðir frá veiðum á
Afmæli dagsins. Henry Knox
bandarískur hershöfðingi
(1750-1806) - A.J.Balfour
brezkur stjórnmálamaður
(1848-1930).
Innlent. Heklugos hefst 1510
— D. Síra Þorkell Bjarnason
1902 — Magnús Stefánsson (Örn
Arnarson) 1942.
Orð dagsins. Það tekur mig
venjulega meira en þrjár vikur
að undirbúa góða óundirbúna
ræðu — Mark Twain bandarisk-
ur rithöfundur (1835-1910).
ntiðum við Noreg og Fa'revjar ef
þeir kæmu sér ekki saman um
skiptingu aflans.
Málið var ra'tt á lokuðum
ráðherrafundi í dag. Einn ráðherr-
ann sagði að síldveiðibann Breta
fyrir vestan Skotland gerði ntálið
flóknara en ella. Vegna bannsins
sagði hann að norskum og f;er-
eyskunt fiskimönnum fyndist að
þeir hefðu ekki getað veitt allan
fisk sem þeir ættu rétt á og vildu
skerða afla EBE-sjóntanna í
hefndarskyni.
Thomaz aftur
til Portúgals
Lissabon 21. júli'. AP — Reuter.
LEIÐTOGAR kommúnista og
vinstrimanna fordæmdu í dag
heimkomu Americo Thomaz.
fyrrverandi forseta. sem hefur
verið í útlegð undanfarin fjög-
ur ár í Brazilfu og sögðu að
heimkoman gæti ýtt undir
undirróður hægrimanna.
Haft er eftir ónefndum vini
Thomaz að hann sé hættur
öllum stjórnmálaafskiptum
enda sé hann orðinn 83 ára
gamall. Vinur hans sagði, að
hann hefði viljað koma aftur til
Portúgals til að sjá barnabörn
sín. Eanes forseti leyfði Thomaz
að koma heim fyrir tveimur
mánuðum.
Thomaz dvelst hjá dóttur
sinni í Restelo, einni útborg
Lissabon, og neitar að ræða við
blaðamenn. Vinur hans segir að
hann fari fljótlega út á land í
sumarfrí en kveðst efast um að
hann fari til ferðamannabæjar-
ins Bucaco í Norður-Portúgal
þar sem auðugir Portúgalar af
gamla skólanum dveljast oft.
Thomaz var flotaforingi og
flotamálaráðherra áður en hann
var kjörinn forseti 1958. Fréttir
herma að hann hafi haft uppi
áform um að reka Antonio
Salazar forsætirráðherra, sem
réð lögum og lofum í Portúgal,
frá árið 1926 en Salazar orðið
f.vrri til og rekið Thomaz.
Thomaz var náinn vinur Sala-
zars og fékk orð fyrir að vera
litlaus leikbrúða einræðisherr-
ans. En þegar Salazar fékk
heilablóðfall 1968 jukust völd
Thontaz sem kom fram í hlut-
verki hægriöfgamanns og beitti
neitunarvaldi gegn hófsömum
breytingum Marcello Caetano
forsætisráðherra í frjálsræði-
sátt.
Bæði Thomaz og Caetano voru
handteknir eftir byltinguna
1974 og þeir voru fluttir flug-
leiðis til Madeira og seinna
flæmdir til Brazilíu. Thomaz bjó
á hóteli í Rio de Janeiro og barst
lítið á. Hann mun hafa lifað á
rúmlega hálfri milljón íslenzkra
króna á mánuði og fengið féð frá
portúgölskum stuðningsmönn-
um í Brazilíu.
Heimkoma Thomaz vekur
úlfaþyt vegna yfirstandandi
stjórnarkreppu.