Morgunblaðið - 25.07.1978, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.07.1978, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978 FRJÁLSÍÞROTl BEZTA I SOGU U FRJÁLSÍÞRÓTTAKEPPNI landsmótsins á Selfossi er án efa sú glæsilegasta. sem um getur í sögu landsmóta UMFÍ. Stórnóóur árangur náðist í flestöilum greinum og í 16 greinum náðist betri árangur en KÍldandi landsmótsmet og í einni grein var metjöfnun. Það merkilega er. að þessi góði árangur næst þrátt fyrir að hávaðarok hafði verið bæði á laugardag ok sunnudag. Það var samdóma álit þeirra, sem fylgdust með frjálsiþróttakeppninni, að íþróttafólkið hafi aldrei komið jafn vel þjálfað til keppni og í þetta sinn enda bar árangurinn vitni um það. Það er á engan hallað þótt fullyrt sé að fþróttafólk í tvcimur íþróttasamböndum hafi stolið senunni, kepgnisfólk Iléraðssambands SuðurÞingeyinga (HSÞ) og Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UIA). Mikil gróska er um þessar mundir í frjálsíþróttastarfi þessarra sambanda og fram í síðustu grein börðust þau um sigurinn í stigakeppni frjálsra íþrótta. Þegar upp var staðið hafði IISÞ hálfu stigi meira en sigurinn féll í skaut UMSK, sem fékk mikið af stigum í síðustu greininni. stangarstökkinu. Framíarirnar hjá HSÞ og UÍA eru mjög gleðilegar og mættu önnur sambönd taka starf þeirra til fyrirmyndar. Stigahæstu einstaklingár í frjálsum íþróttum voru Bergþóra Benónýsdóttir HSÞ. sem hlaut 18 stig. og Ágúst Þorsteinsson UMSB. sem hlaut 15 stig. Hér fara á eftir úrslit í öllum greinum frjálsra íþrótta og frásögn af því markverðasta sem gerðisti Konur 100 METRA HLAUP I undanrásum hlaupsins var ljóst að aðal baráttan myndi verða milli þeirra Bergþóru Benónýs; dóttur og Kristínar Jónsdóttur. I úrslitahlaupinu á sunnudaginn kom svo í ljós að Kristín gat ekki verið með vegnámeiðsla og var því eftirleikurinn auðveldur fyrir hina stórglæsilegu hlaupakonu þeirra Þingeyinga, Bergþóru. Hávaðarok var á meðan hlaupið fór fram enda tíminn ótrúlega góður, 11,6, sem er betra en íslandsmetið í greininni og auðvitað miklu betra en lands- mótsmetið. En tíminn fæst að sjálfsögðu ekki viðurkenndur vegna meðvindsins. ÍIRSLIT. 1. Bergþóra Benónýsd. HSb 2. Hólmfríður Erlinjfsd. UMSE 3. Oddný Árnadóttir UNI> 4. Ásta B. Gunnlaugsd. UMSK 5. BjörK Eysteinsdóttir UMSK 6. Kristjana Skúladóttir HSÞ 400 METRA HLAUP Það sama var uppi á teningnum og hjá karlmönnunum í þessari vegalengd, landsmótsmetið féll þrátt fyrir það mikla rok, sem var á laugardaginn. Norður-Þingey- ingurinn Oddný Árnadóttir hljóp mjög vel og kom í markið sem öruggur sigurvegari. Hennar eini keppinautur var Halldóra Jóns- dóttir úr UÍA. Gamla landsmóts- metið átti Ingibjörg Ivarsdóttir HSK, 62,7 sekúndur, sett á Akra- nesi. 1. Oddný Árnadóttir UNÞ 2. Halldóra Jónsdóttir UÍA 62.0 62.7 Keppti í 7. skipti á landsmdti: n Vona að ég geti verið með næst" GUÐMUNDUR Hallgrímsson frá Fáskrúðsfirði keppti nú á lands- móti í 7. skipti. Guðmundur er nú 42 ára gamall, rafverktaki á Fáskrúðsfirði. „Ég hef verið með í landsmótum frá 1955 og keppt á öllum lands- mótunum síðan að undanskildu mótinu á Laugarvatni 1965. Þá gat ég ekki keppt vegna þess að konan mín var nýbúin að eignast tvíbura og ég átti því ekki heimangengt," sagði Guðmundur við blaðamann Mbl. „Ég hef alltaf keppt í 100 og 400 metra hlaupum en aldrei unnið. Hins vegar varð ég annar í 400 metra hlaupinu á Laugum 1961 og oftast hef ég komizt í úrslit í 100 metra hlaupinu." Guðmundur kvaðst hafa æft allvel fyrir mótið og hann sagðist alltaf hafa jafn gaman af því að vera með á landsmótum. Mótið á Selfossi kvað hann mjög skemmti- legt. „Ég vona að ég geti tekið þátt í næsta landsmóti, aðalatriðið er að vera með,“ sagði Guðmundur að lokum. • Guðmundur Hallgrímsson. sem hér sést hlaupa í hoðhlaupi fyrir UÍA. keppti nú í sjöunda sinn á landsmóti. 3. Anna Hannesdóttir UIA 4. Björg Eysteinsd. UMSK 5. Guðrún Sveinsdóttir UÍA 6. Hrönn Guðmundsd. UMSK 7. Birgitta Guðjónsd. HSK 8. Aðalbjörg Hafsteinsd. IISK 9. Svanhildur Karlsd. UMSE 10. Ingveldur Ingibergsd. UMSB 11. Elín Guðjónsdóttir UMSB 12. Anna Höskuldsdóttir HSÞ 13. Brynja Margeirsd. HVÍ 63.0 64.3 65,0 66.0 66.6 67.1 67.2 67.4 71.0 71.2 74.9 800 METRA HLAUP Þátttaka var mjög góð í þessu hlaupi en alls mættu 19 stúlkur til leiks. Var þeim skipt í tvo riðla. I fyrri riðlinum bar kornung Aust- fjarðamær, Guðrún Bjarnadóttir, sigur úr býtum og var hún þó fyrir keppnina aðeins talin þriðji bezti hlauparinn í liði UÍA í þessarri vegalengd. Það kom svo í ljós í seinni riðlinum að austfirzku stúlkurnar voru óumdeilanlega fremstar í þessari grein. Guðrún Sveinsdóttir sigraði nokkuð örugg- lega á nýju Iandsmótsmeti, 2.20.6 mínútur 'og félagi hennar Anna Hannesdóttir fylgdi fast á eftir. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, sem margir álitu líklegan sigurvegara, varð fyrir því óhappi að detta á síðustu beygjunni og hafnaði hún í sjötta sæti fyrir vikið. Tími Guðrúnar var heilum 7 sekúndum betri en gamla landsmótsmetið. 17. Elín Blöndal UMSB 2.47.4 18. Ingunn Sighvatsd. HSK 2.49.1 19. Halldóra Ingimarsd. USAH 2.58.8 1500 METRA HLAUP Guðrún Sveinsdóttir UÍA sigr- aði í hlaupinu, tók hún forystu þegar í upphafi og hljóp mjög vel. Var greinilegt að hún ætlaði sér ekkert að gefa eftir. Á síðasta hring stífnaði Guðrún hins vegar upp og þegar á lokasprettinn kom virtist Aðalbjörg Hafsteinsdóttir ætla að ná Guðrúnu og síga fram úr. Svo varð þó ekki því Guðrúnu tókst að bæta við sig og kom í markið rétt einum metra á undan Aðalbjörgu. Leiðinda kærumál fór af stað í sambandi við hlaupið. Stúlkurnar úr ÚÍA voru kærðar, þar sem álitið var að Stefán Hallgrímsson þjálfari þeirra hafði hlaupið með þeim utan brautar, voru þær dæmdar úr leik af hlaupsstjóra, en yfirdómnefnd fjallaði um málið og ógilti úrskurð hans. 4x100 METRA BOÐHLAUP Eins og við var að búast voru stúlkurnar í HSÞ sterkastar í þessari grein. Þær höfðu forystuna lengst af og þegar keflið var komið í hendurnar á Bergþóru Benónýs- dóttur í upphafi síðasta sprettsins var ekki að sökum að spyrja, hún skilaði því langfyrstu í mark. ÚRSLITi sek 1. Sveit HSÞ 51.8 2. Sveit UMSE 53.4 3. Sveit UMSK 53.9 4. Sveit HSK 53.9 5. Sveit UÍA 54.0 6. Sveit UMSB 54.1 7. Sveit HSH 55.3 8. Sveit HVÍ 57.6 Sveit USVS óftilt í 1. skiptinKU ÚRSLITi 1. Guðrún Sveinsdóttir UÍA 2. Aóalbjörff Hafsteinsd. HSK 3. SiKurbjörg Karlsd. UMSE 4. Thelma Björnsdóttir UMSK 5. Guðrún Bjarnadóttir UÍA 6. Anna Hannesdóttir UÍA 7. Hanna Dóra Hermannsd. HSÞ 8. Siirrfður Víkingsd. UMSE mfn 5.06.1 5.06.8 5.08.8 5.10.3 5.11.6 5.14.7 5.42.6 5.47.3 100 METRA GRINDAHLAUP Hávaðarok var á meðan keppt var í þessari grein og höfðu stúlkurnar vindinn í bakið. Berg- þóra Benónýsdóttir hafði algera yfirburði í hlaupinu, var nærri sekúndu á undan þeirri næstu í mark. Tíminn er ótrúlega góður, 15.4 sekúndur og langt undir landsmótsmetinu, sem var 17.7 sekúndur. En tíminn fæst ekki viðurkenndur vegna of mikils meðvinds. ÚRSLIT, 1. Guðrún Sveinsd. UÍA 2. Anna Hannesdóttir UÍA 3. SigurbjörK Karlsd. UMSE 4. Guðrún Bjarnadóttir UÍA 5. Thelma Björnsdóttir UMSK 6. AðalbjörK Hafsteinsd. HSK 7. Hjördís Arnadóttir UMSB 8. Ásta K. Helffad. USVS 9. Davbjört Leifsd. HVÍ 10. Hanna Dóra Hermannsd. HSÞ 11. Hildur Harðardóttir HSK 12. Kristjana Hrafnkelsd. HSH 13. Fanney Mattnúsdóttir USVS 14. Soffía Guðmundsd. USAH 15. Hermfna Gunnarsd. HSÞ 16. Alfa R. Jóhannesd. UMSK mfn. 2.20.6 2.21.9 2.25.4 2.26.7 2.29.4 2.30.6 2.34.1 2.36.0 2.36.8 2.37.9 2.38.8 2.40.1 2.43.2 2.46.8 2.46.9 2.47.3 ÚRSLIT, sck 1. Bergþóra Benónýsd. HSÞ 15.4 2. Laufey Skúladóttir HSÞ 16.3 3. íris Jónsdóttir UMSK 16.4 4. Ingibjörg ívarsd. HSK 16.5 5. Hólmfríður Erlingsd. UMSE 16.6 6. María Guðnadóttir HSK 16.9 7. Hjördís Árnadóltir UMSB 18.4 8. Guðrún E. Höskuldsd. UMSE 18.8 9. íris Grönfeldt UMSB 19.1 10. Nanna Sif. Gíslad. HSK 20.4 HASTOKK Mjög miklar framfarir hafa orðið í hástökkinu hjá kvenfólkinu með tilkomu Fosburystílsins eins og sést bezt á því að landsmótsnet- ið var margþætt í þessari keppni. Baráttan stóð á milli tveggja stúlkna, Irisar Jónsdóttur og Maríu Guðnadóttur. Þær stóðu sig báðar mjög vel þrátt fyrir að aðstæður til keppni í hástökki væru ekki upp á það allra bezta og það var Iris sem hrósaði sigri að þessu sinni, stökk 1,67 metra og bætti landsmótsmet Kristínar Björnsdóttur um 10 sentimetra. María stökk 1,64 metra sem er góður árangur þegar haft er í huga að hún fór béint úr spjótkastinu í hástökkið. ÚRSLIT. m 1. íris Jónsd. UMSK 1.67 2. María Guðnad. HSH 1.64 3. Kristjana Hrafnkelsd. HSH 1.55 4. Anna Alfreðsd. HSK 1.50 6. Anna Bjarnad. HVÍ 1.45 6. Jóhanna Ásmundsd. HSb 1.45 7.-8. Guðrún E. Höskuldsd. UMSE 1.40 7.-8. Inga Úlfarsd. UMSK 1.40 9. Dagbjört Leifsd. HVÍ 1.40 10.-13. Arney Magnúsd. ÚÍA 1.30 10.-13. Ingveldur Ingibergsd. UMSB 1.30 10.-13. Ragnhildur Karlsd. HSK 1.30 14.-16. Steinunn Hannesd. HSK 1.30 14.-16. Svala Vignisd. HVÍ 1.30 14.-16. Áshildur Sveinsd. UMSB 1.30 LANGSTÖKK Keppnin í langstökki var ákaf- lega jöfn og spennandi. Hafdís Ingimarsdóttir var mætt til þess að verja titil sinn en henni tókst Frjálsar íþróttir ► Ilart barizt og mikið um olnbogaskot. þegar lagt er af stað í 1500 metra hlaup karla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.