Morgunblaðið - 25.07.1978, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978
Framhald aí íyrri opnu
STANGARSTÖKK
Síðasta frjálsíþróttagreinin var
stangarstökk. Lengi vel leit út
fyrir að ekki yrði hægt að stökkva
sökum hvassviðris. En svo fór þó
ekki sem betur fer. Að vísu gerði
mikla sviftibylji annað slagið og
gerði það stökkvurunum mjög
erfitt fyrir. Sigurvegari varð Karl
West Fredriksen, stökk 4,10. Var
hann vel að sigrinum kominn, sló
hann út nýbakaðan íslandsmeist-
ara Guðmund Jóhannsson sem
varð í öðru sæti. Árangur Karls er
landsmótsmet.
ÚRSLIT.
1. Karl West Fredriksen UMSK 4.10
2. Guðmundur Jðhannss. UMSK 4.00
3. Eggert Guðmundsson HSK 3.90
4. Þorsteinn Þórsson UMSS 3.60
5. Hafsteinn Jóhanness. UMSK 3.50
6. Benedikt Bragason HSÞ 3.30
KÚLUVARP
Hinn ungi og stórefnilegi kúlu-
varpari Óskar Reykdalsson sigraði
örugglega við mikinn fögnuð
heimamanna. Óskar hafði umtals-
verða yfirburði í greininni. Sigur-
þór Hjörleifsson krækti í önnur
verðlaun og köm það ekki á óvart
en hins vegar kom það mjög á
óvart að Hrafnkell Stefánsson yrði
hlutskarpari Pétri Péturssyni í
baráttunni um þriðja sætiö:
ÚRSLIT.
1. Óskar Reykdalsson HSK 15,09
2. SÍKurþór Hjörleifss. HSH 13.96
3. Hrafnkell Stefánss. HSK 13,84
4. Pétur Pétursson UIA 13,42
5. Páll Dagbjartss. UMSS 13,40
6. Erlin^ Jóhanness. HSH 13,13
7. Vésteinn Hafsteinss. HSK 12,80
8. Ari Arason USAH 12,38
9. Þóroddur Jóhannss. UMSE 12,15
10. Einar Vilhjálmss. UMSB 11,66
11. Ragnar Sigurjónss. UIA 11,58
12. Jónas Helgason UMFD 10,30
KRINGLUKAST
Þessi grein var skemmtilegt
einvígi ungra og efnilegra íþrótta-
manna og gamalkunnra kappa frá
fyrri landsmótum. Segja má að
æskan hafi ekki borið hærri hlut
frá borði jafnvel þótt sigurvegar-
inn hafi verið einn af æskumönn-
unum því í tveimur næstu sætum
komu tveir „gamlir og góðir"
kappar frá Snæfellsnesi og í sjötta
sæti kom annar „gamall" kappi úr
Þingeyjarsýslu, þó hann hafi í
þetta skipti keppt fyrir Skagfirð-
inga, enda skólastjóri þar í sveit.
Æskan átti svo fulltrúa í 4. og 5.
sætinu. Það var ekki fyrr en í næst
síðustu umferðinni að Pétur
Pétursson úr Breiðdal náði sigur-
kastinu en litlu munaði að gamla
kempan Erling Jóhannesson stæli
sigrinum í síðustu umferðinni er
hann kastaði kringlunni aðeins 30
sentimetrum skemur en sigurveg-
arinn. Til skýringar skal þess getið
hér að fulltrúar æskunnar voru
Pétur Pétursson og Selfyssingarn-
ir Óskar Reykdalsson og Vésteinn
Hafsteinsson en fulltrúar gamla
tímans voru Snæfellingarnir
Erling Jóhannesson og Sigurþór
Hjörleifsson og Þingeyingurinn/
Skagfirðingurinn Páll
Dagbjartsson.
ÚRSLIT. m
1. Pétur Pétursson ÚÍA 42.50
2. ErJing Jóhanness. HSH 42.20
3. Sigurþór Hjörleifss. HSH 41.58
4. Óskar Reykdalss. HSK 41,56
5. Vésteinn Hafsteinss. HSK 41.52
6. Páll Dagbjartss. UMSS 40.24
7. Smári Láruss. HSK 39.36
8. Einar Vilhjálmss. UMSB 37.20
9. Axel Björnsson UÍA 30.98
SPJÖTKAST
Spjótkastararnir máttu glíma
við hinar verstu aðstæður þegar
spjótkastið fór fram, hávaðarok
var og þurftu kastararnir að
henda spjótinu beint upp í vind-
inn. En skemmst er frá því að
segja að þeir létu aðstæðurnar
ekki á sig fá og spjótkastkeppnin
var sú bezta, sem nokkru sinni
hefur átt sér stað á landsmóti.
Landsmótsmetið var bætt um
hvorki meira né minna en 5 metra
og fjórir kastarar köstuðu lengra
en fyrra landsmótsmet.
Eins og reiknað var með var
hinn ungi og efnilegi Borgfirðing-
ur Einar Vilhjálmsson áberandi
beztur, kastaði 62,86 metra og
eignaðist þar með landsmótsmetið.
Bróðir hans Rúnar kom einnig á
mjög á óvart. Hann stórbætti
árangur sinn og kastaði 60,78
metra. Þá bættu þeir Hreinn
Jónasson og Vésteinn Hafsteins-
son sig verulega og köstuðu báðir
yfir 58 metra.
ÚRSLIT.
1. Einar Vilhjálmss. UMSB 62.86
2. Rúnar Vilhjálmss. UMSB 60.78
3. Hreinn Jónass. UMSK 58.68
4. Vésteinn Hafsteinss. HSK 52.15
5. Sigfús Haraldss. HSÞ 53.25
6. Ingribergur GuAmundss. USAH 53.30
7. Óli Danfelss. UMSK 50.68
8. Guðmundur Sigurjónss. USVS 50.15
9. Jóhannes ÁsIauKss. UMSE 47.10
10. Gunnar Árnas. UNÞ 45.04
11. Sigurður Einarss. HSK 44.98
12. Axel Björnss. UÍA 44.86
13. Jón Júlíuss. USVS 42.15
14. Liljar Hreiðarss. HVÍ 41.24
15. Páll Péturss. USVS 39.22
16. Helgi Björnss. UDN 32.76
Stigaskiptin í frjálsum
íþróttum: stig
UMSK 90
HSÞ 86‘A
UÍA 86
HSK 69
UMSE 46
UMSB 44
HSH 42
HVf 34
usú 15
UMSS 14
UNÞ 12
HSS 5
USAH 1
usvs 1
• Þær stóðu íyrir sínu í hlaupagreinunum þessar austfirzku stúlkur, frá v. Guðrún Bjarnadóttir,
Guðrún Sveinsdóttir sigurvegari í 800 og 1500 m hlaupum, og Anna Sigurlaug Hannesdóttir.
„VAR AÐ HUGSA UM
AÐ HÆTTA ÆFINGUM"
— Þetta hefur verið
skemmtilegt landsmót, sagði
Guðrún Sveinsdóttir UÍA sem
sigraði í 800 m og 1500 m
hlaupunum á landsmótinu.
— Ég var að hugsa úm að
hætta að æfa um áramótin en
metnaðurinn, sem er svo ríkur í
mér, rak mig áfram. Ég hef æft
í vetur í Reykjavík, fyrir utan
þrjár vikur sem ég var í
æfingabúðum á Spáni í Los
Pacos, sem er á Costa del Sol.
Þar var alveg yndislegt að æfa
og vera og fékk ég mikið út úr
þeirri dvöl.
— Ég reiknaði með sigri í
báðum hlaupagreinunum eftir
að hafa sigrað í þeim á meist-
aramóti íslands. Þó var ég slæm
af beinhimnubólgu í fótleggnum
og átti um tíma von á að það
setti strik í reikninginn en svo
varð nú ekki sem betur fer.
Fyrir hlaupið var Aðalbjörg
Hafsteinsdóttir úr HSK sú eina
sem ég óttaðist, en allt tókst
þetta. Fyrir landsmótið æfði ég
ekkert sérlega mikið, svona einu
sinni til tvisvar í viku og svo hef
ég keppt um helgar. Nú stefni ég
að góðum árangri í Kalott
keppninni í Svíþjóð. Áfram æfi
ég af fullum krafti, sá góði
árangur sem UÍA hefur náð hér
hefur hleypt í mig miklum
eldmóð, sagði Guðrún að lokum.
eini sem æfir
frjálsar íþróttir
í Breiðdalsvík
' '' ' J
'JB’’
/ ~
■
‘
• Hörkukeppni í 1000 metra boðhlaupi. Pétur Pétursson UÍA kemur íyrstur í mark í sínum riðli.
PÉTUR Pétursson er einn þeirra
mörgu Austfirðinga, sem vöktu
óskipta athygli á iandsmótinu á
Selfossi. Pétur er 20 ára gamall
og á heima á Breiödalsvík. Hann
er sá eini þar í plássinu, scm æfir
frjáisar íþróttir af einhverri
alvöru.
Aðspurður sagði Pétur að auk-
inn íþróttaáhugi á Austfjörðum
væri fyrst of fremst Stefáni
Hallgrímssyni að þakka. „Það er
St.efáni sð |)skks sð éj snéri mér
alveg að frjálsum íþróttum því
áður var ég aðallega í fótbolta,"
sagði Pétúr. „Stefán er 'amall
Norðfirðingur og hann keppti með
UIA áður en hann flutti tii
Reykjavíkur. Hann gekk aftur í
UÍA í fyrra og það er fyrst og
fremst honum að þakka að breidd-
in er orðin svona mikil í frjálsum
íþróttum á Austfjörðum núna.
Hann hefur drifið fólkið áfram við
æfingar og vakið áhuga á íþrótt-
inni hjá mjög mörgum."
Pétur sagði að tiltölulega
mestur áhugi væri á frjálsum
íþróttum í Borgarfirði eystri og
þaðan kæmi mesta afreksfólkið en
einnig kvað hann mikinn áhuga á
íþróttinni á Egilsstöðum.
Um sjálfan sig sagði Pétur: Ég
æfi fyrst og fremst með tugþraut
í huga. Ég hef dvalið í Reykjavík
9 mánuði ársins og þá getað
stundað æfingar vel en heima hef
ég verið 3 mánuði og þá hef ég að
mestu orðið að æfa einn á grasi.
Nú hef ég hug á því að byrja
æfingar allt árið í Reykjavík hjá
rússneska þjálfaranum hjá KR.“
Pétur byrjaði að æfa frjálsar
íþróttir 18 ára gamall haustið 1976
og í fyrrahaust byrjaði hann að
æfa tugþrautina sérstaklega.
Hann hefur tekið stórstígum
framförum og hefur náð bezt 6593
stigum í tugþraut og 3381 stigi í
fimmtarþraut, sem er unglinga-
met. Pétur á bezt rúma 47 metra
í kringlukasti svo sigur hans í
kringlukastinu kom ekki á óvart.
i>lovpimbInt>ifr
mm