Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 1

Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 1
48SÍÐUR 173. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Veðurguðir votta Páli VI virðingu Vatíkaninu. 12. áiíúst. Reuter — AP TUGIR þúsunda syrgjenda ásamt fjölda fyrirmanna hvaðanæva að söfnuðust í dag saman til að vera viðstaddir jarðaríör Páls páfa, sem fram fór klukkan fjögur síðdegis. Var öryggisvörður ítölsku lög- reglunnar meiri af þessu tilefni en tíðkazt hefur um árabil. Mannþyrpingin kom saman í blíðskaparveðri til guðsþjónust- unnar undir berum himni á Sankti Péturs-torgi, en milljónir urðu vitni að henni um heim allan í sjónvarpi. Talsmenn Vatíkansins hafa látið uppi að um hálf milljón manna hafi leitt jarðneskar leifar páfa augum á fimm og hálfum degi, meðan þær voru til sýnis á viðhafnar- börum. í hópi erlendra sendimanna og þjóðarleiðtoga, sem til Róm- ar komu af tilefninu, má nefna eiginkonu Carters Bandaríkja- forseta, Rosalynn, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Kurt Waldheim, Juan Carlos Spánar- konung og Kenneth Kaunda Sambíuforseta. Eitt af fáum löndum, sem ekki sendu full- trúa, voru Kínverjar, en þeir hafa til þessa ekki haft nein tengsl við Vatíkanið. Páfinn var jarðsettur í fá- breyttri kistu úr sýprusviði að eigin ósk og hafði hann einnig farið fram á að útfararguðs- þjónustan yrði i eins einföldum búningi og kostur væri á. Öryggisráðstafanir. Lögregla tekur sér stöðu á Sankti Péturs-torgi á laugardag. skömmu áður en útför Páls páfa VI fór íram. Japanir luku sátt vid Pekingstjórn Peking, Tókýó, 12. ágúst, Reuter, AP JAPANIR og Kínverjar undirrit- uðu í kvöld friðar- og vináttusátt- mála og bundu þar með enda á innbyrðis deilur sfnar eftir strfð. Hafa sáttaviðræður þessar staðið yfir um árabil og kann samningurinn að hafa afgerandi áhrif á hernaðarlegt jafnvægi f álfunni. í sáttmálanum, sem undirrit- aður var í Peking, segir að bæði löndin skuldbindi sig til að falast ekki eftir yfirráðum í Asíu og á Kyrrahafi og munu þau sporna við fótum reyni eitthvert annað land að gcra það. Sovétríkin hafa að undanförnu mjög haft horn í síðu vináttusátt- málans og hafa mótmælt þeirri kröfu Kínverja að fordæma „yfir- ráðastefnu" einhverrar einnar Stórregn í NýjuDelhi Nýju Di lhí — 12. áttúst — Reuter Monsúnrigningar í héraðinu kringum Nýju Delhí hafa ekki verið meiri en í sumar undanfar- in 84 ár, og enda þótt enn sé mánuður eftir af rigningatíma- bilinu er úrkoman þegar orðin meiri en hún verður á öllu tfmabiiinu í venjulegu árferði. þjóðar í ákveðnum heimshluta og I landanna tveggja við aðra aðila. finnst henni beint gegn sér. Engu Það voru þeir Sonoda utanríkis- síður er gert ráð fyrir því í ráðherra Japan og kínverskur samningnum að hann muni ekki starfsbróðir hans, Huang Hua, hafa minnstu áhrif á samskipti I sem undir plaggið skrifuðu. Loftbelgsfarar yfIr hafid aftur Presque Isle, Maine, 12. ágúst ÞRÍR Bandarfkjamenn hófu sig á loft á laugardagskvöld, frá fylkinu Maine, nyrst á austurströnd Bandaríkjanna, f tilraun til að verða fyrstir manna til að fara yíir Atlantshafið í loftbelg. Tveir kappanna hafa áður reynt, en för þeirri lauk með því að loftbeigurinn hraktist fyrir vindum upp til íslands og nauðlenti við Vestfirði. Ekki eru liðnar nema tvær vikur síðan tveimur Bretum mistókst naumlega að komast yfir. Þegar síðast spurðist sást til loftbelgsins, „Tví-arnarins“ á sveimi yfir ströndum Kanada og bar hann heldur í austur. Fullhugarnir þrír, Maxie Ander- son, Ben Abruzzo og Larry Newman, eru allir frá Albuquerque í Nýju Mexíkó. Aður en þeir lögðu upp kváðust þeir vonast til að ná til Eng- lands á 114 klukkustundum og vera þar á miðvikudag. Þremenningarnir ætluðu að sögn að hækka sig í sjöþúsund feta hæð á laugardag og kváðust þeir fara í allt að 20000 feta hæð yfir Azoreyjum. „Við förum sólarleiðina í þetta sinn, hægt og rólega. Þétta verður mun hægari ferð en síðast og í miklu betra veðri", sagði Anderson. Það voru þeir Anderson og Abruzzo, sem nauðlentu á hafi undan Vestfjörðum 12. septem- ber 1977. Má geta þess að í samtali, sem Mbl. átti við tvímenningana þá kom fram að þeir hygðust aldrei framar reyna slíka för. Da Costa telur horfur bjartar Lissabon, 12. ágúst — Reuter. VÆNTANLEGUR forsætisráðherra Portúgals Alfredo Nobre da Costa, hefur látið í ljós bjartsýni um að honum muni takast að bræða saman óflokksbundna ríkisstjórn, þrátt fyrir að flokkur jafnaðarmanna hafi neitað að taka þátt í henni. Da Costa kvaðst vonast til að geta hleypt stjórn sinni af stokkunum eftir 23 daga. Fráfarandi forsætisráðherra, dr. Mario Soares, barði enn lóminn eftir fyrsta fund sinn með da Costa ú júlí síðastliðinn. „Jafnaðarmenn hafa rétt á að hafa stjórn landsins áfram með höndum, þar sem við höfum sigrað í öllum kosningum, sem við höfum tekið þátt í“ sagði hann. Fram kom hjá Soares að enda þótt framkvæmdastjórn jafnaðarmannaflokksins hefði neitað aðild flokksins að stjórn da Costas, væri ekki með öllu loku fyrir skotið að einstökum jafnaðarmönnun yrði leyft að sitja í stjórninni. Leiðtogar allra hinna stóru flokka hafa lýst sig reiðubúna til samstarfs um myndun aí óréttmætri brottvikningu sinni 2. bráðabirgðastjórnar. Kommúnistar hafa þó sett það skilyrði að fulltrúar allra fjögurra flokkanna taki sæti í henni. Talið er að fari stjórnarmyndun- artilraunir Da Costas út um þúfur verði það töluverður álitshnekkir fyrir Eanes forseta og hafa m.a. annars verið uppi raddir um að hann muni þá jafnvel neyðast til að segja af sér og efna til forseta- og þingkosninga. Eignaspjöll og meiðsl í Beirút Beirút — 12. ágúst — Reuter. AÐ MINNSTA kosti 20 manns særðust í bardögunum í Beirút í gærkvöldi. Ekki fara sögur af mannfalli, en mikið eignatjón varð í þessum átökum, sem aðallega fóru fram í hverfum kristinna manna en þau eru nú orðin illa útleikin eftir skotbar- daga að undanförnu. Hart var barizt fram undir morgun. og var beitt stórskotaliði, eldflaug- um, skriðdrekabyssum. loft- varnabyssum og öðrum stórvirk- um skotvopnum. Eins og vant er fer mjög á milli mála hverjir áttu upptökin að bardögunum í gærkvöldi, en samningar um vopnahlé gengu í gildi á miðvikudag. Falangistar halda því fram að sýrlenzkir gæzlusveitamenn hafi að tilefnis- lausu hafið skothríð á kristna hægri menn, en Sýrlendingarnir halda því á hinn bóginn fram að I þröngur hópur hægri öfgamanna hafi hleypt öllu í bál og brand að | þessu sinni. Karpov fær skák frestað Baguio, 12. ágúst, Reuter. ANATOLY Karpov fékk í morg- un frestað tólftu einvígisskák sinni og Viktors Korchnois um heimsmeistaratitilinn í skák. Að sögn aðstoðarmanna heims- meistarans, mun Karpov hafa kosið að hvflast eftir tap sitt gegn áskorandanum á fimmtu- dag. Hvor keppandi um sig má fara fram á frestun án sérstakrar ástæðu þrisvar í þrjátíu skákum. Tólfta skákin verður væntanlega tefld á þriðjudag. Andersson og Abruzzo (t.v.) við komuna til Reykjavíkurflugvallar í september síðastliðnum eftir að þyrla björgunarliðsins hafði bjargað þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.