Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978
I næsta nágrenni vio uiimarkauinn er brugghús — Verige ui auuaus — og þar
þjónar af ýmsum stærðum og gerðum með bjór fyrir þyrsta gesti.
DAG-
STUND
DUSSELDORF
Á torginu framan við Kölnardómkirkju var stöðugur
straumur fólks og mikið mannhaf. Náunginn fremst á
myndinni fann sér hvílu í blómabeði og virtist hvorki
truflast af djasshljómsveit, sem hélt tónleika í næsta
nágrenni, né vegfarendum.
Flugfélagíö Arnarflug hefur
nú verið starfrækt í 2 ár, en
sem kunnugt er byggir Arn-
arflug afkomu sína einvörð-
ungu á leiguflugi. Hafa vélar
félagsins annazt verkefni í
Kenya og á Möltu auk Þess
sem Þ»r hafa verið í leigu-
flugi fyrir íslenzkar feröa-
skrifstofur. Þá hefur í sumar
verið haldið uppi flugi til
DUsseldorf vikulega og hafa
Þýzkir ferðamenn á vegum
Þýzkra feröaskrifstofa eink-
um borið uppi paö flug.
Á heimleiðinni réðu
þeir ríkjum í flug-
stjórnarklefanum
Lúðvík Sigurðsson
flugstjóri, Mekkinó
Mekkinósson að-
stoðarflugmaður og
Stefán Bjarnason
flugvélastjóri.
Og þegar mikil er ösin hafa þjónarnir snör handtök við að Halldór Sigurðsson (lengst til hægri) var fylgdarmaður hópsins í Þýzkalandsreisunni og
skola úr glösum og fylla þau aftur. hér er hann að ræða við þýzku fararstjórana.