Morgunblaðið - 13.08.1978, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978
Þættir eins og fyrrverandi drykkjuvenjur, magn
neytts alkóhóls svo og krónískir kvillar geta haft
á afleiðingarnar sem nefndar eru hér að neðan.
f
Antihístamín
(þar á mcáal miin; lyf við
kvcfi ok ofna'miskvillum)
Drungi. slen, deyíð sækir á
vegna verkana á miðtaujfakerfið.
Aspirín
Maga- og þarmablæðinjíar.
Deyfilyf
(t.d. C'odcinc ok llcroin)
Alvarlegt ölæði, ölvíma vegna
áhrifa á miðtaugakeríið. Miklar
líkur á öndunarteppu.
f
Kvalastillandi
ódeyfandi lyf
(t.d. Tylcnol)
Maga- og þarmaertinif. Líkur á
innvortis blæðingum.
e
Antabus
(lyf jtcKn áfcnKÍsncyzlu)
Ileilsu- og þróttarroði, uppsöiur,
drungi.
Lyf gegn háum
blóðprýstingi
Aukin áhrif lyfsins. í sumum
tilfellum getur blóðþrýstingur-
inn lækkað um of og nálgazt
hættulegt lágmark.
f
Blóðpynnandi
■yf
Aukin áhrif lyfsins til blóð-
þynningar í byrjun. Dvínandi
áhrif lyfs við drykkju að stað-
aldri.
Lyf gegn
sykursýki
Svipaðar afleiðingar og þegar
áfengi og Antabus lyf íara
saman. Tilætluð áhrif lyfs fara og
minnkandi.
f
Fúkalyf
Svipaðar afleiðingar og þegar
áfengi og Antabus lyf fara
saman.
Róandi lyf
(t.d. Valium. Lihrium.
Miltow n)
Drungi, slen og deyfð.
SAGT er að Helena af Tróju hafi
leyst ópíum upp í víninu, sem hún
veitti sorgmæddum hermönnum.
er hana heimsóttu, til þess að losa
þá við sorg þeirra. í dag færist
það stöðugt í vöxt í heiminum að
fólk veiti sjálfu sér sams konar
lausn frá erfiðleikum og tilbreyt-
ingalausum hversdagsleikanum.
Algengt er að fólk blandi saman
áfengi og alls kyns lyfjum, en
afleiðingarnar geta oft verið
mjög alvarlegar og hafa margir
látist af þeim orsökum.
Mál þétta vakti almenna athygli
í apríl síðast liðnum, en þá var
Betty Ford fyrrum forsetafrú í
Bandaríkjunum, lögð inn á sjúkra-
hús í Kaliforníu, en sjúkdómur
hennar var það sem kalla mætti
„tvöfaldur ávani“. Hún sagði við
það-tækifæri: „Eg er ekki einungis
háð þeim lyfjum, sem ég hef þurft
að taka inn vegna liðagigtarinnar,
sem ég þjáist af, heldur einnig
áfengi."
Sonur hennar, Steve, sagði að
móðir hans hefði blandað saman
valium og áfengi um nokkurt skeið
og væri nú orðin háð þeirri blöndu.
Nú þyrfti hún að heyja baráttu til
þess að losna undan þessum ávana.
Valium verkar þannig að það
orsakar slökun í vöðvum, en það
hefur verið nauðsynlegt fyrir
Betty Ford vegna liðagigtar henn-
ar. En sé því blandað saman við
áfengi geta afleiðingarnar orðið
alvarlegar.
Áfengi dregur meðal annars úr
áhrifum penisilíns og sé það
drukkið ofan í aspirin getur það
orsakað innvortis blæðingar, en
það getur reynst langtímadrykkju-
mönnum banvænt.
En alvarlegasta hlið þessa máls
er ef til vill sú að það færist nú
stöðugt í vöxt að konur ánetjist
þessum tvöfalda ávana. Flestar
eru konurnar miðaldra eða eldri. í
sumum tilfellum hafa þær átt við
drykkjuvandamál að stríða um
langt skeið, og síðan snúið sér að
róandi lyfjum eða svefntöflum. í
öðrum tilfellum hafa þær verið
hófdrykkjumanneskjur og síðan
þurft að taka inn lyf vegna
sjúkdóma af ýmsu tagi, eins og til
dæmis hjartabilunar.
Hélt að
eiginmaðurinn
bæri ábyrgð
á hamingju minni.
Ein af þeim konum, sem við
þetta vandamál hefur átt að stríða
er Jean, búsett í Bandaríkjunum.
Hún var byrjuð að neyta áfengis
áður en hún fór að taka inn lyf og
hefur hún þetta um reynslu sína
að segja:
„Ég held að áfengisneyslan hafi
orðið að vandamáli hjá mér þegar
ég var um fertugt. Maðurinn minn
hringdi þá oft til mín úr vinnunni
og sagði að hann kæmist ekki heim
í kvöldmat, en ég vissi þó ósköp vel
að hann var einhvers staðar með
vinum sínum að drekka. Ég komst
þá að raun um að ef ég fengi mér
nokkra drykki áður en ég fór að
sofa, þá væri mér alveg sama
hvenær hann kæmi heim, og til
þess að forðast rifrildi, valdi ég
þann kostinn."
„Þegar maðurinn minn fékk
stöðuhækkun var drykkjuvanda-
mál mitt orðið nokkuð slæmt, svo
fjölskylda mín ákvað að ég þyrfti á
hjálp sálfræðings að halda. Sál-
fræðingurinn lét mig fá valium og
svefntöflur til þess að ég drykki
ekki á meðan. Loks lét hann mig fá
antabus, og tók ég það í 18 mánuði.
Ég drakk ekkert á þeim tíma, en
samtímis tvöfaldaði ég valium-
neysluna, og þegar ég hætti að
taka inn antabusið byrjaði ég að
drekka aftur. Jafnframt tók ég inn
alls kyns lyf. En þá urðu þáttaskil
í lífi mínu. Ég lá í rúminu mínu í
Betty Ford fyrrum forsetafrú er
hún yíirgeíur sjúkrahúsið í
Kaliforníu, eftir að hafa fengið
þar meðferð við tvöföldum ávana.
einhverri annarlegri vímu og vildi
helst fá að deyja. En þá hugsaði ég
með mér að ekki gæti áfengið
drepið mig og fyrst það gat ekki
drepið mig ákvað ég að ekki gæti
ég haldið áfram að lifa svona lífi.
Ég fór inn á sjúkrahús og fékk þar
rétta meðhöndlun og þar sem að
viljinn var nú fyrir hendi tókst að
hjálpa mér.“
„Eftir á sé ég að ástæðan fyrir
drykkju minni og lyfjaneyslu er
einungis sjálfsmeðaumkun og
gremja út í allt og alla. Ég var
einkabarn, og þegar ég giftist
bjóst ég við að maðurinn minn
kæmi í stað foreldra minna og
systkina, sem ég eignaðist aldrei
Ég gerði því ráð fyrir því að hann
bæri ábyrgð á hamingju minni, en
komst þó að raun um að lífið var
enginn dans á rósum. Mér fannst
ég ekki ráða neitt við neitt og fann
að áfengið og lyfin veittu mér
lausn frá áhyggjum hversdagslífs-
ins. En nú sé ég hversu fáránlegt
þetta allt var og er fegin að ég hef
fundið sjálfa mig á ný.“