Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 37

Morgunblaðið - 13.08.1978, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978 37 ÞESSAR telpur, sem heita Hildur Sigurðardóttir og Kristrún Birgisdóttir, efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Dýraspítalann. Söfnuðu þær rúmlega 9300 krónum til stofnunarinnar. ÞESSAR telpur, sem eiga heima í Vesturbænum, efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Blindravinafélagið. Söfnuðu þær 5300 krónum til félagsins. Þær heita Signý Pétursdóttir, Guðrún Gyða Árnadóttir og Sigríður G. Andersson. ÞESSAR telpur héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra suður í Hafnarfirði, að Miðvangi 10, og söfnuðu þær rúmlega 12100 krónum. Þær heita Hólmfríður Þórisdóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir. FYRIR alllöngu efndu þessir krakkar til hlutaveltu til ágóða fyrir Blindravinafélag íslands. Söfnuðu þau 10.000 krónum. — Krakkarnir heita Kristín Helga Olafsdóttir, Andri Aðalsteinsson og Auður Hjartar- dóttir, en hlutaveltuna héldu þau að Einarsnesi 40, Reykjavík. Daði Jóhannesson —Minningarorð Fæddur 2. ágúst 1895. Dáinn 1. ágúst 1978. Hann var ungur fyrir vestan, stundaði sjó fyrir austan og settist að hér syðra í þéttbýlinu. Glaðvær félagshyggjumaður, einn þeirra, sem reyndu sam- vinnuútgerð. Þeir höfðu stundað færi og línu. Þar fannst Daða aðbúnaður góður. Annan eins veizlukost gat vart að líta og þar fékkst af borðum. En hækkandi kolaverð, sem þá rýrði hlutaskipti áhafnar, rauf rekstrargrundvöllinn og Daði sneri sér meira að landvinnu. Hann var búfræðingur að mennt og notaði töluvert verkkunnáttu sína á því sviði. Enn í dag má finna vegakanta, vegghleðslur, meistaraverk hans á sviði vega- gerðar og landbúnaðarstarfa. Margir minnast og sláttu- mannsins. Hann sveiflaði ljánum í görðum og gróðurvinjum höfuð- borgarinnar. Honum var kært hugsað til Ljárdals fyrir vestan og hann átti landspildu á Kjalarnesi, sem og heitir og Ljárdalur. Þar eru varðveitt handbrögð hans, hlaðnir veggir úr torfi og grjóti og bakkinn svo að áin rennur frjáls í farvegi sínum undir Esjuhlíðum útí Kollafjörð. Lífi hins háaldraða hættir oft til að hyljast móðu gleymskunnar, fyrnast yfir tíma og ár. Hann hóf sjósókn ungur. Fyrst var hann á skútum fyrir vestan. Þeir stund- uðu einnig miðin hér syðra. Hann sótti á vetrarvertíð í Vestmanna- eyjum. Þaðan tók hann sér far austur fyrir land vorið 1924 og ætlaði norður. Hann sá fyrir sér í draumi heimilið, sem hann mundi dvelja á um sumarið. Honum buðust ve'rtíðarsamningar á fjörð- unum, þar sem skipið stöðvaði á leið sinni norður. Á Seyðisfirði kom hann á heimili afa míns og ömmu. Heimil- ið þekkti hann frá draumnum. Þar þáði hann að vera kyrr og sumarvertíðir hans á Seyðisfirði urðu þrjár. Eitt ár var hann samfleytt syðra. Ljóst er að Daði hreifst af sumarblíðunni eystra, sem vart á sinn líka. Landkosti þar gjörþekkti hann og virti. Mann- kostir hans, almenn lífsviðhorf og heimilisástæður ástvina réðu bú- festi hans í Reykjavík og Kópa- vogi. Hann var einn af hvata- mönnum að byggingu Dvalarheim- ilis aldraðra sjómanna. KÓR Langholtskirkju tekur dagana 17,—20. ágúst þátt í tólfta norræna kirkjutón- listarmótinu, sem að þessu sinni verður haldið í Hels- inki í Finnlandi. Eru mót þessi haldin á fjögurra ára fresti og tilgangur þeirra er að ky nýjungar í kirkjutón- list á Norðurlöndunum. Á mótinu í Helsinki mun kórinn flytja ný verk eftir tónskáldin Jón Ásgeirsson og Þorkel Sigurbjörns- son, sem voru sérstaklega samin fyrir kórinn til flutnings við þetta tækifæri. Þá kynnir kórinn út- Hrafnista fékk að gjöf andvirði herbergis, sem Daði gaf til minn- ingar um hjónin, sem hann kynntist fyrir austan og hefði lengur unnt þess að njóta starfs- krafta sinna og þekkingar, þeim Guðfinni Jónssyni skipa- og húsa- smíðameistara og konu hans Guðnýju Einarsdóttur. Eftir að Daði fluttist að Hrafnistu vann hann ótrauður í mörg ár, í frystihúsum og byggingarvinnu við slátt og tómstundirnar eru ófáar í Ljárdal. Daginn áður en árin urðu 83, þegar orfið og ljárinn höfðu ekki lengur afli að mæta, reyndist „maðurinn með ljáinn“ ná yfir- höndinni. Þær urðu æði margar dag- slátturnar í lokalotunni. Hann féll loks reyrinn sterki er sláttuönnin hafði staðið yfir fimm vikur. sendingar dr. Róberts A. Ottósson- ar fyrrum söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar á gömlum íslenzkum sálmalögum. Guðni Þ. Guðmunds- son organisti leikur verk eftir Hallgrím Helgason. I framhaldi af mótinu flytur kór Langholtskirkju efnisskrá fyrir finnska útvarpið og fer síðan í tónleikaferð og syngur í borgunum Turku, Tampere og Jyváskylá. Kór Langholtskirkju heldur tónleika n.k. mánudagskvöld í Háteigskirkju kl. 21 og er það lokaundirbúningur tónleikanna. Á þessum tónleikum syngur kórin eina af þeim efnisskrám sem undirbúnar hafa verið fyrir Finn- landsferðina. Herbert Marinósson. Kór Langholtskirkju syngur í Finnlandi Fréttir f rá PON (Super multi mono tilament) Að búa í haginn .... ^ Margreyndu þorskanetin úr japönsku Amilan-nyloni bjóðast enn á lækkuðu verði, eða aðeins $ 20.92 CIF ísland, pr. 1,5 x 8, 32 möskva. Verðlækkun þessi getur fallið úr gildi án minnsta fyrirvara. HAFIÐ ÞVÍ SAMBAND STRAX og búið í haginn á hagkvæman hátt fyrir næstu vertíð. Aflamenn vilja af bragðsnet c/Lntlan VEIÐAR- EÆRI Pétur 0 Nikulásson TRVGGVAGÖTU 8 SIMAR 22650 20110

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.