Morgunblaðið - 15.09.1978, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1978
Greinargerð Aðalsteins Ingólfssonar um Kjarvalsstaði:
Stjómskipulag hússins hefur
verið meingallað frá upphafi
IIÉR FER á eítir greinargerð Aðalsteins InKÓlfssonar listfræðings um
starf hans sem listráðunauts við Kjarvalsstaði, yfirstjórn stofnunar-
innar og tildröf? þess. að hann hefur hætt störfum við húsið. Var
(ireinarserð þessi afhent fréttamönnum á sérstökum fundi í Kær.
Fyrirsöjin cr Morgunblaðsins.
„Éftir langvarandi deilur milli
borgaryfirvalda og samtaka lista-
manna um það hver skyldi vera
starfsgrundvöllur Kjarvalsstaða,
komust sættir á í lok ársins 1975
og í ársbyrjun 1976 tók til starfa
ný nefnd í húsinu er kölluð var
listráð og skyldi hún starfa
samtímis stjórn hússins, en þrír
pólitískt kjornir meðlimir hús-
stjórnar voru jafnframt í listráði.
Með þessum samningum átti að
hverfa frá því fyrirkomulagi sem
tíðkast hafði á Kjarvalsstöðum
fram að þeim tíma, þ.e. að leigja
húsið stöðugt út og standa aðeins
fyrir Kjarvalssýningum. Listráð
átti samkvæmt samningum að
gera tilraun til að færa húsið „nær
því takmarki að vera lifandi
vettvangur lista og menningar í
borginni". Og í því skyni að „örva
listræna starfsemi á Kjarvalsstöð-
um eru viðmælendur sammála því,
að ráðinn skuli að húsinu list-
fræðingur" og varð undirritaður
fyrir valinu. Nú er komið hátt á
þriðja ár frá því að þessir
samningar voru gerðir og þeir
reyndar útrunnir og því tími
kominn til einhvers konar úttekt-
ar. Ætti hún eðlilega að vera í
höndum annarra en þeirra sem
hér hafa starfað, en þó held ég að1
ef litið er hlutlausum augum á:
skýrslu þá sem ég hefi gert með
samþykki fyrrverandi listráðs, þá
sé ómögulegt annað en álykta að
Kjarvalsstaðir hafi komist nær því
takmarki sem minnst er í sam-
komulaginu. Aður fyrr stóð húsið
fyrir uppsetningu á einni
Kjarvalssýningu eða tveimur ár-
lega og engu öðru. Listráð stóð
fyrir fjölda sýninga, stórra og
smárra, hélt uppi fræðslustarf-
semi, hélt tónleika, stuðlaði að
leikritaflutningi og fleiru sem
tilgreint er í meðfylgjandi skýrslu.
Ekki er minnst um vert að með
þessari starfsemi, frumstæð sem
hún hefur verið á köflum, hefur
húsið skapað sér orðstír erlendis.
Erlendar stofnanir leita sam-
starfs, erlendir listamenn spyrjast
fyrir um aðstöðu og getið er um
sýningar Kjarvalsstaða í erlendum
ritum um listir.
Vissulega hafa margir erfiðleik-
ar fylgt þessum framkvæmdum. I
fyrsta lagi má geta þess að þrátt
fyrir fögur orð um að „örva
listræna starfsemi í húsinu" þá
var engu líkara en gera ætti það á
loftinu einu, því ekki virtist
lifandis leið að fá meiri fjárveit-
ingu en 1.5 milljón á ári til allra
slíkra þarfa og ekki var staðið við
ýmislegt það sem tekið var fram í
ofangreindu samkomulagi. Komu
upp þær afkáralegu staðreyndir að
þegar húsið var búið að kosta til
ágætra hljómleika, þá voru ekki til
peningar til að auglýsa þá. Til þess
að halda uppi einhverri starfsemi
þurfti undirritaður oft og tíðum að
standa í tímafrekum snöpum og
reiða sig á velvild ýmissa aðila,
aðallega listamanna og oft var það
þannig að ekki var hægt að sinna
ágætum (og kostnaðarlitlum) mál-
um af peningaleysi. A sama tíma
þótti manni heldur blóðugt að sjá
7 milljónum eytt í kristalsljósa-
krónu sem sennilega verður aldrei
hægt að nota. Aðrir erfiðleikar og
skyldir voru m.a. skortur á starfs-
liði til undirbúningsstarfa á veg-
um listráðs, en þennan tíma var
akkúrat einn maður, þ.e. undir-
ritaður, í þjónustu þess og þýddi
þetta gjarnan óheyrilegt álag á
ákveðnum tímum svo og annars
flokks frágang ýmissa listvið-
burða. I þriðja lagi kom í ljós að
það fylgdu því mikil vandkvæði að
halda uppi fjölbreyttri liststarf-
semi í byggingunni eins og hún er
hönnuð og er sýnt að það mun
kosta margar milljónir að koma
henni í það horf sem eðlilegt þykir
alls staðar annars staðar.
Einnig hefur stjórnskipulag
hússins verið meingallað frá I
upphafi. I sama húsi hafa verið
tvær nefndir, hvor með sinn
framkvæmdastjóra, og hefur
starfssvið þeirra vérið svo óljós-
lega skilgreint að alls kyns tví-
verknaður og flækjur hafa mynd-
ast. Eflaust hefði verið hægt að
starfa ágætlega þrátt fyrir þær
aðstæður, hefðu báðir fram-
Aðalsteinn Ingólfsson.
kvæmdastjórar Kjarvalsstaða ver-
ið einhuga í því að vinna að vexti
og viðgangi listalífs á staðnum. En
það verður að segja hverja sögu
eins og hún er. Ógæfa hússins frá
upphafi hefur verið sú að sitja
uppi með forstöðumann sem ekki
var hægt að koma fyrir annars
staðar í borgarkerfinu og hefur
hann hvorki haft menntun, getu
eða nennd til að stjórna fram-
kvæmd nokkurra mála, allra síst
menningarmála. Æðsti draumur
hans mun vera sá að sýna
Kjarvalsmyndir í húsinu öllu allt
árið um kring. Ennfremur vil ég
fullyrða að hann hefur ekki
einasta verið starfsemi listráðs til
baga sökum hegðunar sinnar,
heldur hefur hann leynt og ljóst
unnið að því að láta starfsemina
mistakast — hún hefur verið
vísvitandi hindruð, tafin, mistúlk-
uð og stöðugt rógborin af þessum
manni allan þann tíma sem ég hef
starfað hér, auk þess sem fram-
koma hans gagnvart starfsfólki
öðru hefur gert andrúmsloft hér
nær óbærilegt. Að öðru leyti er
ekki vitað hvað hann starfar.
Aftur og aftur hafa ráðamenn
kosið að líta framhjá gerðum hans,
þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir og
bréfaskriftir starfsfólks. Ég vil
taka það fram að ég er ekki fyrsti
maðurinn sem htferf af staðnum í
og með sökum afskifta forstöðu-
manns.
Fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar sá ég ekki fram á neinar
breytingar yrðu framkvæmdar í
húsinu og ætlaði því að nota
tækifærið er samningur minn við
húsið rann út 1. júlí s.l., að hefja
störf annars staðar þar sem ég
hafði fengið ágætt tilboð.
En við úrslit borgarstjórnar-
kosninga vaknaði hjá mér sú von
að nú yrði farið að hlúa að
staðnum og hann yrði borgar-
stjórnarmönnum annað og meira
en kokkteilmiðstöð, þar sem hin
svokölluðu vinstri öfl hafa yfirleitt
haft hátt um menningarmál í
stefnuskrám sínum. En nokkrir
fuiltrúar hins nýja meirihluta
komu að máli við mig fyrir
mánaðamótin júlí — ágúst og báðu
mig að sitja áfram til að brúa bilið
og halda starfsemi áfram meðan
væri verið að leggja drög að
framtíðarlausn um starfsemi
Kjarvalsstaða, taldi ég mig ekki
geta skorast undan og vann áfram
júlímánuð, m.a. að norrænni
farandsýningu.
Síðan var kosið til nýrrar
hússtjórnar og varð formaður
manneskja úr Alþýðuflokknum
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir að nafni,
en aðrir í nýju stjórninni eru
Guðrún Helgadóttir og Davíð
Oddsson. Tímabil listráðs rann þá
einnig út 1. júlí. Að því ég best veit
hefur núverandi formaður adlrei
komið nálægt menningarmálum
áður og ekki hefur starfsfólk að
Kjarvalsstöðum orðið vart við
hana á þeim slóðum fyrir kosning-
Huldar vœttir
voru með Korchnoi
SENNILEGA hefur Kortsnoj sezt
niður viö taflborðið í g»r fullur
sjálfstrausts eftir sigurskákina é
miðvikudaginn pegar honum
tókst að vinna snoturlega í 60
leikjum og pannig minnka mun-
inn í einvíginu í 4—2. Hann hélt
upp é pennan sigur með pví aö
beíta uppéhaldsvörn sinni;
Franskri vörn, sem hann hefur
teflt skékmeistara mest um
ævina. En allt kom fyrir ekki og
um síðir fékk Karpov betri stöðu
og jafnvel unna pegar hann étti
kost é að vinna peð og mynda sér
tvo frelsingja é drottningarvæng.
En heilladísirnar voru með
Kortsnoj pennan dag eða ein-
hverjar huldar vættir pví á
örskammri stund hafði staða
hans breytzt úr rjúkandi rúst í
álitlega jafnteflisstöðu. Þegar
Kortsnoj haföi lokið biðleik sin-
um sem hann hugsaði sig lengi
um stóð hann upp brosandi.
22. einvigisskékin
Hvítt: Karpov
Svart: Kortsnoj
Frönsk vörn (Tarrasch afbrigðiö)
1. e4 — e6 (Kortsnoj beitir nú enn
á ný sínu gamla góöa vopni:
Frönsku vörninni sem hann gerði
jafnframt í 16. skákinni. Þeir
félagar geta rifjað upp gamlar
endurminningar frá árinu 1974
þegar þeir háöu síðast einvígi en
þá var Frönsk vörn tefld 7 sinnum
af 24 skákum, og enduðu allar
með jafntefli)
2. d4 — d5, 3. Rd2 — cS, 4. exdS
— exd5, 5. Bb5 (Karpov leikur
sama leik og hann lék í 16.
skákinni en í öllum 7 skákunum
1974 lék Karpov 5. Rf3)
5 ... Bd7, 6. De2 — Be7 (Kortsnoj
lék í 16. skákinni 6... De7 og eftir
drottningarkaup jafnaöist tafliö
fljótlega og endanlega samið um
jafntefli í 42. leik)
7. dxc5 — Rf6, 8. Rb3 — 0-0, 9.
Be3 — He8, 10. Rf3 — BxcSl (Meö
þessari einföldu leikfléttu fær
svartur peðið til baka. Vandamál
svarts í þessari byrjun er aöeins
eitt: staka peðið á d5. Kortsnoj á
eftir að leysa það mál á óvenju-
snjallan hátt í þessari skák)
11. Rxc5 — Da5, 12. Dd2 — Dxb5,
13. 0-0-0 — b6, 14. Rxd7
Rbxd7, 15. Kb1 — Re4, 16. Dd3
(Ekki 16. Dxd5?? vegna Rc3 og sv.
vinnur drottninguna)
16.... Dxd3, 17. Hxd3 — Rdf6, 18.
h3 — Rc5, 19. Hdd1 — Re6, 20. c3
— b5 (Nú byrjar svartur að leika
fram peöum sínum á drottningar-
væng, en þaö á eftir aö koma í Ijós
aö þau veröa þar af leiöandi veik
og ákjósanleg skotmörk).
21. Rd4 — a6, 22. Rc2 — a5, 23.
Hd3 — Hab8, 24. Hhd1 — h6, 25.
f4 — Hbc8, 26. g4
(í þessari stöðu hugsaði Kortsnoj
sig lengi um og skákmeistarar á
skákstaö töldu stöðu Kortsnoj
erfiöa vegna staka peösins á d5
sem er hárrétt ályktun. En
Kortsnoj hefur eins og fyrr segir
teflt þessa uppáhaldsbyrjun sína
sennilega oftar en nokkur núlifandi
skákmeistari og þekkir veikleika
og styrkleika stööunnar manna
bezt.)
26 ... d4l (Hann einfaldlega fórnar
peðinu í því skyni að staösetja
riddara á reitinn þar sem peðið
var! Aöstoöarmaður Kortsnojs, R.
Keene minnti á að þetta hafi
löngum verið aðferð Nimzowitsch
gamla sem var einn af brautryöj-
endum nútíma skáklistar).
27. cxd4 — Rd5, 28. Hf1 — b4
(Kortsnoj er enn viö sama hey-
garðshorniö að reyna fyrir sér með
mótspil á drottningarvæng meö
peðunum. Hann haföi á þessu stigi
skákarinnar eytt mun meiri um-
hugsunartíma heldur en Karpov og
átti um 24 mínútur eftir af tímanum
til aö Ijúka 12 leikjum en Karpov
hinsvegar haföi einungis notaö 65
mínútur).
29. Bd2 — He7, 30. f5 — Rg5 (Aö
sjálfsögöu kom til greina aö leika
30 . . . Re-c7 og reyna þannig að
halda í horfinu og festa sig í sessi
meö riddarann á d5, en textaleik-
urinn er hvassari og riddarinn
veröur á þennan hátt virkari).
31. Re3 (Hvítur er fljótur aö grípa
tækifærið aö velta hinum sterka
riddara svarts á d5 úr sessi og
fórnar glaður í því skyni peöinu á
h3)
31.. . Rf6, 32. d5l (Hvítur býöur
ekki boöanna og siglir hraöbyri
meö frelsingjann upp d-línuna)
32.. . Rxh3 (Kortsnoj átti nú
aöeins eftir um 6 mínútur og því
kominn enn einu sinni í sitt
víöfræga tímahrak. Með peösrán-
inu á jaörinum veröur riddarinn úr
leik um stund og hvítur nær
undirtökunum).
33. d6 — Hd7, 34. Rd5 — Rxd5, 35.
Hxd5 — Ha8, 36. Be3 — Rg5, 37.
Bb6 — Re4, 38. Hfd1 — a4
(Kortsnoj verzt vel í tímahrakinu,
en þótt Karpov hafi nægan um-
hugsunartíma leikur hann hratt til
þess aö notfæra sér tímahrak
andstæðingsins)
39. Hd5 — d4 He8, 40. Hxb4 —
Hxd6 (Keppendur hafa nú leikiö
tilskildum leikjafjölda en halda
samt áfram í nokkra stund þar eð
þeir hafa líklega ekki teflt ennþá
samanlagt í 5 stundir).
41. Hxd6 — Rxd6, 42. Bc7?
(Einfaldari og miklu öflugri leikur
viröist vera 42. Hxa4 en þá hefur
hvítur tvo samstæöa frelsingja á a-
og b-línunni og miklar sigurlíkur.
Þess í stað frestar Karpov peðs-
drápinu og hyggst setja svarta
riddarann í vanda en yfirsézt
millileikur Kortsnojs).
42.. .. He1l, 43. Kc2 — Re8l (Á
þennan hátt vinnur svartur dýr-
mætan tíma því nú er hvíti
biskupinn í uppnámi).
44. Ba5 — a3! (þannig splundrar
svartur hinni fallegu peöastööu
hvíts á drottningarvæng, en nú var
Skák
Gunnar Gunnars-
son skrifar um
22. einvígisskákina
sennilega skásti kosturinn að leika
45. bxa3 og eiga þó altént tvo
frelsingja á a-línunni en Karpov
fúlsar við því).
45. Hb8? — He7, 46. Bb4 (Enn er
Karpov ekki ánægöur meö aö
leika bxa3).
46.. .. He2, 47. Kd3? (47. Bd2 —
axb2, 48. Hxb2 sýnist vænlegra
áframhald fyrir hvítan. í þessari
stööu lék Kortsnoj bíðleik og er
óhætt aö segja aö heilladísirnar
hafi verið meö honum síðustu
leikina því staöa hans hefur
batnað þaö mikiö að nú fyrst eygir
hann jafnteflisvon í skák sem
virtist fyrir nokkru gjörtöpuð.
Kortsnoj eyddi nú 33 mínútum á
biöleikinn sem veröur annaðhvort
47.. .. axb2 eöa sem er öllu
sennilegra: 47.... Hxb2. Eftir
þann leik er hugsanlegt framhald:
48. Hxe8 — Kh7, 49. Bxa3 —
Hxa2 og svartur hefur mjög góöa
jafnteflismöguleika enda þótt hann
hafi manni minna. Síöustu leikir
Karpovs voru af hans hálfu óvenju
máttlitlir enda þótt hann heföi
samkvæmt venju nægan pmhugs-
unartíma.
Biðskákin verður tefld í dag,
föstudag.