Morgunblaðið - 15.09.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1978
Marina játar
sekt Oswalds
Washingrton, 14. september. Reuter.
MARINA, ekkja Lee Harvey
Oswalds, sagði í fyrsta
skipti opinberlega í dag að
hún héldi að eiginmaður
hennar hefði myrt Kennedy
Eorseta í Dallas fyrir 15
árum. Hún bætti því við, að
hún teldi að hann hefði verið
einn að verki.
í gær neitaði hún að
viðurkenna fyrir nefnd sem
fulltrúadeildin hefur skipað
til að rannsaka morðið, að
hún teldi að Oswald hefði
drýgt verknaðinn.
Hún sagði að ástæðan til
morðsins hefi verið andlegt ástand
Oswalds, ekki stjórnmálaskoðanir
hans.
Richardson Preyer þingmaður
spurði hvort Oswald hefði viljað
Sðlast frægð fyrir að myrða
einhvern valdamann. Hún sagði að
erfitt væri að koma fram með
nokkra skýringu þar sem málið
væri fjarri allri skynsemi, en hún
kvaðst geta fallizt á skýringu
þingmannsins. Sennilega hefði það
ekki skipt hann máli hvaða
stjórnmálaskoðanir sá, sem hann
myrti, aðhylltist, aðeins það að
hann væri valdamikill.
Marina kvaðst telja að Oswald
hefði verið einn að verki þar sem
hann hefði verið dulur og aldrei
[nterpólismótið:
Portisch
sigraði
ELLEFTA og síðasta umferð
nterpóiismótsins var tefld í gær
)g þar sem tveir efstu menn
nótsins, þeir Portisch og
Timman, gerðu báðir jafntefli við
indstæðinga sína, hélzt röðin
ibreytt og stóð Portisch því upp
tem sigurvegari. Hann hlaut
iamtals 7 vinninga. en Timman
Wz v. Athygli vekur, að Larsen,
sem hlaut 5 vinninga alls, hafnaði
9. sæti af 12.
Úrslit í 11. umferðinni urðu
mnars þau, að Hubner vann
.jubojevic og Miles vann Larsen.
lafntefli gerðu Zindzichshivli og
5ortisch, Sosonko og Ribli, Browne
>g Spassky og Hort og Timman.
Endanleg röð á mótinu varð því
æssi:
. Portisch 7 v.
!. Timman 6Vi v.
5. Zinzichashvili, Hubner og
lort 6 v.
i.—8. Spassky, Hort og Browne
<'/2 v.
1. Larsen 5 v.
0,—11. Ljubojevic og Sosonko 4‘/2
trúað öðrum fyrir nokkru. Hún
sagði að hann hefði viljað fá
viðurkenningu fyrir að vera eitt-
hvað. Hún kvaðst enn vera undr-
andi á því að hann hefði myrt
forsetann þar sem hann hefði
alltaf virzt dá hann.
Akureyri
Amsterdam
Apena
Berlín
Barcelona
Brussel
Kairó
Chicago
Frankfurt
Genf
Helsinki
Jerúsalem
Jóh.borg
Kaupmh.
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Miami
Montreal
Malaga
Majorca
Moskva
New York
Ósló
Parfs
Reykjavík
Rio de
Janeiro
Rómaborg
San Francisco
Stokkhólmur
Sydney
Teheran
Tel Aviv
Tókíó
Toronto
Vancouver
Vínarborg
9 skýjaó
20 skýjaó
24 skýjaó
20 skýjaó
27 lóttskýjaó
17 rigning
37 bjart
31 rigníng
19 skýjaö
21 sól
15 skýjaó
29 bjart
9 rigning
17 skýjaó
32 bjart
22 skýjaö
21 skýjaó
32 bjart
35 hilfskýjaó
16 bjart
27 heióríkt
26 léttskýjaó
15 skýjaö
21 bjart
11 akýjaó
22 sól
10 skýjaó
27 sól
21 bjart
19 bjart
13 skýjað
14 bjart
36 sól
28 bjart
22 rigning
15 rigning
16 skýjaó
16 skýjaó
James Callaghan forsætisráðherra Breta sést hér ávarpa árlegt þing brezkra verzlunarmanna f
Brighton. Þar upplýsti Caliaghan meðal annars, að hann myndi kunngera fyrirætlanir sínar varðandi
kosningar f landinu „mjög bráðlega“.
Smith útilokar nýjar
yiðræður við Nkomo
Salisbury, 14. september. AP.
IAN SMITH forsætisráðherra
útilokaði í dag frekari viðræður
við skæruliðaleiðtogann Joshua
Nkomo og lýsti því yfir að eina
vonin um friðsamlega lausn
Rhódesíudeilunnar væri sú að
ríkisstjórnir Bretlands og Banda-
ríkjanna knýðu hana fram.
Smith kailaði Nkomo
„ófreskju“ á fjölmennum blaða-
mannafundi og sagði að bráða-
birgðastjórnin í Rhódesiu mundi
leggja bann við því að tvær hinar
bönnuðu hreyfingar skæruliða
sem hafa bækistöðvar erlendis
stofnuðu deildir í Rhódesíu.
I Nairobi sátu skæruliðaleiðtog-
arnir Nkomo og Robert Mugabe
hlið við hlið við setningu einingar-
ráðstefnu Afríku- og Asíuþjóða í
Addis Abeba, að sögn eþíópíska
útvarpsins.
Skæruliðaleiðtogarnir stofnuðu
Föðurlandsfylkinguna fyrir tveim-
ur árum en hafa ekki hitzt um
nokkurt skeið. Fréttir herma að
þeir séu ósammála um ráðagerð-
irnar um ráðstefnu allra aðila
Rhódesíudeilunnar og vegna leyni-
fundar Nkomos og Smiths forsæt-
isráðherra í síðasta mánuði.
Diplómatar í Addis Abeba segja
að Nkomo og Mugabe dveljist á
sama hóteli og að gert sé ráð fyrir
að þeir hitti að máli Fidel Castro,
forseta Kúbu, sem dvelst um
þessar mundir í eþíópísku höfuð-
borginni.
Líklegt er talið að Castro haldi
fund með þeim til þess að reyna að
setja niður deilur þeirra og
hreyfinganna sem þeir stjórna.
Innrás í búðir
blökkumanna
Böfðaborg, 14. september. AP.
LÖGREGLUMENN réðust
inn í búðir blökkumanna
skammt frá Höfðaborg,
Nordli býr Norðmenn
undir kaupbindingu
2. Ribli 4 v.
Frá fréttaritara Mbl. í Ósló í gær.
ODVAR Nordli forsætisráðherra
sagði í dag að erfitt mundi
reynast að tryggja fulla atvinnu
á næstu árum ef ekki yrði komið
á bindingu kaupgjalds og verð-
lags.
Hann sagði að full atvinna væri
æðsta takmark stjórnarinnar og
að það væri í hættu ef bindingu
kaupgjalds og verðlags yrði ekki
komið á. Ef það tækist ekki sagði
hann, að Norðmenn yrðu illa á
vegi staddir.
Nordli kvað það knýjandi nauð-
syn að tryggja að hækkun verðlags
og kostnaðar yrði töluvert lægri á
næsta ári en í öðrum vestrænum
löndum. Hann skoraði eindregið á
alla að sýna miklu meiri hófsemi á
næstu árum en þeir hefðu gert til
þessa.
Hann sagði að gera yrði afger-
andi ráðstafanir til að brjótast út
úr vítahring verðbólgunnar. Hann
kvaðst ekki vilja leyna því að meiri
barátta yrði um atvinnu á næstu
árum en til þessa.
Þetta gerðist
1974 — Flugræningjar sprengja
upp víetnamska farþegaflugvél
og 71 ferst.
1967 — Amer marskálkur,
yfirmaður egypzka hersins,
fremur sjálfsmorð.
1966 — Þriggja daga geimferð
bandariskra geimfara lýkur.
1959 — Krúsjeff kemur til
Washington í 13 daga heimsókn.
1950 — Landganga liðsafla SÞ í
Inchon, Suður-Kóreu.
1949 — Adenauer verður fyrsti
kanzlari Vestur-Þjóðverja.
1946 — Alþýðulýðveldi stofnað í
Búlgaríu.
1942 — Þjóðverjar ráðast á
Stalíngrad.
1938 — Chamberlain fer til
Berchtesgaden þar sem Hitler
kveðst ætla að innlima Súdeta-
héruðin.
1935 — Núrnberg-Iögin um
ofsóknir gegn Gyðingum og
hakakrossinn verður þjóðfáni.
1917 — Kerensky lýsir yfir
stofnun rússnesks lýðveldis.
1916 — Brezki herinn beitir
skriðdrekum í fyrsta skipti.
1882 — Bretar hertaka Kairó og
Arabi Pasha gefst upp.
1643 — Samningar um lok
stríðsátaka á írlandi.
Afmæli dagsins. Albrecht von
Wallenstein, þýzkur hermaður
(1583—1634) — James Fenimore
Cooper, bandarískur rithöfund-
ur (1798-1851) - WiUiam
Fjárlagafrumvarp norsku
stjórnarinnar fyrir næsta ár
verður lagt fram eftir rúmar þrjár
vikur. — I fyrra nam greiðsluhalli
Norðmanna við útlönd 26 milljörð-
um norskra króna. Horfur eru á að
greiðsluhallinn á þessu ári verði
talsvert innan við 20 milljarðar
norskra króna sem hefur verið
spáð.
Arbeiderbladet, málgagn Verka-
mannaflokksins, sagði í dag að
stjórn Nordlis hefði ákveðið að
frysta kaupgjald og verðlag til
ársloka 1979, samkvæmt Reuter.
Blaðið segir að ráðstöfunin verði
kunngerð á morgun.
Crossroads, í morgun og
handtóku mörg hundruð
blökkumenn að sögn sjón-
arvotta í dag. Þeir sögðu
að einn maður hefði verið
skotinn til bana og tveir
hefðu særzt.
Sjónarvottarnir sögðu frá
handalögmálum og grjótkasti og
harðri framgöngu lögregiunnar
sem beitti táragasi, kylfum og
hundum.
Tuttugu þúsund manns eru í
búðunum og um 600 lögreglumenn
slógu hring um þær. Lögreglan
hefur ekkert sagt opinberlega um
atburðinn.
Fólkið í búðunum sagði að
lögreglan hefði látið til skarar
skríða skömmu eftir miðnætti og
krafið blökkumennina um vega-
bréf. Samkvæmt suður-afrískum
lögum verða blökkumenn að bera
vegabréf ef þeir búa á svæðum
ætluðum hvítum mönnum.
Hins vegar virðist íbúum búð-
anna hafa borizt njósn um fyrir-
hugaðar aðgerðir lögreglunnar og
þeir voru allir vakandi.
Howard Taft, bandarískur for->
seti (1857-1930).
Innlent. D. Herra Ásgeir Ás-
geirsson 1972— — „Porqoui
pas?“ strandar við Mýrar 1926
— D. Síra Páll Jónsson skáldi
1846 — Bjarni biskup Kolbeins-
son í Orkneyjum 1222.
Orð dagsins. Við verðum að
vara okkur á því að byggja upp
þjóðfélag þar sem enginn skiptir
máli nema pólitíkus eða em-
bættismaður. — Sir Winston
Churchill, breskur stjórnskör-
ungur (1874—1965).
Vínbúðir munu
tæmast íNoregi
Frá fréítaritara Mbl.
í Óslö í gær
HORFIJR eru á því að hillur
áíengisverzlana í Noregi tæmist á
næstunni þar sem starfsmenn
framleiðsludeildar áfengiseinok-
unarinnar hafa fellt með miklum
meirihluta atkvæða tilboð rikis-
ins um nýja launasamninga.
Því hefur verið boðað verkfall
bæði í Ósló, Björgvin, Þrándheimi
og Hamar frá og með næsta
mánudegi. Gert er ráð fyrir því að
áfengi verði óspart hamstrað
næstu daga ef verkfalli verður
ekki afstýrt.
Starfsmenn framleiðsludeildar
framleiða áfengi fyrir ríkiseinok-
unina en verkfallið mun einnig
bitna á innfluttu áfengi. Helztu
áfengisútsölurnar eru háðar birgð-
um sem þær fá daglega. Ef til
verkfalls kemur í umræddum
fjórum borgum selst áfengið upp á
þremur til fjórum dögum.