Morgunblaðið - 15.09.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1978
19
Fyrirlestur og
myndasýning í
Norræna húsinu
DANSKI listmálarinn Ejler
Bille, sem þessa daga sýnir
verk sín sem gestur SEPT-
EM-hópsins í Norræna hús-
inu, heldur fyrirlestur í
samkomusal Norræna húss-
ins síðdegis á laugardaginn
16. september kl. 16.00.
Fyrirlesturinn nefnir Bille
„Kunstens betydning
menneskeligt og socialt“.
Ejler Bille hfur gert
víðreist um ævina og að
erindinu loknu sýnir hann
litskyggnur frá síðustu ferð
sinni til Bali.
Öllum er heimill ókeypis
aðgangur.
Ejler Bille.
75 ára:
Bjami
Þórodds-
son
Bjarni Þóroddsson, fyrrverandi
póstmaður, er 75 ára í dag, 15.
sept.
Allt frá bernsku hefur þessi
maður verið trúr og góður hjálp-
ræðismaður. Hann var í mörg ár
stjórnandi lúðrasveitar Reykjavík-
urflokks, og lagði á sig mikið starf
við að kenna og æfa nýja hljóm-
sveitarkrafta.
Sem samstarfsmaður við „Her-
ópið“ hefur hann unnið ómetanlegt
starf um langt árabil. Innan
safnaðarins hefur hann jafnan
verið mikils metinn, enda hefur
hann, af hershöfðingjanum, verið
sæmdur heiðursmerki fyrir langa
og dygga þjónustu.
Foringjar og félagar hans í
Hjálpræðishernum óska honum
hjartanlega til hamingju með 75
ára afmælið og biðja honum
blessunar Drottins um alla fram-
tíð.
Gudmund Lund.
Vignir Jóhannsson
Sýning á teikn-
ingum og grafík
VIGNIR Jóhannsson frá Akra-
nesi opnar í dag, föstudaginn
15. september kl. 18.00, sýningu
á „Loftinu“, Skólavörðustíg 4.
Vignir sýnir teikningar og
grafík sem hann hefur unnið
undanfarið ár.
Vignir lauk námi frá grafík-
deild Myndlista- og handíða-
skóla Islands síðastliðið vor og
er nú ráðinn við skólann sem
kennari.
Sýningin verður opin kl. 9—18
virka daga, kl. 10—18 á laugar-
dögum og kl. 14—18 á sunnudög-
um.
Sýningar á „Loftinu" hafa
legið niðri í sumar vegna eig-
endaskipta en verða nú teknar
upp að nýju og er sýning Vignis
Jóhannssonar upphaf vetrar-
starfseminnar.
Bragðmikill ávaxtagosdrykkur
• • /
HF. OLGERÐIN EGILL SKALLAGRIMSSON