Morgunblaðið - 14.10.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978
19
\
Þessir þrír crlendu kardinálar hafa verið nefndir líklegir bæði nú og s.l. sumar> Pirionio frá
Argentínu. Franz Köning írá Austurríki og Willebrands frá Hollandi.
Corrado Ursi írá Napólí hefur
verið líkt við Jóhannes Pál og
margir spá því að hann verði
páfi.
Kardinálasamkund-
an er setzt á rökstóla
Vangaveltur um þá sem taldir eru koma til greina í embætti páfa
Kardinálasamkundan er á ný
að setjast á rökstólana. annað
páfakjör á örskömmum tíma er
að hefjast. Víst þykir sumum
þetta harla sérkennileg staða.
Einn aldurhniginn kardináli
sem tók þátt í að kjósa Jóhann-
es Pál I sagði er hann kom
aítur til Rómar. að ekki heíði
hvarflað að honum að hann
myndi eiga eftir að taka þátt i '
að kjósa fleiri páfa um sina
daga.
Eins og áður hefur verið
fjallað um hér í Mbl. hafa menn
verið varfærnari að spá um
eftirmann páfa nú. Meðal ann-
ars vegna þess hve kjör
Jóhannesar Páls gekk þvert á
allar úttektir spekinga og spár í
þá átt fyrir nokkrum vikum. Þá
kom einnig í ljós að svo virðist
sem mögnuð andstaða hafi
komið upp meðal meirihluta
kardinála við að kjósa einhvern
úr æðstu stjórn Páfagarðs.
Menn eru ekki vissir um hvort
þetta hafi breytzt, alténd halda
menn því fram að Sergio
Pignedoli sem mjög títt var
nefndur hafi goldið stöðu sinnar
og ekki sennilegt að samstaða
næðist um hann núna. Sama
gildir um ýmsa aðra frambæri-
lega menn að margra dómi, en
engu að síður hafa sumir þeirra
verið nefndir á ný, og einna
áleitnust eru nú nokkur þeirra
nafna sem að vísu voru nefnd í
sumar en þóttu ekki trúleg:
Corrado Ursi, sjötugur erki-
biskup í Napolí, er þar efstur á
blaði úr hópi italskra kardinála.
Hann er ástsæll og nýtur
sérstaks trausts meðal hinna
fátæku og snauðu í Napolí enda
hefur hann unnið mikið og
óeigingjarnt starf í þeirra þágu.
Honum þykir um margt svipa til
Jóhannesar Páls, og gæti það nú
orðið honum til framdráttar
enda ýmsir þeirrar skoðunar að
fyrir valinu verði maður svip-
aðrar gerðar og „páfinn bros-
andi“. Ursi er lítt reyndur í
alþjóðamálum, hógvær maður,
hefur mikinn áhuga á umbótum
í félags- og velferðarmálum, en
sagður nokkuð íhaldssamur í
trúmálum.
Meðal annarra ítalskra
kardinála, sem hafa verið
nefndir, er enn á ný Giovanni
Benelli, 57 ára gamall erki-
biskup í Flórens. Hann þótti í
það yngsta til að verða páfi en
snögglegt fráfall Jóhannesar
Páls kynni að hafa bre.vtt þeirri
Enn er Pignedoli nefndur en
ekki jafn sigurstranglegur og
fyrr í sumar.
áfstöðu. Og sá þriðji er Salva-
tore Pappalardo, sextugur Sikil-
eyjarbiskup.
Það er hins vegar eftirtektar-
vert að þeirri hugm.vnd virðist
hafa aukizt mjög fvlgi á þessum
síðustu dögum að valinn skuli
páfi sem ekki er ítalskur. Þar
hafa ýmsir verið til nefndir,
Johannes Wiilebrands, Hol-
Íandi, og Eduardo Pirionio frá
Argentínu og Franz Köning frá
Austurríki eins og síðast en nú
hafa allmargir erlendir
kardinálar til viðbótar komið
inn í spilið, hversu ntikið sem er
nú að marka þær vangaveltur.
Þar má nefna Jean Villot, 72
ára, Frakklandi, Paulo Evaristo
Arns, 57, Brasilíu, baráttumað-
ur fyrir auknum mannréttind-
um, Joseph Cordeiro, 60,
Pakistani sem þekktur er fyrir
mannúðarstörf, Karol Wojtyla,
58, frá Póllandi sem þykir
sterkur leiðtogi í fjandsamlegu
umhverfi. Hann talar reiprenn-
andi ítölsku.
Svo kynni þó vitanlega að fara
að sagan endurtæki sig og
óþekktur kardináli yrði sá sem
settist í hásæti Péturs.
Lögreglumenn
myrtir á Spáni
Hilltitó, Spáni, 1.5. okl. Al'.
IIRYÐJUVERKAMENN réðu
tveimur liigreglumönnum bana í
dag í útjaðri Bilhaó. höfuðhorg
baskahéraðanna á Norður-Spáni.
Þriðji lögreglumaðurinn var
særður alvarlega.
Talið er að hryðjuverkamenn-
irnir tilheyri aðskilnaðarsamtök-
um Baska, en fyrr á árinu höfðu
sautján lögreglumenn fallið fyrir
kúlum hryðjuverkamanna úr þess-
um samtökum. Með þessum morð-
um eru þeir jafnframt orðnir 42
sem látist hafa á árinu í i" .irðum
sem eru af pólitískum toga spunn-
ar.
Morðin í dag bar að með þeim
hætti að þegar þrír lögreglumenn
voru í eftirlitsferð í jeppabifreið í
útjaðri Bilbaó hófu sex menn
vopnaðir vélbyssum á þá skothríð.
Lögreglumennirnir tveir létust
samstundis. Hryðjuverkamennirn-
ir földu sig bak við tré i fjallshlíð
og skutu samstundis frá þremur
stöðum á jeppann.
Nýr forsætisráðherra Svlþjóðar:
Hyggst fara að
dæmi Hartlings
OLLA UHsten, hinn nýi forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, er 47 ára að
aldri. Ilann er þjóðfélagsfræðing-
ur að mcnnt og var um hríð
starfandi blaðamaður við Dagens
Nyhetcr og skrifaði m.a. leiðara í
það blað. en hann hefur nú um
langt árabil haft stjórnmálin að
aðalatvinnu sinni.
Frama Ullstens hefur borið að
mjög skjótt. Hann varð leiðtogi
Þjóðarflokksins, minnsta flokks-
ins í Svíþjóð, sem fulltrúa á á
þingi, í janúar s.l„ þegar Per
Ahlmark sagði af sér því atarfi af
persónulegum ástæðum. Ullsten
varð þá jafnframt aðstoðarforsæt-
isráðherra og gegndi áfram ráð-
herraembætti því, sem fer með
málefni þau er varða aðstoð Svía
við þróunarlöndin. Ullsten var
kosinn á þing árið 1965, en féll í
kjördæmi sínu í kosningunum
1973. Hann náði kjöri á ný 1976 og
hefur síðan siglt hraðbyri upp á
við innan Þjóðarflokksins.
Sagt er að Ullsten hafi tekið sér
danska stjórnmálamanninn Paul
Hartling til fyrirmyndar og hygg-
ist nú fara eins að og Hartling,
þegar hann myndaði minnihluta-
stjórn sína fyrir nokkrum árum og
tvöfaldaði fylgi flokksins í næstu
kosningum á eftir. Flokkur Ull-
stens hefur nú aðeins 39 sæti af
349 í sænska þinginu.
Ullsten þykir ekki mikill ræðu-
maður, en hefur lagt sig þeim mun
meir fram í innra starfi flokks
síns. Hann var um tíma formaður
landssamtaka yngri manna í
Þj óðarf lokknum.
Hinn nýi forsætisráðherra Sví-
þjóðar er kvæntur og á tvær
dætur á unglingsaldri. Kona hans
er verkfræðingur. Þau hjón og
dætur þeirra eru sögð mikið
hestafólk. Ullsten var eitt sinn
templari, en er það nú ekki lengur.
Hann er talinn glaðvær og dugleg-
ur en laus við valdagræðgi.
Carter
til Kína?
London. 13. okt. AP.
KÍNY'ERSKIR fylgdarmenn í
föruneyti Iluangs Hua. Utan-
ríkisráðherra Kína. létu á sér
skilja í dag að verið gæti að
Carter Bandarikjaforseti hygði
á ferð til Peking á næsta ári.
Slík heimsókn yrði þó aðeins
ráðgerð ef síðari hluta viðræðna
Bandaríkjamanna og Sövét-
menna um takmörkun fram-
leiðslu gereyðingarvopna lyki
með samningum og niyndi til-
gangur farar Carters þá tii
Peking verða sá að útskýra
samkomulagið fyrir Kínverjum
jafnframt því sem fjallað yrði
almennt um alþjóðamál.
Engin staðfesting á þessum
fyrirætlunum hefur fengizt hjá
bandarískum ráðamönnum.