Morgunblaðið - 14.10.1978, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 14.10.1978, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978 I ! t • V.#' • ♦ V# • * • • V.#' • * * * v.#*' • * V.#4, * * v.#' V.#' v.#' Morgunblaöið heiðr- ar fjóra íþróttamenn ÍÞRÓTTAVERÐLAUN MorKunblaðsins íyrir árið 1978 voru afhent á Hótel Loftleiðum í gær. Verðlaunamenn Morgunblaðsins í ár eru Gunnar Einarsson, Haukum, sem var valinn leikmaður íslandsmótsins í handknatt- leik, Björn Jóhannesson Armanni, markakóngur í handknattleik, Karl Þórðarson leikmaður íslandsmóts- ins í knattspyrnu og Pétur Pétursson markakóngur í knattspyrnu. Að venju afhenti Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Arvakurs, útgáfufélags Morgunblaðs- ins, verðlaunin. Verdlaunamonn Mbl. 1978 SijítrysíKur Sigtryggsson blaða- maður gerði grein fyrir verðlauna- höfunum og sagði við það tæki- færi: „Nú eru liðin 7 ár síðan Morgun- blaðið hóf að heiðra þá knatt- spyrnumenn, sem fram úr skara á Islandsmótinu ár hvert og 6 ár síðan sami háttur var tekinn upp í handknattleiknum. Við sem að þessari verðlaunaveitingu stönd- um, teljum að hún hafi unnið sér fastan sess í íslenzkum íþróttum. Nú eins og áður höfum við verið gagnrýndir fyrir stigagjöf fyrir einstaka leiki en enginn hefur dregið í efa réttmæti þess að verðlauna þá íþróttamenn, sem hingað eru komnir í dag til þess að taka við verðlaunum sínum. Til- gangur verðlaunaveitingarinnar er tvíþættur, að heiðra þá sem íþróttamenn sem skara framúr og auka áhuga á íþróttum. Við vonum að þetta hafi tekizt. Verðlaunamenn Morgunblaðsins 1978 eru þessir: Leikmaður íslandsmótsins í handknattleik er Gunnar Einars- son markvörður, sem lék með Haukum í síðasta íslandsmóti en leikur nú með Árhus KFUM í Danmörku. Gunnar er tvímæla- laust sá leikmaður, sem mestar framfarir sýndi á síðasta vetri og hann var öðrum fremur maðurinn að baki stórgóðum árangri Hauka- liðsins Vegna verkfalls blaða- manna síðastliðinn vetur voru ekki gefnar einkunnir í öllum leikjum Islandsmótsins. Kom það því í hlut okkar íþróttafréttamanna Morgunblaðsins að velja leikmann Islandsmótsins. Það val var auð- velt, því Gunnar hafði svo afger- andi forystu í stigagjöfinni. Næst- ir Gunnari voru Árni Indriðason Víkingi, Haukur Ottesen KR, Andrés Kristjánsson Haukum, Jón Karlsson Val, Páll Björgvinsson Víkingi og Jens G. Einarsson IR. Markakóngur Islandsmótsins varð Björn Jóhannesson Ármanni. Björn hefur um árabil verið með markhæstu mönnum í íslenzkum handknattleik en hann hefur aldrei fyrr hlotið þetta sæmdar- heiti. Er hann vel að verðlaunun- um kominn. Björn skoraði 86 mörk. Næstir komu Andrés Kristjánsson Haukum með 78 mörk, Jón Karlsson Val með 78 mörk og Brynjólfur Markússon IR með 76 mörk. • Þröstur Stefánsson formaður íþróttabandalags Akraness. flytur ræðu sína. Pétur markakóngur. og Karl Þórðarson eru til hægri. Ljósm. Emilía. • P. Stephan framkvæmdastjóri Feyenoord. og formaður Ármanns Gunnar Eggertsson. Leikmaður íslandsmótsins í knattspyrnu varð Karl Þórðarson Akranesi með 60 stig í 18 leikjum, eða 3,33 stig að meðaltali í leik, sem er langbezti árangur, sem náðst hefur í þessari einkunnagjöf. Karl hefur vakið verðskuldaða athygli í sumar fyrir frábæra leiki bæði með Akranesliðinu og lands- liðinu. Þessi háa stigatala er engin tilviljun, Karl hefur unnið verð- skuldað fyrir hverju einasta stigi. Næstir Karli komu Atli Eðvalds- son Val með 52 stig, Dýri Guð- mundsson Val með 48 stig og Árni Sveinsson IA með 50 stig. Markakóngur íslandsmótsins er annað árið í röð Pétur Pétursson Akranesi. Hann skoraði 19 mörk í 17 leikjum, sem er nýtt markamet í 1. deild. Næstur kom Ingi Björn Albertsson Val með 15 mörk. Oþarfi er áð fara mörgum oröum um Pétur. Þóit hann sé aðeins 191 ára gamall héfur hann sannað ótvírætt að hann er marksæknasti leikmaður íslenzkrar knattspyrnu um þessar mundir. Þetta hefur ekki farið fram hjá erlendum , félögum og í, fyrramálið mun IPétur halda til Hötlands, þar sem • hann hefur skrifað undir atvinnu- samning við stórliðið Feyenoord. Fylgja Pétri beztu óskir á þessum tímamótum í lífi hans.“ Ávörp Haraldur Sveinsson fram- kvæmdastjóri afhenti íþrótta- mönnum verðlaunin og árnaði þeim heilla með þann árangur sem þeir heföu náð og gæfu og gengis í framtíðinni. Síðan tóku til máls Hermann Þórðarson formaður Hauka: Þakk- aði hann framtak Morgunblaðsins sem hann taldi vera lofsvert og vekti verðskuldaða athygli. Það væri stór stUnd fyrir íþróttamenn- ina er þeir tækju við verðlaunum þessum. Þá þakkaði Hermann Mbl. fyrir góð íþróttaskrif blaðsins. Ellert Schram formaður KSÍ þakkaði framtak Mbl. og óskaði íþróttamönnum sem heiðurinn hlutu til hamingju. Karl Þórðar- son hefði óumdeilanlega sýnt svo góða frammistöðu á sumrinu aÖ val hans væri hafið yfir gagnr-ýni. Pétur Péturssori væri nú í annað árið í röð að taka við verðláunum sem markhæsti leikmaður íslands- mótsins, og væri það ekki lítið afrek. Pétur getur lesið leikinn á sérstakan hátt og skorar því mikið af mörkum af alhliða list, sagði Ellert. P. Stephan framkvæmdastjóri Feyenoord, var meðal gesta og sagði hann framtak Mbl. vera lofsvert, og án alls efa ungum mönnum mikil hvatning á íþrótta- sviðinu. P. Stephan sagðist vona að Pétri tækist að skora jafn mörg mörk fyrir Feyenoord eins og hann hefur skorað fyrir I.A. undanfarin tvö ár. Þröstur Stefánsson formaður Iþróttabandalags Akranéás þakk- aði Mbl. góð íþróttaskrif, en þau væri mjög mikilvæg fyrir íþrótta- hreyfinguna. Óskaði hann íþrótta- mönnunum til hamingju með verðlaunin og þakkaði Morgun- blaðinu það lofsverða framtak er það sýndi með verðlaunaafhend- ingu þessari. Sagði hann áð verðláun blaðsins virkuðu hvetj- andi á íþróttastarfið og væru eftirsóknarverð fyrir íþróttamenn. - ÞR. Færeyingar kom- ust ekki til landsins LANDSLEIKNUM í hand- knattlcik sem vera átti gegn Færeyjum í gær- kveldi, er frestað um óákveðinn tíma, vegna þess að áætlunarflug til Fær- eyja hefur brugðist. Þetta kom fram í skeyti sem Mbl. fékk í gærkvöldi frá fréttaritara sínum í Færeyjum, Jögvan Arge. I skeyti Arge kemur einnig fram, að áætlun- arflug frá Danmörku hafi verið með eðlilegu móti og því ein- kennilegt hvað brugðist hefði hjá Flugfélaginu. Nýjasta veð- urspáin á þessum slóðum er góð, hæg vestiæg átt og gott skyggni. Reynt verður að fljúga í dag og ef það tekst munu liðin væntanlega leika í Laugardals- höll í dag. • Frá verðlaunaafhendingunni í gær. Frá v. Hermann Jónsson íþróttafréttaritari Mbl. í Vestmannaeyjum. markakóngur ísl. mótsins í handknattieik í fyrra Björn Jóhannesson, Þórður Sigurðsson varaformaður handknattleiksdeildar Hauka. og formaður Hauka Ilermann Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.