Morgunblaðið - 28.10.1978, Síða 48
At’íiLÝSINíiASÍMINN ER:
22480
JWíröimtlnöiii
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1978
Viðskiptakjör við útlönd:
Hafa versnað um 4-5%
síðastliðna þrjá mánuði
VIÐSKIPTAKJÖR íslands við útlönd hafa farið versnandi upp
á síðkastið. Benda bráðabirgðaútreikningar Þjóðhagsstofnun-
ar til þess að innflutningsverðið hafi hækkað 4—5% meira en
útflutningsverðlagið s.l. þrjá mánuði. þ.e. frá ágústbyrjun til
októberloka. Væntanlega liggja nákvæmari útreikningar fyrir
um miðja næstu viku.
Fyrri hluta þessa árs fóru
viðskiptakjör Islands batnandi en
síðustu vikurnar hefur verulega.
sigið á ógæfuhliðina. Ástæðurnar
fyrir þessu eru ýmsar en helstu
ástæðurnar eru þær að verð á
frystum fiski á Bandaríkjamark-
aði hefur verið óbreytt frá í vor í
dollurum talið, við erfiðleika hefur
verið að etja á saltfiskmörkuðum
okkar og verð á mjöli og lýsi hefur
farið lækkandi frá því sem var
fyrri hluta sumars. Jafnframt
þessu hefur gengi Evrópumynt-
anna hækkað miðað við dollar en
okkar útflutningsverð er að mestu
leyti skráð í dollurum. Allir þessir
þættir hafa haft áhrif á viðskipta-
kjörin til hins verra.
Missir Norðurstjarn-
an af samningum fyrir
um 400-500 milljónir?
Niðursuðuverksmiðjunni
Norðurstjörnunni h.f. í
Hafnarfirði hefur gengið
illa að útvega hráefni til að
vinna úr léttreykta síld,
kippers, til sölu á Banda-
Fjórði gúmbát-
urinn fundinn
FLUGVÉL Landhelgisgæzlunn-
ar TF-SÝN fann um hádegisbilið
f gær enn einn gúmbát 25 manna
sem virtist svipa til hinna sem
áður höfðu fundist að sögn
Þrastar Sigtryggssonar í stjórn-
arstöð Gæzlunnar.
Þröstur sagði að flugvélin hefði
verið beðin sérstaklega um að
svipast um eftir gúmbátum í
framhaldi frétta af fundi þriggja
slíkra báta. Jón á Hofi, bátur frá
Þorlákshöfn, var nærstaddur og
tók bátinn um borð og hélt síðan
á síldveiðar, en er væntanlegur til
hafnar fljótlega. Ekki hefur enn
fengizt skýring á hvaðan bátarnir
eru komnir.
ríkjamarkaði, en Sölu-
stofnun lagmetis gerði fyr-
ir hennar hönd um
mánaðamótin september
— október samninga á sölu
31/2—4 milljóna dósa er
nema kr. 400—500 milljón-
um að verðmæti.
Að sögn Péturs Péturssonar
forstjóra Norðurstjörnunnar h.f.
var ætlunin að fá síld beint úr
bátunum til vinnslu hjá fyrirtæk-
inu upp í þessa samninga, en ekki
hefur enn tekizt að fá nema lítið
magn. Sagðist Pétur hafa rætt við
útgerðarmenn, en það hefði ekki
borið árangur. — Við höfum verið
í sambandi við bæði iðnaðarráðu-
neytið og sjávarútvegsráðuneytið,
sagði Pétur, en ég held að hvorki
ráðuneytin né við höfum fundið
lausn ennþá. Um það bil mánuður
er eftir af vertíðinni, en fáist
hráefnið ekki er hætta á að
samningar þessir falli niður og er
því nauðsynlegt að stjórnvöld geri
einhverjar ráðstafanir til að
útvega hráefni.
í Reykjavík hefur um tíma
vcrið starfræktur útimarkað-
ur á Lækjartorgi og samþykkt
hefur verið að koma upp
annars konar útimarkaði við
Bernhöftstorfuna og í gær
bættist við enn nýr aðili í
þessum sölumálum er maður-
inn á myndinni hóf að bjóða
vegfarendum í Austurstræti
heilsubrauð á 100 krónur.
Ljósm. Emilía.
Vinnuveitendasambandid:
Fellst ekki á. aft-
urkölhin kaupliða
kjarasamninganna
Framkvæmdastjórnarfundur
Vinnuveitendasambands Is-
lands hefur ákveðið að sam-
þykkja ekki afturköllun upp-
sagna kaupliða kjarasamninga
heldur freista þess að ná
Tómas Ámason fjármálaráðherra:
Þetta er fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar en ekki
neitt einkafrumvarp mitt
„Á ÞESSUM FUNDI var lögð síðasta hönd á fjárlagaundirbúninginn,“ sagði Tómas Árnason fjármálaráðherra,
er Mbl. spurði hann um fund hans og forsætisráðherra með Benedikt Gröndal og Lúðvík Jóscpssyni í gærmorgun.
„Það kemur í ljós á Alþingi,“ sagði fjármálaráðhcrra, er Mbl. spurði hann, hvort eining væri í stjórnarflokkunum
með fjárlagafrumvarpið. „Þetta er fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar en alls ekki neitt einkafrumvarp mitt eða
Framsóknarflokksins,“ sagði Tómas, þegar Mbl. spurði um það atriði.
Mbl. bar undir Tómas þau ummæli
Ólafs Ragnars Grímssonar alþingis-
manns í blaðaviðtali í gær, „að
vinnubrögð Tómasar Árnasonar við
þetta fjárlagafrumvarp eru einstök í
sögunni" og heldur Ólafur því fram
að Tómas fari svo leynt með
fjárlagafrumvarpið að þingmenn
stjórnarflokkanna viti ekkert og
jafnvel leiki vafi á því, hversu mikið
aðrir ráðherrar viti um innihald
frumvarpsins. „Eg held nú að ef
Ólafur Ragnar Grímsson væri ráð-
herra, þá vissi hann það að ráðherr-
ar hafa aðgang að fjárlaga- og
hagsýsludeildinni og geta fyigzt með
stöðu fjárlagafrumvarpsins, hvenær
sem þeir vilja. Stjórnarskráin mælir
svo fyrir að fjárlagafrumvarp eigi að
leggja fyrir Alþingi og í því felst að
alþingismenn eru þeir fyrstu utan
ríkisstjórnarinnar til að sjá fjár-
lagafrumvarpið.
Við gerð fjárlagafrumvarpsins
hafa verið höfð samráð við aðila
vinnumarkaðarins um stefnuna í
frumvarpinu og þessum samráðum
verður haldið áfram. Þá hafa
stjórnarflokkarnir átt viðræður um
meginstefnuna og fjárlagafrumvarp-
ið hefur verið rætt í ríkisstjórninni.
Það er því alrangt að halda því fram
að ég hafi leynt rétta aðila einhverju
í sambandi við gerð fjárlagafrum-
varpsins," sagði Tómas Árnason.
samningum um þá við verka-
lýðsfélögin miðað við raunveru-
lega fjárhagsafkomu atvinnu-
veganna, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu frá VSÍ.
Þar segir jafnframt að komi
áætlaðar 10—12% launa-
hækkanir vegna verðlagsbóta á
laun 1. desember muni þær
innan skamms leiða til atvinnu-
leysis vegna rekstrarstöðvana
atvinnuveganna eða stórfelldrar
gengisfellingar og nýrrar víxl-
hækkunaröldu launa og verðlags
með áframhaldi þess ófremdar-
ástands sem einkennt hefur
íslenzkt efnahagslíf undanfarin
ár.
I fréttatilkynningu Vinnuveit-
endasambandsins er minnt á spá
hagfræðinga sambandsins frá
því 20. september s.l. um þróun
verðlags þessa árs og næsta ár,
en niðurstöður hennar voru að
framfærsluvísitalan hækkaði
um 42,9% frá 1. nóvember n.k.
til 1. nóvember 1979 og laun
hækki um 57% frá 1. september
s.l. til ársloka 1979. Gert er ráð
fyrir að gengi dollarans hækki
um 58% frá því sem nú er og til
áramóta 1979—80.
Til að koma í veg fyrir að þessi
spá rætist kemur fram í frétta-
tilkynningunni að VSI telur að
meðal annarra nauðsynlegra
aðgerða við þær efnahagsað-
stæður, sem hér eru, sé að koma
í veg fyrir hækkanir á verðbóta-
greiðslum á laun frá og með 1.
desember n.k. og er minnt á að
verðbætur séu ekki greiddar á
laun í nágrannalöndum okkar
nema lítils háttar í Danmörku
og Svíþjóð. Með skírskotun til
þess muni VSÍ ekki samþykkja
afturköllun uppsagna kaupliða
kjarasamninga heldur freista
þess að ná samningum við
verkalýðsfélögin.
Sjá spá VSÍ um þróun verðlags
bls 26.
Dragnótabátur
álitinn með ólög-
legan frágang
Varðskip kom í gær að báti í
Eyjafirði sem talið var að væri með
ólöglcgan frágang dragnótar, en
að sögn Þrastar Sigtryggssonar
hjá Landhelgisgæzlunni var bund-
ið fyrir aftasta hluta vörpunnar,
pokann, en hann hefur stærri
möskva en fremri hlutinn.
— Við teljum þetta brjóta í bága
við gildandi lög og reglugerðir,
sagði Þröstur og játaði skipstjórinn
að hafa útbúið þetta á skipinu.
Réttarhöld áttu að hefjast á
Akureyri í gærkvöldi.