Morgunblaðið - 03.12.1978, Page 13

Morgunblaðið - 03.12.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978 13 William Scobie, fréttamaður The Observer, lýsir manninum sem tók yfir 900 karla, konur og börn með sér í dauðann niöurkomiö. Þessi áætlun krefð- ist mikilla fjármuna og hinum trúuðu var sagt, að þeir ættu að gefa fé af örlæti. Hinn svarti trúsöfnuður hans tók að vaxa mjög á árunum 1967—1970, þegar öll Bandarík- in loguðu í óeirðum og uppþot- um, og þá lofsöng síra Jim „svörtu hlébarðana", Angelu Davis og aðra „byltingarmenn". Eftir að James Jones hafði komið á fót nýjum „Alþýðu- musterum“ í Los Angeles og víðar og hafði eignast vini meðal valdamikilla kalifornískra stjórnmálamanna, tók allt kristnihald að þoka til hliðar fyrir stjórnmálaafskiptum. Fylkisstjórar, borgarstjórar, lögreglustjórar, héraðsdómarar og margir aðrir áhrifamenn komu á musteris-samkundur hans. í kosningaundirbúningi í Kaliforníu vann hðill herskari af áhangendum James Jones baki brotnu við að afla þeim frambjóðendum atkvæða, sem leiðtogi sértrúarflokksins hafði sérstaka velþóknun á. Honum var það leikur einn að hóa saman 700 manna áheyrenda- hópi á hálfum degi. Endurhæfingarstöðvar hans fyrir eiturlyfjaneytendur og fátækrahjálp hans nutu víðtæks fjárhagsstuðnings hjálpfúsra manna. Hann fékk fjárveitingu frá Kalíforníu-ríki, var útnefnd- ur formaður kviðdóms, átti sæti í nefnd, sem fjallaði um málefni afbrotaunglinga. Moscone, borg- veraldlegar reitur sínar. Hinir fátæku gáfu musterinu fram- færslustyrki sína eða helming- inn af öllum sínum tekjum. Aðrir gáfu andvirði heimila sinna, stóreignir, loðfeldi, skart- gripi, líftryggingar sínar. I síðustu viku var skýrt frá því, að hjón ein hefðu gefið sértrúar- flokki Jones 18 mismunandi fasteignir, sem metnar eru á hálfa milljón bandaríkjadala. „Alþýðumusterið" átti 15 banka- reikninga og landspildur hér og þar í Kaliforníu. Allar þessar eignir voru undanþegnar skatti. Þeir trúuðu innan sértrúar- flokks Jones, sem gefið höfðu allar eigur sínar, voru látnir starfa að verkefnum, sem „Al- þýðumusterið“ stóð að, og þetta fólk var látið búa í frumstæðum kommúnum, og látið fá tvo dali í vasapeninga á viku. í einu tilviki voru þessir fátæklingar látnir búa í bílskúr, og þar sváfu tólf manns við ótrlegustu þrengsli. Það var þó ekki fyrr en á síðasta ári, sem blöðin í Banda- ríkjunum tóku að líta svolítið nánar á málefni síra Jims, en ástæðan var sú, að um það bil 30 fráfallnir úr sértrúarflokki James Jones höfðu bundist samtökum til þess að koma opinberlega á framfæri kærum um trúarlegar hýðingar innan safnaðarins, einnig vegna „iðrunar-funda", þar sem ein- stakir meðlimir sértrúarflokks- ins voru neyddir til að auðmýkja og sverta hverjir aðra, og stóðu fórnarlamb launmorðingja. Trú- arleiðtoginn var borinn burtu af sviðinu, en kom svo að vörmu spori gangandi aftur fram til fólksins í hreinni skyrtu, og griðastaður fyrir trúflokk hans. „Að undanskilinni Afríku, er Guyana bezti staðurinn," sagði einn af aðstoðarmönnum Jones. „I því landi eru margir ensku- mælandi, kristnir blökkumenn, sem kynnu að gerast meðlimir „Alþýðumusterisins." Landnemarnir Yfirvöldin í Guyana leyfðu Jones að festa kaup á 27.000 Svona fór hin hroöalcga „athöfn“ fram þegar fjiilda-sjálfsmorðin hófust í „Jonesbæ“. Börnin fengu eiturskammtinn fyrst — í ávaxta- safa. mikið sem minnst á James Jones og sértrúarflokk hans. Eftir að litlar búðir höfðu risið þarna í Guyana, héldu yfir 1000 meðlimir sértrúarflokksins af stað og fóru alla þessa 8500 Skömmu eftir að þessi mynd var tekin af Jimmy Jones í höfuðstöðvum hans í „Jonesbæ“ í Guyana voru útsendarar hans búnir að ráða Leo Ryan öldungardeiidarþingmann af dögum og fjórar aðrar saklausar manneskjur að auki... Nokkrum stundum síðar lá svo hinn sjálfskipaði boðberi mannúðar og bræðralags liðið lík fimm fet frá „hásæti“ sínu í kommúnu sértrúarflokksins. Og kringum hinn fallna „frelsara“ lágu lík yfir 900 safnaðarmeðlima hans. arstjóri í San Francisco, sem hlotið hafði nauman meirihluta í kosningunum, en vann með tilstyrk James Jones, skipaði hann forijiann húsnæðismála- stjórnar San Franciscoborgar. Með fyrirfólkinu Árið 1976 var Jones boðið um borð í einkaþotu varaforseta Bandaríkjanna til þess að rabba við Waltér Mondale; og eitt sinn stóð hann við hlið Rosalynn Carter, forsetafrúar Bandarikj- anna, á sérstökum palli við hátíðlegt tækifæri. Það virtist koma forsetafrúnni mjög á óvart, þegar mannfjöldinn tók henni að vísu vel, en hyllti hins vegar síra Jim með þvilíkri hrifningu, að allt ætlaði af göflunum að ganga. Eftir því sem tímar liðu höfðu mörg þúsund manns afhent „Alþýðumusterinu" nær allar slíkar samkomur oftast nætur- lagt. Þá bar þessi hópur fráfall- inna einnig fram kærur vegna herfilegustu blekkinga í sam- bandi við lækninga-samkomur trúflokksins. „Upprisan44 Fyrrverandi ritari leiðtogans lýsti því, hvernig Jones hefði sýnt söfnuðinum kjúkl- inga-fóarn í servíettu og sagt, að þetta væru „krabbameinsæxli", sem gengið hefðu út af sjúkling- um meðan á lækninga-samkom- um stóð. Annar aðili sagði frá því, á hvern hátt Jones prédik- ari hefði sett á svið sína eigin upprisu. „Við heyrðum skot,“ sagði Wayne Pietila, „Jones féll á gólfið og skyrtan hans var öll löðrandi í blóði." Þetta gerðist á einni trúarsamkomunni. „Allir héldu. að síra Jim hefði orðið sagði að hann hefði læknað sig sjálfur. Við mörg tækifæri sagði hann, að hann gæti kallað dauða menn aftur til lífsins." Foreldrar 18 ára gamallar stúlku hófu málsókn á hendur Jones og kröfðust einnar milljónar bandaríkjadala í skaðabætur fyrir hönd stúlk- unnar, þar sem þau fullyrtu, að hún hefði verið flengd 75 sinnum með „mtuntunar-kefli" sértrúarflokksins, en það var tréspaði, sem fílefldur negri var látinn hýða fórnarlömbin meö. Stöðugt fleiri meðlimir sögðu sig úr sértrúarflokki Jones. Það var því kominn tími til að flytja sig um set. Á skoðunarferð um Suð- ur-Ameríku, þar sem James Jones hafði með sér tímaritið „Esquire" með grein um „níu beztu felustaði í heimi" sér til leiðsagnar, — valdi hann svæði, sem skvldi verða hinn rét.t.i Jackie Speier, ein úr starfsliði Ryans öldungardeildarþingmanns. Hún særðist í skotárásina í Guyana og fékk að auki taugaáfall; auðnaðist samt að brosa við heimkomuna til Bandaríkjanna. ekrum af landi, eftir að Jones hafði lagt fram skrifleg með- mæli með sér og starfsemi sinni. Á meðal þeirra, sem eiga að hafa undirritað meðmæli þessi var forsetafrú Bandaríkjanna og öldungadeildarþingmaðurinn Sam Ervin, sem þó hefur fullyrt, að hann hafi aldrei heyrt svo km leið frá Kaliforniu til Guyana, þar sem þeir svo unnu 16 klukkustundir á dag við að fella frumskóginn, byggja kofa og sá korni. I ágústmánuði síðastliðið ár sagði Jones af sér embættinu hjá húsnæðismálastjórn San Franciscoborgar, lokaði öllum „Alþýðumusterunum“ í Kali- forníu, nema musterinu í San Franeisco og fór burt frá Bandaríkjunum fyrir fullt og allt með nokkrar milljónir Sjá næstu síðu Michael Prokes, íyrrum fréttamaður hjá CBS-sjón- varpsstöðinni. gerðist áróðursmeistari hins „„endurholdgaða Krists". Þriggja ára sonur hans var eitt af íórnarlömbum múg- æðisins í Guyana. Sjálfur kaus hann að lifa og er nú sakaður m.a. um þátttöku í morðunum á flugvellinum. Myndin er tekin eftir hand- töku hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.