Morgunblaðið - 03.12.1978, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
37
•æikarar og sviðsmenn Leikfélags Vestmannaeyja í Góðir
eiginmenn sofa heima. Fremstur á myndinni er Sigurgeir Scheving
leikstjóri.
Góðir eiginmenn
vinsælir í
V estmannaey jum
LEIKFÉLAG Vestmannaeyja
sýnir um þessar mundir
gamanleikritið Góðir eigin-
menn sofa heima eftir W. Ellis í
þýðingu Ingu Laxness og
Einars Pálssonar. Leikstjóri er
Sigurgeir Scheving. Magnús
Magnússon gerir leikmyndina.
Leikritið hefur verið sýnt 4
sinnum á liðlega viku og næstu
sýningar eru á sunnudag og
þriðjudag.
I Góðum eiginmönnum eru 12
hlutverk, en helztu hlutverk eru
í höndum Sveins Tómassonar,
Eddu Aðalsteinsdóttur, Andrés-
ar Sigurvinssonar og Magnúsar
S. Magnússonar. Gróskumikið
starf er hjá Leikfélagi Vest-
mannaeyja og um þessar mund-
ir er félagið að hefja æfingar á
barnaleikritinu Línu Langsokk
og verður það sýnt upp úr
áramótunum, en seinni hluta
vetrar verður. einnig tekið fyrir
íslenzkt verkefni. Leikfélag
Vestmannaeyja stóð fyrir leik-
listarnámskeiðum í haust og
komust færri að en vildu á
þrískiptum námskeiðum, en
leiðbeinandi þar er Andrés
Sigurvinsson.
Runólfur Gíslason og Baldvina
Sverrisdóttir í hlutverkum
herra X og Alisu þjónustu-
stúlku.
Einars saga
Guðfinnssonar
Saga Einars Guðfinnssonar er tví-
mælalaust ein merkasta ævisaga
síðari tíma. Saga hans er þróunar-
saga sjómennsku, allt frá smáfleyt-
um til stærstu vélbáta og skuttogara
og saga uppbyggingar og atvinnu-
lífs í elztu verstöð landsins.
Einar Guðfinnsson er sjómaður í eðli
sínu, öðlaðist þrek við árina og
vandist glímunni við Ægi á smáfleyt-
um. Af óbilandi kjarki og áræði sótti
hann sjóinn og af sama kappi hefur
hann stýrt fyrirtækjum sínum, sem
til fyrirmyndar eru, hvernig sem á
er litið.
Saga Einars Guðfinnssonar á vart
sinn líka. Hún er sjór af fróðleik um
allt, er að fiskveiðum, útgerð og
fiskverkun lýtur, hún er saga
afreksmanns, sem erfði ekki fé, en
erfði dyggðir í því ríkari mæli.
Staðreyndir sem halda gildi
Þjóðlifsþættir
eftir Pál Þorsteinsson
fyrrum alþingismann frá
Hnappavöllum
/ þessarí bók eru 15 þættir úr ís-
lensku þjóðlífi að fornu og nýju, þar
sem Austur-SkaJ'tafellssýsla og
mannlíf þar kemur einkum við
sögu.
!\afn bókarinnar — ÞJÓÐLÍFS-
ÞÆTTIR — gefur þetta til kynntt.
I bókinni er sagt frá staðreyndum
sem eiga að halda gildi þótt tímar
líði.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
Heildsöludreifing: IÐUNN
ifl
am
Ævintýraheimur tónanna opnast börnunum á nýjan og að-
laðandi hátt í tónverkunum Tobbi túba og Pétur og úlfur-
inn, sem Sinfóníuhljómsveit íslands gefur út á vandaðri
LP hljómplötu. Leyfið börnunum að njóta þroskandi og
skemmtilegrar tónlistar. Stjórnandi Páll P. Pálsson; sögu-
menn leikararnir Guðrún Stephensen og Þórhallur Sig-
urösson. Börn um allan heim þekkjaTobba og Pétur. Góö
plata fyrir ótrúlega gott verð.
Starfsmarmafélag Sinfóníuhljómsveitar íslands