Morgunblaðið - 10.12.1978, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978
Sjálfstæðisfélögin í Breiðholti
Jólabingó
18 umferðabingó veröur spilaö í dag sunnu-
daginn 10. desember kl. 14.30. Glæsilegir
vinningar m.a. heimilistæki, matvæli og
leikföng. Mætjd tímanlega
Húsiö opnað kl. 13.30.
Sjálfstædisfélögin Breiðholti.
WJ 8182
MOKKA
Léttur og hlýr, velsniðinn og klæðilegur MOKKA jakki er
gersemi fyrir eiganda sinn í risjóttri veðráttu íslenska vetrarins.
MOKKA er fjárfesting fyrir framtíðina.
Hvort það er kápa, jakki eða frakki, þarf að velja flíkina með umhyggju.
Við höfum fagfólk á staðnum yður til leiðbeiningar
og ef breyta þarf flíkinni. Við sérsaumum líka eftir máli ef þér óskið.
Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Verslið hjá feldskeranum sjálfum
— það tryggir gæðin.
AUSTURSTRÆTI 8
SÍMI20301
Saga af
húsum og
mönnum
Helge Finsen og Esbjörn Hiorti
STEINHÚSIN GÖMLU Á
ÍSLANDI
Kristján Eldjárn þýddi.
Iðunn 1978.
Steinhúsin gömlu á Islandi er
bók sem segir hljóðláta sögu um
hús. Þessi hús eru Viðeyjarstofa,
Viðeyjarkirkja, Hóladómkirkja,
Bessastaðastofa, Nesstofa,
Stjórnarráðshúsið, Landakirkja í
Vestmannaeyjum og Bessastaða-
kirkja. Við hæfi er að vitna í
inngang bókarinnar þar sem m.a.
stendur:
„Á vorum dögum er gildi hús-
anna öðru fremur húsagerðarlegs
eðlis. Mikilvægir sögulegir at-
burðir eru ekki tengdir þeim, en
þau eru hluti af íslenskri
menningarsögu. Saga getur varð-
veist í orðum einum, án sýnilegra
ummerkja. Um það eru Is-
lendingasögur gott dæmi. En
byggingarlist verður að sjá, eins
og hljómlist verður að heyra. Þessi
íslensku hús eru frá þeim tíma
þegar menn voru næmir fyrir
húsagerðarlist, og í öllu sínu
látleysi bera þau þessu vitni. Mjög
lítið er borið í að skreyta þau, en
þau tala milliliðalaust til kynslóð-
ar eftir kynslóð með frumlægustu
tjáningarmeðulum byggingar-
listarinnar, efni og hlutföllum. I
menningu Islands eru þau dýr-
mæti, sem skylt er að varðveita og
hirða vel um.“
Að því er varðar elstu húsin kom
frumkvæðið að byggingu þeirra
frá Islendingum, Magnúsi Gísla-
syni amtmanni og Skúla Magnús-
syni landfógeta. Þeir Helge Finsen
og Esbjörn Hiort leggja á það
áherslu að húsin séu íslensk þótt
þau séu teiknuð í Danmörku
samanber það að „tignasta bygg-
ing í Danmörku, Krónborg, er
teiknuð af Hollendingum".
Þessi bók er fyrst og fremst
fræðirit með myndum og teikning-
um sem skýra byggingarsögu
merkra húsa. En um leið segir hún
okkur sögu stórhuga manna og
sérstæðra persónuleika, íslenskrar
embættismannastéttar sem vildi
laga sig eftir kröfum tímans úti í
heimi og náði furðugóðum árangri
í samskiptum við konungsvaldið í
Danmörku. Þrátt fyrir niðurlæg-
ingu þjóðarinnar risu þessir menn
hátt í einlægum vilja sínum til að
gera hlut hennar sem mestan. Um
það má sannfærast af lestri
Bðkmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
þessarar bókar ef einhver skyldi
efast.
Það er kannski táknrænt að
danskur maður, Helge Finsen,
skyldi semja þessa bók og með því
benda á jákvæðar hliðar sam-
skipta Islendinga og Dana. Finsen
lést 1976, en þá tók Esbjörn Hiort
við verkinu og lauk því. Að sögn
Hiorts vildi Finsen „að textinn
yrði ekki umfangsmeiri og „vís-
indalegri" en svo, að allur þorri
manna gæti lesið hann“. Honum
hefur orðið að þeirri ósk sinni, því
að Steinhúsin gömlu á íslandi er
ekki einungis handa sérfræðing-
um, heldur öllum þeim sem unna
íslenskri sögu. Það er kannski
mest um vert að hér er á ferðinni
lifandi saga sem við getum horfið
til með því að gefa umhverfi okkar
gætur. Gömlu steinhúsin gleðja
enn augu okkar og hvar eru nú þau
hús sem standast samjöfnuð við
þau? Eg býst við að þau séu fá.
Kristján Eldjárn hefur þýtt
bókina af vandvirkni og umhyggju
fyrir efninu.
A íslandi hefur höggmyndasmidurínn mikli víða tekið ómakið af
listamönnunum og mótað sínar eigin mannamyndir í landslagið.
Frægt dæmi er vangamyndin af Matthíasi Jochumssyni skammt
frá Skíðaskálanum íHveradölum, þar sem margir fara um. Færri
hafa barið augum þessa mynd, sem Grétar Eirfksson tók í sumar
( Goðaiandí í Þórsmörk. Þóttust menn þar kenna annan aidinn
rithöfund og núiifandi. Geta menn svo spreytt sig á að þekkja
hann?