Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978, Flóknir forlagaþræöir eftir Denise Robins Óþarft er aö kynna íslenskum lesendum Denise, þar sem áöur hafa komið eftir hana á íslensku 12 bækur og notið vaxandi vinsælda. ... Var þetta draumur eöa veruleiki. Gat þaö átt sér staö, aö veriö væri aö selja hana á þrælamarkaöi? ... Stór svertingi dró hana útúr bílnum og lyfti henni uppá pall. Stúlkurnar voru allar hlekkjaöar hvor viö aöra og beðiö þess aö uppboöið byrjaöi. — Góöi guö, láttu mig deyja... .... hatturinn var tekinn af henni, munnur hennar opnaöur svo hvítar tennurnar sæust... klipið í húö hennar hér og þar og þuklaö á fótum hennar. Ævintýraleg og eldheit ástarsaga. Fiona eftir Denise Robins Astin sigrar eftir Dorothe Quentnti Þessi bók flytur sígildan boðskap. Ástin hefur alltaf sigraö og mun væntanlega alltaf gera. Hér er lýst baráttu ungrar hjúkrunarkonu, viö aö ná ástum draumaprinsins, sem er eftirsóttur og dáöur læknir. Þær eru margar um boöiö dömurnar og tvísýnt um úrslitin. Ýmsum brögöum er beitt, en samt lýsir þessi bók eölilegu heilbrigöu fólki og er skemmtileg tilbreyting frá hrylling og öfugsnúnu sálarlífi, sem er hugstæöasta yrkisefni nútíma höfunda. Skemmtileg og hörkuspennandi ástarsaga. Fiona er ung, fögur og lífsglöö, dóttir auöugs skipaeiganda. Að boöi fööur sfns, trúlofast hún frænda sínum, frönskum aöalsmanni og sem þetta er ágætur maður, sættir hún mætavel viö ráöstöfun fööur síns. En höggormurinn leynist í Paradís, ungur sjómaöur veröur á vegi hennar og borgirnar hrynja. Hún er ofurseld ástinni. Leiöin veröur nú vandfarin og torsótt. Þetta er saga um eldheita ást, sem öllu býöur byrginn. Æsispennandi frá upphafi til enda. Ægisútgáfan Einn nemandinn við ritvélina, sem sérstaklega er gerð fyrir hreyfihamlaða. Ritvél fyrir hreyfi- hamlaða í EQiðaskóla FORELDRARÁÐ Hlfðaskóla ákvað fyrir ári að gefa skólanum sérstaka ritvél, sem hönnuð er fyrir hreyfihömluð börn. Var hafin fjáröflun með kökubasar og fleiru, og jafnframt leitað til Hringsins, sem veitti í því skyni 700 þúsund krónur. Einnig fengust aðflutningsgjöld felld niður. Var ritvélin afhent skólanum á fimmtudag, auk þess sem gestum var sýnt nýtt húsnæði, sem sérstaklega er byggt fyrir sérdeildir skólans. Formaður foreldraráðs, Renata Heiðdal afhenti skólanum gjöfina, sem Asgeir Guðmundsson skóla- stjóri veitti viðtöku. En viðstaddir voru margir kennarar skólans, fulltrúar frá foreldraráði Hringn- um, menntamálaráðuneyti og inn- kaupastofnun ríkisins. Og sýndu nemendur í þessari sérdeild skólans notkun tækisins. • 13 HREYFILÖMUÐ BÖRN Ritvélin er sérstaklega hönnuð fyrir þá, sem eiga erfitt með aö stjórna hreyfingum handanna. En í Hlíðaskóla eru nú í deildinni fyrir hreyfihamlaða 13 börn, sem skiptast í tvær deildir, eldri og yngri deild. En svo sem áður hefur fram komið er meginmarkmið með slíkum deildum í almennum skóla, að dreifa nemendum með sérþarfir innan um aðra nemendur. Auk þess eru í skólanum tvær aðrar deildir með nemendur með sér- þarfir, þ.e. heyrnardeild og deild fyrir málhamlaða. Að sögn skólastjóra hefur foreldrafélag Hlíðaskóla verið afar duglegt og bryddað upp á mörgum þörfum málum í skólastarfinu, svo sem fræðslukvöldum með börnun- um, stutt að byggingu íþróttahúss o.fl. • SJÚKRAÞJÁLFUN OG MATARGERÐ Um leið og nýja ritvélin var tekin í notkun, var gestum og blaðamönnum sýnt nýtt húsnæði, sem sérstaklega hefur verið byggt fyrir sérdeildir skólans. Megin- hluti þess húsnæðis er ætlaður fyrir sjúkraþjálfun. Er það nú tilbúið til notkunar, en aðeins skortir sjúkraþjálfara til starfa. í tengslum við þetta húsnæði er eldhús, sem hefur tvenns konar markmið. Annars vegar að gefa börnum kost á fæði, þar sem þau dvelja meiri hluta dagsins í skólanum og einnig að veita þeim þjálfun í matargerð. Þá er og í þessu húsi aðstaða fyrir tann- lækni, og hefur hún verið tekin í notkun. Nemendur höfðu skreytt nýja húsnæðið, sem byggt hefur verið fyrir sérdeildir skólans, en í deildinni fyrir hreyfihamlaða eru 13 börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.