Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978 37 í leikskólann, innilega samúð okkar. Guð blessi minningu Bjössa litla. Við þökkum Guði þær stundir, sem við fengum að njóta með honum í Álftaborg. Dísa. Ólöf og Odda í Alftaborg. Ég ætia með þessum fátæku orðum aðeins að minnast elsku- legs, lítils vinar okkar og frænda, Bjössa. Það er erfitt að skilja og sætta sig við að 3ja ára gamall lífsglaður drengur sé svo snögglega tekinn burt frá ástvinum sínum eftir 3ja daga sjúkrahúslegu. Bjössi eins og hann var ávallt kallaður var skýr og skemmtilegur drengur, síkátur og fjörugur, lifandi eftirmynd pabba síns. Erfitt er að sætta sig við, að við skulum ekki eiga eftir að sjá aftur glettna brosið og heyra ekki dillandi hlátur hans. En þannig munum við ávallt minnast Bjössa. Bjö'ssa litla verður sárt saknað á heimili okkar, ekki hvað síst af Kjartani Erni, en hann var hans allra besti vinur og leikfélagi. Ekki munum við lengur heyra þá frændur syngja saman fallegu og barnabörnum innilegustu sam- úð á sorgarstund. Jón Ilákon Magnússon. Undanfarnar vikur hefur verið vaxandi tóm í lífi mínu nátengt vissunni, að senn liði að lokum í hetulegri baráttu frænku minnar og vinkonu við illvígt krabbamein. Vegna starfs míns var ég samherji hennar í þessu stríði og naut því þeirrar aðstöðu að horfa á rósemd og æðruleysi, sem enn jók á elsku mína á henni og ekki síður vitundina um, að lífið býður okkur á myrkustu stundum ljós vonar, tendrað af góðum eigindum sam- ferðafólks okkar. Tóm þetta og vonleysi varð þó aldrei algert, því slíkur var persónuleiki hennar og þau för, sem samvistir við hana gegnum tíðina höfðu greypt í hug mér, að treginn vegna óumflýjanlegra lykta lífs hennar var alltaf mildað- ur. Samt varð treginn nær óbæri- legur rétt í þann mund, sem almættið veitti henni meðvitund- arleysi frá kvölum sínum, þegar hún sagði: „Ekki tókst þetta hjá okkur frændi. Eins og við brugðum fljótt við.“ Um leið þrýsti hún í hönd mér og augnaráðið lýsti sömu elsku og uppörvun og jafnan fyrr. Ella, eins og hún var jafnan kölluð, var móðursystir mín og velunnari, og vissan um það hefur verið algerlega óraskanleg frá árdögum bernsku minnar. Fyrstu minningarnar um hana eru bundnar stundum, sem allar voru hátíðisdagar, þegar ég og eldri systkini mín fengum að heim- sækja hana í stóra húsið sem okkur fannst á Lindargötunni. Slíkzr heimsóknir töldust til meiriháttar ferðalaga úr litla húsinu, heima í Skerjafirði, með strætó fyrir 5 aura far. Stærst og glæsilegust var hátíð þessi og mest tilhlakkið til ferðalagsins á jóla- dag, kannski m.a.s. farið með gulri drossíu frá Steindóri. Á jóladag var nefnilega haldið upp á afmæli Adda litla frænda, og jólunum fagnað af stórum ættingjahóp í boði þeirra Ellu og Edwins. Þótt stuttbuxur og snoðklipping vikju í tímans rás fyrir síðbuxum og kannski öðrum þroskamerkjum, hefur gleði bernskuheimsóknanna aldrei fullorðnazt, og sú hughljóm- un í samvistum við hana og hennar haldizt. Lindargatan er í svonefndu Skuggahverfi og það aldrei talið miðborg Reykjavíkur, en heimili Ellu hefur alltaf verið í þjóðbraut þar sem fjölmennt frænda- og vinalið átti leið um. Hjálpsöm og sívökul greiðvikni hennar fékk maklega útrás við alla er þurftu, og væri þar um bágindi að ræða, áttu hinir sömu víst, að amstur þeirra og mismikil örbrigð yrðu ekki borin á torg, né að þeir fyndu til skuldar. Fyrir Ellu var það ekki nóg, að þeir sem bágt áttu bæru sig eftir björg hjá þeim hjónum, því hún var alla tíð sísend að lö'gin sín úr leikskólanum, og langur tími mun líða þar til Kjartan Örn trúir því að „Bjössi, vinur minn“ kemur ekki aftur. Megi góður guð hjálpa okkur öllum að sætta okkur við hið óskiljanlega. Björn var yngri sonur hjónanna Þórunnar Haraldsdóttur og Guðna Jónssonar, Fellsmúla 6, Reykjavík. heimsækja þá, sem ekki megnuðu að koma. Ljós tilveru fjölmargra þannig settra lýstri skærar fyrir heimsóknir hennar og sú birta mun eflaust vara. Elínborg fæddist og ólst upp á Flateyri við Önundarfjörð. For- eldrar hennar voru Þorbjörg Guðmundsdóttir frá Höll í Hauka- dal, Dýrafirði, og Kristján Ás- geirsson, verzlunarstjóri Ásgeirs- verzlunar, en hann var ættaður frá Skjaldfönn í N-ísafjarðarsýslu. Elínborg var 6. í röð systkina- hóps, sem áður en lauk varð 10 talsins, en 8 þeirra náðu fullorð- insaldri. Þau voru Helga, húsmóð- ir hér í borg, Magnús, skrifstofu- stjóri, Ásgeir, loftskeytamaður (d. 1935), Jón Hákon, stýrimaður (fórst með e/s Heklu 1941), Guðmundur, skipamiðlari, Stein- arr, skipstjóri og Rögnvaldur, sjómaður. Bernsku- og æskuárin á Flateyri munu hafa verið björt sem fjölmargar sögur hennar og systkina hennar allra báru með sér, enda þótt efni væru smærra skömmtuð en nú þykir fært til bjargálna. 18 ára að aldri fluttist hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur og vann m.a. við afgreiðslustörf hjá verzlun Guðna Jónssonar. 17. júní 1933 giftist hún eftirlifandi manni sínum Edwin Árnasyni, Árnasonar matsveins á togaranum Geir um árabil, og konu hans, Jóhönnu Jónsdóttur. Þau Edwin stofnuðu heimili hjá foreldrum hans að Lindargötu og bjuggu þar alla tíð. Innanstokks nutu hæfileikar Ellu sín svo að af bar, enda varð heimili þeirra slíkt hreiður hlýju og dugnaðar, að ég á engan samanburð annarstaðar. Sonar varð þeim auðið og augasteins, þar sem er Árni -frændi minn. Hann er nú löngu félagi föður síns og hægri hönd í fyrirtæki þeirra. Árni er kvæntur Vildísi Kristmannsdóttur, Guð- mundssonar rithöfundar, og telur sonarlán þeirra 3 stælta, sem allir juku yndi ömmu sinnar og afa. Lífslán hennar tel ég hafa verið mikið. Þótt reglulegri skólagöngu væri þröngt sniðinn stakkur, jók hún með árunum meðfædda menntalöngun, sérlega í leit hins háleita og fagra í hverskyns listum. Tónlistaráhuginn og aðdá- un á málaralist urðu henni hjart- fólgnust. I þessu sem öðru var hún þó símiðlandi og naut sjálf bezt, þegar hún fékk sér óreyndari til að njóta líka. Hún frænka mín var yndisleg. Guðsgjöf hennar stærst var þó sú náðargáfa, að sérhver viðmælandi hennar átti hana heila og óskipta hverju sinni og návist við hana örvaði alla tíð, það sem til vaxtar og þroska horfði. Fyrir hönd móður minnar og systkina votta ég ástvinun hennar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Elínborgar Kristjánsdóttur, en sú máir vísast út allan trega syrgj- enda hennar. Sigurður Þ. Guðmundsson. Elsku Tóa og Guðni, megi algóður guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg, svo og Ásgeir stóra bróður, sem nú þarf að vera bæði litli og stóri strákur mömmu og pabba. Ömmu Biddu svo og ömmu og afa í Fellsmúla og öllum öðrum ástvinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðju. Blessuð sé minning elsku Bjössa. Nú Iokk ók auKun altur. ú. Guð þinn náöarkraltur mín vori vörn I nótt. /E. virst mÍK að þér taka, mór yfir láttu vaka þinn enKÍl. svo ók sofi rótt. Þýtt — Sveinbjörn Etnlsson. Heiða. Þorgeir og strákarnir. Nú er Bjössi allt í einu horfinn úr hópi okkar um stund, hópi ástvina og vina, horfinn til strand- arinnar miklu þar sem ljósið aldrei dvín og blómin fölna ekki. Við þessa hugsun lætur maður huggast þegar söknuðurinn leitar fast á. Okkur skortir skyn til að skilja hvers vegna guð svo skyndi- lega tekur til sín börn og ung- ntenni, sem eru að byrja lífið hraust og kát og eru sakleysið sjálft. Er lausnin í orðtakinu „Þeir sem guðirnir elska deyja ungir“? En þrátt fyrir allt er söknuðurinn sár. Nú sjá hvorki pabbi, mamma, Ásgeir bróðir né aðrir vinir lengur litla rauðhærða kollinn ganga urh með gleðibros og hressilegt yfir- bragð, sem gaf okkur svo sterk fyrirheit um bjarta framtíð. Bjössa minn sá ég taka fyrstu sporin og ég var farinn að sjá hann í huganum ganga í skólann með litla tösku á bakinu, með glampa hreinleikans og birtunnar í augun- um. Ég og fjölskylda niín hryggj- umst með foreldrum hans, bróður og öðrum ástvinum. Ég- veit að minningin um hann lifir og er huggun í harmi. Það er erfitt og ekki síst núna í skuggum skamm- degisins, þegar allir eru að undir- búa jólin, hátíð barnanna, og kveikja á jólaljósunum, að vera sviptur skærasta ljósinu, því ljósi sem enginn nema hinn æðsti getur tendrað á ný, en þó aðeins i ljósi bjartra minninga. Ég bið almáttugan guð að varðveita litla vininn, styrkja ykkur foreldra hans, bróður og aðra ástvini í skammdegismyrkr- inu og láta ljós minninganna um hann leiða ykkur um ófarinn veg. .0. Ijúfi drottinn. leiddu vininn. ljúft um bláan himinKeim. Þú ávallt sefar sorKarniðinn. ok sveipar alla höndum tveim." Blessuð sé minningin um Bjössa litla. vin minn. Ragnar Júlíusson. + Elsku litll drengurlnn okkar. BJÖRN, veröur jarösettur á morgun. mánudaglnn 11. desember kl. 3 frá Dómkirkjunnl. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítalasjóö Hrlngsins. Þórunn Haraldsdóttir, Guöni Jónaaon. Hjá okkur getur þú valið póstkort, veggspjöld eða bréfsefni, allt prýtt myndum eftir heimskunna listamenn, Carl Larson, Rolf Lidberg, Spang Olsen og marga aðra. ETnuN DSSON Austurstræti 18 Sími 1 3135

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.