Morgunblaðið - 14.01.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1979
Menntamálaráð:
Fjárveitingin
lækkaði um 4
milljónir
Fjárvcitingar Menntamáiaráðs
og Menningarsjóðs hafa stöðugt
verið að skreppa saman hlutfalls-
lega og fækka nú milli ára um
fjórar milljónir króna og það
þrátt fyrir þá óðaverðbólgu sem
ríkti á árinu. að því er kom fram í
samtali við Hrólf Halldórsson,
framkvæmdastjóra ráðsins.
Hrólfur sagði, að tekjur Menn-
ingarsjóðs í ár væri áætlað
miðagjald, sem væri áætlað á
fjárlögum ársins um 26 milljónir
króna en hefði verið áætlað í fyrra
25 milljónir. Þannig hefði þessi
tekjustofn farið rýrnandi milli
ára. Þá vakti Hrólfur athygli á því,
að allt fram til ársins 1971 hefði
Menningarsjóður haft tekjur af
áfengissektum vegna áfengislaga-
brota og ólöglega innflutts áfengis.
„Lögunum var hins vegar breytt
1971, þannig að þessi tekjustofn
var látinn ganga beint til ríkis-
sjóðs,“ sagði Hrólfur. „Þegar hins
vegar þetta frumvarp var til
umfjöllunar í Alþingi sagði þáver-
andi menntamálaráðherra, að í
þessu frumvarpi fælist að fram-
vegis skyldu tekjur af áfengislaga-
brotum og upptæku áfengi renna í
ríkissjóð en aftur á móti væri gert
ráð fyrir því, að framvegis yrðu
tekin á fjárlög fjárhæð sem væri
ekki minni en sú sem menningar-
sjóður ella myndi hafa haft af
þessum sökum.“
Hrólfur sagði, að í framhaldi af
þessu hefði fjárhæðin 1972 verið
ákveðin 1360 þúsund krónur, sem
síðan hefði hækkað í 2.520.000 árið
eftir og í 3.320.000 árið 1974. Hins
vegar hefði svo brugðið við árið
eftir, að þessi upphæð hefði verið
ákveðin óbreytt á fjárlögum en
síðan hækkað í 4.154.000 1976, í
5.500.000 kr. árið 1977 en lækkaði
síðan í 5 milljónir í fyrra og er svo
algjörlega felld niður núna á
þessum fjárlögum.
Hrólfur sagði, að tekjustofn
Menningarsjóðs núna væri sem
hér segir ef hann væri sundurlið-
aður: I fyrsta lagi 1.5% af verði
aðgöngumiða að kvikmyndasýn-
ingum, að barnasýningum undan-
skildum, þá 3% af verði aðgöngu-
miða að almennum dansleikjum,
þar sem ekki eru vínveitingar en
síðan 3% af helgargjaldi vínveit-
ingahúsa og 2 kr. fyrir hvern gest
sem greiðir svonefnt rúllugjald að
vínveitingahúsum. Hrólfur sagði,
að þrátt fyrir þá miklu verðbólgu
sem ríkt hefði og allar hækkanir
væru áætlaðar tekjur af þessum
miðagjöldum aðeins 26 milljónir
og hækkaði einungis um eina
milljón króna miðað við fjárveit-
inguna í fyrra. Við þetta bættist
síðan, að Menningarsjóður hefði
nú misst tekjur sínar af áfengis-
lagabrotum og upptæku áfengi.
Hrólfur minnti á, að 1972 hefði
verið hægt að póstleggja lokað
bréf fyrir 7 krónur en það kostaði
nú 80 krónur, svo að samkvæmt
því hefði fjárveitingin 1972, sem
þá fékkst í stað áfengislagabrota-
teknanna og var þá ákveðin
1.360.000 kr., átt að nema nú um 15
milljónum króna.
Hrólfur gat þess einnig, að á
fjárlögum hefði jafnan verið liður,
svonefndir vísinda- og fræði-
mannastyrkir, sem komið hefði í
hlut Menntamálaráðs að úthluta
og ætlaðir voru fyrst og fremst
hinum alþýðlegu fræðimönnum
okkar. Þessir styrkir hefðu verið
komnir árið 1973 í 860 þúsund kr.
en hins vegar hefðu þeir verið
óbreyttir í 800 þúsund kr. sl. þrjú
ár og styrkir þessir voru enn 800
þúsund á fjárlögum nú.
Hrólfur var að því spurður hvort
Menntamálaráð myndi halda
áfram að veita sérstaka styrki til
kvikmyndagerðar nú eftir að
kominn væri upp kvikmyndasjóð-
ur og kvikmyndasafn með samtals
um 35 milljón króna fjárveitingu,
og svaraði hann því til, að þetta
mál hefði verið reifað á fyrsta
fundi menntamálaráðs en engar
ákvarðanir hefðu verið teknar.
Hins vegar væru viðhorfin vissu-
lega nokkuð önnur en áður eftir að
kvikmyndasjóði var komið á lagg-
irnar. Kvikmyndastyrkur Mennta-
málaráðs í fyrra nam 2 milljónum
króna.
Samninganefndir verzlunarmanna og vinnuveitenda á sáttafundi hjá
Torfa Iljartarsyni í fyrradag. Efri myndin sýnir samninganefnd
verzlunarmanna, en hin neðri samninganefnd verzlunarinnar.
Kjaradeila verzlunarmanna:
Samkomulag
um skipan
undirnefnda
Rafmagnsbil-
unin ekki
alvarleg
Húsavík 13. jan.
RAFMAGNSBILUNIN við Laxá
reyndist ekki eins alvarleg og
sumir óttuðust í fyrstu. Bilunin
varð í kapli, sem lá frá aflstöð-
inni og út í spenni en ekki í
spcnninum eins og sumir óttuðust
fyrst.
Rafmagn komst á aftur um
klukkan tvö í nótt og munu þá
einhverjir hafa farið að mjólka
sem höfðu ekki getað komið því við
á annan hátt áður því þeir biðu
vegna þess að álitið var að
rafmagnið kæmi á um þetta leyti.
Víða var samt orðið kalt í húsum
því flest eru hituð upp með
annaðhvoft olíukynntum kötlum,
sem ganga fyrir rafmótorum, eða
með beinni rafmagnshitun. Frost
hefur verið mikið hér undanfarna
daga en heldur er það minna í dag
en í gær.
— Fréttaritari
FYRSTI fundur verzlunarmanna
og vinnuveitenda þeirra hjá
sáttascmjara ríkisins var haldinn
í fyrradag. Deiluaðilar skiptust á
sjónarmiðum í málinu og rætt var
um tilhiigun viðræðnanna. Sam->
komulag var um skipun undir-
nefndar, 5 manna nefndar frá
hvorum aðila, en á sáttafundinum
í fyrradag voru fullskipaðar
samninganefndir.
Á fundinum lýstu vinnuveit-
endur bágri afkomu verzlunarinn-
ar og nýjum álögum, sem lagðar
væru á verzlunina bæði af hálfu
Reykjavíkurborgar og ríkisins.
Reykjavíkurborg hefði stórhækk-
að aðstöðugjald. Verzlunarmenn
viðurkenndu erfiðleika verzlunar-
innar og fleiri atvinnugreina, en
neituðu harðlega að viðurkenna að
þá erfiðleika ætti að brúa með
launum verzlunarfólks.
Eins og áður segir voru skipaðar
undirnefndir. Af hálfu verzlunar-
manna voru kjörnir í undirnefnd:
Magnús L. Sveinsson, Björn
Þórhallsson, Böðvar Pétursson,
Guðmundur Gunnlaugsson og
Guðfinnur Sigurvinsson. í undir-
nefnd frá vinnuveitendum voru
kjörnir: Bjarni Thors, Einar Árna-
son, Magnús E. Finnsson, Jónas
Steinarsson og Sigvaldi Þorsteins-
Húsbænd-
ur og hjú
MISTÖK við þýðingu greinar úr
timaritinu Time hafa leitt til þess
að slæmar villur hafa slæðst inn í
tvær fréttir í Mbl. um sjónvarps-
myndaflokkinn Húsbændur og
hjú.
Sagt var að lokið væri gerð 8
nýrra þátta í þessum flokki en það
er rangt, í greininni í Time stóð að
sýna ætti í Bandaríkjunum 8 þætti
úr flokknum, sem ekki hefðu verið
sýndir þar áður. Þessir þættir hafa
hins vegar verið sýndir í íslenzka
sjónvarpinu. Vegna hinnar röngu
þýðingar var spurning sú, sem lögð
var fyrir Björn Baldursson dag-
skrárritara Sjónvarpsins í Mbl. í
gær borin fram á röngum forsend-
um og verður svar Björns að
skoðast i því ljósi, að honum voru
ekki gefnar réttar upplýsingar.
Biður Mbl. lesendur og Björn
velvirðingar á þessu.
Ekkert midar í sam-
komulagsátt á Akranesi
Félag ísL atvinnuflug-
manna boðartil aðgerða
— Verkfall skellur á á morgun
SAMNINGAFUNDUR í kjara-
deilu verkakvennadeildar Verka-
lýðsfélagsins á Akranesi og
bæjaryfirvalda stóð til klukkan
07.30 í gærmorgun og var nýr
fundur boðaður í gær klukkan 17.
Ekkert miðaði og mikið ber í
milli. Vcrkfall hefur verið boðað
á mánudag.
Krafa Verkalýðsfélagsins er að
fólk, sem vinnur sambærileg störf
hjá sömu stofnun fái sömu laun,
en BSRB-fólk fær hærri laun en
félagar verkakvennadeildarinnar.
Bjarnfríður Leósdóttir sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
mikið bæri í milli. Hún kvað
muninn á kaupi og réttindum fólks
í verkalýðsfélögum og í störfum
hjá opinberum aðilum vera gífur-
legan. Hún kvað framkvæmda-
stjóra sjúkrahússins á Akranesi
hafa reiknað út hvað það kostaði
bæjarfélagið að taka verkakonurn-
ar ,inn á sambærileg kjör og
BSRB-fólk hefði og munaði þar 35
til 40 milljónum króna á ári.
Munurinn í grunnkaupi á mánuði
er 25 þúsund krónur.
Bjarnfríður kvaðst velta því
mjög fyrir sér, hvernig á því
standi að opinberir aðilar, ríki og
bær, geti samið þannig, en enginn
möguleiki sé á að ná slíku
samkomulagi við einkaaðila.
„Er það ekki bara einkafram-
takið, sem hirðir mismuninn?"
spurði Bjarnfríður og kvað þetta
spurningu, sem verkalýðshreyfing-
in yrði að fara að velta fyrir sér.
Hún kvað sömu söguna vera í
ríkisverksmiðjunum, í álverinu og
víðar. Alls staðar væru miklu
meiri laun og fríðindi.
STJÓRN Félags ísl. atvinnuflug-
manna mun hafa boðað ákveðnar
aðgerðir er komi til framkvæmda
einhvern næstu daga og hefur
stjórn Flugleiða þegar verið send
tilkynning um fyrirhugaða
vinnustöðvun.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér er ekki
um allsherjarvinnustöðvun að
ra^ia, en tímabundið verkfall sem
boðað er með venjulegum 7 daga
fyrirvara. Launaliður kjara-
samninga F.Í.A. er laus nú þegar
og aðalkjarasamningur frá 1.
febrúar.
Til vinnustöðvunar þessarar er
boðað til að leggja áherzlu á
kröfur um launajöfnun, en það er
skoðun F.Í.A. að sömu laun eigi að
greiða fyrir flug án tillits til
tegunda véla. Þá hefur félagið
ákveðnar hugmyndir um skiptingu
leiða milli F.Í.A. og Félags Loft-
leiðaflugmanna.
Félagsfundur F.Í.A. samþykkti á
fundi hinn 10. janúar sl. að heimila
stjórn og trúnaðarráði félagsins að
boða til aðgerða og voru þær
ákveðnar á fundi sl. föstudag.
Ófærð í Reykja-
vík í fyrrinótt
Þaklyftingin aðeins lítil-
lega rædd í ríkisstjórn enn
o
INNLENT
MIKINN skafrenning gerði í
Reykjavík og nágrenni aðfarar-
nótt laugardags og átti f jöldi bfla
í erfiðlcikum með að komast
leiðar sinnar um nóttina og fram
á laugardagsmorgun.
Að sögn lögreglunnar í Ar-
bæjarhverfi var mikið annríki alla
nóttina við að hjálpa bílstjórum
sem fest höfðu bíla sína en
þungfært var orðið sums staðar í
hverfinu þar sem dregið hafði í
skafla. Voru bílar lögreglunnar í
stöðugum ferðum fólki til aðstoðar
og sagði lögreglan í Reykjavík að
mikið hefði verið um aðstoð við
fólk á ferð í Breiðholtshverfum,
Öskjuhlíð og víðar í borginni. Þá
olli það erfiðleikum við snjó-
ruðning á morgni laugardags að
bílar höfðu víða verið skildir eftir
og var í einstaka götu bíll við bíl
þannig að 4 bílar á vegum
lögreglunnar höfðu þann starfa í
gærmorgun að fjarlægja þessa
bíla.
Snjóruðningurinn hófst um
kl. 6 í gærmorgun og var byrjað á
strætisvagnaleiðum, en sæmilega
fært var orðið um borgina er leið á
morguninn.
SAMKVÆMT heimildum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
hefur aðeins lítillcga verið rætt
um að lyfta vísitöluþakinu á
fundum ríkisstjórnarinnar. Er
búizt við því, að þetta mál komi á
dagskrá nú á næstunni. Jafnvel á
næsta ríkisstjórnarfundi, sem
haldinn verður á þriðjudag.
Það, sem þykir knýja á um að
lyfta þakinu, er það misræmi, sem
skapazt hefur eftir að þakinu var
lyft af kjarasamningum borgar-
starfsmanna, en við það hefur
myndast mikill launamismunur
milli starfsmanna Borgarspítalans
og ríkisspítalanna. Ennfremur
hefur komið í ljós, eins og raunar
Morgunblaðið benti á rétt eftir
lagasetningu ríkisstjórnarinnar í
september, að iðnaðarmenn eru
allir undir þakinu og fá því fullar
vísitölubætur, þótt þeir séu með
hærri laun en aðrir launþegar,
sem búa við skerta vísitölu. Er
þetta vegna uppbyggingar launa-
kerfis iðnaðarmanna, sem tekur á
sig ýmsar álagsprósentur.
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu, tók samninga-
nefnd ríkisins ekki ólíklega í
þaklyftingu á síðasta samninga-
fundi með Bandalagi háskóla-
manna síðastliðinn fimmtudag, en
þaklyftingin er eitt helzta baráttu-
mál BHM. Um 80% félagsmanna
BHM búa við skert laun vegna
vísitöluþaksins.