Morgunblaðið - 14.01.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANUAR 1979
27
Eskfirðingar vonast
eftir sólarpönnukök-
unum á sunnudaginn
Eskifirði 12. janúar. VETRARVERTÍÐ er hafin hér á Eskifirði og
hafa línubátarnir farið nokkra róðra. Afli hefur verið misjafn, frá 2—8
lestum í róðri. Sex bátar róa héðan með línu og er langt síðan línuróðrar
hafa verið stundaðir af einhverju marki héðan. Síðar bætast svo minni
bátarnir við. Togararnir tveir komu úr fyrstu veiðiferðinni eftir áramót
nú í vikunni, annar með um 60 og hinn um 75 lestir. Þrjú skip fara á
loðnuveiðar og eru þau að fara í dag og á morgun, en það eru Jón
Kjartansson, Sæberg og Seley.
Veður er gott hér á Eskifirði, logn um 9 stiga frost og ef svo heldur
fram sem horfir, fáum við sólarpönnukökur um helgina, en þá eigum við
von á að sjá sólina í bænum í fyrsta skipti á árinu. Blessuð sólin hefur
ekki sést hér síðan 10. desember. Sá siður hefur verið í heiðrum hafður á
Eskifirði, að menn fái sér rjómapönnukökur með kaffinu þann dag sem
sólin nær að skína í bænum aftur á nýja árinu. í dag var hún rétt ofan
við efstu húsin í bænum. — Ævar.
hefst a martu
Starmix
ryl<stigan hefnr
þessa kosti
— þægileg í vinnu
— fallega hönnuð
— mikinn sogkraft
— stillanlegan sogkraft
— ljós, sem gefur til kynna, þegar skipta þarf um poka
—- dregur inn í sig snúruna
— geymir rörin í sér sjálfri
— mismunandi eiginleikar eftir gerðum
Hinar ýmsu gerðir Starmix ryksugunnar hafa flesta
eða alla þessarra kosta — og jafnvel fleiri kosti.
Starmix ryksugan er nefnilega til í ýmsum útgáfum
við flestra hæfi.
Starmix hefur reynst frábærlega vel hérlendis, enda er
hún ein vinsælasta ryksugan á Islandi.
Fullkomin viðhalds- og varahlutapjónusta.
VERSLUNIN
PFAFF
Skólavöröustig 1-3 Bergstaóastræti 7 Simi 26788
Lóubúð — Útsala
Útsalan heldur áfram eftir helgina bætum inn
nýjum vörum, allt selt á hálfvirði.
Lóubúð, Bankastræti 14, 3. hæð.
Útsala — Útsala
Mikill afsláttur á pilsum, peysum, mussum,
buxum o.fl.
Aöeins þessa viku.
Dalbær, Hverfisgötu 32.
Nú er tækifærið
verksmiðjuafsláttur
BENCO
Bolholti 4, Reykjavík,
sími 91-21945
Lítið barn
hefur
lítið sjónrið