Morgunblaðið - 14.01.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.01.1979, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1979 Forsön«varar Brunaliðsins þau Raiínhildur Gísladóttir og Pálmi Gunnarsson syngja þjóðlag ársins „Eg er á leiðinni". Eins og jafnan var lítið að gerast fyrstu mán- uði ársins hjá poppur- um og öðru fólki, sem að skemmtanalífi ungs fólks standa. Það væri helst að nefna þessa venjulegu skóladans- leikja- og árshátíðavertið sem einhvernveginn rúllar í gegn af gömlum vana. En með hækkandi sól og lengri degi skriðu menn úr fylgsnum sínum með úthugsuð og velmelt áform sín og hugsuðu til hreifings. Þannig var það vorið ’78. Gunnar Þórðarson reið á vaðið sumardaginn fyrsta með nýja uppskrift af gömlum lummum. Út kom platan „Lummur um allt land“ og má segja að gömlu slagararnir hafi verið raulaðir á ný um allt land a.m.k. ef marka má undirtektir í fjölmiðlum. Um svipað leyti birtist á skján- um, í sjónvarpsþættinum „Á vorkvöldi", ný hljómsveit sem hét Brunaliðið, hljómsveit sem allir áttu eftir að kynnast nánar einkum vegna lagsins „Ég er á leiðinni". Ef hægt er að tala um þjóðsöng ársins, þá er það þetta lag. Undir forystu brunaliðs- stjórans Magnúsar Kjartanssonar þeysti hljómsveitin um lands- byggðina við góðan orðstír í maí og júní. Önnur hljómsveit lagði einnig land undir fót yfir sumar- mánuðina en það var Brimkló rótgróin og velþekkt úr bransan- um. Sungu þeir og léku nær alls staðar fyrir fullu húsi lögin sín af plötunni „Eitt lag enn“. Enska furðufugla, hljómsveit sem nefnir sig Stranglers, rak -óvænt á fjörurnar fyrstu dagana í maí og héldu þeir eina tónleika hér í Laugardalshöll — húsfyllir var. Hér voru á ferðinni fulltrúar þeirrar popptónlistar, sem nefnd hefur verið „nýbylgja" eða „nýbylgjurokk". Ýmsir agentar og merkismenn erlendra hljómplötu- fyrirtækja voru með í ferðinni hingað og þótti það m.a. mikil landkynning að geta sýnt þeim fullkomna upptökuaðstöðu hér. Ekki verður minnst á sumar- ferðir hljómsveita og skemmti- krafta án þess að geta þeirra bræðra Halla og Ladda. Þeir hafa óneitanlega sett svip sinn á skemmtanalífið þetta árið með söng, glens og gríni. Þeir hafa og gert tvær blásaklausar sveita- stúlkur úr Tungunum að þjóð- sagnapersónum, sungið með til- heyrandi tilburðum um þá áströlsku Gibb-bræður o.fl. o.fl. Plata þeirra „Hlunkur er þetta" er með mest seldu plötunum á árinu. „Gunnar Þórðarson „afinn í íslenska poppinu“ var athafna- samur á árinu“. Bra ðurnir Halli og Laddi settu sterkan svi íslenskt skemmtanalíf á árinu. Hér fá þeir gullpiötu fyrir „Hlunkinn”.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.