Morgunblaðið - 24.02.1979, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1979
7
Rétt eöa
rangt;
fagurt
eöa Ijótt?
Afstaða íslenzkra
sósíalista til atburða,
hérlendra og erlendra,
sem og hugverka og
kenninga, er undan-
tekningarlitiö byggð á
blindu „bókstafstrúar-
mannsins" Sósíalistinn
spyr ekki, hvert er eðli
verknaöarins, heldur
hver stóö að honum
(okkar maöur eða and-
stæðingur)? Sósíalistinn
spyr ekki, hvert er inni-
hald hugverks eða
kenningar, heldur hver er
höfundurinn (okkar mað-
ur eða ekki)? Þannig
getur sams konar
atburður, eins og innrás
eins lands í annað, eða
voðaverk skæruliða á
saklausum, verið ýmist
„góður“ eöa „vondur"
atburður, eftir pví hver
gjörandinn er (hvert póli-
tískt vörumerki er á
honum).
Innrás Sovétríkjanna í
Tékkóslóvakíu, beiting
skriödreka gegn verka-
fólki í Ungverjalandí, kyn-
páttafordómar gegn
Gyöingum í Sovétríkjun-
um, eins flokks kerfi í
ríkjum kommúnismans
eða miöstýring stjórn-
valda á verkalýöshreyf-
ingu par í löndum, er til
að mynda ekki í frásögur
færandi, pegar sósíalisti
á í hlut, pótt sá hinn sami
geti — réttilega — deilt á
mannréttindaskerðingu í
Chile. Voöaverk róttækra
borgarskæruliöa eru rétt-
lætt, en myndu hins
vegar fordæmd harðlega,
ef aðrir ættu hlut aö máli.
Tolla í tízku
marxismans
Málið vandast hins
vegar pegar kemur að
vopnavaldí kommúnista-
ríkis gegn kommúnista-
ríki. Innrás Víetnama í
Kambódíu og innrás Kína
í Víet Nam verða illa
skrifaðar á reikning
„heimsvaldasinna“ og
„alpjóðaauðvaldsins". En
staðreyndamat sósíalista
byggist enn á blindu
„bókstafstrúarmanns-
ins“, eins og gerst kemur
fram í skrifum íslenzkra
vinstri sinna: í Þjóðviljan-
um, Verkalýösblaðinu og
Stéttabaráttunni. Þeir
tolla sum sé í tízku
marxismans um
skiptingu í maóista,
trotskýista og rússa-
dindla. Maóístar segja
innrás Víetnama í
Kambódíu ofbeldi af
verstu tegund, en innrás
Kína í Víetnam réttláta
hirtingu (sbr. Verkalýðs-
blaöið og sampykkt „Bar-
áttuhreyfingar gegn
heimsvaldastefnu, BGH).
Sovétsinnar segja hins
vegar innrás Víetnama í
Kambódíu nokkurs konar
frelsun Þjóðar, en innrés
Kína í Víet-Nam yfirgang
og ofbeldi „Þar með eru
stríðsógnanir Kínverja
ekki lengur einungis
hrollvekja, heldur hrika-
leg staðreynd." segja prír
fyrrv. formenn Víetnam-
nefndarinnar á íslandi í
Þjóöviljanum í gær;
nefndarinnar, sem svaf af
sér hernám Kambódíul
Blekkingin
afhjúpuö
Þau átök Sovétríkjanna
milli Kína, sem m.a. hafa
komið fram f nýorðnum
atburðum í Suö-
austur-Asíu, hafa svipt
blekkingarhulunni
„friðar“-áróðri kommún-
ista. Mannkyni er nú Ijós-
ar en áður, hver hætta
heimsfriðnum stafar af
herveldum, sem Þróast
hafa eftir „hugsjónum"
marxismans. Jafnframt
liggur nú skýrar fyrir en
áður, hvert gildi varnar-
samvinna vestrænna
Þjóða, Atlantshafsbanda-
lagið, hefur; fyrir frið í
Evrópu, varðveizlu vest-
ræns lýðræöis og pegn-
réttinda almennings, í
okkar skilningi peirra
oröa. Norðurlöndin prjú,
sem aðilar eru að NATO,
sækja Þangað styrk og
varnaröryggi, um leið og
Þau leggja lóð sitt á
vogarskál samstööunnar
um varöveizlu lýðræöis-
ins í heiminum, sem, Því
miöur, minnihluti pjóða
og mannkyns nýtur í dag.
Starfandi skátar 4500
SkátaþinR var haldið um síð-
ustu helgi 16. —18. íeb. í Öldu-
selsskóla í Reykjavík.
Þingið sóttu um 100 skátafor-
ingjar víðsvegar af landinu, en
það er haldið annað hvert ár og
fer með æðstu völd á málefnum
Bandalags íslenskra skáta.
Páll Gíslason skátahöfðingi
setti þingið, en þingforseti var
kjörinn Tómas Grétar Ólason.
Fyrst voru gefnar skýrslur um
starfsemi bandalagsins, frá því
síðasta þing var haldið 1977, að
Hrafnagili í Eyjafirði.
Síðasta starfsar var tileinkað
heitinu „Skátalíf er útilíf.", en
þetta ár ber heitið „Skátalíf er
þjóðlíf." Hin mismunandi aldurs-
stig skáta starfa að því að kynna
sér umhverfi sitt, líf þjóðarinnar,
landsins gagn og nauðsynjar,
náttúruvernd og fólkið í kring um
okkur.
Aðalmál þingsins voru fjármál
og hin þrönga fjárhagsstaða
bandalagsins.
Voru síðan lagðar fram áætanir
um starfið næstu tvö árin, og
hvernig hægt er að bæta að
nokkru með áhugamannastarfi,
að fækka hefur þurft starfsliði
bandalagsins.
Umræðuhópar fjölluðu um upp-
eldismarkmið skátahreyfingar-
innar og ályktanir voru gerðar
um skipulag skátastarfsins.
Fjölþætt foringjaþjálfun fer
fram á vegum bandalagsins að
Úlfljótsvatni og víðar. Gefnir
hafa verið út ýmsir bæklingar um
hina ýmsu þætti skátastarfsins, á
vegum bandalagsins.
Næsta landsmót skáta mun
verða haldið á Norðurlandi 1981,
undir forustu skáta á Akureyri.
Kosin var stjórn Bandalags
íslenskra skáta. Páll Gíslason var
endurkjörinn skátahöfðingi og
Helgi Eiríksson fyrirliði alþjóða-
starfs drengjaskáta. Nýtt fólk í
stjórn voru kosin: Guðlaugur
Hjörleifsson gjaldkeri, Þorsteinn
Pétursson ritari og Hallfríður
Helgadóttir fyrirliði alþjóða-
starfs kvenskáta. Fyrir voru í
stjórninni Ingibjörg Þorvalds-
dóttir og Arnfinnur Jónsson vara-
skátahöf ði ngj ar.
Starfandi skátar á landinu eru
nú um 4500, í rúmlega 40 skáta-
félögum víðsvegar um landið.
TVEIR GOÐIR I
HÁDEGINU
á laugardögum
• • •
Svínaskankar og súrkál
á þýzka vísu og
svínarif á amerískan máta
0
BERGSTAÐASTR/ETI 37
SlMI 21011
Til sölu
Plymouth Volaré Premier Wagon
Til sölu þessi glæsilegi station wagon, árgerð
1977, með 6 cyl. vél, sjálfskiptur með power-
bremsum og powerstýri. Bifreiöin er mjög vel
með farin, lítiö ekin og sem ný. Upplýsingar í síma
23532 í dag og á morgun.
500
UTMYNDIR
OKEYPIS
í tilefni 15 ára afmælis Ijósmynda-
stofunnar bjóöum viö meö næstu
500 myndatökum ókeypis litmynd
í sams konar stærö og stúlkan
heldur á 28x37 cm. Þetta á við
um allar okkar myndatökur, hvort
sem viö myndum brúöhjón, barn,
fjölskyldu, fermingarbarn, stúdent
eöa ömmu og afa.
Hægt er aö fá myndina hamraöa,
upplímda á striga eöa á tréplatta
aö viðbættum kostnaöi.
Ennfremur bjóöum viö fjölbreytt
úrval trémyndaramma.
bar
Ijosmyndir
}/l AUSTURSTRíTl 6 SÍM112644