Morgunblaðið - 24.02.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1979
27
og kvaö hann óöalsbóndann í
Kópavogi, Björn Ólafsson, nú
gerast stórtækan í hreinsunum
— hér væri sem um fjöldaaftökur
væri að ræða á vegum
Khomeinis. Ríkarð kvaðst þakka
Helgu Sigurjónsdóttur samstarf-
ið í bæjarstjórn Kópavogs, þótt
sjónarmið þeirra hefðu ekki allt-
af farið saman. Hann kvað Helgu
allt fram til síðustu stundar sem
bæjarfulltrúa hafa verið málefn-
um trúa og hún væri iitríkur
persónuleiki.
Þá stóð upp Björn Ólafsson,
efsti maður á lista Alþýðubanda-
lagsins og formaður bæjarráðs.'
Hann kvaðst ekki ætla að hafa
mörg orð um það sem væri að
gerast í bæjarstjórninni, en hann
kvað deilurnar um margt svipa
til deilna Rússa og Kínverja, en
skammirnar dyndu á Albönum.
Þannig kvaðst hann vera skamm-
aður og við því væri ekkert að
segja. „Við Helga höfum setið hér
Klofningur í Alþýðubandalaginu í Kópavogi:
Vinnubrögð forgstumanna meiri-
hlutans „ófélagsleg og ótgðrœðisleg
Forseti bœjarstjómar segir af sér ásamt
tólf öðrum alþgðubandalagsmönnum
ÓVENJULEGUR atburður gerðist í bæjarstjórn Kópavogs í gær
er forseti bæjarstjórnar. Helga Sigurjonsdóttir, sagði af sér sem
bæjarfulltrúi og 12 aðrir fulltrúar Alþýðubandalagsins sögðu sig
úr trúnaðarstöðum hjá bænum, þar af 6 menn, sem verið höfðu í
framboði fyrir G-listann, lista Alþýðubandalagins við bæjar-
stjórnarkosningarnar í fyrra. Einn fulltrúi lýsti stuðningi við
félaga sína 13. Þessi mikli klofningur hefur verið að gerjast
undanfarna mánuði, en í gær. er fundur var settur í bæjarstjórn-
inni, óskaði Helga eftir að fá að taka til máls utan dagskrár.
Helga Sigurjónsdóttir vísaði til
bókana, sem hún hafði látið gera
á tveimur bæjarstjórnarfundum,
15. desember og 9. febrúar síðast-
liðinn, og sagði að hún hefði
komizt að þeirri niðurstöðu, að
aðstaða sín til starfa „í þessum
meirihluta er í fyllsta máta
óvænleg til framgangs stefnu-
málum Alþýðubandalagsins. Þess
vegna hef ég ákveðið að hætta um
sinn störfum að bæjarmálum og
fer þess á leit við bæjarstjórn, að
hún veiti mér lausn frá starfi
bæjarfulltrúa og úr nefndum."
Þá las Helga Sigurjónsdóttir
upp bréf frá 13 Alþýðubandalags-
mönnum, þar af 6, sem skipuðu
G-listann í síðustu sveitarstjórn-
arkosningum. I upphafi bréfsins
lýsa þeir stuðningi við sjónarmið
Helgu. „Við lýsum yfir því áliti
okkar, að þátttaka sósíalista í
meirihluta bæjafstjórnar sé
óskynsamleg og ekki vænleg til
árangurs við þær aðstæður, sem
nú ríkja. I því sambandi leggjum
við sérstaka áherzlu á eftir-
farandi:
1. Núverandi bæjarstjórnar-
meirihluti hefur enga skráða eða
samþykkta heildarstefnu í bæjar-
málum. Eru skipulagsmálin
skýrast dæmi um það, en flestum
mun ljóst að í þeim málum er
mikil þörf stefnumótunar í ljósi
nýrra viðhorfa.
2. I núverandi meirihluta
getur vart heitið að leitast hafi
verið við að leysa skipulega ein-
stök brýn vandamál, sem sam-
starfsyfirlýsing meirihlutaflokk-
anna kveður þó á um að leysa
skuli. Nægir hér að nefna til
dæmis endurskoðun á stjórnkerfi
bæjarins.
3. Við höfum talið, og teljum
enn, að misráðið hafi verið við
upphaf valdaferils núverandi
meirihluta að ráða ekki, svo sem
reglur leyfðu, nýja menn í ýmis
æðstu embætti bæjarins. Einkum
þykir okkur þetta eiga við um
starf bæjarstjóra. Umskipti í
æðstu embættum bæjarins eru
nauðsynleg, ef framkvæma á
breytta stefnu frá þeirri, sem
fylgt var síðastliðið kjörtímabil.
4. Við áteljum ófélagsieg og
ólýðræðisleg vinnubrögð forystu
núverandi bæjarstjórnarmeiri-
hluta, einkum þó Björns Ólafs-
sonar, formanns bæjaráðs, og
nægir í þessu sambandi að vitna
til Olíumalarmáls þess, er nýlega
var til umræðu í bæjarstjórn.
A grundvelli framangreindra
skoðana okkar höfum við ákveðið
að hætta um sinn störfum að
bæjarmálum á vegum Alþýðu-
bandalagsins í Kópavogi. Þess
vegna óskum við hér með eftir því
við bæjarstjórn, að hún leysi
okkur frá störfum að bæjar-
rnálurn."
Undir bréfið skrifa:
Ragna Freyja Karlsdóttir,
varabæjarfulltrúi og fulltrúi í
félagsmálaráði.
Finnur Torfi Hjörleifsson,
fulltrúi í skólanefnd og náttúru-
fulltrúi í heilbrigðisnefnd og
fulltrúi á lista Alþýðubandalags-
ins.
Grétar Halldórsson, vara-
fulltrúi í jafnréttisnefnd.
María Hauksdóttir, vara-
fulltrúi í jafnréttisnefnd.
Gunnar Steinn Pálsson, fulltrúi á
lista Alþýðubandalagsins.
Þá las Helga einnig upp yfir-
lýsingu frá Þormóði Pálssyni,
sem er gamall forystumaður
Alþýðubandalagsins í bæjar-
málum í Kópavogi og sat hann
m.a. í hreppsnefnd á valdadögum
Finnboga Rúts Valdimarssonar.
Yfirlýsing- Þormóðs er svohljóð-
andi:
„Enda þótt ég eigi þess ekki
kost að segja af mér vegna
sérstöðu þess starfs, sem ég gegni
samkvæmt tilnefningu bæjar-
stjórnar, sem þar er, eins og
almennt er vitað, unnið í þágu
ríkisins og bæjarstjórn með öllu
óviðkomandi (dómstörf í sjó- og
verzlunardómi), lýsi ég fullri
samstöðu með því fólki, sem að
framanskráðri yfirlýsingu stend-
ur. Janframt vil ég skora á
Alþýðubandalagið í Kópavogi að
knýja formann bæjarráðs og
Helga Sigurjónsdóttir fyrir utan fundarsal bæjarstjórnar meðal
áheyrenda, sem komið höföu til aö fylgjast með hinum óvenjulega
atburði eftir að hún hafði gengið af fundi.
verndarnefnd, 20. maður á lista
Alþýðubandalagsins.
Ilallfríður Ingimundardóttir,
varabæjarfulltrúi og varafulltrúi í
skólanefnd.
Eggert Gautur Gunnarsson,
fulltrúi í hafnarnefnd, vara-
fulltrúi í skipulagsnefnd og stjórn
skj úkrasamlagsins.
Þórunn Björnsdóttir, 9. maður
á lista Alþýðubandalagsins.
Helga K. Einarsdóttir, fulltrúi í
bókasafnsstjórn.
Guðrún Gísladóttir, vara-
fulltrúi í bókasafnsstjórn.
Halldór Pétursson, varafulltrúi
í náttúrugripasafnsnefnd.
Hafdís Gústafsdóttir, vara-
bæjarstjóra með öllum tiltækum
ráðum til þess að láta af þeim
einræðislegu starfsháttum, sem
þeir hafa tíðkað nú um sinn og
einkennast af pukri og
leynimakki eins og bezt hefur
komið í ljós í sambandi við
olíumalarmálið svo kallaða. Slík
vinnubrögð eru ósæmileg og
óþolandi og hljóta að leiða til
ófarnaðar."
Þegar Helga Sigurjónsdóttir
hafði lesið yfirlýsingarnar þakk-
aði hún bæjarfulltrúum sam-
starfið og sagðist víkja af fundi.
Gekk Helga síðan af fundi.
Varaforseti bæjarstjórnar,
Helga Sigurjónsdóttir flytur afsagnarræöu sína sem forseti
bæjarstjórnar Kópavogs og bæjarfulltrúi. Fyrir framan ræðupúltiö
situr Sigurjón Ingi Hilaríusson bæjarfulltrúi.
Rannveig Guðmundsdóttir, bar
síðan undir atkvæði beiðni Helgu
um að bæjarstjórn veitti henni
„lausn frá starfi bæjarfulltrúa og
úr nefndum". Bæjarstjórnin sam-
þykkti með 8 samhljóða atkvæð-
um að veita Helgu lausn, en
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
sátu hjá. Þá samþykkti bæjar-
stjórn á sama hátt að veita þeim
13 varabæjarfulltrúum og nefnd-
armönnum lausn frá störfum
með sams konar afgreiðslu.
Eftir atkvæðagreiðsluna stóð
fyrstur upp Sigurjón Ingi
Hilaríusson, efsti maður K-list-
ans, óháður. Hann kvað stóra
atburði gerast í bæjarstjórn
Kópavogs og því fyndist sér
tilhlýðilegt að taka til máls.
Hann kvaðst hafa setið í minni-
hluta allt síðasta kjörtímabil með
forseta bæjarstjórnar, sem nú
hefði sagt af sér og fyrir það
samstarf þakkaði hann Helgu
Sigurjónsdóttur. Hann kvaðst
óska Helgu og öllu því fólki sem
sagt hefði af sér trúnaðarstörfum
fyrir bæjarfélagið alls hins bezta
á komandi árum og vænti þess að
þau ættu eftir að koma aftur.
Þá stóð upp Ríkarð Björgvins-
son, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
í 4 ár í minnihluta," sagði Björn,
„og höfum mikla rimmu háð.“
Hann kvaðst þakka henni kær-
lega fyrir samstarfið, en sagði
síðan: „Helga unir sér ekki vel í
meirihluta, þar sem þarf að bera
ábyrgð. Við því er í sjálfu sér
ekkert að segja, eðli manna er
misjafnt." Þá kvaðst Björn þakka
Helgu og þeim, sem færu með
henni, og kvaðst vænta þess að
þetta fólk kæmi aftur til starfa
fyrir Alþýðubandalagið.
Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs og
var þá gengið til dagskrár.
Helga Sigurjónsdóttir var í 2.
sæti G-listans við síðustu sveitar-
stjórnarkosningar, en þá fékk
Alþýðubandalagið 3 menn
kjörna. I þriðja sæti var Snorri
Konráðsson og í 4. sæti Ragna
Fríða Karlsdóttir, sem einnig
hefur sagt af sér. Því er vara-
maður Helgu, sem nú kemur inn
sent aðalbæjarfulltrúi, 5. maður
af lista Alþýðubandalagsins, Ás-
mundur Ásmundsson. 6. maður
listans var Hallfríður Ingimund-
ardóttir, sem sagt hefur af sér, en
7. maður af listanum er Ólafur
Jónsson, framkvæmdastjóri Al-
þýðubahdalagsins.