Morgunblaðið - 03.03.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARZ 1979
3
„ Varðaðstinaaméráhausírm
útúr bílnum eftir 30 m fatt”
Rætt við Þórð Jósepsson frá Patreksfirði sem hrapaði í Raknadalshlíð
„MÉR BRÁ ofsalega og öskraði upp yfir mig þegar bfllinn fór fram af
brúninni." sagði Þórður Jósepsson frá Patreksfirði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi. en Þórður hrapaði um 30 metra niður snarbratta f jallshlíö í
bfl sínum í Raknadalshlíð við Patreksfjörð 18. feb. sl.
„Ég var að flakka inn í fjörð í
bílnum með hundinn minn og var
á móts við Raknadal þegar vind-
hviða feykti bílnum til á veginum
út í smámöl og það skipti engum
togum að bíllinn fór út af þarna og
niður bakkann. Bíllinn hefur lík-
lega haldist réttur mest alla leið-
ina niður en hann endaði á hlið-
inni niðri í fjöruborðinu. Ég var
þá kominn aftur í bílinn sem var
allur í maski, gjörónýtur, og ég
fann strax að ég var brotinn því
það var eins og hægri fóturinn á
mér dinglaði við líkamann, en hins
vegar varð hundinum ekkert
meint af byltunni og einhvern
veginn komst hann út úr bílnum
um einhverja rifuna.
Ég var hins vegar alveg laus í
bílnum, en átti erfitt með að
hreyfa mig vegna brotanna, því að
ég lærbrotnaði, öklabrotnaði og
rifbeinsbrotnaði, en þegar ég hafði
legið í bílhræinu um eina klukku-
stund og velt því fyrir mér hvernig
ég kæmist út úr bílnum og á stað
þar sem ég sæist frá veginum, þá
ákvað ég að freista þess að skreið-
ast úr bílnum. Það þlæddi stöðugt
úr fætinum á mér svo það var ekki
eftir neinu að bíða á meðan ég
hafði þó þrótt til að gera eitthvað.
Ég gat opnað afturhurðina upp í
loftið og rekið hausinn þar út.
Eitthvað reyndi ég að hrópa, en
það þýddi ekkert, ég var ekki í
sjónmáli frá veginum. Það átti
hins vegar að fara að fljúga, svo
að ég vissi að það yrði umferð um
veginn fyrir ofan.
Ég sá því ekkert annað ráð en að
stinga mér á hausinn út úr bíin-
um, hikaði nokkuð, enda skammt
um liöið frá fallinu mikla, en lét
mig síðan vaða niður í fjörugrjót-
ið. Það tókst bærilega, en þá var
að skríða eft.ir fjörunni og nokkr-
um sinnum hvíldi ég mig. En loks
kom bíll og í honum voru Magnús
Guðmundsson útgerðarmaður og
Guðjón Guðmundsson reddari hjá
honum. Guðjón hlúði strax að mér
en Magnús fór að ná í sjúkrabíl.
Var síðan farið méð mig á
sjúkrahúsið á Patreksfirði áður en
sjúkraflugvél flutti mig í Borgar-
spítalann þar sem Rögnvaldur
læknir og hans lið hefur annast
mig með ágætum.
Þetta var óneitanlega óþægileg
dvöl þarna á slysstaðnum, en
hundurinn reyndi sitt til að
hjálpa, því að hann hljóp frá
slysstaðnum út á Patreksfjörð og
aftur inn eftir en enginn gat sett
hlaup hans í samhengi við að
eitthvað hefði skeð, sem varla var
von.
Ég vil nota tækifærið til þess að
þakka læknum og hjúkrunarliði
fyrir aðstoðina og einnig þeim sem
aðstoðuðu mig í Raknadal, lækni
og sjúkraliði á Patreksfirði og
flugmanninum sem flaug sjúkra-
flugið.“
Tilboðin opnuð í gær á Hótel Sögu.
Ljósm. Kristinn
Hrauneyjarfossvirkjun:
Nærri fjórir milljarðar
milli hæsta og lægsta
tilboðs í einn verkþátt
Tilboð í Hrauneyjarfossvirkjun voru opnuð í gær. að viðstöddum
fulltrúa þeirra fyrirtækja sem buðu í verkið. eða öllu heldur hluta
þess. Aðeins íslenska fyrirtækjasamsteypan Fossvirki og vestur-þýska
fyrirtækið Strabag Bau buðu í alla þætti verksins.
Hlutaðeigahdi útboð skiptist í fjóra verkhluta, og var bjóðendum
frjálst að bjóða í einn eða fleiri verkhluta. Bjóðendur og tilboðsfjárhæðir
voru sem hér segir, og til samanburðar eru sýndar hlutaðeigandi
kostnaðaráætlanir ráðunauta Landsvirkjunar, Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen h.f. og Harza Engineering Company International. Allar
tölur eru án verðbóta á byggingartíma.
Kostnaðaráætlun
Tilboðsf járhæð.
Kr. ráöunauta. Kr.
— Jarðstíflur og aðveituskurður Ellert Skúlason h.f., Svavar Skúlason h.f. og Ýtutækni h.f. 2.758.605.000 4.124.000.000
Strabag Bau, V-Þýskalandi Fössvirki, sameign Istaks h.f., 6.239.579.363
Loftorku s.f., Miðfells h.f., AB Skánska Cementgjuteriet, Svíþjóð, og E. Pihl og Son AS, Danmörk 6.669.257.000
— Gröftur fyrir inntaki og flóðgáttum Ellert Skúlason h.f., Svavar Skúlason h.f. og Ýtutækni h.f. 117.275.000 221.000.000
Suðurverk s.f. Vörðufell h.f., Fossvélar h.f., 162.575.000
og Sveinbjörn Runólfsson s.f. 168.500.000
Fossvirki 275.250.000
Strabag Bau, V-Þýskalandi — Steypuframleiðsla 650.689.890 1.974.000.000
Fossvirki 2.651.250.000
Energoprojekt, Júgóslavíu Energoprojekt, Júgóslavíu 3.278.122.218
frávikstilboð 2.909.173.285
Strabag Bau, V-Þýskalandi 3.387.743.400
— Bygging stöðvarhúss Energoprojekt, Júgóslavíu 3.775.650.442 1.998.000.000
Fossvirki 4.219.275.000
Strabag Bau, V-Þýskalandi 5.046.820.706
Framkvæmdir við ofangreinda verkhiuta hefjast í vor að undanskil-
inni vinnu við jarðstíflur og aðveituskurð, sem ekki verður byrjað á fyrr
en á næst ári.
Tilboðin verða nú könnuð nánar með tilliti til útboðsgagna og borin
endanlega saman. Að því búnu mun stjórn Landsvirkjunar taka afstöðu
til þeirra og skýra frá niðurstöðum í því efni.
Karnival
hátíb
Útsýnar
Hótel Söyu Súlnasal
Súnnudayinn h- mar;
Hver veröor
valir\
Karrúva'
drottn'mg
Útsýnar
og Wýter
ókeyp's
Útsýnarferö-
Kl. 19.00 Húsiö opnað. Hressandi
svalardrykkir og lystaukar á barnum
Kl. 19.30 Kjötkveðjuhátíðin hefst
stundvíslega með
Brochette d’agneau grillée Careme.
undir stjórn franska matreiðslu-
meistarans Francois Fon’s.
Matarverð aðeins kr. 3.500.-
Lúðrasveit undir stjórn
Lárusar Sveinssonar leik-
ur Karnival lög og létta
tónlist.
K
SKEMMTIATRIÐI:
Myndasýning:
Forstjóri Útsýnar sýnir nýjar
flitmyndir frá sólarlöndum.
Jóhanna Sveinsdóttir
söngkona og Jónas Þórir
Þórisson fflytja iétt lög.
Danssýning:
Sigurvegarar á forkeppni diskó
danskeppni Útsýnar og Klúbbs-
ins 25.2 í hópdönsum og para-
dansi sýna diskódans.
BINGO
3 Útsýnarferðir
Fegurðar- ,
samkeppni:
Ljósmyndafyrirsætur Út-
sýnar. Stúlkur valdar úr
hópi gesta. 10 Útsýnar-
ferðir í vinning. Forkeppni.
Tízkusýning
Módelsamtökin sýna
dragtir frá Model-magasín
og kjóla frá Capel! Kjör-
garöi undir stforn Unnai
Arngrímsdóttur.
Hópferðir ÚTSÝNAR 1979 kynntar.
Dans til
kl. 01.00
Hin hressilega
og bráðskemmtilega
hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar ásamt
söngkonunni Þuríði
Sipurðardóttur leika
fjötbreytta tónlist
við allra hæfi.
Allar dömur fá gjafarsýnis-
horn af frönskum ilmvötnum
frá „Nina Ricci“ og
Nitchewo/ og fyrir herra
„Gainsborough“.
Allir matargestir fá Karni-
val-hatta.
Missið ekki af glæsilegri
skemmtun og möguleikum á
ókeypis Útsýnarferð.