Morgunblaðið - 03.03.1979, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARZ 1979
Friðrik Friðriksson:
Nú og í nánustu framtíð
stöndum við Islendingar
frammi fyrir þeim vanda, að
taka afstöðu til þeirra leiða,
sem til boða standa til þess að
ná þeim markmiðum sem við
flest stefnum að, þ.e.a.s. auk-
inni velmegun og betri lífs-
kjörum.
Þessi vandi er ekki nýr, en
hins vegar hefur sjaldan legið
meira við að taka skýra af-
stöðu til þess, hvert ferðinni
skuli heitið.
Tilefni þess, að ég vek
athygli á þessu nú, er sú
staðreynd að síðastliðinn ára-
tug hefur í æ ríkara mæli
verið farið út á þá braut, að
auka ríkisafskipti á kostnað
einkaframtaks. í því ljósi er
nánasta framtíð mikilvæg,
sökum þess, að með hverju
árinu sem þessi þróun heldur
áfram, minnka möguleikarnir
á þyí, að um nokkurt val verði
að ræða.
En um hvað stendur þá
valið?
I rauninni má segja að að-
eins sé um að ræða tvær
höfuðstefnur sem til álita
komi.
yfirráðunum yfir framleiðslu-
tækjunum á hendur margra,
sem taka sínar ákvarðanir
óháðir hver öðrum, getum við
sem einstaklingar ráðið
athöfnum okkar.
Þetta skilja sósíalistar, og
þess vegna ráðast þeir svo
harkalega að einkaeignar-
réttinum, því að þegar yfirráð
allra framleiðslutækja eru
komin á eina hönd, hefur sá
aðili öll ráð okkar í hendi sér.
Það er mjög mikilvægt að
gera sér grein fyrir þessu, því
að þótt hagvald frjáls
markaðsbúskapar geti orðið
sterkt, getur það aldrei ráðið
lífi okkar, en hins vegar í hinu
miðstýrða hagkerfi alræðis-
ríkja, þar sem hagvald er
sameinað pólitísku valdi, er
grundvöllur frelsis og skoð-
anaskipta brostinn, eins og
kommúnistaleiðtoginn kunni
Leon Trotsky komst sjálfur
réttilega að orði: „Þar sem
ríkið er eini atvinnurekandinn
leiðir stjórnarandstaða til
hægs hungurdauða".
Þessi grundvallarsjónarmið
viðurkenna flestir, og þar á
meðal margir sósíalistar, sem
Friðrik Friðriksson
til kynna óskir sínar með
innkaupum á þeim vörum sem
þeim líkar. Þess vegna keppast
framleiðendur við að fram-
leiða vöru, sem selst vel,
annaðhvort vegna hagstæðs
verðs og/eða mikilla gæða.
Við það að ná hámörkum full-
nægingar þarfa neytenda,
hámarka framleiðendur gróða
sinn um leið, og það er ein
helsta skýringin á því, hvers
vegna gróði er svo mikilvægur
í atvinnurekstri. Gróði er því í
reynd í þágu almennings og er
Vakning til liðs
við frjálshyggjuna
Sá íslendingur, sem hvað
mest hefur ritað um þessi mál
er án efa prófessor Ólafur
Björnsson. Nýjasta bók hans,
sem ber heitið „Frjálshyggja
og Alræðishyggja", er mjög
merkilegt framlag til þessarar
umræðu, og það eitt er víst, að
eftir því sem menn kynna sér
betur sósíalisma og miðstýrt
hagkerfi verða þeir í marg-
földunarhlutfalli andsnúnari
honum.
Það er þvi engin tilviljun að
sú mikla vakning til liðs við
frjálshyggjuna, sem nú á sér
stað víðs vegar í hinum vest-
ræna heimi, kemur einmitt nú.
Mönnum verður æ ljósari sú
staðreynd, að orsök hægs hag-
vaxtar og verðbólgu í hinum
vestræna heimi síðastliðinn
áratug, liggur í auknum ríkis-
afskiptum. Kröfur hinna ýmsu
hópa þjóðfélagsins um aukna
hlutdeild í þeirri köku, sem til
skipta er, verða stöðugt
háværari, en kakan stækkar
ekki í sama hlutfalli og kröf-
urnar, ef hagvöxtur er ekki
nógur.
Fram til þessa hefur verið
tilhneiging í þá átt, að mæta
þessum kröfum með auknum
ríkisafskiptum, sem síðan eru
afsökuð með því að markaður-
inn anni ekki hlutverki sínu.
Þetta er alrangt sökum 'þess,
að ástæðan er ekki ófullkom-
leiki markaðarins heldur sú,
að hann fær ekki að starfa
ótruflaður með það megin
markmið fyrir augum að auka
hagvöxt, en hagvöxtur er for-
senda þess að um efnahagsleg-
ar framfarir verði að ræða.
Þetta ætti öllum að vera ljóst
in í frjálsum markaðsbúskap.
Þó ber að varast oftrú á
frjálsu markaðshagkerfi, það
er ekki gallalaust, en það er
tvímælalaust það eina sem er
nothæft.
A þessum grundvelli verða
ungir sjálfstæðismenn að
berjast á komandi árum, því
að það er skylda okkar að
leggja lítið lóð að mörkum til
þess að hér verði hægt í
framtíðinni að lifa mannsæm-
andi lífi. Það gerum við aðeins
með því að fylkja okkur um
frjálshyggjuna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
oft undanfarin ár verið kallað-
ur „hugmyndasnauði flokkur-
inn“ (The silly party) og vafa-
laust hefur hann að vissu
marki borið þá nafngift með
rentu, sökum þess, að mest af
hugmyndalegri nýsköpun í
landinu hin síðari ár hefur
farið fram utan Sjálfstæðis-
flokksins.
F ramtíðarhlutverk
Sjálfstæðis-
flokksins
Það verður að mínu mati
meginhlutverk ungra sjálf-
stæðismanna á komandi árum,
að breyta þeim forsendum sem
stjórnmálabaráttan verður
háð á.
Sjálfstæðisflokkurinn verð-
ur sá íslenski flokkur, sem fær
það hlutverk, að veita áður-
nefndri fylgisaukningu frjáls-
hyggjunnar í réttan farveg.
Það verður hans hlutverk, að
berjast einarðlega fyrir frjáls-
hyggju, það verður að sýna að
hugmyndaleg nýsköpun komi
fram í Sjálfstæðisflokknum.
Hvers vegna
friálshgggja?
Frjálshyggja
og alræðishyggja
Annars vegar frjálshyggja,
þar sem einstaklingarnir
ákveða sín markmið sjálfir, og
framfylgja þeim innan þeirra
leikreglna sem nauðsynlegar
eru, vegna tillits til annarra
þjóðfélagsþegna, og hins vegar
alræðishyggja sósíalista, þar
sem stjórnvöld eiga í nafni
heildarinnar að ákveða öll þau
markmið, sem einstaklingarn-
ir og þá um leið heildin eiga að
stefna að, og þeim verður að
framfylgja samkvæmt for-
skrift stjórnvalda. Þrátt fyrir
óskhyggju margra, um að ein-
hver millivegur sé til á milli
þessara stefna, þá er það
staðreynd, að .þegar til lengri
tíma er litið, stendur valið
aðeins á milli hinna tveggja
fyrrnefndu, og út frá því verð-
ur gengið í þessari grein.
Eftir því sem menn kynna
sér betur hinn fræðilega
grundvöll þessara stefna,
koma yfirburðir frjálshyggj-
unnar á öllum sviðum æ betur
í ljós.
Grundvöllur frjálshyggj-
unnar er frjáls markaðs-
búskapur, þar sem virðing
fyrir einstaklingunum og
einkaeignarréttinum eru í
öndvegi. í dag virðist fólk
hérlendis almennt, því miður,
ekki gera sér grein fyrir því,
að einkaeignarrétturinn er
mikilvægasta trygging þess
frelsis sem við óskum öll eftir.
Þetta er þó skiljanlegt í ljósi
þess, hve gengdarlaus áróður
sósíalista hefur verið um
langa hríð gegn einkaeignar-
réttinum.
Markaðsbúskapur
forsenda lýðræðis
Eingöngu með því að dreifa
Sósialismi í framkvæmd.
lofsyngja frelsi og mannrétt-
indi í orði, en hafna um leið
einu færu leiðinni til að
tryggja þessi réttindi, frjáls-
hyggjunni.
Þótt fræðilega séð, sé frelsi
og lýðræði ekki forsenda
markaðsbúskapar, þá er
markaðsbúskapur hins vegar
óumdeilanlega forsenda lýð-
ræðis.
Gróðinn
jákvætt hugtak
í frjálsu markaðshagkerfi
gilda lögmál samkeppninnar,
þar sem framleiðendur verða
að haga sér eftir lögmálum
markaðarins. Þeirra hlutverk
er að fullnægja þörfum
annarra sem best, og það geta
þeir aðeins með því að fara
eftir vilja neytenda, sem gefa
jákvætt hugtak andstætt áliti
sósíalista.
Þessi samræming á milli
eftirspurnar og framboðs er
aðeins möguleg í frjálsu
markaðshagkerfi, sökum þess,
að vandamálin sem upp koma
í miðstýrðu hagkerfi við það
að ná þessari samræmingu,
sem er forsenda hámarks nýt-
ingar framleiðsluaflanna og
aukins hagvaxtar, eru svo
stórkostleg, að þau er óyfir-
stíganleg. Munurinn skýrist
betur ef frjálst markaðshag-
kerfi, t.d. Bandaríkjanna, er
borið saman við miðstýrt hag-
kerfi austantjaldslanda, þar
sem neysluval er lítið og vöru-
gæðin eftir því.
Þetta og margt fleira, sem
ekki er hægt að tíunda í
stuttri blaðagrein sanna yfir-
burði frjálsra viðskipta.
og skýrist enn betur ef við
skyggnumst aftur austur fyrir
tjald. Hver eru orsök stöðnun-
ar á öllum sviðum, lágs hag-
vaxtar og lélegra lífskjara þar
eystra hin síðari ár? Halda
menn að þar séu að verki
einhver óskiljanleg og óyfir-
stíganleg lögmál? Svo er ekki,
því að svarið felst í hagkerf-
inu. Miðstýrt hagkerfi austan-
tjaldslanda, og í æ ríkara
mæli í hinum vestræna heimi,
er svo ófullkomið að innri
gerð, að það er algjörlega
ónothæft til að tryggja fólki
bætt lífskjör.
Lausnin á kreppu
velferðarþjóðfélagsins
Fólkið í þessu landi verður
að skilja að lausnin á kreppu
velferðarþjóðfélagsins er fólg-
Það er að mínu mati for-
senda þess, að ungt fólk trúi
því, að Sjálfstæðisflokkurinn
sé eina athvarf þess i leit að
bættum lífskjörum.
Sjálfstæðisflokkurinn er, og
verður alla tíð flokkur frelsis-
unnenda, og höfum það líka
hugfast, að sósíalismi er og
verður aldrei framkvæmdur
án lögregluríkis.
A þessu grundvallaratriði
má ungt fólk aldrei missa
sjónar. Það frelsi verður aldrei
of dýru verði keypt, sem við
tryggjum okkur með því að
játast undir frjálshyggju, sem
þá hugmyndafræði sem þjóð-
félagið skal vera byggt á, og
höfum það hugfast að enginn
veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur.
Friðrik Friðriksson,
viðskiptafræðinemi.