Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
Krabbameinsfélag Reykjavíkur 30 ára
Fræðslustarfið umfangs-
meira en nokkru sinni fyrr
Aðalfundur Krabbameins-
félags Reykjavíkur var haldinn 8.
marz, en þann dag varð félagið
þrjátíu ára gamalt. Formaður
félagsins, Gunnlaugur Snædal
yfirlæknir, minntist þessara
tímamóta og gerði fundinum
grein fyrir starfi og baráttumál-
um félagsins á undanfarandi
starfsári. Að venju voru megin-
verkefni félagsins rekstur happ-
drættis og fraeðslustarf.
Helmingur af hreinum ágóða
happdrættisins rennur til Krabba-
meinsfélags Islands. Að viðbætt-
um helmingi annarra tekna nam
árstillag Krabbameinsfélags
Reykjavíkur til landssamtakanna
rúmlega 22 milljónum króna sem
er að heita má jafnhá upphæð og
framlag ríkisins til þeirra á árinu,
enda var útkoman úr happdrætt-
inu einstaklega hagstæð.
Fræðslustarf félagsins var
öflugt og margþætt. Umfangsmest
er reykingavarnastaríið í
skólunum. Sem kunnugt er var sú
starfsemi mjög aukin fyrir þremur
árum og í vetur er hún viðameiri
en nokkru sinni fyrr. Hafa fram-
kvæmdastjóri félagsins og
fræðslufulltrúi þegar heimsótt
alla 6. og 7. bekki og nær alla 8.
bekki grunnskólanna í höfuðborg-
inni, tólf kaupstöðum öðrum og
átján stöðum utan kaupstaða. Víða
hafa heimsóknirnar einnig náð til
annarra bekkja, bæði eldri og
yngri og samtals hafa þær náð til
meira en ellefu þúsund nemenda í
rúmlega sjötíu skólum. Sýning
vandaðra kvikmynda er fastur
liður í þessu starfi í skólunum.
I mörgum skólum hafa sjöttu-
bekkingar (12 ára) unnið að
hópverkefnum um áhrif og afleið-
ingar reykinga og þá verið lagt til
grundvallar ítarlegt fræðsluefni
sem Krabbameinsfélagið hefur
gefið út í lausblaðaformi og útveg-
að skólunum, þeim að kostnaðar-
lausu.
Ut komu á árinu fjögur tölublöð
af blaðinu Takmarki sem er að
mestu leyti helgað reykingavarna-
starfinu i skólunum. Er það nú
sent öllum nemendum í fjórum
aldursflokkum grunnskólans, þ.e.
11—14 ára, og dreift í skólunum.
Þá voru gefin út tvö litabókarblöð
sem dreift var í skólunum til allra
8 og 9 ára nemenda.
A skólaárinu 1977—78 tók
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
upp þá nýbreytni að heiðra
„reyklausa bekki“, 12—15 ára,
með viðurkenningaskjali enda
lægi fyrir skrifleg yfirlýsing
nemendanna allra, staðfest af
bekkjarkennara eða skólastjóra,
um að enginn í bekknum reykti. A
því skólaári veitti félagið 86 slíkar
viðurkenningar en í vetur eru þær
orðnar meira en þrefalt fleiri eða
um 270.
Ríki og Reykjavíkurborg studdu
fræðslustarfið í skólunum með
fjárframlögum sem samanlagt
stóðu undir þriðjungi kostnaðar
við fræðslustarfsemina.
Nýlega hefur félagið gefið út tvö
smárit í nýjum flokki fræðslurita
um krabbamein og krabbameins-
varnir. Annað þeirra, „Krabba-
mein í leghálsi", er eftir Guðmund
Jóhannesson lækni en hitt,
„Hvernig þú átt að skoða brjóst-
in“, hefur Auðólfur Gunnarsson
læknir samið. Eru það eins og
nafnið bendir til leiðbeiningar um
sjálfsskoðun brjóstanna.
I tengslum við þrjátíu ára af-
mælið stóð félagið að þremur
fræðsluþáttum í útvarpi um
krabbamein og krabbameinsvarn-
ir. Voru þeir fluttir í febrúar og
marz undir stjórn Þórarins
Guðnasonar læknis en alls tóku
þátt í þeim átta læknar og
hjúkrunarfræðingar.
Níels Dungal
form. 1949—1951
Alfreð Gíslason
form. 1951 — 1960
Bjarni Bjarnason
form. 1960—1966
Formaður Krabbameinsfélags
Reykjavíkur er Gunnlaugur
Snædal yfirlæknir en aðrir í
stjórn, Alda Halldórsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Baldvin
Tryggvason sparisjóðsstjóri, Guð-
mundur S. Jónsson eðlisfræðingur,
Jón Oddgeir Jónsson fyrrv.
framkvæmdastjóri, Páll Gíslason
yfirlæknir og Tómas Arni Jónas-
Frá síðasta stjórnarfundi fyrir aðalfund. Talið frá vinstri: Guðmundur S. Jónsson, Alda Halldórsdóttir,
Baldvin Tryggvason, Ásbjörg ívarsdóttir (varam.), Gunnlaugur Snædai, Tómas Árni Jónasson,
Guðmundur S. Kristjánsson (varam.), Jón Oddgeir Jónsson og Þorvarður Örnólfsson (framkvæmdastj.).
Aðrir í stjórn eru Páll Gíslason og Guðmundur Jóhannesson (varam.).
Nýkjörnir heiðursfélagar Krabbameinsfélags Reykjavíkur ásamt formanni félagsins. Lengst til vinstri
er Gísli Fr. Petersen, þá Sveinbjörn Jónsson, ólafur Bjarnason og Gunnlaugur Snædal (formaður).
Samband ísl. kristniboðsfélaga:
Kostnaður við starfið í
ár áætlaður um 40 m.kr.
SAMBAND íslenzkra kristni-
boðsfélaga hefur um 25 ára skeið
staðið fyrir kristniboðsstarfi í
Konsó í Eþíópi'u og fyrir tæpu
einu ári var sendur starfsmaður á
vegum þess til Kenya. Er þar nú
unnið að uppbyggingu kristni-
boðsstöðvar og gert er ráð fyrir
að starfsemi S.Í.K. í ár muni
kosta kringum 40 milljónir
króna, þ.c. starfið í Kenya og
Eþíópíu. auk starfsemi sambands-
ins hérlendis.
Að sögn Gísla Arnkelssonar,
formanns Sambands ísl. kristni-
boðsfélaga, dvelst Skúli Svavars-
son ásamt fjölskyldu sinni í Kenya
og Jónas Þórisson í Konsó í Eþíóp-,
íu og Jóhannes Ólafsson er yfir-
læknir sjúkrahúss á kristniboðs-
stöð í Arba Minch þar í landi. Gísli
kvað ástandið í Eþíópíu vera þann-
ig að ekki hefði verið þrengt að
starfi kristniboðanna, en nokkuð
hefði verið um fangelsanir inn-
lendra og sætu t.d. enn í haldi 20
manns er teknir voru um síðustu
jól, eftir að nýr fylkisstjóri tók við
völdum í Gamu Gofa-fylki. Fyrir
um 2 árum var dregið talsvert úr
kristniboðsstarfi í Eþíópíu vegna
hins ótrygga ástands þar, en nú
kvað Gísli starfið heldur hafa
aukist aftur, en fjölmennastir við
kristniboðsstarf eru Norðmenn og
starfa íslenzku kristniboðarnir í
nánu samstarfi við þá.
Undanfarnar vikur hefur S.I.K.
staðið fyrir árlegum kristniboðs-
vikum í Reykjavík og nágrenni þar
sem m.a. er greint frá starfsem-
inni og kvað Gísli þegar hafa
safnazt allnokkra fjárhæð til
starfsins á þessu ári. Á kristni-
boðsviku í Reykjavík er lauk sl.
sunnudag söfnuðust alls um 1.400
þúsund krónur og nemur söfnun á
þessu ári alls milli 7 og 8 milljón-
um. Kostnaður við starfið í fyrra
var um 25 milljónir, en í 40 ár eins
og fyrr er greint, og kvað Gísli
þessa hækkun aðallega tilkomna
vegna byggingar kristniboðsstöðv-
arinnar í Kenya, en einnig vegna
sílækkandi gengis íslenzku krón-
unnar. Gísli sagði viðbrögð vel-
unnara starfsins nú í ársbyrjun
vera mjög uppörvandi og sagði að
þrátt fyrir að 40 milljónir væri há
tala myndi hann leyfa sér að vera
bjartsýnn og taldi að nást myndi
inn það fjármagn sem þarf til að
halda úti fyrirhuguðu starfi.
Innan Sambands ísl. kristni-
boðsfélaga eru milli 30 og 40 félög,
aðildarfélög og styrktarfélög og
bera þau uppi kostnað við allt
starf sambandsins. Sambandsþing
er haldið annað hvert ár og að
þessu sinni verður það í Vatna-
skógi dagana 2.-4. júlí og kvað
Gísli þar að venju rætt um starf-
semi þess og væru þá jafnan
teknar ákvarðanir um öll stærri
mál.
íslenzka kristniboðið í Kenya hefur haslað sér völl í Vestur-Kenya í
héraði sem nefnist Pokot.