Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 19

Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 19 3157 hafa kosningarétt 1 rektorsk jöri HÍ í dag 72 prófessorar eru kjörgengir, valid stendur á milli Gudmundar K. Magnússonar og Sigurjóns Björnssonar NEMENDUR og kennarar í Há- skóla íslands ganga í dag að kjörborðinu til að velja skólanum nýjan rektor. Alls hafa 3157 manns kosningarétt og er talið að kjörið standi eingöngu á milli þeirra Guðmundar K. Magnús- sonar og Sigurjóns Björnssonar. Kjörgengir eru allir skipaðir prófessorar Háskóla íslands. 72 talsins. Að loknu prófkjöri, sem fram fór fyrir nokkru, er þó talið að þeir Guðmundur og Sigurjón komi aðeins til álita í kjörinu. Kosningarétt hafa allir próf- essorar, dósentar og lektorar við Háskóla íslands og háskóla- menntaðir starfsmenn HÍ, sem eru fastráðnir eða settir til fulls starfs, alis 286 manns. Allir studentar sem skráðir voru í Háskólann tveimur mánuðum fyrir kjördag, þ.e. 3. febrúar eða fyrr á háskólaárinu, samtals 2871 nemandi. Kosningin fer fram í hátíðasal Háskóla íslands frá klukkan 9 til klukkan 18 í dag. Talning hefst þegar að kjörfundi loknum og er reiknað með að henni ljúki fyrir klukkan 20 í kvöld. Kosning hefur staðið yfir utan kjörfundar síð- astliðna 10 daga fyrir þá sem verða utanbæjar eða erlendis á kjördag. Þátttaka í utankjörstað- aratkvæðagreiðslunni hefur ekki verið ýkja mikil. Ef enginn próf- essoranna hlýtur meira en 50% greiddra atkvæða verður kosning að fara fram að nýju á milli þeirra tveggja efstu innan 7 daga. Guðmundur K. Magnússon er tæplega 42 ára að aldri. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1957 og fil. kand. prófi í þjóðhagfræði frá háskólan- um í Uppsölum 1961. Fil. lic.-prófi lauk hann þar 1965. Guðmundur lauk fil. dr.-prófi frá Uppsalahá- skóla 1969. Doktorsritgerð hans bar heitið „Framleiðsla við skil- yrði óvissu". Guðmundur kenndi við Uppsalaháskóla frá 1962 til 1968 jafnhliða því, sem hann vann að rannsóknum. Árið 1968 var Guðmundur skip- aður prófessor við Viðskiptadeild Háskóla íslands 1968. Deildarfor- seti þeirrar deildar var hann í 2 ár og sat því þann tíma í Háskóla- ráði. Árið 1973 tók Guðmundur sæti Guðlaugs Þorvaldssonar í samstarfsnefnd um háskólamál- efni og á enn sæti í þeirri nefnd. Guðmundur er stjórnarformaður Reiknistofnunar Háskólans og situr í svokallaðri samræmingar- nefnd, sem m.a. reiknar út vinnu- skyldu kennara við HÍ. Guðmundur er kvæntur Valdísi Árnadóttur og eiga þau fjórar dætur. Sigurjón Björnsson er 52 ára að aldri. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1949. Stundaði framhaldsnmám í sálfræði í Frakklandi árin 1949 til 1953 og lauk þaðan iicentiats- Guðmundur K. Magnússon prófi. Árin 1955 til 1960 stundaði hann framhaldsnám í Kaup- mannahöfn í klínískri sálfræði og sállækningum. Hann var forstöðumaður Geð- verndadeildar fyrir börn við Heilsuverndarstöðina í Reykjavík 1960 til 1967. Var stundakennari við Háskóla íslands frá 1970 og skipaður prófessor við heimspeki- deild 1971 og var forseti þeirrar deildar í 2 ár. Er Félagsvísinda- deild var stofnuð haustið 1976 var Sigurjón skipaður deildarforseti Sigurjón Björnsson þar og hefur starfað sem slíkur frá stofnun deildarinnar. Hann hefur átt sæti í háskólaráði í á fimmta ár og verið varaforseti háskóla- ráðs síðastliðin 2 ár. Sigurjón hefur setið í ýmsum nefndum á vegum háskólans, m.a. verið for- maður nefndar sem fjallaði um úrbætur í málefnum læknadeildar og setið í nefnd, sem fjallaði um byggingamál Háskólans. Sigurjón er kvæntur Margréti Margeirsdóttur félagsráðgjafa og eiga þau 4 börn. Flaugá sleðan- um yfir sex bíla Bandaríkjamaðurinn Scott Eilertson, sem frá því í fyrra hefur verið í Varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli, sýndi listir sínar á Sandskeiði síðast- liðinn sunnudag og stökk þá meðal annars yfir sex bifreiðar á vélsleða. Talsverður áhorfenda- fjöldi fylgdist með kapp- anum og fannst þeim snilli Bandaríkjamanns- ins og áræði með ólíkind- um. Eillertson er frá Minnesota í Bandaríkjun- um og hefur lengst náð því að stökkva 28 fet á sleða en hann hafði ekki Eilertson kominn langleiðina yfir bflana sex á Sandskeiði á sunnudag. (ljósmynd Mbl. Emilía). sýnt í þrjú ár, en Lions- klúbburinn Freyr í Reykjavík fékk hann að nýju til að sýna listir sínar á sunnudaginn. Ágóði af sýningunni renn- ur til Björgunarsveitar- innar Ingólfs, Flugbjörgunarsveitarinn- ar og Kyndils í Mosfells- sveit. Einlertson tók einn- ig þátt í kvartmílukeppni og rallakstri á vélsleða og sigraði í báðum greinun- um. Eilertson kampakátur eftir stökkið góða. Ferðamiðstöðin hf. Aðalstrœti 9 - Símar 11255 - 12940 1 5. apríl 1 | 11- júlí I í 27. ágúst | 19. apríl 23. júlí 3. september 11. maí ! 1. ágúst 15. september 30. maí i 13. ágúst 29. september. I 20. júní i I 22. ágúst I I Auðvitað með Ferðamiðstöðinni. Ódýru orlofsferðirnar til Benidorm. Áætlaöir brottfarardagar:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.