Morgunblaðið - 03.04.1979, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.04.1979, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 21 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR I HANDKNATTLEIKUR • Reykvísk ungmenni sigra í kjördæmakeppni í • HK-menn iagna. Halda þeir sæti sínu í 1. deild? Sjá opnu, irjálsum íþróttum, sjá bls. 23. bls. 24—25. Pétur stendur sig FRAM’kom í fréttaskeyti AP um helgina. að Pétur Pétursson hefði átt mjög góðan leik með liði sínu, Feyenoord gegn Go Ahead Eagles frá Deventer. Feyenoord skoraði fimm mörk í leiknum án svars og skoraði Pétur eitt mark, hans þriðja í hollensku deildarkeppninni. Hollenski landsliðsmaðurinn Jan Peters var annars potturinn og pannann í leik liðsins, skoraði tvívegis sjálfur og lagði tvö hinna upp. Auk þeirra Peters og Péturs, skoruðu Stanley Brard og Wim Van Till mörk íyrir Feenoord að þessu sinni. 21.000 áhorfendur voru ánægðir með sína mcnn að þessu sinni. Það bar vel í veiði hjá íslensku liðunum í Niðurlöndum um helgina, sigur hjá þeim öllum. Lokeren og Standard unnu bæði mótherja sína 3—1 og La Louviere vann nokkuð óvænt á útivelli 3—2. Laugdælir meistarar LAUGADÆLIR gerðu sér lítið fyrir um helgina og tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í 1. deild- inni í blaki. Sigurinn tryggðist með öruggum sigri yfir ÍS, sjálf- um íslandsmeisturunum. 3—0 í íþróttahúsinu að Laugarvatni. Leikmenn Laugdæla. sem flestir eru nemcndur í íþróttakennara- skóla Islands, hafa komið geysi- lega á óvart í blakinu í vetur, almennt var reiknað með hinni hefðbundnu baráttu ÍS og Þrótt- ar, en svo fór þó eigi. Sannkallaðir rokleikir BOLTINN er farinn að rúlla fyrir alvöru og í rokinu um helgina fóru nokkrir leikir fram. í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í knatt- spyrnu skildu Víkingur og Fylkir jafnir, 1 — 1. Fylkir sótti undan hávaðaroki í fyrri hálfleik og skoraði strax á 3. mínútu og var þar að verki Hilmar Sighvatsson með fallegu skoti. í síðari hálfleik sóttu Víkingarnir mun meira og léku þá nokkuð vel á köflum þrátt fyrir aðstæður. Um miðjan hálfleikinn jafnaði Lárus Guðmundsson fyrir Víking eftir að hafa fengið góða stungu frá Hinrik Þórhallssyni. Leikurinn jafnaðist mjög f lokin. ÍBK og Haukar áttust við í Keflavík á sunnudaginn og var leikurinn liður í litlu bikarkeppn- inni. Heimamenn unnu mjög góðan sigur, 3—0, þegar þess er gætt, að liðið lék með einum leikmanni færra í heila klukku- stund eftir að einum leikmanni liðsins hafði verið vikið af leikvelli fyrir að tala með hnefunum. Þegar atvikið átti sér stað var staðan 2—0 og þannig stóð í hálfleik. Mörkin skoruðu Gísli Eyjólfsson, sem er nýliði lék með Víði í Garði í fyrra og Sigurbjörn Gústafsson. í síðari hálfleik sóttu heimamenn gegn rokinu, en bættu þó einu marki við og var þar að verki Omar Yngvarsson. Þorsteinn Ólafsson stóð í marki ÍBK og hélt hreinu af miklu öryggi. Hvergi var rokið meira en á Akranesi, þar sem heimamenn fengu Val í heimsókn. Þar, eins og í hinum leikjum helgarinnar, var margt um nýja leikmenn í liðun- um. Valsmenn unnu örugglega, 3—1, og var tap Skagamanna þeim mun tilfinnanlegra, þegar hver boltinn af öðrum hvarf á haf út. Guðmundur Þorbjörnsson, Grímur Sæmundsen og Hálfdán Örlygsson skoruðu mörk Valsmanna, en Sigþór Ómarsson skoraði fyrir ÍA, var staðan þá 2—0 fyrir Val. I hinni svokölluðu stóru bikarkeppni var leikinn einn leikur, Afturelding vann Selfoss 3—1. Þá áttu Breiðablik og FH að leika í Kópavoginum, en leiknum var frestað. - gg- • Joe Jordan Byrjunin að Laugarvatni um helgina var verst hjá Laugdælum og þeir áttu í miklu basli með að vinna ÍS 15—13. Síðari hrinurnar unnust báðar 15—8, en ÍS byrjaði aðra hrinuna mjög vel án þess að þeim tækist þó að halda forskot- inu sem þá náðist. Þróttur átti að leika gegn UMSE fyrir norðan um helgina. en liðið komst ekki norður vegna samgöngutruflana. UMFL hefur nú hlotið 2G stig í mótinu, en bæði Þróttur og ÍS hafa 22 stig og bítast um annað sætið. Meiðsli hr já leikmenn Man. Utd. • Lárus Guðmundsson jafnar fyrir Víking gegn Fylki, eftir að hafa fengið góða stungusendingu frá Hinrik Þórhalissyni. Tveir fyrrum Vfingar í Fyikispeysum örvænta, en það eru markvörðurinn, Ögmundur Kristinsson, og Eiður Björnsson (skeggjaði kappinn með vettlingana lengst til vinstri). Ljósm.: — gg. ÞRÍR leikmenn Manchester Utd. eiga við meiðsli að stríða eftir leikinn góða gegn Liverpool á laugardaginn, en liðin leiða saman hesta sína á nýjan leik á morgun. Það eru Joe Jordan, Brian Greenhoff og Mick Thomas sem eru meiddir og Greenhoff það illa, að vafasamt er að hann geti leikið á morgun. Ef hann verður frá, mun Lou Macari taka stöðu hans og leika þar með sinn fyrsta leik í 7 vikur. Hjá Liverpool eru allir heilir, en Bob Paisley hefur þó hug á að gera eina breytingu á liðinu og er sú breyting fólgin í því að láta Steve Heighway byrja inn á. Heighway kom inn sem varamaður á laugardaginn og gerði samstundis usla í vörn MU. Hálmstrá IR-inga Einn leikur fer fram í 1. deild karla í kvöld og leika þá í Hafnarfirði lið Hauka og IR. Er þetta síðasti leikur beggja liða. Nái ÍR jafnteíli. er það trygging fyrir því liðið haldist í 1. deild. Tapi ÍR, þarf liðið að leika aukaleik við IIK um það hvort iiðið leiki aukaleiki við Eyjaþór um sætið í 1. deild. Fyrir Hauka er ekki annað í húfi en að hafna ofar FH á töflunni. Leikurinn hefst klukkan 21.00. Þá leika KR og Valur í 1. deild kvcnna og er hér aðeins spurning um það hvort Val tekst að stela öðru sætinu frá FH. Leikurinn hefst í Laugardalshöll klukkan 20.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.