Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRIL 1979
UnglinKalandsIidið íkörfuknattleik. Fremri röð f.v.: Guðjón Þórðarson. Haukum. Pálmar Sigurðsson,
Haukum. Axel Nikulásson. ÍBK. Jón Kr. Gíslason. ÍBK. Valdimar K. Guðlaugsson. Ármanni.
Aftari röð f.v.: Gunnar Gunnarsson, þjálfari, Willum Þórsson. KR, Hálfdán Markússon, Haukum, Sigurður
Sigurðsson. ÍBK, Valur Ingimundarson, UMFN, Viðar Vignisson, ÍBK, Sverrir Hjörleifsson, Ilaukum,
Ingvar S. Jónsson. þjálfari.
Unglingalandsliðið
í körfuknattleik
utan til keppni
Þriðjudaginn 3. apríl n.k. heldur unglingalandslið KKÍ (cadettar
þ.e. 17 ára og yngri) utan til keppni á 5. Evrópumóti unglinga í
körfuknattleik. Keppir ísland í riðli með V.-býskalandi, Belgíu,
Frakklandi. Portúgal og Wales og fer keppnin fram í Hagen
V.-býskalandi dagana 4.-9. apríl.
fsland hefur einu sinni áður tekið þátt í Evrópumóti Cadetta, en það
var 3. Evrópumótið sem haldið var í Grikklandi 1975. 1977 varð ekki
af þátttöku vegna þess að keppnisdagar voru hinir sömu og
Norðurlandamótsins.
Undirbúningur fyrir þetta Evrópumót hófst s.l. sumar með
æfingabúðum á Laugarvatni, en reglulegar æfingar hófust í október
8,1. Eins og áður standa piltarnir sjálfir straum af kostnaði vegna
fararinnar en þeim hefur verið gefinn kostur á nokkrum fjáröfiunar-
leiðum. Fararstjóri í ferðinni og dómari fyrir íslands hönd á mótinu
verður Kristbjörn Albertsson, alþjóðadómari.
Stor verkefni hja Tyrkirnir
Sundsambandinu naðu jöfnu
SUNDSAMBAND íslands hefur
að undanförnu skipulagt starf,
verkefni og keppni erlendis fyrir
besta sundfólk sitt tvö ár fram í
tímann, og hyggst með því ná upp
þeim „standard“ sem
nauðsynlegur er fyrir sundíþrótt-
ina sem keppnisiþrótt.
MÓT ERLENDIS
Akveðin hefur verið þátttaka í 5
mótum erlendis í sumar en það
eru: Kalott sundmótið sem háð
verður í Noregi dagana 21. og 22.
apríl n.k. En sú keppni er sett upp
fyrir nyrstu byggðir norðurland-
anna svo sem N-Noreg, N-Sviþjóð,
og N-Finnland og nú hefur Islandi
verið boðin þátttaka í fyrsta sinni.
Þá er 8-landa sundkeppni í
Belgíu í lok júní og eftir hana hafa
írar boðið til 4-landa keppni í
Dublin í byrjun júlímánaðar. í
sambandi og í tenglsum við báðar
þessar keppnir hafa svo Skotar
boðið íslandi þátttöku í meistara-
móti sínu sem fram fer um svipað
leiti eða uppúr miðjum júní og er
ákveðið að þiggja það boð til að
skapa sundfólkinu þann augljósa
ávinning sem þetta er og þá
þjálfun sem felst í þátttöku í slíku
sundmóti.
Norðurlandameistaramótið fer
svo fram í Svíþjóð í ágústmánuði
og er talið fullvíst að sent verði
þangað okkar besta sundfólk. Lág-
mörk hafa verið sett upp fyrir það
mót sem sundfólkið hefur mögu-
leika á að ná á þessu sumri.
Auk alls þess er svo í bígerð að
athuga möguleika á að gefa
afreksfólki okkar kost á að sækja
heim sundmót sem eru hér í
nágrenninu, s.s. SPEEDO mótið,
COCA COLA mótið og TILT mótið,
því þátttaka í þessum mótum, er
geysistór liður í þjálfun þess, ef
það hyggst keppa að réttindum til
þátttöku á næstu Olympíuleikum.
TRIMMSUND
í undirbúningi er nú hjá stjórn
SSÍ og í samráði við Trimmnefnd
ÍSÍ alsherjarskipulagning á sund-
trimmi fyrir almenning í landinu.
En það er staðreynd að í þeim
málum má miklu meira gera en
gert hefur verið til þessa.
Þessi trimmherferð er í því
fólgin að fólk getur í stigvaxandi
mæli öðlast rétt til ákveðinna
viðurkenninga fyrir sundgetu sína
og ekki hvað síst fyrir ástundun
sína á sundstaði landsins.
En á öllum Norðurlöndunum er
uppi mikil vakning í þessum efn-
um og þúsundir manna iðka þar
sund sér til heilsubótar, gagns og
gleði. Ekki er nokkur vafi á að hér
á landi er góður jarðvegur fyrir
slíkt skipulag, enda hefur sýnt sig
á undanförnum árum, að þegar
farið hefur verið útí almennings-
trimm í sundíþrótt hefur ekki
staðið á að fólk hefur heilshugar
tekið undir slíkt.
Það er því von SSI að á sumri
komanda þegar þetta fer í gang þá
taki fólk fljótt við sér og hefji upp
alsherjar heilsubótartrimm, sér til
aukinnar ánægju.
NÁMSKEIÐ O.FL.
Æfingabúðir fyrir sundlandslið
verður komið á í sumar svo sem
tilraun hefur verið gerð áður með.
Þjálfunarnámskeið í sundi og
sundknattleik er nú vel á veg
komið að skipuleggja í samráði við
fræðslunefnd ISI og verður innan
fárra daga auglýst hvenær þetta
fer í gang.
Haft hefur verið samband við
sundknattleiksmenn erlendis um
möguleika á að þeir komi upp til
íslands og leiðbeini sundknattleik-
mönnum okkar hér heima, um
nýjustu reglur í sundknattleik og
komi á dómaranámskeiði í þessari
vinsælu íþrótt.
LANDSLIÐ ÍSLANDS í SUNDI
Eftirtaldir sundmenn hafa verið
valdir til sameiginlegra æfinga
sem fyrsti kjarni þess hóps sem
valið verður svo úr til keppni á
erlendum vettvangi í sumar:
Ari G. Halldórsson ÍBR, Bjarni
Þ. Björnsson ÍBR, Brynjólfur
Björnsson ÍBR, Hafliði Halldórs-
son ÍBR, Halldór Kristiansen ÍBR,
Hugi S. Harðarson HSK, Ingi Þ.
Jónsson ÍA, Ingólfur Gissurarson
ÍA, SigmaF Björnsson IBK, Anna
F. Gunnarsdóttir ÍBR, Ólöf
Sigurðardóttir HSK, Margrét M.
Sigurðardóttir UMSK, Sonja
Hreiðarsdóttir ÍBR, Sólveig
Sverrisdóttir ÍBA Þórunn Alfreðs-
dóttir ÍBR, Þóranna Héðinsdóttir
ÍBR.
Þá verður vakið yfir því að aðrir
þeir sem í sumar ná umtalsverðum
árangri nái að komast inní þennan
kjarna íslenskra afreksmanna í
sundi.
Landsliðsnefnd r skipuð þeim
Hafþóri B. Guðmundssyni sem er
formaður, Ágústu Þorsteinsdóttur,
Þórði Gunnarssyni og Guðmundi
Þ. Harðarsyni. Sú nýbreytni var
tekin upp að fulltrúi frá landslið-
inu — sundmönnum — skipi einn
mann í nefndina og fyrir valinu
varð Bjarni Þ. Björnsson en lands-
liðsfólkið kaus hann sem sinn
mann í landsliðsnefnd SSÍ.
FJÁRÖFLUN - BASAR O.FL.
Allt þetta kostar töiuvert fé og
hefur hvarvetna verið tekið mjög
vel í að fjármagna þessi umsvif.
Sundfólkið sjálft lætur heldur
ekki sinn hlut eftir liggja og þeir
sem nú hafa verið valdir til æfinga
— Landsliðskjarninn — ætlar að
efna til mikillar BASARSÖLU í
Ármannsheimilinu við Sigtún
laugardaginn 7. apríl og sem hefst
þar kl. 13.00 og ætlar með henni að
fjármagna Kalottkeppnina. Þarna
verða til sölu á mjög vægu verði
fatnaður í þúsundatali, kökur,
ávextir og niðursuðuvörur í
hundraðatali og eru allir hvattir
til að koma þangað á laugardaginn
og styrkja með því hið unga
sundlandslið okkar um leið og þeir
verða sér úti um eigulega muni og
gómsætar kökur á gjafvirði.
Þá er í undirbúningi stofnun
STYRKTARSJÓÐS SSI og verður
í byrjun aprílmánaðar sent út til
allra velunnara sundíþróttarinnar
áskorun og reglugerð um markmið
þessa sjóðs.
I sumar verður svo sett í gang
merkjasala við öll sundmót og alla
sundstaði sem eingöngu er til
styrktar landsliði Islands í sundi
og er ekki að efa að margir munu
kaupa það merki sem boðið verður
til sölu á vægu verði og þannig
stuðla að eflingu sundíþróttarinn-
ar sem keppnisíþrótt.
Firmakeppni verður svo háð í
ágústmánuði.
Vestur-þýska landsliðið í knattspyrnu tapaði enn dýrmætu stigi í
Evrópukeppni landsliða, er liðið lék gegn Tyrkjum í Yzmir um
helgina. bað er skammt síðan Möltubúar settu knattspyrnuheiminn á
annan endann með því að ná jafntefli gegn bjóðverjunum og nú léku
Tyrkir sama leikinn, jafntefli varð 0—0.
Þrátt fyrir að Tyrkirnir lékju á heimavelli. lögðu þeir mesta áherzlu
á að fjölmenni væri fyrir í vörninni og reyndu þcir lítið að sækja.
Þjóðverjarnir voru því lengst af í sókn, án þess að ógna nokkurn
tímann verulega. Var leikurinn því leiðinlegur á að horfa. Ef
Þjóðverjar halda uppteknum hætti í riðli sínum, sem skipa auk þeirra
og Tyrkja, Malta og Wales, má segja að möguleikar Wales á því að
sigra riðilinn séu miklir. Wales og Vestur-Þýskaland ciga þó eftir að
leika báða innbyrðisleiki sína og ráða þeir auðvitað mestu um
framvindu mála.
Danir byrjaðir
að sparka bolta
BOLTINN er farinn að rúlla í Danmörku, en þeir eins og við hér á
Fróni, leika sinn fótbolta á sumrin. Þrír leikir fóru fram um helgina í
fyrstu deild og urðu úrslit sem hér segir:
KB—Hvidövre 2—0
Nestved—B-1901 3—2
Slagclse—Ikast 3—1
Þetta eru fyrstu leikirnir í deildinni og því lítið um stöðu efstu og
neðstu liða að segja. Heil umferð er á dagskrá um næstu helgi.
Framarar urðu sigurvegarar f 1. deild Islandsmótslns f körfuknattleik og leika því í úrvalsdeild næsta
vetur. Fremri röð f.v.: ómar Þráinsson, Björn Jónsson, Sigurjón Ingvarsson, John Johnson þjálfari,
Þorvaldur Geirsson. Aftari röð f.v.: Björn Magnússon. Sfmon ólafsson, Flosi Sigurðsson, Þórir Einarsson
og Guðbrandur Sigurðsson. (Ljósm.: ÁG)