Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
27
V;
Veglegt afmælismót
skíðadeildar KR
AFMÆLISMÓT skíðadeildar KR
í tilefni að 80 ára afmæli félags-
ins fór fram á skíðasvæði KR í
Skálafelli 17. og 25. mars.
í yngri flokkum 12 ára og
yngri voru þátttakendur auk
Reykjavíkurfélaganna frá
Akureyri og Húsavfk sem voru
auðfúsugestir og settu sinn svip á
mótið. Skíðadeild KR sá um fram-
kvæmd mótsins og að keppni
lokinni var þátttakendum fyrir-
liðum og starfsmönnum boðið tii
veitinga í skfðaskála KR. þar sem
verðlaun voru afhent auk sér-
stakrar þátttöku viðurkenningar
til allra keppenda.
Að því loknu bað formaður
skfðadeildar KR, Viggó
Benediktsson, fulitrúa þátttöku-
félaga fyrir kveðjur og afhenti
þeim sérstakan afmælisfána
deildarinnar, sem gjöf til félags
síns, þar sem nýtt félagsmerki
skfðadeildar KR er notað f fyrsta
sinn.
Helstu úrslit mótsins urðu
þessi:
STÚLKUR:
10 ára og yngri:
1. Kristín Ólafsd. KR 66,48
2. Arna ívarsd. AK 73,36
3. Gréta Björnsd. AK 90,94
11-12 ára:
1. Helga Stefánsd. ÍR 76,25
2. Bryndís ÝR Viggósd. KR 77,45
3. Tinna Traustad. Á 77,64
13—15 ára:
1. Þórunn Egilsd. Á 81,20
2. Bryndís Pétursd. Á 82,10
3. Marta Óskarsd. Á 82,63
DRENGIR:
10 ára og yngri:
1. Guðmundur Pálmas. Á 59,88
2. Sveinn Rúnarss. KR 66,72
3. Aðalsteinn Árnas. AK 68,74
11-12 ára:
1. Árni G. Árnas. HÚ 62,34
2. Guðmundur Sigurjónss.
AK 62,72
3. Ragnar Sigurðss. KR 64,24
13-14 ára:
1. Örnólfur Valdimarss. ÍR 75,30
2. Ásmundur Þórðars. KR 80,54
3. Árni A. Arason Á 81,17
DRENGIR 15-16 ÁRA:
1. Einar Úlfss. Á 68,25
2. Ríkharð Sigurðss. Á 68,27
3. Óskar Kristjánss. KR 72,48
KONUR
1. Steinunn Sæmundsd. Á 71,66
2. Halldóra Björnsd. Á 76,40
KARLAR:
1. Hafþór Júlíuss. ÍR 64,99
2. Árni Þ. Árnason Á 67,34
3. Trausti Sigurðss. Á 72,86
Hilmar og
Ted í
leikjabann
AGANEFND KKÍ dæmdi þá
Hilmar Ilafsteinsson UMFN í 4
leikja bann, og Ted Bee í 1 leiks
bann vegna framkomu þeirra í
leik Vals og UMFN. Þá var
UMFN gert að greiða 20.000 kr.
sekt til KKÍ.
-þr.
Firmakeppni
Hauka
Fyrirtækjakeppni Hauka í
innanhússknattspyrnu verður
haldin f Haukahúsinu við
Flatahraun á Skírdag 12. apríl
n.k. og laugardaginn 14. aprfl
n.k. Þátttökugjald er kr. 20.000
fyrir hvert lið. Þátttaka skal
tilkynnt í síma 53712, eigi síðar
en 6. aprfl n.k.
Knattspyrnufélagið Haukar.
Honum kippir í kynið þessum unga sveini, hann heitir Örnólfur
Valdimarsson og er sonur hins kunna skíðafrömuðs Valdimars
Örnólfssonar. Örnólfur sigraði í flokki 13—14 ára.
Einn af fjölmörgum ungum og efnilegum keppendum á mótinu. óiafur
Birgisson.
0 Jón Sigurðsson.
Jón
bestur
1 lokahófi
Körfuknattleikssambands
íslands.sem haldið var sfðastliðið
föstudagskvöld voru afhent
einstaklingsverðlaun fyrir afrek
unnin á nýafstöðu íslandsmóti.
Aðeins ein verðlaun voru veitt
erlendum leikmanni. Tim Dwyer
Val, en hann var valinn bezti
erlendi leikmaðurinn. Önnur
verðlaun voru bundin við
fslenzka leikmenn. Eftirtalin
verðlaun voru veitt af KKÍ:
Bezti leikmaður íslandsmótsins:
Jón Sigurðsson KR
Stigahæsti ísl. leikmaðurinn:
Kristinn Jörundsson ÍR
Bezta ísl. vítaskyttan: Jón
Jörundsson ÍR
Prúðasti leikmaðurinn:
Gunnar Jóakimsson KR
Bezti dómarinn: Kristbjörn
Albertsson.
Bezti erlendi leikmaðurinn:
Tim Dwyer Val
Þá veitti Körfuknattleiksblaðið
KARFAN tvenn verðlaun:
Körfukóngur: Jón Sigurðsson
KR
Bczti dómari: Kristbjörn
Albertsson.
• Naoki Murata.
0 Yoshikio Iura.
Frúarleikfimin
fjármagnar
þjálfarana
Á förum af landi brott eru tveir
japanskir júdómenn, sem starfað
hafa sem júdóþjálfarar hjá júdó-
deild Ármanns á undanförnum
misserum. Þeir I.eita Naoki Mur-
ata sem er 5.dan og Yoshihiko
Iura sem er 4.dan. Báðir eru þeir
háskólalærðir í fagi sínu og mjög
hæfir þjálfarar. Murata var hér
áður fyrir .fáeinum árum, fór
sfðan, en kom aftur til starfa. Að
þessum köppum meðtöldum hafa
þá starfað hér á landi 4 japanskir
þjálfarar á vegum Ármanns. Hin-
ir voru Kiyosh Kobayshi, sem er
7.dan og Nabuaki Yamamoto sem
er 5.dan. Starf þessara manna
hér á landi f þágu júdófþróttar-
innar hefur verið ómetanlegt,
bæði þar sem þeir hafa getað veitt
ungum júdómönnum viðeigandi
grunnþjálfun og ekki sfður vegna
þess að þeir hafa þjálfað innlenda
menn til að annast slfka þjálfun.
Það er þó erfitt fyrir júdómann
að sjá um þjálfun, því að þá kann
hans eigin þjálfun að verða ábóta-
vant. Því mun annar Japani vera
vætnanlegur fyrir næsta vetur til
júdódeildar Ármanns. Það segir
sig sjálft, að það er ekki gefið að
sækja þjálfara allar götur til
Japans. Fjármagn til þessa er að
sögn Ármenninga fengið úr rekstri
frúarleikfiminnar sem félagið rek-
ur.
Blaðamenn spjölluðu lítillega
við þá félaga Murata og Iura fyrir
skömmu. Létu þeir þess getið, að
Islendingar ættu efnilega júdó-
menn, gallinn væri bara sá, að því
færi fjarri, að þeir æfðu nógu vel
til þess að ná langt á alþjóðamæli-
kvarða. Æskilegast væri að æft
væri tvisvar á dag, en gott þætti
hérlendis ef ein æfing væri á dag
og hún mun styttri en Japanirnir
töldu æskilegt.
Murata hefur lagt mikla vinnu í
ritgerð nokkra sem fjallar um
júdóiðkun og -áhuga á Islandi. Er
blaðamenn fengu að kíkja í ritverk
Japanans, vakti athygli þeirra
skoðunakönnun sem Murata gerði
meðal 15 íslenskra stúlkna, hvers
vegna þær stunduðu júdó. Alls
kyns svör bárust frá stúlkunum,
en svör þriggja valkyrja vöktu
sérstaka og verðskuldaða athygli.
Þau voru nefnilega á þá leið, að
þær legðu stund á júdó vegna þess
að þær hefðu áhuga á að verða
sterkir slagsmálamenn!
I lok fundarins með hinum
japönsku þjálfurum barst í tal hin
nýja stórstjarna og helsta von
Japana í júdó. Sá heitir Jamasíta.
Fullyrtu Murata og Iura, að ekki
nokkur maður ætti möguleika
gegn kappanum. Jamasíta er í
hærra lagi, 1,80 metrar, en gæfu-
muninn gerir, að hann vegur 120
kíló, þannig að ef svo ólíklega fer
að einhver nái að koma á hann
bragði, leggst flykkið hreinlega
ofan á mótherja sinn í gólfinu og
er þá eins gott að sá léttari gefist
upp. Murata tjáði blaðamönnum,
að afi Jamasíta hefði séð um
uppeldið og fóðrað snáðann á
fiskimjöli. Hvort það væri lykill-
inn að kílóafjöldanum væri svo
annað mál. Hitt er staðreynd, að
gamli maðurinn agaði Jamasíta og
enn þann dag í dag mætir sá gamli
á hverja keppni hjá barnabarni
sínu og ávallt þegar kjöthleifurinn
japanski hefur skellt mótherja
sínum og sigrað hann, vappar
hann til afa síns og hneigir sig
fyrir honum, þakkar uppeldið og
ögunina.
Trimmmót
á skíðum
LAUGARDAGINN 7. aprfl n.k.
heldur Skiðadeild Fram trimm-
mót fyrir almenning í skíða-
göngu. Mótið verður haldið í
grennd við Bláfjallaskálann í
Kóngsgili. Keppt verður til vinn-
ings SKÍ merkisins, samkvæmt
reglum trimmnefndar SKÍ.
Gönguvegalengdir kvenna
verða 2, 3, 5 og 2,5 km, en karla 2,
3, 5 og 10 km eftir aldursflokk-
um.
Skrásetning fer fram við rás-
mark. Þátttökugjaid er kr. 500.
SKÍ merkið verður til sölu og
afhendingar fyrir vinningshafa
að göngu lokinni.
Trimmmót þetta er fyrsta skíða-
mót sem haldið er í grennd við
Reykjavík, sem fyrst og fremst er
miðað við þátttöku þeirra mörgu
skíðaiðkenda sem stunda skíða-
ferðir sér til ánægju og heilsubót-
ar. Þessu fólki gefst nú tækifæri,
til þess að vinna viðurkenningar-
grip fyrir íþrótt sína. Að þessu
sinni verður keppt um SKI merkið
úr bronsi. Næsta ár gefst þeim,
sem vinna bronsmerkið nú, kostur
á að vinna SKI-merkið úr silfri,
þarnæst úr emal og síðan gulli.
Tímalágmörk til vinnings brons-
merkisins eru mjög rúm, þannig
að flestir eiga að geta náð til-
settum tímum. Allar upplýsingar
varðandi tilhögun, reglur o.fl.
gefur Páll Guðbjörnsson í síma
31239.
Áætlað er, að mótið hefjist kl.
14.00 á laugardaginn hinn 7. apríl,
ef veður leyfir, annars verður því
frestað til sama tíma á sunnudag.