Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 2 9
- ----
Legg áherzlu
á ad sem f lest-
ir taki þátt í
flokksstarfi og
stefnumótun
— segir Steingrímur Hermannsson
Steingrímur Hermannsson var kjörinn formaður
Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi hans sl.
laugardag svo sem skýrt hefur verið frá í fréttum
Mbl. Blaðið átti samtal við Steingrím í gær og var
hann spurður hvað honum væri efst í huga þegar
hann hefði nú verið valinn til að gegna þessu starfi:
Steingrímur Hermannsson, nýkjðrinn formaður Framsóknar-
flokksins, og Ólafur Jóhannesson fráfarandi formaður.
Ljósm. RmiHa.
— Ég hef nú verið í flokks-
starfinu í mörg ár og sem ritari
í nokkur ár og mér þykir vænt
um þá samstöðu sem varð um
kjör mitt á fundinum. Það er
mér mikils virði og styrkir mig í
starfinu. En varðandi starf
formanns þá hlýtur hver
formaður að marka sín spor og
þó að ekki séu neinar stórbreyt-
ingar í vændum þá vildi ég mega
leggja höfuðáherzlu á að sem
flestir taki þátt í störfum og
stefnumótun flokksins og mitt
fyrsta verk verður að skipu-
leggja þannig starfshætti.
— Framsóknarflokkurinn er
tvímælalaust frjálslyndur
umbótaflokkur sem byggir á
frjálsu framtaki einstaklingsins
og samstöðu á félagslegum
grundvelli og það á ekki síður
við um þéttbýlið en dreifbýlið.
Mér finnst varhugavert að þeir
sem búi úti á landi séu klofnir
frá hinum sem búa í þéttbýlinu
og ég vil stuðla að því að
samskipti geti orðið þannig að
hvor aðilinn taki fullt tillit til
hins. Finnst mér t.d. líka verða
að móta stefnu flokksins með
ríkri hliðsjón af þörfum bænda
og þeir mega vissulega ekki
einangrast fremur en þéttbýlis-
fólk.
Steingrímur var spurður
hvort einhverjar breytingar
verði gerðar á ráðherra-
embættum Framsóknarflokks-
ins jafnframt formannaskipt-
um:
— Starfi flokksformanns
fylgir ekki endilega það að
gegna embætti forsætisráðherra
sé um það að ræða og það eru til
mörg fordæmi fyrir því að
flokksformaður Framsóknar-
flokksins hafi gegnt öðru
ráðherraembætti en forsætis-
ráðherra. Enda lít ég svo á, að
störf mín sem ráðherra og
formaður flokksins séu að vissu
ieyti aðskilin og ég vil starfa að
öllum málaflokkum jafnt, sem
flokkurinn tekur til meðferðar
— A flokksþinginu var sam-
þykkt lagabreyting sem gengur í
þá átt að auka þátttöku
almennra flokksmanna í starfi
flokksins og verður t.d.
formannskjöri háttað þannig að
það á að fara fram á flokksþingi
framvegis en ekki miðstjórnar-
fundi, en flokksþingið er
fimmfalt fjölmennara, en þetta
á einnig við um ritara og gjald-
kera. Við viljum reyna að starfa
í starfshópum eftir því sem það
er hægt og fá með því fram sem
flest sjónarmið og má t.d. nefna,
að varðandi efnahagsmál hefur
verið reynt að vinna á sem
breiðustum grundvelli, en þetta
væri æskilegt að gera í öllum
málaflokkum. Að öðru leyti vil
ég endurtaka að sem formaður
flokksins finnst mér æskilegast
að taka á öllum málum en gott
væri að komast burt frá þessu
kröfukapphlaupi og geta hugað
að innri stefnumálum og málum
eins og t.d. umhverfismálum og
betra mannlífi, sagði Stein-
grímur Hermannsson að lokum.
Álit minnihluta fjárhags- og viðskiptanefndar:
Frumvarpið rís ekki
undir að vera umgerð
um stióm efnahagsmála
NEFNDARÁLIT minnihluta
fjárhags- og viðskiptanefndar
efri deildar Alþingis á frumvarpi
forsætisráðherra um stjórn
efnahagsmála o.fl. var lagt fram
í gær. Nefndarálitið birtist hér í
heild, en tekið skal fram að
millifyrirsagnir eru settar inn í
álitið af Morgunblaðinu.
„Aðdragandi frv. þessa og
breytingartillagna meiri hl.
fjárhags- og viðskiptanefndar við
það er með undarlegum hætti. Á
þetta bæði við um það sem gerst
hefur utan þings og innan.
Núverandi ríkisstjórn var
mynduð til að leysa þann stjórn-
málavanda, sem stuðningsflokkar
hennar höfðu magnað að höfði sér
með óraunsæjum kosninga-
loforðum á s.l. sumri. I starfs-
lýsingu hennar kom fram, að ekki
var hugsað um efnahagsmál þjóð-
arinnar nema nokkra mánuði
fram í tímann og því heitið að
langtímastefna yrði birt síðar.
•Útþynnt og bragðdauft
Alþýðuflokksfrumvarp
Þær bráðabirgðaráðstafanir,
sem gripið var til í byrjun
september og desember s.l., urðu
annaðhvort til þess að fresta
vanda eða skapa nýjan. Ljóst er,
að stóraukin skattheimta og þær
millifærslur, sem stofnað hefur
verið til, hafa ekki megnað að
hamla gegn verðbólgunni og
árangur er mun minni í þeim
efnum en orðið hefði skv. febrúar-
og maílögunum 1978. Hið sama er
að segja um kaupmátt launa.
Ýmsir þingmenn Alþýðu-
flokksins létu sem þeim væri ljóst,
að ekki yrði sífellt undan því vikist
að móta alvörustefnu í efnahags-
málum og sýna hana í verki.
Uppruna þessa frv. má rekja til
þeirra, en þeir lögðu fram drög í
Alþýðublaðinu fyrir jól. Þótt þar
væri sumt sýndarmennska og
annað rangt, eins og enn er í
núverandi gerð frv., var um
nokkur snörp ákvæði að ræða
varðandi stjórn efnahagsmála,
kjaramál o.fl. I meðförum
ráðherranefndar, forsætisráð-
herra og nú síðast ýmissa einka-
ráðgjafa stjórnarflokkanna er
upphaflega gerðin orðin svo út-
þynnt og bragðdauf, að frv. leysir
engan vanda og ber úrræðaleysi
hæstvirtrar ríkisstjórnar órækt
vitni. Má með sanni segja að nú
taki steininn úr. Uppgjöf ríkis-
stjórnarinnar við mótun árangurs-
vænlegrar stefnu í efnahags-
málum er algjör. Jafnframt er
opinberað, svo að ekki verður um
villst, að verið er að knýja fram
kjaraskerðingu og taka þannig
aftur það, sem stjórnarliðið þóttist
veita s.l. haust til að kaupa sér
stundarfrið.
• Fyrstu 32 greinarnar
með öllu óþarfar
Fyrstu 32 greinar frv. í I,—VI.
kafla eru með öllu óþarfar. Er þar
fjallað um atriði, sem þegar eru
framkvæmd eða unnt er að
framkvæma án lagasetningar.
Sumar greinar eru hreinar stefnu-
yfirlýsingar eða loforð, sem ekki á
að setja Iagaákvæði um.
33.-46. gr. í VII. kafla og ákveði
til bráðabirgða í VI. kafla varða
verðtryggingu sparifjár og láns-
fjár. Nauðsynlegt er að endur-
skoða lagaákvæði, er varða þessi
málefni. Þetta væri eðlilegt að
gera með sérstakri lágasetningu.
Margr í þessum kafla frv. gæti
verið til bóta, þótt annað sé
varhugavert. Stefna sjálfstæðis-
manna erskýr í þessum málum.
Þeir hafa þegar á Alagt fram
tillögur um að gefa verðtryggingu
frjálsa og færa ákvörðunarvald
um kjör almennra útlána og inn-
lána frá Seðlabankanum til
viðskiptabanka, sparisjóða og
annarra fjármagnsstofnana. Þetta
yrði mun haganlegra í framvæmd
en sá máti, sem frv. gerir ráð fyrir.
• Endurkrafa á
hendur launþegum
VIII. kafli ber heitið „Verðbætur
á laun“. Hér er verið að setja
ákvæði um endurkröfu á hendur
launþegum vegna fyrri óráðsíu
stjórnarflokkanna. Hljóta þeir
einir að bera ábyrgð á slíkri
lagasetningu. Jafnframt er um
þann reginmun að ræða nú og á
Jöggjöf fyrrv. ríkisstjórnar í
febrúar ogrmaí á s.l. ári, að
kjarasamningar eru nú lausir. Auk
þess er með breytingartillögu
meiri hl. við frv. teknar aftur
þegar umsamdar grunnkaups-
hækkanir. Þetta eru miklu alvar-
legri afskipti af kjarasamningum
en skerðing verðbóta.
Sjálfstæðismenn telja eðlilegt
og sjálfsagt, að leið frjálsra samn-
inga um kaup og kjör sé reynd
áður en gengið er til lagasetningar
um þau atriði. Þeir telja einnig, að
taka eigi upp nýtt verðbótakerfi,
kjaravísitölu, þar sem hvorki sé
tekið tillit til óbeinna skatta né
niðurgreiðslna og miðað sé við
breytingu viðskiptakjara.
• Vafasamt ákvæði
54. greinar.
IX. kafli frv., um vinnumarkaðs-
mál orkar tvímælis svo að ekki sé
meira sagt. í þessu sambandi er
sérstök athygli vakin á vafasömu
ákvæði í 54. gr. um skyldu at-
vinnurekenda til að tilkynna með
tveggja mánaða fyrirvara ráðgerð-
an samdrátt, sem yrði mjög erfitt í
framkvæmd, ef ekki óframkvæm-
anlegt. Þess vegna leggst minni hl.
á móti 54. gr.
X. kafli um verðlagsmál, koll-
steypir þegar samþykktum lögum.
Minni hl. leggst því gegn þessum
kafla frv. Sjálfstæðismenn vilja að
lögin um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti komi sem fyrst til fram-
kvæmda.
• Ávísun á milljarða
króna útgjaldaaukningu?
60. gr. í XI. kafla. um Verðjöfn-
unarsjóð sjávarútvegsins, felur
ekki í sér marktæka breytingu.
Sjálfstæðismenn vilja, að Verð-
jöfnunarsjóður verði virkt hag-
stjórnartæki, þar sem farið verði
eftir verðlagi á erlendum markaði
og horfum í þeim efnum. XI. kafli
frv. fjallar að öðru leyti um Afla-
tryggingasjóð sjávarútvegsins. í
því sambandi er minni hl. andvíg-
ur því ákvæði 63. gr. að gefin séu
fyrirheit um víðtækar bætur, þeg-
ar draga þarf úr sókn til verndar
mikilvægum fiskstofnum. Hér
gæti verið ávísað á milljarða
króna útgjaldaaukningu með hlið-
sjón af þeim aðgerðum, sem þegar
hafa verið boðaðar, sbr. einnig
reglugerð sj ávarútvegsráðuneytis-
ins frá 27. mars s.l. Minni hl. telur
hins vegar eðlilegt að lög um
Aflatryggingasjóð séu endurskoð-
uð, en um það þarf ekki að kveða á
í lögum.
• Frumvarpið rís
ekki undir nafni
Frv. er ætlað að vera umgerð um
stjórn efnahagsmála o. fl. á næstu
árum. Það rís þó engan veginn
undir því nafni. Þar er t.d. sleppt
að minnast á jafnmikilvæga mála-
flokka og skattamál og gjaldeyris-
mál. Auk þess er sárafátt bita-
stætt í því um atvinnumál.
Minni hl. gerir ekki sérstakar
breytingartillögur við frv., þar
sem þvílíkt klambur getur ekki
verið uppistaða heilbrigðrar lög-
gjafar.
Frv. er einnig í mikilvægum
atriðum í andstöðu við þá stefnu
frjálshyggju sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur markað í efnahags-
málum.
Alþingi, 2. apríl 1979.
Jón G. Sólnes,
Ey. Kon. Jónsson, frsm.
Is frá miðjum
allt austur að
Breiðafirði
Kambanesi
ÍSINN rak hratt upp að landinu um
helgina og í gær voru ísjakar á reki
úti af miðjum Breiðafirði og frá
Kambanesi milli Breiðdalsvíkur og
Stöðvarfjarðar bárust fréttir um
spangir og staka jaka. Allt á milli
þessara tveggja staða var mikill fs
og hafnir víða lokaðar. Þannig var
Sigluvíkin um tvo tíma í gærkvöld
frá Ilafnarbryggjunni í Siglufirði
að öldubrjótnum, sem er yzta við-
legubryggjan. Lengra komst skipið
ekki og var það bundið við bryggju
eftir tveggja tfma barning þessa
stuttu leið.
Landhelgisgæzlan fór í ískönnun-
arflug í gær og var ástandið úti af
Vestfjörðum kannað, en könnunar-
fluginu hætt við Siglunes vegna þess
hve skyggni var slæmt. Isjakar voru
á reki um 20 mílur suður af Bjarg-
töngum og hefur ís ekki sést svo
sunnarlega þar í vetur. ísrek var frá
Bjargi að Isafjarðadjúpi og stórar
spangir í mynni ísafjarðardjúps.
Allar víkur voru fullar af ís frá
Straumnesi að Drangaskörðum.
Sem fyrr var ísinn þéttastur úti af
Norðausturhorninu. Til að mynda
var ís fyrir öllu mynni Vopnafjarðar
og ístunga inn miðjan fjörðinn. Frá
Kambanesi bárust þær fréttir að
spangir og stakir jakar væru rétt
utan við nesið og ræki ísinn hratt
suður og að landinu.
Að sögn Guðmundar Hafsteins-
sonar veðurfræðings er útlit fyrir að
í dag dragi úr vindi, en norðlæg átt
haldist áfram. Er jafnvel reiknað
með að norðanáttin haldist út alla
vikuna.